Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Page 15
X>"V LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 15 Skroppið eftir hatti Flæmski hatturinn hefiir bland- ast inn í fjölskyldulíf mitt meö undarlegum hætti. Þar til nýlega leit ég á hatt þennan eins og hver annar landkrabbi. Ég vissi að ís- lendingar og nokkrar aörar þjóðir stunduöu úthafsveiðar þarna, skammt utan fiskveiðilögsögu Kanada. Þetta þýddi auðvitað langa fjarveru íslensku sjómann- anna frá heimilum sínum, sem þó er rofin með áhafnaskiptum með flugi. Laus pláss í þotu Það voru einmitt téð áhafna- skipti sem komu róti á tvær ef ekki fleiri fjölskyldur í Kópavogin- um. Mágkona mín fékk í sig sting þegar hún frétti af plássi í flugvél sjómannanna og rótaði um leið mjög í systur sinni, eiginkonu minni. Útgerðarmaður einn brá nefnilega á það ráð að leigja heila þotu til áhafnaskiptanna og var fyrirhugað að fljúga til Kanada með mennina. Þotan rúmaði hins vegar háift annað hundrað manna og svo margir voru sjómennirnir ekki. Til þess að nýta sæti vélar- innar voru þau boð látin út ganga að komast mætti gegn vægu gjaldi til Kanada. Kópavogskonurnar þurftu ekki meira og svo var víst með góðar konur úr öðrum sveitarfélögum. Tugum saman sáu þær fyrir sér Kanadareisu og sælutíð í verslun- armiðstöð. Þarna mátti heldur bet- ur gera góðu kaupin. Einn galli var þó á gjöf Njarðar. Þotan átti aðeins að stoppa í þrjá til fjóra klukkutíma í Vesturheimi. Það kallaði á snör handtök og röskan gang til búðar. Út í búð - til Kanada Köld eru kvennaráð, segir ein- hvers staðar o'g ég viðurkenni að ég var alveg blankur fyrir út- landapælingum þegar hér var komið sögu. Ég hafði það mér til afsökunar að við hjónin höfðum aðeins dvalið 48 stundir hérlendis þegar frúin skaut því si svona að mér að sniðugt væri að skreppa í búð. Ég tók því eftir atvikum þol- anlega þar til hún bætti því við búðin væri í Kanada. Konan hefur oft komið mér á óvart með frumlegum tillögum en þarna fór hún fram úr sjálfri sér. Ég spurði hana í hreinskilni hvort hún væri gengin af göflunum. Þeg- ar hún trúði mér fyrir því að flug- vélin biði rúma þrjá tíma á flug- veUinum settist ég. Það eru tak- mörk fyrir öllu. Ég benti henni góðfúslega á að þetta væri svipað- ur tími og hún væri í Kringlunni þegar vel lægi á henni. Munurinn væri hins vegar sá að til þess að komast í fyrirheitnu búðina kanadísku þyrfti hún að fljúga þúsundir kflómetra. „Já en það verður svo skemmti- legt í flugvélinni," sagði konan og setti upp englasvip. Lýsingarnar á fluginu fyrirhugaða sýndu mér að það gæti orðið einhvers konar sambland af saumaklúbbi og skemmtikvöldi þár sem Heiðar snyrtir útskýrir kvenleikann. Snyrtilega leikin vörn Ég sá í hendi mér að þessi ferð var tóm vitleysa. Vandinn var bara sá að spfla vörnina rétt svo konan kæmist aftur tU sjálfrar sín. Ég benti henni góðfúslega á að í svona ferð færi ég ekki þótt bor- ið væri á mig fé. Enginn heilvita maður legði það á sig að sitja daglangt í flugvél til þess eins að komast í kanadískt moU. í fram- hjáhlaupi höfðaði ég til ábyrgðar- tilfinningar frúarinnar og nefndi í því sambandi væntanlega plast- kortareikninga nýlokinnar utan- ferðar. Það var glettUega snjaU leikur, þótt ég segi sjálfúr frá. Samt varð ég að gæta mín. Ég mátti aUs ekki neita þessari elsku blákalt. Hún varð að fá tíma til þess að átta sig. Því lagði ég tU að við svæfum á málinu. Næstu daga notaði ég svo til þess að skjóta að Jónas Haraldsson meinlegum athugasemdum um þessa kellingadeUu sem ég kallaði. Ég fann að lymskulegur áróður minn bar árangur. Konan fór ekki en mágkonan gaf sig hvergi og flaug í KanadamoUið. Vottaði fyrir hreimi? Verslunarferðin í Vesturheimi tók aðeins einn dag og ég fann að hugur konunnar var hjá litlu syst- ur þann sama dag. Þær náðu sam- an árla morguns og ekki fór á mUli mála að ferðalýsingin hafði áhrif á þær báðar. „Þetta var æð- islegt," sagði mágkonan ferða- glaða, nýkomin úr búðinni. Ég heyrði lýsingar á stórkostlegri flugferð, skemmtilegum ferðafé- lögum og síðast en ekki síst hrað- ferðinni í moUið. Þar var ekkert slór. Nefndar voru buxur á tán- inga, peysur, kjólar og sokkar. Gott ef nærbuxnasett á bóndann bar ekki á góma. Bornir voru sam- an Bandaríkjadollarar og þeir kandadísku og tilfinningarnar voru hástemmdar. Enginn efi var á góðu kaupunum. Ég reyndi að komast að en það bar lítinn árangur. „Ég er ekki frá því að það votti aðeins fyrir hreimi hjá þér, hafandi dvalið þetta lengi á erlendri grund,“ sagði ég við mágkonu mína. Hvor- ug systranna virti mig viðlits. Ég bað hana þá að lýsa fyrir fróð- leiksfúsum mági sínum lifnaðar- háttum þarlendra manna, menn- ingu og hvers væri helst að minn- ast að utan. Konan sendi mér auga og gaf það í skyn að þær kæmust af án mín um stundarsakir. Af langri sambúðarreynslu veit ég hvenær betra er að draga sig í hlé. Áfram heyrði ég þó óminn af ferðasögunni og óskir um nánari lýsingar á einstökum atriðum sigl- ingarinnar. Tilkynning um brottför Innra með mér var ég kátur og taldi mig hafa unnið talsverðan sigur með því að hafa komið í veg fyrir delluferð konunnar. Það kom því nokkuð á mig þegar ég heyrði hana hrópa: „Æði, ég kem líka.“ Ekki vissi ég hvað bjó að baki þessarar upphrópunar og kunni ekki við annað en að láta þær í friði. Ég var allur hinn elskuleg- asti þegar mágkonan kvaddi en splæsti þó á hana enskum frösum til þess að auka skilning okkar á milli. Allt fyrir einingu fjölskyld- unnar. Mágkonan lét mig um sprokið en glotti þegar hún fór. Það var eins og hún vissi eitthvað sem mér var ókunnugt um. Systirin var ekki fyrr farin út úr dyrunum en skýring á við- brögðum eiginkonu minnar lá fyr- ir. „Það verður farið aftur eftir mánuð. Þá fer ég með.“ Þetta var tilkynnt og ekki gefið færi á að ræða málið frekar. Augljóst var að frúin ætlaði ekki að láta systur sína eina um kanadíska mollið. Mjög er nú farið að styttast í búðaráp þetta og má á þeim systr- um skilja að ekkert sé eðlilegra en að skreppa í kaupstaðarferð til Kanada mánaðarlega. Þær tala fjálglega um það sem kaupa skal, skemmtilegu ferðafélagana og til- hlökkunin er augljós. Ég reyni ekki varnir. Mér er alveg ljóst að málið er tapað. Von um flæmskan hatt Það nýjasta í málinu hefur ver- ið upplýst. Flugvélin stoppar næst í heila tólf tíma á kanadískri grund. Þetta fjórfaldar dvalartím- ann. Það á því að taka mollið meö trompi og gott ef ekki finna fleiri. Það gæti og farið svo að frúrnar gæfu sér tíma til þess að borða meðan á utanlandsferðinni stend- ur. í síðustu ferð gáfu þær sér ekki einu sinni tíma til að pissa þarlendis. Slíkur hégómi gat beðið þar til í flugvélinni. Börn okkar hjóna hafa þegar lagt móður sinni lífsreglurnar. Innkaupalistinn er orðinn langur. Ég er hógvær og bæti ekki miklu við. En fyrst hún skreppur á ann- að borð yfir Atlantshafið til þess að komast í búð sakaði ekki að hún keypti flæmskan hatt á bónda sinn fyrir veturinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.