Þjóðviljinn - 22.06.1990, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 22.06.1990, Blaðsíða 10
FRETTIR Síldarvinnslan Tap vegna loðnubrests Rúmlega 35 miljón króna tap ífyrra. Hagnaður þrjú árin þar á undan Rúmlega 35 miljón króna tap varð á rekstn Sfldarvinnsf- unnar hf. í Neskaupstað í fyrra en þrjú ár þar á undan varð hagnað- ur á rekstri fyrirtækisins. Heildarveltan var tæpar 1.900 Frá áramótum til maíloka var heildaraflinn orðinn 932.600 tonn en á sama tímabili í fyrra var hann 945.400 tonn. í maí var heildarafli landsmanna 74.407 tonn en það er um 2 þúsund tonn- um minni afli en í maí í fyrra. Þetta kemur fram í bráða- birgðatölum Fiskifélags íslands. Ef einstaka tegundir eru skoðað- ar kemur í ljós að þorskur í aflan- um er um 5 þúsund tonnum meiri, ýsa 3.500 tonnum meiri, miljónir króna. Þetta kom fram á aðalfundi fyrirtækisins sem hald- inn var fyrir skömmu. Á fundinum kom fram að hagnaður fyrir afskriftir og fjár- magnskostnað nam 210 miljón- ufsi 3.900 meiri, karfi 730 tonn- um meiri, skarkoli 300 tonnum meiri, annar botnfiskur 580 tonn- um meiri, rækja 160 tonnum meiri, hörpudiskur 247 tonnum meiri og humar 213 tonnum meiri. Af þeim tegundum sem minna hefur verið veitt af munar mest um mun minni grálúðuafla eða sem nemur um 16.300 tonnum og þá var steinbítsaflinn 230 tonnum minni. -grh um króna. Að teknu tilliti til af- skrifta, fjármagnskostnaðar og sölu eigna var tap á rekstrinum. Hinsvegar var 10,2 miljón króna hagnaður af rekstri fyrirtæksins árið 1988. Finnbogi Jónsson fram- kvæmdastjóri Sfldarvinnslunnar segir að helsta ástæðan fyrir því að tap varð á rekstri fyrirtækisins á síðasta ári hafi verið sú að loðnuvertíðin brást fram að ára- mótum. Af þeim sökum hafi orð- ið tap á útgerð loðnuskipa og loðnuverksmiðju. Aftur á móti var hagnaður af botnfiskveiðum og vinnslu. Að meðaltali störf- uðu um 420 manns hjá þessu stærsta fyrirtæki þeirra Norðfirð- inga og heildarlaunagreiðslur fyrirtæksins námu alls 550 milj- ónum króna. Varðandi reksturinn á þessu ári sagði Finnbogi að hann mundi ráðast að miklu leyti hvernig loðnuvertíðin yrði á komandi vertíð. Hinsvegar væri vinnsla og veiðar á botnfiski ákveðin stærð og njörvuð niður í kvótanum. Finnbogi ságði að þær hækkanir sem hafi orðið á verði frystra afurða á erlendum mörkuðum vega aðeins upp í þann mismun sem varð þegar hætt var að greiða verðbætur á freðfiskinn úr Verð- jöfnunarsjóði fiskiðnaðarins. Á árinu 1989 nam heildarfjár- festing Sfldarvinnslunnar um 260 miljónum króna og vegur þar mest fjárfesting í fiskiskipum eða um 210 miljónir króna. Þar vegur þyngst kaup fyrirtæksins á skut- togaranum Júlíusi Geirmunds- syni frá ísafirði, nú Barðanum NK, og gagngerar endurbætur sem unnar voru á togaranum Bjarti í Slippstöðinni á Akureyri. Þá fól aðalfundurinn stjórn Sfldarvinnslunnar að vinna að því að auka hlutafé fyrirtækisins á þessu ári. ~grh Sónata fyrir einleiksfiðlu Nýlega er út komin sónata fyrir sólófiðlu eftir Hallgrím Helga- son. Mun þetta vera fyrsta tón- verk þeirrar tegundar, sem prent- að er hérlendis. Sónatan er tileinkuð kanadíska fiðluleikaranum Howard Leyton-Brown, sem oft hefir leikið hana á konsertum, m. a. við Ann Arbor háskólann í Michig- an, er hann þar hlaut doktors- gráðu við músíkdeildina; og að hans ósk var verkið upphaflega samið. Hann hefur einnig annast fingrasetningu og boganotkun eða fraseringu. Björn Ólafsson spilaði verkið sömuleiðis og gerði því mjög góð skil í ágætum flutningi, þar að auki fiðluleikarinn Börge Hil- fred. Aðalútsala er hjá forlaginu Öm og Örlygur, Síðumúla 11, en þar eru auk þess fyrirliggjandi um 70 önnur verk höfundar. Fiskifélagið Samdráttur í afla islenska jámblendilélagið hf. Gæðastjórnun íslenska járnblendifélagiö hf. auglýsir eftir starfsmanni til að koma á fót og þróa kerfi til qæðaeftirlits og gæðastjórnunar skv. alþjóða- staðli ISO 9001. Umsækjendur þurfa m.a. að: - hafa gott vald á ensku og einu Norðurlanda- máli, gjarnan norsku - hafa menntun í raungreinum - hafa þekkingu á og reynslu í að vinna við einmenningstölvur - geta unnið sjálfstætt - eiga auðvelt með að tjá sig - hafa gjarnan reynslu í kennslu og námskeiðs- haldi. Nánari upplýsingar veita Jón Hálfdanarson og Sigtryggur Bragason í síma 93-20200. Allar umsóknir skulu hafa borist íslenska járn- blendifélaginu hf. eigi síðar en mánudaginn 23. júlí nk. Vopnafjörður Sveitarstjóri Starf sveitastjóra Vopnafjarðarhrepps er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 15. júlí. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist oddvita Vopnafjarðarhrepps Lónabraut 41. Sími 97-31108. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Jónsmessu-sumarferd Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík um Snæfellsnes Dagskrá sumarferðar ABR 23. - 24. júní n.k. Verð kr. 2.800.- Bfll + gisting í svefnpokaplássi. Laugardagur 23. júní Lagt af stað frá Hverfisgötu 105 kl. 10.00. Ekið sem leið liggur vestur í Staðarsveit. Séra Rögnvaldur Finn- bogason, sem tekur á móti okkur á Staðastað segir frá ferð sinni til Palestínu. Undir leiðsögn Skúla Alexanderssonar ökum við svo yfir jökul. Gist verður að Gimli á Hellissandi. Sunnudagur 24. júní Hress og endurnærð förum við frá Hellissandi kl. 10.00. Félagar frá Grundarfirði koma til móts við okkur og segja frá sínum kenni- leitum. Við kveðjum þá í Berserkjahrauninu og höldum heim og verðum í Reykjavík kl. 16.00 - 18.00. Takið með hlý föt og nesti, svefnpokann, söngbækur og góða skapið. Tekið á móti pöntunum í ferðina á skrifstofu ABR, síma 17500, hjá Guðrúnu B. síma 25549 eða Guðrúnu Ó. síma 15874/681150 tll hádegls á föstudag 22. júní. Ferðanefnd ABR Laugardagur 30. júní kl. 9.00 Framhald stjórnmálaumræðna. 3. Flokksstarfið - Undirbúningur Alþingiskosninga. 4. Sjávarútvegsmál. 5. Landbúnaðarmál. 6. Önnur mál. Um kl. 16 á laugardag verður gert hlé á fundarstörfum og farið í heimsókn til Neskaupstaðar. Þar verður staðurinn skoðaður og kvöldinu síðan eytt i boði heimamanna. Sunnudagur 1. júlf kl. 10.00 Framhald umræðna Afgreiðsla mála. Fundi lýkur eigi síðar en kl. 15.00. Að loknum fundi á sunnudag býðst fundarmönnum að fara í skoðunarferð um nágrennið. Flug og gisting Ferðamiðstöð Austurlands hf. sér um skránlngu í flug til Eg- ilsstaða og í gistingu. Nauðsynlegt er að miðstjórnarmenn skrái sig sem fyrst og í síðasta lagi 25. júnf. Síminn í Ferðamiðstöð Austurlands er 97-12000. Steingrímur J. Sigfússon formaður mlðstjórnar Alþýðubandalagsins Úr einni sumarferð AB á Austurlandi. (Ljósm. H.G.) Alþýðubandalagið á Austurlandi Oddviti Vopnafjarðarhrepps VEISTU ... að aftursætið fer jafnhratt og framsætið. SPENNUM BELTTN hvar sem við sitjum í bílnum. /jj^\ yUMFERÐAR RÁÐ Alþýðubandalagið Suðurlandi Fundur kjördæmisráðs og fulltrúa í miðstjórn Alþýðubandalagsfé- laganna á Suðurlandi verður haldinn á Selfossi, í húsi Alþýðu- bandalagsins, föstudaginn 22. júní kl. 18. Fundarefni: Miðstjórnarfundur Alþýðubandalagsins á Egilsstöð- um um mánaðamótin. Áríðandi að allir komi. Stjórn kjördæmisráðs Fundur miðstjórnar Alþýðubandalagsins haldinn á Egilsstöðum dagana 29. júní til 1. júlí næstkomandi Föstudagur 29. júní kl. 20.30 1. Fundurinn settur í húsakynnum Menntaskólans á Egilsstöðum 2. Stjórnmálaumræður 2.1. Störf ríkisstjórnarinnar / Árangur í efnahagsmálum. 2.2. Úrslit sveitarstjórnarkosninga / Stjórnmálaástandið staða flokksins. Sumarferð laugardaginn 7. júlí 1990 um Reyðarfjarðarhrepp hinn forna Búðareyri - Hólmanes - Eskifjörður - Breiðavík - Vöðlavík Rútur leggja af stað sem hér segir: ★ Frá Egilsstöðum (Söluskála KHB) kl. 09.00. ★ Frá Neskaupstað (Söluskála Skeljungs) kl. 08.30. ★ Frá Breiðdalsvík (Hótel Bláfelli) kl. 08.00. Safnast verður saman undir Grænafelli innst í Reyðarfirði kl.09.30 á laugardagsmorgni. Skoðaðar minjar um herstöðvar á Reyðar- firði, gengið um friðland á Hólmanesi, litið á sjóminjar á Eskifirði, silfurbergsnámu við Helgustaði, heimsóttur einokunarkaupstaður á Útstekk við Breiðuvík og ekið um Víkurheiði til Vöðlavíkur. Ferðalok um kl. 19. Staðkunnugir leiðsögumenn (Helgi Seljan, Hilmar Bjarnason o.fl.) lýsa söguslóðum og náttúru. Fararstjóri: Hjörleifur Guttormsson. Þátttakendur skrái sig sem fyrst hjá Ferðamiðstöð Austur- lands, Egilsstöðum, sími 12000. Hafið meðferðis nesti og gönguskó. Allir velkomnir. Kjördæmisráð AB 10 ?ÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 22. júní 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.