Þjóðviljinn - 22.06.1990, Blaðsíða 11
Ókeypis veiöi í einn dag
Veiðidagur fjölskyldunnar er á sunnudaginn. Frí veiði í fjölmörgum
vötnum allt í kringum landið
Helgarveðrið
VeöriA á laugardag og sunnudag: NA-átt um allt land og vlðast 4-5 vlndstig.
Súld eða rigning um norðanvert landið, enn annars þurrt. Hiti 6-16 stig.
Veiðidagur fjölskyldunnar verð-
ur næsta sunnudag, 24. júní.
Undanfarin sex ár hafa stang-
veiðifélög vítt og breitt um landið
og ýmsir þeir sem hafa yfir veiði-
vötnum að ráða boðið fóiki upp á
að renna frítt fyrir silung um
dagsstund, en það er Landssam-
band stangveiðifélaga sem stend-
ur fyrir uppátækinu.
Að baki hugmyndinni um
Veiðidag fjölskyldunnar býr sú
hugmynd að háir sem lágir drífi
sig í veiðitúr og njóti þess að
renna fyrir gómsætan vatnafisk
eina dagsstund.
Að þessu sinni verður
mönnum boðið upp á að renna
ókeypis fyrir fisk í einum 20
vötnum.
Af hálfu Landssambands
stangveiðifélaga og einstakra að-
ildarfélaga þess er mönnum boð-
ið til veiði í eftirfarandi vötnum:
Þingvallavatni að norðanverðu
á veiðisvæði Kárastaða, Heiða-
bæja og þjóðgarðsins, Elliða-
vatni, Seltjörn, Geitabergs-,
Glammastaða- og Eyrarvatni í
Svínadal, Langavatni, Vatna-
hverfisvötnum rétt norðan
Blönduóss, Vesturósi Héraðs-
vatna, Miklavatni í Fljótum og
Ljósavatni í Ljósavatnsskarði.
Þá bjóða bændur og Ferða-
þjónusta bænda einnig upp á fría
veiði í nokkrum vötnum:
Vatnsholtsvötnum í Staðar-
sveit, Vatnsdalsvatni á Barða-
strönd, Torfastaðavatni í Mið-
firði, Höfðavatni á Höfðaströnd,
Ljósavatni í Ljósavatnsskarði,
Langavatni í Suður-
Þingeyjarsýslu, Þorbjörnsvatni í
Jökulsárhlíð, Víkurflóði skammt
frá Kirkjubæjarklaustri og
Heiðarvatni í Mýrdal. -rk
Veiðidagur fjölskyldunnar
Þingvallavatn: Fyrir landi Þjóðgarðsins, Kárastaða og Heiðabæja
Norðlensk
sveifla
í víking
Annað kvöld klukkan átta hefst
fjölbreytt fjölskylduskemmtun í
Norræna húsinu í tilefni
Jónsmessunnar. Léttsveit Húsa-
víkur og Söngsveitin NA 12 frá
Húsavík munu létta lund við-
staddra ásamt félögum úr Fære-
yingafélaginu, Gretti Björnssyni
harmonikkuleikara og norskum
kór. Kvartett Görans Palm frá
Svíþjóð leikur síðan fyrir dansi.
Húsvíkingarnir verða einnig með
tónleika sem hefjast klukkan
fjögur.
A sunnudag halda Léttsveitin
og Söngsveitin NA 12 síðan til
Englands þar sem tónlistarfólkið
frá Húsavík mun halda fjölda
tónleika í skólum og íþrótta-
klúbbum. Grétar Sigurðsson,
éinn Léttsveitarmanna, sagði
Þjóðviljanum að tónlistarfólkið
hefði sett sér það sem markmið
að fara til Englands til tónleika-
halds, til þess að halda uppi dam-
pi í starfinu. Það væri mikið fé-
lagslegt átak að halda uppi svo
öflugri tónlistarstarfsemi og því
nauðsynlegt að hafa eitthvað til
að stefna að.
Það er Bretinn Norman H.
Denis sem stjórnar Léttsveitinni
en Bandaríkjamaðurinn David
Thomson stjórnar kórnum. Grét-
ar sagði fyrrum stjórnanda
Söngsveitarinnar Sundy Mills
eiga hugmyndina að tónleikaför
um England, og mun hann verða
fararstjóri húsvíska tónlistar-
fólksins í Englandi. En allir þessir
útlendingar hafa verið við tónlist-
arkennslu á Húsavík á undan-
förnum árum. í Léttsveitinni eru
fimmtán hljóðfæraleikarar en í
kórnum eru tólf söngvarar.
Á Jónsmessuhátíðinni í og við
Norræna húsið er lögð áhersla á
að öll fjölskyldan geti skemmt sér
saman. Félagar úr Færeyingafé-
laginu munu leiða færeyskan
dans. í upphafi Jónsmessuhá-
tíðarinnar verður reist maistöng
og bál tendrað klukkan tíu.
Dansað verður í kring um stöng-
ina og farið í ýmsa leiki með
börnunum. Þá verður fjölda-
söngur og ýmislegt fleira gert sér
til skemmtunar.
Pylsur og aðrar veitingar verða
seldar í Norræna húsinu. Að-
gangur er ókeypis og allir vel-
komnir.
-hmp
NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 11
ÆGIR
EYJASLOÐ 7 - SIMI 62-17-80
• fyrir allar árstiðír
• allur hugsanlegur útbúnaður
í vagnínum
• reístur á 15 sek.
SEGLAGERÐIN
• Opíð allat
helgar í
sumar
UM HELGINA
LA.UGARDAG KL. 11-16, SUNNUDAG KL. 12-16
TJALDVAGNARNIR KOMNIR
TJALDVAGNAR
Innifalið í verði vagnsins er:
Stórt fortjald
Botn í fortjald
Eldavél með 3 hellum
Gasjafnari # gardínur
Borð • varadekk
TOP VOLUME
SUMAR
SÝNING