Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 23. SEPTE
43
Biakk, oj-barasta, ógeð
tíu óhugnanlegustu atriðin í bíómyndum
Þú hefur hlegið yfir þeim og grát-
ið en ef það eru einhverjar kenndir
umfram aðrar sem bíómyndir hafa
vakið upp hjá þér þá er það óhugur.
í tilefni 100 ára afmælis kvikmynd-
arinnar litu blaöamenn kvikmynda-
tímaritsins Empire yfir farinn veg
og töldu saman 100 óhugnanlegustu
atriðin í bíómyndum í gegnum sög-
una. Um er að ræöa myndir sem
spanna allt milli himins og jarðar,
rómantík, ofbeldi og allt þar á milli.
Hér á eftir fer endursögn 10
óhugnanlegustu atriðanna. Einung-
is 10 myndir frá þessum áratug er
að finna á listanum og elsta myndin
er frá árinu 1928. Tvær barnamynd-
ir er að finna á listanum, Chitty
Chítty Bang Bang og Bamba, en þar
er að finna atriði sem vöktu og
vekja líklega enn óhug meðal ungra
bama. Aðrar myndir, sem er að
finna á listanum, eru frá sjöunda,
áttunda og níunda áratugnum.
Dæmi svo hver um sig hvort ofbeld-
isfyllri eða óhugnanlegri atriði er að
finna í bíómyndum.
í stað tanna skríður úr iðrum hans.
Eftir að hafa hvæst á steinrunna
áhorfendur skríður óvætturinn í
burtu og hverfur inn í skipið.
1. Alien (1979)
Matmálstími í geimskipinu Nost-
romo. John Hurt engist skyndilega
af kvölum. Áhöfnin reynir að hemja
hann og leggur hann á matarborðið.
Þar byrjar hann að kasta upp, húð-
in yfir maga hans verður jafn-
strekkt og trommuskinn og spring-
ur að endingu. Blóð litar matsalinn
og óhugnanleg vera með rakvélar-
blöð
2. Psycho (1960)
Eftir að hafa fengið sér síðbúinn
kvöldverð, samloku og tebolla með
„saklausa" skóladrengnum Norman
Bates (Anthony Perkins) ákveður
Marion Crane (Janet Leigh) að
bregða sér í sturtu sem í hugum
flestra er ein sú sóðalegasta sem
menn muna eftir. Og hvað lærðu
menn á atvikinu? Alltaf að læsa bað-
herbergisdyrunum á hótelinu sem
gist er á. Að öðrum kosti að fara í
bað frekar en í sturtu.
3. Reservoir Dogs (1992)
„Eg ætla að misþyrma þér....ekki
til að þvinga úr þér úpplýsingar
heldur er það mér til ánægju og ynd-
isauka að sjá löggu þjást.“ Michael
Madsen, hinn geðsjúki herra ljós-
hærður, Mr. Blonde, fer með þessa
rullu þegar hann keflar ógæfusamt
fómarlamb sitt. Síðan snýr hann sér
að transistorútvarpinu og
wMlL. iiB m
BBr
kveikir á K-Billy’s Super Sounds of
the 70s. Undarlegt hvernig flestir
áhorfendur muna eftir útvarpinu
eftir að hafa séö Madsen handleika
rakhnífínn á andliti og skinfæmm
mótleikara síns.
4. Chitty Chitty Bang
Bang (1968)
Mörg böm fengu martröð eftir að
hafa horft á djöfullegan barnaræn-
ingjann, íklæddan svörtum frakka,
með svartan hatt, kaupa trúnað
bama, Dick Van Dyke, með sælgæti.
5. The Exorcist (1973)
Heltekin af djöflinum, bölvandi og
ragnandi, stingur Reagan (Linda
Blair) sig með krossi um leið og hún
fer með klúryrði um skaparann. Að
því loknu stingur hún höfði móður
sinnar i sárið og heldur áfram með
klúryrðin í sömu mund og hún slær
móður sína og snýr höfði hennar
um 180 gráður.
6. Bambi (1942)
Eitt óhugnanlegasta atriði í
barnamyndum er líklega að finna í
Bamba. Hver man ekki eftir því þeg-
ar Bambi og móðir hans eru í snævi
þöktum skóginum í leit að mat.
Skyndilega hrópar hún aðvörunar-
orð að Bamba og hvetur hann til að
hlaupa í burtu og horfa ekki
um öxl. Byssuskot hljómar um
skóginn. Einn og yfirgefinn
skjögrar Bambi um grátandi
og kallar á móður sína. Allt í
einu birtist hinn mikli prins
skógarins og segir við Bamba:
„Móðir þín er farin. Hún getur
ekki lengur verið með þér.“
Bambi fær áfall og stórt tár
rennur úr hvörmum hans og
fellur til jarðar.
(l993)
9. Marathon Man (1976)
Atriðið sem um ræðir hefst á því
að Dustin Hoffman er ólaður niður í
stól. Eldri maður, leikinn af Laur-
ence Olivier, spyr hann án afláts
hvort eitthvað sé öruggt. Skyndilega
byrjar hann að bora með tannbor í
rót einnar tannar hans. Hoffmann
engist af kvölum og vælir í takt við
tannborinn sem tannlæknirinn, sem
hlaut lækningaleyfi sitt í útrýming-
arbúðum nasista, beitir af tækni
sem allir þeir sem hræðast tann-
lækna óttast.
10. Dead Ringers (1988)
Umhverfið er skurðstofa. Beverly
Mantle (Jeremy Irons), kolruglaður
og dópaður læknir, er klæddur í eld-
rauðan slopp líkt og starfsfólk hans
sem er að undirbúa aðgerð á konu
sem liggur á bekk í fæðingarstell-
ingu. Mantle sviptir hulunni af
skurðáhöldum, sem hann hefur
sjálfur hannað, og hyggst nota við a
aðgerðina. Hjúkrunarkonan fer að
bakkanum og sjáöldur augna henn-
ar opnast upp á gátt af hryllingi er
hún rennir augiun á tækin sem þar
liggja; spírala, rakvélarblöð, klær,
króka og fleiri tæki úr læknastáli.
Vart þarf að taka fram að aðgerðin
misheppnaðist.
-PP
7. Un Chien Andalou
(1928)
Kona situr í stól og maður heldur
augnaloki hennar opnu um leið og
hann mundar rakhníf. Skyndilega
er klippt á atriðið og myndavélinni
heint að mánanum þar sem hann
veður í skýjum. Áhorfendur gripa
andann á lofti og telja sig hafa
sloppið við að sjá stúlkuna lim-
lesta. Þeim verður þó ekki að ósk
sinni.
8. Schindler s List
Af öllum sorgum, óhugnaði og
sannleika sem áhorfendur urðu
vitni að í þessari mynd, sem fjall-
aði um helfor gyðinga, er eitt at-
riði sem líklega situr fast í minn-
um manna. Viðbrögð lítils drengs,
sem heitir Richard, þegar hann
verður þess áskynja að flytja á öll
börn úr vinnubúðunum. Hann
hleypur stað úr stað í leit að
skjóli og í örvæntingu sinni leitar
hann í rotþró salernis búöanna
og lyftir upp setunni þar sem
hann kemur auga á jafnaldra
sína sem liggja í saurnum — til
að fela sig fyrir höðlunum — og
þau reka hann í burtu. Sólar-
geislar skína á örvæntingarfullt
andlit Richards.
)