Þjóðviljinn - 22.06.1990, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 22.06.1990, Blaðsíða 15
endur hans er sennilega að finna meðal karlmanna sem fæddir eru á bilinu 1945-55. Þetta voru eink- um ungir námsmenn og listamenn sem höfðu hrifist af rokktónlist en vildu gjaman krydda hana með hrokafullri þjóðfélagsgagnrýni og arfi bókmennta og lista. Margir þeirra dýrkuðu hann jafnvel sem guð og vitnuðu til hans í tíma og ótíma. Dylan bæði naut þessa og óttaðist. Aðdáendur gera jú alltaf tilteknar kröfúr til átrúnaðargoða sinna og það var ekki síst til að hrista af sér þessar kröfúr sem Dylan skipti svo ofi um stíl og hvatti menn til sjálfstæðrar hugs- unar: „You don’t need a we- atherman to tell you where the wind blows.” Á þessum hröðu árum, fram til 1966, hélt Dylan sig einkum í New York, þar sem framúrstefnu- list og rokktónjist kraumuðu í sama pottinum. 1 þessu umhvarfi var hann annar helsti miðpunktur- inn og átti töluvert samneyti við hinn, sem var Andy Warhol og furðuíúglagerið í kringum hann. Reyndar átti Dylan í sögulegu ástarsambandi við helstu gyðju Warhol-safnaðarins, fyrirsætuna og leikkonuna Edie Sedgwick og hún taldi sér trú um að þau ætluðu sér að giflast, en frétti svo utan að sér að hann hefði gifst Söru Lowndes. Miklar deilur hafa staðið um það meðal poppfræðinga hvort hin stórfenglegu ástarljóð Dylans frá þessum árum eru ort til Söru, Edie eða Joan Baez sem Dylan hafði átt í löngu ástarsambandi við. Ævisagnaritarinn Scaduto hefur þó sett fram sennilegustu skýringuna, sem sé að öll þessi ljóð fjalli í raun um Dylan sjálfan, enda sé hann eina persónan sem hann hafi getað elskað. Vegna snilldar sinnar fýrirgafst honum frá unga aldri hrokafull og sjálf- hverf framkoma og aðdáendahirð hans lærðist fljótt að láta það vera að gagnrýna hann. Dylan vandist aðdáun svo snemma að honum þótti hún sjálfsögð. Hann kunni bara eina aðferð til að reyna við konu á þessum árum. Hann settist við fótskör hennar, hvort sem það var í einrúmi eða í partíi, skrifaði tugi eða hundruð ljóðlína og hélt því fram við konuna að innblást- urinn væri frá henni kominn. Það liggur í hlutarins eðli að Það er við hæfi að taka nú saman, í hvaða skilningi Bob Dylan telst frumkvöðull í dægur- lagatónlist sjöunda áratugarins. í fyrsta lagi ruddi hann hinni hrárri og blúskenndari tegund þjóð- lagatónlistar braut með fyrstu plötum sínum. I öðru lagi varð hann fánaberi beinskeyttra á- deilusöngva með lögum á borð við Biowing in the wind og Times they are a-changin’. í þriðja lagi ruddi hann vandaðri texta- eða ljóðasmíð braut inn i dægurlög með sídýpkandi ljóðum sem túlk- uðu tíðarandann betur en nokkur önnur orð um miðjan 7. áratug- inn. I fjórða lagi átti hann ríkan þátt í að fella bestu eigindir rokksins og þjóðlagatónlistarinn- ar saman í svonefndu þjóðlag- arokki og því framsækna rokki sem skapað var á mörkum bítla- og hippatímans. Hann slagar því hátt upp í Bítlana sem mesti á- hrifavaldur í dægurtónlist sjö- unda áratugarins, og áhrif hans voru mun margbrotnari. Frum- herjahlutverki Dylans lauk þó ekki að fullu með mótorhjólaslys- inu 1966, því að þegar hann sneri loks aftur, tók hann þátt í að skapa sveitarokkið og um leið að ryðja þeim viðhorfúm braut á nýjan leik að rokk ætti að vera til skemmtunar fremur en að streit- ast við að fúllnægja ströngustu listrænu kröfum. Guð eða listin Ferill Dylans á áttunda ára- tugnum hefur verið sveiflukennd- ur, og honum hefur jafnan tekist að koma á óvart. Honum tókst að gefa út eina lökustu plötu rokk- sögunnar, Self-portrait, árið 1970 og hann komst ekki á verulegt flug aftur fyrr en með Blood on the track árið 1974. Á henni sam- einar Dylan marga bestu kosti hinna ýmsu skeiða sem hann hafði gengið í gegnum á sjöunda áratugnum, bæði í tónlist og text- um, og nýtur auk þess þeirra stór- stígu framfara sem orðið höfðu í upptökutækni. Hann hélt dampin- um ágætlega með Desire og Street legal og hann fór í skemmtilega hljómleikaferð með nokkrum vinum sínum, Rolling thunder revue, en síðan fann hann hjá sér þörf fyrir enn eina kúvend- ingu. 1 þetta sinn sneri Dylan sér að trúnni, greinilega út ffá per- sónulegum vandamálum, en hún blés honum ekki í bijóst listrænni andagifl heldur urðu plötur hans stöðugt Iakari næstu árin. Sjá nœstu siðu maður sem hafinn er í guðatölu rúmlega tvítugur að aldri verður aldrei venjulegur né þægilegur í umgengni. Heim í sveitina Dylan lifði hratt, notaði am- fetamín í stórum stíl og reykti þrjá pakka á dag. Tónlist og textar báru merki þessarar keyrslu, en þannig sló hjarta ungu kynslóðar- innar á þessum árum og þótt Dyl- an hafi hafnað því að vera spá- maður ungu kynslóðarinnar, var hann helsta skáld hennar og tals- maður. Hraðakstri Dylans lauk með mótorhjólaslysi í júlí 1966, en þá hálsbrotnaði hann og var lengi að ná sér líkamlega og andlega. Blómasumarið 1967 leið án þess að Dylan ætti þar hlut að máli. í stúdentaóeirðunum árið eflir hljómuðu lög hans um hersetna háskóla, en á meðan sat Dylan niðri í kjallara á sveitasetri sínu í Woodstock og gerði prufuupp- tökur af nýjum lögum ásamt vin- um sínum í hljómsveitinni The Band. Þeir fóru aldrei í hljóðver með þessi lög (prufuupptökumar voru gefnar út 1975), en á meðan Dylan hafði hægt um sig leyfði hann öðmm flutning á Iögum eins og Wheel's on fire, The mighty Quinn og I shall be released. Þetta vom stórgóð lög, og lærisveinar . Dylans sem og gervallur rokk- heimurinn biðu endurkomu hans með mikilli eflirvæntingu. En það var annar Dylan sem sneri aftur. Hann hafði lækkað flugið, og í árslok 1968 sendi hann frá sér rólega þjóðlagaplötu með sterku ívafi úr sveita- mannatónlist. John Wesley Har- ding olli vonbrigðum Dylanaðdá- enda, sem heldur hefðu kosið að hann fullgerði kjallaraupptökum- ar frá árinu áður. En Dylan hafði alltaf kunnað að koma á óvart, og eftir mótorhjólaslysið var hann enn óútreiknanlegri en fyrr. Hann héit sínu striki árið 1969 og gaf út plötuna Nashville Skyline með poppaðri sveitamannatónlist. Þar með gerðist Dylan einn upphafs- manna hins svonefnda sveit- arokks sem naut mikilla vinsælda næstu ár og enn er framleitt í tölu- verðu magni. Textamir á Nas- hville skyline em einfaldir dæg- urlagatextar, haganlega gerðir eins og við er að búast frá stór- skáldi en gefa ekki tilefni til djúpra pælinga. Föstudagur 22. júní 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.