Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1995, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1995, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1995 Neytendur Bifreiðaskoðun íslands keppir ekki á jafnréttisgrundvelli: Hægtaðlækka verðið enn meira - segir Bergur Helgason, framkvæmdastjóri Aðalskoðunar hf. Mosfellsbær, nærri hesthúsabyggð móttöku- og flokkunarstöð Gylfaflöt, austan göm/u Gufuneshauganna Artúnshöföi, w'ð Sævarhöföa rðc Breiöholt, í Seljahverfi sunnan Breiöholtsbrautar Kópavogur, við Daiveg Gámastöðvar „Það er alveg Ijóst að á meðan Bif- reiðaskoðun íslands hefur einkaleyfi á nýskráningum og breytingarskoð- unum og á meðan þeir sitja einir að eigendaskiptum veröur samkeppnin í þessari grein ekki á jafnréttisgrund- velli. Eigendaskipti bifreiða kostar jafn mikið og jafnvel meira en skoð- un og BSKÍ er með tvær stúlkur sem sinna þessu með einni tölvufærslu og því að senda gögn í pósti. Þama eru þeir að taka inn um 140 milljónir í tekjur á ári út á einokun (skv. upp- lýsingum frá BSKÍ voru 59 þúsund eigendaskipti skráð 1994 og hvert skipti kostar 2.400 krónur. - Athuga- semd blm.). Það er þetta sem okkur svíður og við erum sannfærðir um að hægt væri að lækka verðið tölu- vert til neytenda með því að afnema einokun Bifreiðaskoðunar íslands algerlega," sagði Bergur Helgason, framkvæmdstjóri Aðalskoðunar hf., í samtah við DV. Bergur fuhyrti við DV að síðan einokun á almennri skoðun heíði verið afnumin hefði verðið á þessari þjónustu lækkað um 20 prósent. Reka ökutækjaskrá „Bifreiðaskoðun rekur ökutækja- skrána og með henni hefur hún for- skot á okkur því við höfum aðeins aðgang til þess að fletta upp í henni. Þar er hins vegar hægt að fletta upp á öllum óskráðum ökutækjum á ákveðnu svæðum og senda til- boðsbækhng. Þar fyrir utan nýtir Bifreiðaskoðun sér það að við meg- um skrá tengibúnað bifreiöa um leið og þær koma í skoöun en þurfum að senda henni upplýsingamar til þess að hún geti fært það inn í tölvukerf- ið. Bifreiðaskoöun sendir síðan um- ræddum bifreiöaeigendum skráning- arskírteini þar sem fram kemur að búnaöur bifreiðarinnar sé sam- þykktur. En með skráningarskír- teininu sendir hún auglýsingabækl- ing yfir ástandsskoðun. Þannig notar hún skráningarhlutann, sem hún hefur einkaleyfi á, til þess að auglýsa hina starfsemina og notar til þess póst sem við biðjum hana að senda,“ segir Bergur. Bergur segir Samkeppnisstofnun hafa ályktað um aö samkeppnisstaða skoðunarfyrirtækja sé mjög ójöfn en ráðamenn hafi ekki enn séð ástæðu th þess að taka þau tilmæli til athug- unnar. Aðskilinn rekstur „Ökutækjaskráin er algerlega að- Meö afnámi einokunar Bifreiöaskoðunar íslands hf. á bifreiöaskoðun hefur verð á þeirri þjónustu lækkað um 20%. Spurningin er hvort hægt sé að lækka kostnaðinn enn frekar og afnema einokunina alveg. DV-mynd JAK skhin öðrum rekstri þannig að alger- lega er farið eftir samkeppnisreglum. Það er ekki hægt að hafa samkeppni um þessa skrá og ljóst er að einhver einn þarf að sjá um hana. Rekstur Ökutækjaskrárinnar er mjög dýr en auðvitað gæti einhver annar en Bif- reiöaskoðun séð um hann líkt og ein- hver annar en Hagstofan gæti haldið utan um þjóðskrána. Það hafa ahir sama aðgang að Ökutækj'askránni hjá SKÝRR,“ sagði Karl Ragnarsson, framkvæmdastjóri BSKÍ. Karl sagði að sér fyndist gagnrýni Aðalskoðun- armanna vera loðin og villandi en hklega beindist hún að því að þeir vildu fá að annast svokahaða sér- skoðun og í raun væri sjálfsagt að þeir fengju það. Þeir þyrftu bara að fá heimhd í lögum til að fá fagghd- ingu. „Það er rétt að verð á skoðun hefur lækkað en með því hafa þær tekjur okkar minnkað sem fóru í það að greiða niður verð á bifreiðaskoðun- um úti á landi. Við sinnum skoðun- arþjónustu úti á landi og ég fagna því ef rétt er að aðrir séu thbúnir til þess að taka þátt í þeim kostnaði sem því fylgir," sagði Ragnar. -sv Gambaspilpil: Heitar rækjur - léttur forréttur frá Spáni Á Spáni er rétturinn borinn fram á litlum, flötum leirdiskum og þeir sem eiga eldfasta diska geta mat- reitt á þeim. Undirbúa má réttinn fyrirfram. 500 g smá djúphafsrækja í skel eða venjuleg rækja 3 hvítlauksrif, söxuð 1 sterkur belgpipar, grófsteyttur salt 3 msk. ólífuolia Skelflettið rækjuna, takið burt dökku rákina í miöjunni og þerrið þær. Setjið þær á 6 htla, eldfasta diska og bætið við hvítlauk, belg- pipar, salti og ólífuolíu. Látið rækj- umar bíða þannig kryddaðar í 2 klst., eða lengur ef svo ber undir. Hitið ofninn í 240° og hafið rækj- urnar í ofninum í 5 th 10 mínútur. Einnig má matreiða þær ofan á eldavéhnni við háan hita. Berið réttinn fram brennheitan. Uppskriftin er úr nýrri bók íslenska kiljuklúbbsins, 100 góðir réttir frá Miðjarðarhafslöndum, eftir Diane Seed. Námsmaður utan af landi: Losnaðiekki við ruslið - verkstjóri hjá Sorpu svarar „Karlmaður hafði samband við neytendasíðuna í gær og sagðist eftir flutning utan af landi hafa reynt að losa sig við fuhan bíl af pappakössum á föstudagskvöldi. Það hafi ekki tek- ist og hann hafi þurft að geyma rusl- ið til morguns, farið þá aftur að Sorpu í Ánanausti, aftur komið að lokuðu hliði og því þurft að stelast í gám við fyrirtæki þar rétt hjá. Hann vildi vita hvort ekki væri hægt að losna við rusl nema á skrifstofutíma. „Þaö er hvergi opið á vetuma á gámastöðvum á kvöldin eftir 19.30 en við opnum þær kl. 12.30 alla daga. Fólk verður því bara að geyma rusl th morguns ef það er að vinna eins og þessi maður,“ sagði Ásmundur Jónsson, verkstjóri hjá Sorpu. Hann sagði að reynt heíði verið aö hafa opið til 10 á kvöldin en það hefði ekki svarað kostnaöi. Aðspurður hvort ekki mætti hafa gáma sem fólk gæti gengiö að allan daginn sagði Ásmundur að þá yrði alls konar rusli hent í sama gáminn og það vildu þeir forðast. „Við erum að reyna að flokka þetta allt saman og reynslan hefur sýnt okkur að fái fólk frjálsan aðgang að þessum gámum eru þeir fylltir af hverju sem er og síðan fer fólk að henda ruslinu til hhðar við þá. Við erum bara ekki lengra komin í rusla- menningunni,“sagðiÁsmundur. -sv Við Ananaust RPA Miöhraun 20, á mörkum Garöabæjar og Hafnarfjaröar á höfuðborgarsvæðinu dv Ný matreiðslubók: 100 góðirréttir frá Miðjarðar- hafslöndum íslenski kiljuklúbburinn hefur sent frá sér nýja matreiðslubók eftir Diane Seed sem kallast 100 góðir réttir frá Miðjarðarhafs- löndum. í bókinni eru hundrað uppskriftir frá ýmsum Miðjarð- arhafslöndum, súpur, brauð, pasta- og hrísgrjónaréttir. Áður hafa komið út eftir sama höfund bækumar 100 góðar pastasósur og 100 góðir ítalskir réttir. Helga Guðmundsdóttir þýddi bókina sem er 127 blaðsíður. Hún kostar 890 krónur. Bókin er sögð einfold í notkun, skrifuð jafnt fyrir byrjendur í matargerö og lengra komna, og að leiðbeina fólki hvernig best sé að nýta hið ljúffenga hráefni seip réttir frá Miðjarðarhafslöndum byggjast á: óhfuolíu, tómata, hvít- lauk, fisk og ýmiss konar græn- meti og kryddjurtir. Vínberið á Laugavegi: Selurbláber og krækiber Á neytendasíðu DV á þriðjudag var fjallaö um berjauppskriftir og auglýst var eftir stöðum sem selja þau. Logi Helgason í versl- uninni Vínberinu á Laugavegi hafði samband viö blaðið og vhdi koma því á framfæri áð verslun hans væri að selja ber. Hann sagði þau vera á mismunandi verði eftir því hvort þau væra handtínd, tínutínd eða hvaðan af landinu þau kæmu. Tínutínd að- albláber kosta 998 kr. kg og handtínd aðalbláber og bláber kosta um 1.400 kr. kg. Krækiber kosta 250 kr. í eins kílóa pakkn- ingum og 5 kílóa pakkning kostar 1.195. Logi sagðist telja að nú færi hver að verða síðastur að ná sér í ber. Slátur í Miðvangi Slátursala er nú víða hafm af fullum krafti og sums staðar er hún rétt aö fara í gang. í Mið- vangi í Hafnarfirði vhdu menn koma því á framfæri, í kjölfar fréttar hér á síðunni á þriðjudag, að þeir seldu slátur í lausu, fólk væri ekki bundið af því að kaupa ákveðinn fjölda, og slátrið kostaði 489 krónur. Póstur og simi: Hækkun gjaldskrár Þann 1. ágúst sl. breyttist gjald- skrá Pósts og síma. Einn er sá liður sem neytendur gera sér oft á tíðum ekki grein fyrir hvað kostar og það er sá kostnaður sem fylgir því að hringja í boðtæki. Fyrir gjaldskrárbreytinguna var aðeins borgað fyrir þann tíma sem tók að hringja. Eitt skref tek- ur tólf sekúndur og á þeim Hma er hægt að hringja í boðtæki. Nú er búið að fastsetja þriggja skrefa gjaid fyrir hvert sinn sem hringt er í þessi htlu nytjatól. Skrefið kostar 2,67 krónur. Einkaboðtækin dýr Þeir sem fá sér svoköhuð einka- boðtæki Pósts og síma borga að- eins 1.600 krónur í skráningar- gjald en síðan ekkert ársfjórð- ungslega eins og títt er með aðra sem hafa boðtæki. Hins vegar þurfa þeir sem hringja í þessu merku tæki að borga tólf skref fyrir hvert skipti, 32,04 krónur. Rétt er að fólk geri sér grein fyrir þessuáðurenhringteríþau. -sv -

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.