Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 ]DV Ægii Már Kárason, DV, Kýpur: „Þegar ég sagöi íjölskyldu minni frá þessu hélt hún að ég væri alveg orðin klikkuð. Afi minn spurði hvort ' ekki væri allt í lagi með mig. Hann sagði að á þessum stað væri alltaf stríð og óeirðir. Ég sagðist verða að reyna því annars ætti ég vafalaust eftir að sjá eftir því alla mína ævi. Um leið og foreldrar mínir og fjöl- skylda kynntust manninum mínum breyttist viðhorfiö," segir Björk Sveinsdóttir Paisi, 37 ára hjúkrunar- fræðingur úr Hafnarfiröi, í samtali við helgarblaö DV þegar fréttaritari heimsótti hana og fjölskyldu hennar á Kýpur fyrir stuttu. Björk fór til Kýpur fyrir nokkrum árum ásamt bhndri vinkonu sinni þar sem þær ætluðu að njóta sum- arfrísins. Ferðin gjörbreytti lífi hennar því þar kynntist hún blind- um manni sem hún varð ástfangin af. Hann er frá Kýpur, heitir Andreas Paisi og er tónlistármaður. Þau Björk og Andreas gengu í hjónaband og eiga nú þrjú böm. Hjónin em ham- ingjusöm og styðja hvort annað í öllu því sem þau gera. Þau eru opin og hafa hressilega og skemmtilega framkomu. Fór með blindri vinkonu „Brynja, vinkona mín, sem er blind, fékk mig með sér í þessa ferð til Kýpur sumarið 1989. Við vorum seinar að panta ferðina og eina íbúð- in sem viö gátum fengið var í Kast- ala þar sem Andreas, maðurinn minn, er að spila. Eitt kvöldið þegar við vorum að rölta um heyrði ég tón- Ust úr garðinum og við ákváöum að kanna hvaðan hún kæmi. Kona að nafni Janis, sem spilaði með mannin- um mínum, sagði honum frá blindu konunni sem væri að ganga í salinn og spurði hvort hann langaði ekki að tala við hana. Hann kom að borð- inu okkar til aö ræða við Brynju og þannig kynntumst við. Það var upp- hafið að þessu öllu. Björk Sveinsdóttir ásamt eiginmanni sínum, Andreas Paisi, sem hefur verið blindur frá fæðingu, og börnum þeirra þremur, fyrir utan hús þeirra á Kýpur. DV-myndir Ægir Már Sumarfríið til Kýpur varð afdrifaríkt fyrir Björk Sveinsdóttur: Varo ástfangin af blindum manni - og er nú þriggja barna móðir á grísku eyjunni Brynja og Andreas ræddu um mál- efni bUndra á íslandi og Kýpur. Það eina sem ég sagði við hann þetta kvöld var aö benda honum á að úrið hans væri opið en það var með blindraletri." Brúðkaup að grískum sið Björk og Brynja voru fjórar vikur á Límansól, hinum vinsæla ferða- mannastað á Kýpur. Og Brynja átti eftir að kynnast Andreas betur. Eftir að heim var komið ákvað hún að fara aftur til Kýpur og hélt þangað í lok september ’89. „Það er einmitt sex ár núna síðan ég flutti hingaö út og við ákváðum að hefja sambúð. Við fundum fljótt út aö við áttum vel saman og gengum í hjónaband 22. apríl 1990 hér á Kýpur. Brúökaupið fór fram eftir grískum siðvenjum," segir Björk ennfremur. Björk og Andreas eiga þrjár dætur, Láru, sem er fimm ára, Niký, þriggja ára, og Helgu Eiený, eUefu mánaöa. Þau búa í stóru og glæsilegu tveggja hæða einbýUshúsi vestanmegin á eyjunni. „Þaö er gjöróUkt að búa hér á landi eða á íslandi. Hitinn er auðvitað mjög mikill og fyrsta árið mitt var eríitt Andreas er mikill tónlistarmaður og langar að koma tónlist sinni á framfæri á íslandi. að því leyti. Þá bjuggu tengdaforeldr- ar mínir hjá okkur. Síðan var útbúin sér íbúð fyrir þau hér viö hliðina. Þau eru gott fólk og hafa áldrei reynt aö stjórna mér á einn eða annan hátt. Ég er heppin að hafa tengdafor- eldra mína hér því þau hafa reynst mér'mjög vel.“ Björk segir að það sé líka gott að vera með börn á Kýpur. Hún lærði hjúkrun og starfaöi á Landsspítalan- um og einnig um tíma á sjúkrahús- inu á Sauðárkróki. Hún er fædd og uppalin í Hafnarfirði og þar búa for- • eldrar hennar. Fötlun ekkert vandamál í gegnum Brynju vinkonu sína hafði Björk lært að umgangast bUnda og það átti eftir að reynast henni vel. Hún segist ekki líta á blindan mann sem fatlaðan. „Maður þarf að kunna viss atriði og þau hafði ég lært af Brynju. Ég hef aldrei Utið á fötlun sem vandamál. Við ræddum þetta áður en við byrjuðum að búa en mér fannst það engu máU skipta þó hann væri ekki Sjáandi. Það er manneskjan sjálf sem skiptir máU og hvernig hún er innrætt. Börnin okkar eru öll heilbrigð og hafa alist upp við að eiga bUndan föður. Böm eru fljót að aðlaga sig hlutum og í þeirra augum er þetta ekkert mál.“ Björk segir að það sem hafi heillað hana strax þegar hún kynntist Andreas var hversu tryggur og áreiðanlegur hann er. Andreas, sem er fertugur, fæddist blindur. Hann hefur alla tið átt heima á Kýpur, er grískur Kýpurbúi. Hann starfar í banka við símsvörun og er sjálf- menntaður píanó- og hljómborðs- leikari. Andreas hefur haft nóg aö gera í tónlistinni og spilar og syngur enn í Kastalanum þar sem þau hjón- in kynntust. Stolt af eiginmanninum í kjaUaranum heima hjá þeim hef- ur Andreas komið upp stóru upp- tökuherbergi sem er útbúið mjög fullkomnum tækjum. Með styrk sín- um og vilja getur hann stjórnað þeim öllum. Hann hefur fullunnið þrjú lög, sem enn hafa þó ekki verið gefin út, þrátt fyrir að þau séu töluvert leikin í útvarpi og sjónvarpi á Kýpur. Andreas hefur áhuga á að koma þeim út hér á íslandi. „Ég er mjög stolt af honum,“ segir Björk. „Hann er mun hæfari en margir sjáandi menn í tónlistinni og stendur sig fyllilega í samkeppni við þá. Andreas er greindur og góður skipuleggjandi, hann setur sér markmið og stendur við þau þrátt fyrir að hann þurfi að leggja töluvert meira á sig þar sem hann er blindur.“ Björk segir að það hafi verið hag- kvæmissjónarmið sem réðu því að þau settust frekar að á Kýpur en á Islandi. „Ég hefði getað búið hvar sem er og fengið starf við hjúkrun en það sama gildir ekki um Andre- as.“ Björk reyndi strax að temja sér mál innfæddra og segist nú tala, lesa og skrifa grísku. „Mér leiðist aldrei hér og nú hef ég eignast góöar vin- konur. Ég fæ líka gesti að heiman og það er mjög ánægjulegt. Fjölskyld- an hefur verið dugleg að koma og einmitt núna ætla foreldrar minir að dvelja hjá okkur í íjórar vikur. Það er helst um jóUn sem ég fæ heimþrá og hugsa mikið heim. En það er tölu- vert ódýrara að lifa hér á Kýpur en heirna." Erfittað sjá ekki börnin Andreas man vel eftir því þegar hann hitti konu sína fyrst. „Þegar ég hitti Björk man ég hvað það var erf- itt að segja nafnið hennar. Þá haföi ég ekki hugmynd um hvar ísland væri á landakortinu. Ég hef komið tvisvar til íslands með konu minni og líst vel á mig þar. Mig langar að kunna íslenskuna og Björk reynir stundum að kenna mér.“ Andreas segist vera mikill náttúru- unnandi þrátt fyrir að hann sé blind- ur. Hann segist reyndar finna mest fyrir blindunni þegar hann feröast. „Ég er mikið fyrir börn og mér finnst leiðinlegt að sjá ekki börnin mín.“ Andreas vonast til að íslendingar gerist aðUar að SateUte gervihnatta- sendingum því þá gætu Björk og börnin horft á íslenskt sjónvarp. „Henni myndi þykja æðislegt aö geta ‘fylgst með fréttum að heiman," segir hann. Andreas er ánægður með störf sín og segir að þau séu ágætlega borguð. Um þessar mundir eru hann og bróðir hans að byggja stóran píanóbar í hjarta borgarinnar. Bar- inn á að heita Sprungur og taka um hundrað manns í sæti. Þar ætlar Andreas að spila ásamt fleiru góðu fólki. Björk segist vona að íslending- ar eigi eftir að sækja þann staö. Andreas vonast tU að í framtíöinni verði Kýpur eitt land en nú er því skipt milU Kýpveija og Grikkja ann- ars vegar og Kýpverja og Tyrkja hins vegar. Það var gert til að stöðva stríð árið 1974. Andreas segir að þetta muni alltaf verða vandamál. Fyrir stríðiö gátu Kýpveijar, Tyrkir og Grikkir lifað saman í sátt og sam- lyndi og hann telur að svo geti orðið á nýjan leik. Þau hjónin eru bjartsýn á framtíð- ina og láta ekkert aftra sér frá því að Ufa eðlUegu lífi með börnum sín- um þrátt fyrir fötlun Andreas.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.