Þjóðviljinn - 22.06.1990, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 22.06.1990, Qupperneq 7
Bandaríkjahefmenn á vlgaslóð í Panama - við þá atburði fékk ótti Kúbana við hugsanlega bandariska innrás á eylandið þeirra byr undir vængi. inn að búa landa sína undir þetta með því að hvetja til sparpaðar og gefa jafnvel í skyn- að ef til vill verði að rýra einhvetja þætti vel- ferðarkerfisins. Stjóm hans leitast einnig við að auka viðskiptin við önnur riki og hefur Evrópu vestan Sovétrikja þá einkum í huga. Kúbanska stjómin er þannig á- fram um að viðhalda viðskipta- samböndunum við Austur-Evr- ópuríkin, ekki síst með það fyrir augum að komast gegnum þau sambönd inn fyrir dyr á því „sam- evrópska heimili,” sem nú er svo mjög á döfinni. Umskipti þau, sem kúbanska stjómin kvað stefna að, þurfa ekki að koma mjög á óvart, að öllu at- huguðu. Þegar Castro kom til valda var hann ekki kommúnisti, en varð það sumpart vegna slæmrar reynslu af lýðræðis- stjómum, sem Kúbanir höfðu annað veifið haft yfir sér og reyndust ekki síður spilltar en einræðisherramir. Öðmm þræði knúðu Bandaríkin Castro til sinnaskipta með því að setja við- skiptabann á Kúbu, en það varð til þess að hann varð að leita á náðir Sovétríkjanna, stjóm sinni til bjargar og til þess að hafa ein- hveija möguleika á að koma um- bótafyrirætlunum sínum í verk. 1958 vom yfir 70 af hundraði ut- anríkisviðskipta Kúbu við Banda- ríkin; 1963 vom yfir 80 af hundraði þeirra viðskipta eyríkis- ins við Sovétríkin og önnur ríki undir stjóm kommúnista. r Iran 25.000 taldir af eftir jarðskjálfta Jarðskjálfti olli í fyrrinótt (samkvæmt staðartíma) gíf- urlegu tjóni í fjallahéruðum norðvestur af Teheran, höfuð- borg írans, og suðvestur af Kaspíhafi. Haft var í gærkvöldi eftir írönskum stjórnartals- manni að vitað væri að um 25.000 manns hefðu farist, en líklegt er að fjölmargt fólk hafi þá enn legið undir rústum hruninna húsa, látið eða slasað. Mest varð tjónið í héraðinu Zanjan, en einnig varð gífurlegt tjón í Gilanhéraði þar nálægt. Að sögn íranska sjónvarpsins hmndi borgin Roudbar í Zanjanhéraði að Splundra Indíánar Kanada? Forystumenn Indíána afsegja nú að samþykkja stjómarskrár- breytingu þá er Mulroney forsætis- ráðherra beitir sér fyrir. Einum þeirra, Elijah Harper, hefur tekist með því að benda á formgalla í meðferð málsins að tefja afgreiðslu þess á þingi Manitoba. Samningur fylkisforsætisráð- herranna og Mulroneys um stjóm- arskrárbreytinguna verður að fá staðfestingu allra kanadísku fylkj- anna fyrir 23. þ.m. - morgundaginn - ef hann á að ná fram að ganga, samkvæmt áður gerðu samkomu- lagi. Samkvæmt breytingunni fær Quebec meiri sjálfstjóm en hin fylkin, og er svo látið heita að það eigi að vera til vemdunar franskri tungu þess og menningu. En indí- ánar benda á að þeir njóti engrar slíkrar viðurkenningar á menning- arlegri sérstöðu sinni, enda þótt óumdeilt sé að þeir séu upphaflegir íbúar landsins og hafi verið þar mörg þúsund ámm á undan bæði ensku- og frönskumælandi löndum sínum. Fáist fyrmefnd sérstaða Que- bec ekki viðurkennd í stjómarskrá, em líkur taldar á að íylki þetta segi sig úr Kanada. mestu til gmnna við skjálftann og er talið að um 5000 manns þar og í nágrenni hafi farist eða slasast. Skjálftinn náði norður í Sovét- Aserbædsjan og til Teheran og í borginni Qasvin, rúmlega 100 km norðvestur af höfuðborginni, fór- ust um 90 manns. Skjálftinn mældist 7,3 stig á richterskvarða og varð klukkan 12.31 í fýrrinótt, samkvæmt stað- artíma, en kl. 21.01 á miðviku- dagskvöld samkvæmt Green- wich-meðaltíma. Um 12 tímum síðar varð á sama svæði annar jarðskjálfti, er mældist 6,5 stig á richterskvarða. Hémð þau, sem skjálftinn lék verst, em fjöllótt og djúpir dalir, þar sem ræktað er hveiti og vínviður, milli fjalla. Er þetta eitt helsta komræktarsvæði Irans. Jarðskjálftinn olli miklum skriðufollum og munu tugir ef ekki hundmð sveitaþorpa hafi grafist undir skriðum að meira eða minna leyti. Eftirskjálftar hafa torveldað björgunarstarf og einnig það að skriðuíoll hafa víða lokað vegum. Að sögn þarlendra heimildarmanna hafa fjallshlíðar sumsstaðar í heilu lagi hmnið yfir dali og vegi. Björgunarmenn fóm á svæðið í þyrlum. Iransstjóm hefur lýst yfir neyðarástandi og þriggja daga þjóðarsorg og beðist hjálpar erlendis frá. Mest er þörf- in sögð vera á lyfjum, sjúkra- gögnum og tjöldum, en einnig er að sögn UNDRO, stofnunar á vegum Sameinuðu þjóðanna sem hefur það hlutverk að bregðast við áfollum sem þessu, þörf á niðursoðnum mat, teppum, fatn- aði, ökutækjum, grafiólum o.fl. Af fréttum í gærkvöldi að dæma hefur jarðskjálfti þessi ver- ið álíka skæður og annar sem varð 1978 í smáborginni Tabas og nágrenni hennar, í Iran austan- verðu á suðurjaðri eyðimerkur- innar Dasht-e-Kavir. Þar fómst um 25.000 manns. Ferðaþiónusta Erum við að verða fagmenn? etta lítur mjög vel út og það er engan barlóm að finna í þessum verbúðum,” sagði Kjartan Lárusson forstjóri Ferðaskrifstofu íslands, þegar hann var inntur eftir því hvern- ig útlitið væri í sumar, hvað varðar erlenda ferðamenn. Þótt flestir búist við mikilli aukn- ingu ferðamanna hingað til lands í sumar, eru ekki allir á því máli. Paul Richardson framkvæmdastjóri Ferðaþjón- ustu bænda sagði að síðastliðin Þrjú ár hefðum við staðið í stað hvað varðar fjölda ferða- manna. „Það hefur orðið al- menn aukning í ferðalögum I Evrópu og það er alveg eins hér. Við skerum okkur ekkert úr hvað það varðar,” sagði Paul. Verður 1990 metár? Talað er um að árið í ár verði algert metár og erlendir ferða- menn flykkist hingað þúsundum saman. I fyrra komu hingað 130.503 erlendir ferðamenn og margir búast við að enn fleiri komi núna. Kjartan Lárusson vildi taka þessu með varúð. „Maður heyrir þessar metyfirlýs- ingar ungra og glaðhlakkalegra manna sem fá glýju í augun á á- lagspunktum, en ég er ekki alveg sammála. Það er vissulega margt sem gæti stuðlað að því, og auð- vitað vona ég hið besta, en rekst- ur ferðaþjónustu er eins og kosn- ingar. Það veit enginn endanlega niðurstöðu fyrr en búið er að telja upp úr kössunum. Það er þess vegna futlsnemmt að staðhæfa að þetta ár verði metár,” sagði Kjart- an. Byrjunin lofar góöu Byijun vertíðarinnar er samt sem áður mjög góð. Sem dæmi má nefna að í maí sl. komu hing- að til lands 11.569 erlendir ferða- menn, og það er rúmlega 15% aukning frá því í fyrra. Paul Rjc- hardson taldi að það mætti hugsa sér að fjöldi ferðamanna í ár yrði samtals 135.347, sem er fram- reiknuð tala miðað við í fyrra. Þó bæri að taka þessari tölu með fyr- irvara. Þrátt fyrir það að margir efist um hið svokallaða metár, segja bókanir á hótel og í ferðir sitt. Á öllum þeim stöðum sem hýsa er- lenda férðamenn var sömu sögu að segja. Bókanir eru fleiri en nokkru sinni. Sums staðar var allt fúllt út sumarið. Þær upplýsingar fengust hjá Samvinnuferðum/ Landsýn að hringferðir á þeirra vegum um landið væru uppbók- aðar, ferð eftir ferð. „Við búumst við að taka á móti um 10.000 manns,” sagði Hildur Jónsdóttir deildarstjóri innanlandsdeildar Samvinnuferða. „Horfumar í sumar eru mjög góðar. Sem dæmi get ég nelht að það koma hingað 7 skemmtiferðaskip á okkar veg- um með farþegafjölda á bilinu 300-600 hvert skip. í fyrra var metár hjá okkur, en það horfir mun betur nú,” sagði Hildur. í BRENNIDEPLI Hvað veldur þessari aukningu? Kjartan Lámsson sagði þrennt aðallega valda þessari aukningu erlendra ferðamanna hingað. „I fyrsta lagi hafa erlendar ferða- skrifstofur áttað sig á þvi að ís- land er ekki nándar nærri eins dýrt og það hefur verið undanfar- in ár. I öðm lagi er ástæðan mikil sölumennska og mjög mikil á- hersla á sölu- og markaðsmál er- lendis. Það hefúr töluvert mikið að segja. Og i þriðja lagi, og sennilega það mikilvægasta, Is- land er yndislegt, sama hvað hver segir,” sagði Kjartan. Hildur Jónsdóttir taldi þessa miklu aukningu vera vegna mark- vissrar markaðssetningar, bæði á vegum ferðaskrifstofa og ferða- málayfirvalda. Aðspurður um hvort íslend- ingar væru orðnir fagmenn í ferðamannaiðnaðinum, sagði Kjartan að töluvert vantaði upp á það. Það væru bæði góðar og slæmar hliðar á því máli. „Það er gamall og góður siður hjá Islend- ingum að taka vel á móti gestum og við eigum að veita þá þjónustu sem við best getum og þá eins faglega og unnt er. Hins vegar er ágætt að við skulum ekki vera orðnir mjög miklir fagmenn, því þá verður þróunin kannski aðeins hægari en hún gæti ella orðið. Og sígandi lukka er farsælust í þessu sem öðru,” sagði Kjartan. Hvaðan koma ferðamennirnir? Flestir þeirra erlendu ferða- manna sem hingað koma í ár, virðast vera frá Frakklandi, Þýskalandi, Bretlandi og Sviss. í- tölum fjölgar þó nokkuð og svo eru það Norðurlandabúar. Sér- staklega eru þeir Qölmennir á ráð- stefnur, sem verða nokkuð margar í sumar. Þá eru Ástralíubúar að sækja í sig veðrið og eru að byrja að fara í ferðalög hingað norður. Hins vegar hefur Bandaríkja- mönnum fækkað töluvert. Ef hugsað er um hvað þessir erlendu ferðamenn gefa af sér í gjaldeyri, þá jukust gjaldeyris- tekjur af seldri þjónustu um 203 miljón krónur árið 1989 miðað við árið á undan. Og þegar skoð- að er hvað við íslendingar eydd- um eriendis, þá voru það 10.406 miljónir króna 1989, sem eru 750 miljón krónum minna en árið á undan. Þetta þýðir að við öfluðum 127 miljónum meira en við eydd- um erlendis. Landvemd Það þýðir hins vegar ekki bara að hugsa í peningum, við verðum að vemda landið okkar. Þótt það stefni í metár nú og ferðamenn verði aldrei fleiri, verða ekki gerðar neinar sérstakar ráðstafan- ir hvað náttúruvemd snertir. Þór- oddur Þóroddsson ffamkvæmda- stjóri Náttúmvemdarráðs, sagði að það væri hreinlega ekki fjár- hagslegt svigrúm til sérstakra ráð- stafana. „Við gáfum út bækling um akstur utan vega og hvemig umgangast eigi landið, og við vonum að menn taki mark á hon- um. Hins vegar em erlendir ferða- menn ekkert verri en íslenskir, þannig að það er alveg eins á- stæða til að fræða íslendinga um landið,” sagði Þóroddur. ns. NÝTT HELGARBLAÐ — SlÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.