Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Page 2
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995
**
fréttir
Ungur maöur sem var ákærður fyrir að hafa nauðgað 19 ára stúlku:
Sýkna þrátt fyrir verulega
kynfæraáverka stúlkunnar
Fjölskipaður dómur Héraðsdóms
Reykjaness sýknaði í gær ungan
mann af ákæru í allsérstæöu saka-
máli þar sem honum var gefið að sök
að hafa nauðgað 19 ára stúlku á
heimili hans í nóvember 1994.
Unga fólkið þekktist ekki fyrir at-
burðinn sem deilt var um en aðfara-
nótt laugardagsins 5. nóvember hitt-
ust þau í miðbæ Reykjavíkur eftir
að dansstöðum var lokað. Þau fóru
þá í bíl ásamt félögum mannsins í
hús í Breiðholti en þar sagði stúlkan
að tveir menn hefðu áreitt hana. Hún
hefði því orðið miður sín og upplifað
það á ný er henni var nauðgað á úti-
samkomu rúmum tyeimur árum áð-
ur. Stúlkan fór síðan með manninum
heim til hans og hefði hún borið
traust til hans, enda hefði hann
bjargaö henni frá þeim sem áreittu
hana stuttu áður. Stúlkan bar síðan
að hafa verið ráðvillt og ekki haft
pening fyrir leigubíl til að komast
heim. Þá hafi hún lagst upp í rúm
hjá ákærða að tillögu hans - aðrir
myndu aka henni heim daginn eftir.
Eftir þetta sagði stúlkan að ákærði
hefði breyst og neytt hana til harka-
legs samræðis við sig þrátt fyrir
hennar mótmæli. Að því loknu hefði
hann beðið hana að fara út því hann
væri í sambandi við stúlku sem hann
vildi ekki að sæi hana á heimilinu.
Um þessi atriði sagði ákærði m.a.
fyrir dómi að hann myndi ekki hvort
stúlkan heföi farið sjálf úr fötunum,
hvemig hún var klædd eða hvort
hún hefði afklæðst að einhveiju leyti
áður en hún kom inn í herbergi til
hans. Honum bar nokkurn veginn
saman við stúlkuna um hvemig
samfarirnar áttu sér stað en kvað
þær hafa veriö með hennar sam-
þykki - en að vísu hefði hún ekki
verið áhugasöm um kynmökin.
Kyn- og húðsjúkdómafræðingur
bar fyrir dómi að áverkar sem stúlk-
an fékk á kynfæri, og vom verulegir,
gætu tæpast komið eftir eðliiegar
samfarir - slíkar ákomur væm mjþg
óalgengar ef báðir aðilar hefðu viíja
til samfara. Þó væri það ekki útilok-
að. Kvensjúkdómalæknir bar síðan
fyrir dómi að ekki væri unnt að tala
um dæmigerða áverka eftir nauðgun
því venjulegast væri ekki um áverka
að ræða hjá konum eftir slíka verkn-
aði. Hann sagði hins vegar að áverk-
ar umræddrar stúlku gætu komiö
heim og saman við samfarir án vilja.
Dómurinn tók mið af þrennu við
ákvörðun um niðurstöðu: Stúlkan
hafi sagt að maðurinn hafi komið
vilja sínum fram með hótunum og
hún ekki þorað annað en að fara að
vilja hans, engin átök hafi hins vegar
átt sér stað enda hafi hún ekki borið
þess merki. Leigubílstjóri sem ók
konunni heim frá manninum sagði
hana hafa verið mjög miður sín en
hafði eftir henni að „ekkert hefði
gerst". Með hhðsjón af þessum atrið-
um, og því að kvensjúkdómalæknir-
inn hefði sagt að ekki væri hægt að
útiloka að áverkar á kynfærum
hefðu komið við venjulegar samfarir,
taldi dómurinn „varhugavert að
telja“ verknaðinn sannaðan, enda
hefðiákærðineitaðsök. -Ótt
Félagar úr Björgunarsveitinni Kára í Öræfum fóru á dögunum gangandi á skíðum upp aö Rótarfjallshnúk á suður-
brún Öræfajökuls og skiptu þar um bilaðan VHF-endurvarpara. Sendir þessi er mikilvægur í fjarskiptaneti björgun-
arsveitanna. Hann er af sömu tegund og sá sem settur var upp með aðstoð þyrlna á Kristinartindum i Skaftafelli
í sumar. Myndin var tekin á Rótarfjallshnúki við þetta tækifæri. DV-mynd Einar R. Sigurðsson.
Ahugi Columbia Aluminum á íslandi:
Jaf n miklir möguleikar
og Venesúela og Quebec
- segir einn yíirmanna fyrirtækisins við D V
„Sprengjumaöur“:
Tilviijun að
hann nefndi
naf n Friðriks
Gylfi Eristjánsscn, DV, Akureyri:
Maður á fimmtugsaldri, sem
lögreglan á Akureyri handtók i
fyrradag vegna hótunar um falda
sprengju í bifreið Friðriks Sop-
hussonar Qármálaráöherra, ját-
aði í gær þann verknaö.
Maðurinn sagöist hafa átt leið
í símaklefa á símstööinni á Akur-
eyri vegna annars símtals. Hann
heföi verið undir áhrifum áfengis .
og skyndilega fengið þá hugdettu
að tilkynna að sprengja væri falin
í bíl {jármálaráðherrans. Við yfir-
heyrslu bar maðurinn aö þaö
hefði verið algjör tilviljun aö
hann nefndí nafti Friðriks Soph-
ussonar í þessu sambandi. Mað-
urinn var látinn laus að loknum
yfirheyrglum i gær en mál hans
fer til afgreiðslu i dómskerfinu.
Hveragerði:
Titringur
allan daginn
Smáskjálftar og titringur voru í
Hveragerði í gærdag eftir allsnarpa
hrinu í fyrrinótt. Þá mældist sterk-
asti skjálfönn 3,5 stig og það sem
eför liröi nætur héldu jarðhræring-
amar vöku fyrir bæjarbúum. Upp-
tökin eru 5 öl 6 kílómetra fyrir
norðan bæinn og færðust heldur öl
vesturs þegar leiö á daginn. Al-
mannavamanefhdin á staðnum
heftxrfylgstmeðframvíndunni.
-GK
Fáir í Smugunni
Átta islenskir togarar eru nú
eftir í Sraugunni en þrír eru á
heimleið eftir langan og fiskilít-
inn túr. Smákropp mun vera af
þorski á miðunum og aflabrögð
slík aö ekki er von á aö íjölgi í
Smugnniánýáþessuári. -GK
„Það á eftir að söga mörg skref í átt
að lokaákvörðun. Við höfum um
nokkurt skeið undirbúið nýtt álver á
góðum stað í heiminum og ísland er
meðal þeirra staða sem við erum að
skoða. Ég myndi segja að ísland ætö
jafn mikla möguleika og Venesúela
og Quebec en við emm einnig að
kanna aðstæður í Quatar og Oman í
Mið-Asíu,“ sagði Jim Hensel, þróun-
ar- og markaðsstjóri Columbia Al-
uminum Corporaöon í Bandaríkjun-
um, í samtali við DV en fyrirtækið
hefur sýnt áhuga á að reisa álver á
íslandi.
Columbia Aluminum hefur rekið
165 þúsund tonna álver í Goldendale
í Washingtonríki frá árinu 1987. Nú
hyggst fyrirtækið reisa 60 þúsund
tonna álver á þeim staö sem best mun
bjóða. Ársvelta Columbia er um 29
milljarðar króna og starfsmenn eru
um 1.400 talsins.
Jim sagði að fyrirtækið hefði fyrst
sett sig í samband við íslensk stjóm-
völd í maí á þessu ári og hann hefði
nýlega verið á íslandi til viðræðna
við fulltrúa iðnaðarráðuneyösins og
Landsvirkjunar. Jim sagðist reikna
með að koma aftur til íslands innan
fárra vikna, eða þegar hann kæmi
úr könnunarleiðangri frá Venesúela.
„Líkt og hinir staðirnir hefur ís-
land sína kosö og galla en ég vil ekki
segja neitt um möguleika þess að ál-
verið rísi hjá ykkur. Við stefnum á
að hafa fækkað kostunum niður í tvo
í byrjun desember á þessu ári,“ sagði
Jim Hensel.
-bjb
Þú getur svaraö þessari
spurningu meó því aO
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Sekur
Saklaus 2
4 904-1600
Er 0. J. Simpson
sekur eða saklaus?
AHIr I tuifni karflmt wot t6nnlf»tw« f«t» nýtt |»|ónu»tM.
Stuttar fréttir
Gjald á endurtengingu
Ríkið mun kosta óírjósemisaö-
gerðir á næsta ári samkvæmt
íjárlagafrumvarpinu. Á hinn
bóginn ætlar heilbrigðisráðherra
að græða 10 milljónir með gjald-
töku á sjónprófum og endurteng-
ingu á æxlunarfærum vegna
fyrri aðgerða ríkisins.
Vilja veidileyfagjald
Þingmenn Þjóðvaka hafa end-
urflutt öllögu til þingsályktunar
frá vorþingi um veiðfieyfagjald.
RÚV greindi frá þessu.
Fleiriútiendingar
Tæplega 15.500 útlendingar
komu öl iandsins í september,
eða um 700 fleiri en á sama tíma
í fyrra. Flestir komu frá Banda-
ríkjunum og Þýskalandi, eða um
2.500 frá hvoru landi. RÚV
greindi frá þessu.
Oliugjaldi frestad
Fjármálaráðherra vill fresta
um tvö ár giidistöku laga um
vörugjald af olíu. Tímann vill
ráðherra nota öl aö kanna aðferð
til litunar á ohu sem Danir hafa
nýlega þróað. Gert er ráð fyrir
að þungaskattskerfið verði í gildi
þar til olíugjaldið kemst á.
Vigslaoginnsetning
Ólafur Skúlason biskup mun í
dag setja Guðmund Óla Olafsson
inn í prófastembætti í messu við
Skálholtsdómkirkju. Á morgun
mun biskupinn síðan vígja Hildi
Sigurðardóttur sem aöstoðar-
prest við Seltjarnarneskirkju.
KJallarakaup valdafurðu
Stjórn fuiltrúaráðs Sjálfstæðis-
félaganna í Hafnarfirði hefur sent
frá sér ályktun þar sem lýst er
yfir furðu á þeirri ákvörðun bæj-
aryfirvalda aö festa kaup á bíla-
kjallara að Fjarðargötu 13 til 15
enda hafi bærinn áður greitt fyrir
aðgang að honum.
Varúðálnternetinu
VISA á íslandi hefur sent frá
sér orðsendingu þar sem varað
er við óheftum og óvörðum
greiöslukortaviðskiptum á hiter-
netinu. Slíkar greiðslur hafa farið
ört vaxandi án samninga eða
sérstakra öryggisreglna þar um.
Haugfétilsýnis
Haugfé úr kumlinu í Skriðdal
og silfursjóðurinn frá Miðhúsum
verða öl sýnis út október í forn-
aldarsalÞjóðminjasaínsins. -kaa