Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Síða 16
16
LAUGARDAGUR 7.0KTÓBER 1995 JÉ-J V
Risamannvirki yfir Úsabraut:
Píramídi hluti
burðar-
virkis brúar
„Byggingin skal vera megin-
burðarás í nýrri brú yfir Elliðavog-
inn. Brúnni er ætlað að tengja nýja
byggð í Grafarvogi við miðbæ
Reykjavíkur. Píramídinn gæti orðið
tákn borgarinnar og landsins í heild
sem eyja að risa úr sæ. I hönnun-
inni skal þannig samræma nota-
gildi, listfengi, gamlan og nýjan
tíma og er henni ætlað að draga að
fjölda ferðamanna.“
Þannig hljómar kynning á tillögu
Guðlaugs Skúla Guðmundssonar,
Kristínar Mörthu Hákonardóttur og
Unnar Helgu Kristjánsdóttur að
píramída yfir Ósabraut en honum
er jafnframt ætlað að vera hluti
burðarvirkis nýrrar Ósabrautar.
Píramídinn er líkt og í öðrum tiliög-
um stálvirki að stærð hins forna
Keopspíramída og í gegnum hann
mun brúin liggja. Stálgrindin mun
hvíla á steinsteyptum stoðum undir
sjávarmáli en á þessum slóðum er
sjávardýpt um 4 metrar.
Byggðar verða tvær stíflur sam-
síða þvert yfir Elliðavoginn þannig
að framkvæmdir við píramídann
fara fram á þurru landi. Sprengt
verður ofan í klöppina til að koma
undirstöðum fyrir og fyllt upp með
C-60 steypu til festu. píramidinn er
byggður úr lOm x lOm x lOm grunn-
einingum sem verða settar saman á
athafnasvæðum víðs vegar um borg-
ina. Með þessum hætti er hægt að
íjölga verkamönnum án þess að þeir
flækist hver fyrir öðrum. Að lokinni
uppsetningu má hefjast handa við
brúargólfið.
Ætlunin er að hefja framkvæmdir
vorið 1997 en ljúka þeim í mars árið
1999. Kostnaður við verkið nemur
11,8 milljörðum króna og er þá ekki
með talinn kostnaður við brúna. í
kostnaðaráætlun er gert ráð fyrir
608.666 boltum og róm að andvirði
rúmlega 365 milljónir og smíðastálið
kostar rúmlega 8,6 milljarða, svo að
fátt 'eitt sé nefnt.
PP
Hluti verkfræðinemanna sem eiga tillögurnar er kynntar eru á síðunum.
DV-mynd Sveinn
r Verkfræðinemar hanna 147 metra háan píramída í Reykjavík:
Aætlaður byggingarkostnað-
ur 12 til 16 milljarðar
- mannvirkinu ætlað að auka veg og virðingu höfuðborgarinnar
„Nýr meirihluti tekur við völdum
í Reykjavík. Nýr borgarstjóri og
borgarstjórnin vill byggja mann-
virki er aukið geti veg og virðingu
höfuðborgarinnar. Borgarstjóra
dettur í hug að byggja nútímalegt
mannvirki með veraldarsöguleg
vensl, til dæmis nýjan Keops-
píramída."
Á þennan veg hljómar verkefni
sem verkfræðinemar við Háskóla ís-
lands þurftu að leysa nýlega. Úr-
lausnir létu ekki á sér standa og
innan tíðar var búið að hanna 147
metra hátt mannvirkið sem sam-
svarar tveimur Hallgrímskirkju-
turnum, velja því stað í borgarland-
inu og reikna út kostnaðinn.
Kostnaðurinn við mannvirkið,
sem verkfræðinemarnir hafa hann-
að, hleypur á bilinu tæplega 12
milljörðum til rúmlega 16 milljaröa.
Mörgum kann að finnast þetta há
tala en hafa ber í huga að nýr bú-
vöru§amningur er metinn á um ell-
efu milljarða og gildir hann til fimm
ára. Aö visu er þar um fjárskuld
bindingar ríkissjóðs að ræða en
Reykjavíkurborg munaði ekki um
að reiða 1600 milljónir af hendi fyr-
ir Perluna á sinum tíma. Keops-
píramídi er því jafnvirði eins bú-
vörusamnings eða átta til tíu Perla.
Að umfangi eru seinustu virkjana-
framkvæmdir helmingur til 3/4
stærðar þess verkefnis sem hér um
ræðir.
Spurningum sem verkfræði-
nemunum var ætlað að svara voru
hvar í borgarlandinu hægt væri að
koma píramídanum fyrir, hvernig
hann tæki sig út í umhverfinu sínu,
til hvers hægt væri að nota hann, úr
hverju hann yrði byggður, hvað
tæki langan tíma að byggja hann -
hvenær hægt væri að taka hann í
notkun og hvað nýr Keopsmýramídi
í Reykjavík kostaði.
Alls bárust fjórar úrlausnir.
Kostnaður við byggingarnar hefur
verið nefndur en sameiginlegt er
með öllum tillögunum að þær eru
nærri sjó eða í dalverpi - enginn
vildi byggja píramída á hæð. Þess
ber jafnframt að geta að umhverfis-
mat hefur ekki farið fram á tillögun-
um en skemmtilegt væri þó að sjá
pólitíska réttlætingu á verkinu.
Rétt er að taka fram til að forðast
misskilning að það er alls ekki ætl-
un borgaryfirvalda að reisa mann-
virki sem þetta, að minnsta kosti er
DV ekki kunnugt um það. Hér er
einungis um lausn þriðja árs nema í
verkfræði við Háskóla íslands að
ræða á verkefni sem hugmyndarík-
ur kennari þeirra í framkvæmda-
fræði, Steindór Guðmundsson, verk-
fræðingur og forstjóri, samdi en það
er jú hlutskipti margra verkfræð-
inga að vera ráðgjafar stjórnmála-
manna og þurfa þeir því að hljóta
þjálfun í ákvarðanatöku, kostnaðar-
vitund og geta metið með nokkru ör-
yggi hvað ólíklegustu framkvæmdir
geta kostað eða tekið langan tíma.
-PP
Yfirbygging Laugardalsvallar:
Tölvu-, símbúnaður og
stólar kosta 230 milliónir
Tillaga Halldórs, Gisla og Þor-
vaidar hljóðaði þannig að þeir vildu
hyggja pýramídann yfir Laugardals-
völlinn.
„Við ætlum að skófla núverandi
stúku í burtu og byggja 20 þúsund
manna völl - burt með stæðin og
burt með Valbjarnarvöll. Undir
þessu 147 metra háa mannvirki mun
knattspyrnuvöllurinn vera þannig
að það ætti að vera næg lofthæð fyr-
ir boltann," sagði Halldór þegar
hann mælti fyrir tillögunni.
Samkvæmt tillögunni átti frumat-
hugunum, fjármögnun, hönnun og
útboði að vera lokið á fyrsta árs-
fjórðungi árið 2000. Mannvirkið átti
hins vegar að vera risið á þriðja árs-
fjórðungi áriö 2005 og búið að koma
öllum búnaði fyrir um áramótin
2006 og 2007.
Fjárhagsáætlun fyrir yfirbygg-
ingu Laugardalsvallar gerir ráð fyr-
ir því að framkvæmdin kosti 13,77
milljarða, þar af er hönnunarkostn-
aður 7 prósent. Þá er gert ráð fyrir
rúmlega kUómetralöngum stálbitum
í bygginguna sem haldið verður
uppi af stálgrind. í mannvirkinu
verða reyndar tvær grindur og í
minni grindinni er gert ráð fyrir
samanlagt 110 kUómetra stálgrind
sem í verða 30 þúsund fermetrar af
gleri. Kostnaður við loftræstingu í
því 2,6 mUljón rúmmetra rými sem
myndast inni í pýramídanum kem-
ur tU með að verða 390 mUljónir
sem er litlu meira en kostnaður við
tölvur, símkerfi og stóla sem saman-
lagt kosta 230 mUljónir. Áætlaður
kostnaður við stúkuna eru 2 millj-
arðar en sú tala var fundin út með
því að margfalda kostnað við stúk-
una á Akranesi miðað við stærðar-
mismun stúknanna. Loks kostar
heUulögn, tyrfing og gróður 59 miUj-
ónir.
Stærsti ókostur sem menn al-
mennt sáu við þessa tiUögu var sá
að framkvæmdir gátu ekki hafist á
þessu kjörtímabili og í raun væri
mannvirkið ekki risið fyrr en að
tveimur kjörtímabilum liðnum.
PP