Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1995, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1995, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1995 13 Sviðsljós Leikarinn Morgan Freeman, sem gerði garðinn frægan í myndum eins og Shawshank Redemption og Driving Miss Daisy, kemur hér til frumsýningar myndarinnar Seven í Hollywood í fyrrakvöld. í myndinni er fjallað um röð morða sem byggjast á syndum eins og græðgi, dáðleysi, stolti, öfund, reiði, losta og matgræðgi og mun Morgan gamli fara á kostum. Símamynd Reuter Heather Locklear: Vill kaupa sér körfuboltalið Heather Locklear, sem aðdáendur unglingaþátta ættu að kannast við, hefur geysilegan áhuga á körfubolta. En hún lætur sér ekki nægja að fara á völlinn eins og flestir aðrir heldur vill hún ólm eignast eigið körfubolta- lið og ráðskast með það. Hefur Heat- her, ásamt vinum, óskað eftir að kaupa körfuboltaliðið Long Beach Barracudas. Ekki fer miklum sögum af afrekum hðsins en eigandinn er aRa vega ekki á því að selja, ekki um sinn. A meðan verður Heather því að láta sér nægja að horfa frá áhorf- endastæðunum. Heather Locklear vill eignast körfu- boltalið. r Það er mögulegt að búið sé að draga út vinning á númer FARMIÐANS þíns. Berðu hann saman við uppsafnaðar happatölur, sem birtast í DV 1. september og 2. október. Fylgstu einnig með happatölunum í DV, þriðjudaga til föstudaga. Glæsilegu VINNINGASKRÁNA finnur þú aftan á FARMIÐANUM. Draumabarmur hjákonunnar Leikkonurnar barmfogru Lis Hur- ley og Pamela Anderson eiga í harðri keppni. Ekki þó um hug og hjarta Hughs Grants eða Tommys Lees, heldur um hug og hjarta breska meðaljónsins. Hann getur nefnilega ekki gert upp við sig hvorrar barm hann mundi vilja á draumaeiginkon- una. Pamela sigrar þó þegar kemur að barmi draumahjákonunnar. Hvíflibbamennirnir og mennta- menn eru hrifnastir af barmi Liz Hurley en iðnaðarmenn kjósa frem- ur að fá að fara höndum um Pamelu. Þessar gagnmerku upplýsingar koma fram í könnun sem gerð var meðal breskra karlmanna um draumakonuna og samsetningu hennar. Margt forvitnilegt kom í ljós þegar tjalhnn skoðaði hug sinn um kvennamáhn. Nicole Kidman og rauðu krullurn- ar hennar sigruðu í keppninni um draumahárið, flestir vildu eiga konu með augun hennar Ehe Macpherson ofurfyrirsætu og Michelle Pfeiffer sigraði í keppninni um framkomu og mannasiði. Liz Hurley með draumabarminn. fyrir hressa krakka Barna-DV er fræðandi og skemmtilegt lesefni fyrir hressa krakka á öllum aldri. Barna-DV er alltaf á laugardögum! Krakkaklúbbur DV er starfræktur í gegnum Barna-DV. Allir nýir klúbbfélagar fá sent skírteini sem einnig er afsláttarskírteini. Skírteinið veitir klúbbfélögum meðal annars aðgang að skemmtilegum verðlaunagetraunum. Allir klúbbfélagar fá sendan glaðning á afmælinu sínu frá Tígra - lukkudýri Krakkaklúbbs DV. Ertu ekki örugglega félagi í Krakkaklúbbi DV? Nú er tækifærið að skrá sig! Skrifaðu upplýsingamar, klipptu út þennan miða og sendu okkur í umslagi merkt: Krakkaklúbbur DV, Þverholti 14,105 Reykjavik. Nafn: Heimilisfang: Póstfang: Kennitala: Barna-DV - alltaf á laugardögum! Þú getur sent inn myndir, þrautir, gátur, Ijóð, sögur * og fleira til Bama-DV I og Krakkaklúbbsins. I Frjálst, óháð dagblað fyrir þig Munið nýtt símanúmer 550-5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.