Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Side 18
18
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 L>V
Klukkan 6.40 hringdi vekjarinn.
Ég byrjaði á að taka þétt utan um
konuna sem gat sofið 30 mínútum
lengur og dreif mig svo fram úr og
frarn á bað. Hinn hefðbundni rakst-
ur hófst þar með sápu og rakvél og
tennurnar burstaðar. Merkilegt
hvað þetta hressir mann við og
dagurinn lifnar upp. Dóttir mín,
Hallgerður, vaknaði á sama tíma
enda fer hún með mér í bæinn.
Hún stundar nám í MR. Ég ristaði
brauð og setti á það þijár ostsneið-
ar og mysing, sem er mjög hefð-
bundið, og drakk Melroses-te. Ég
hljóp yflr helstu fréttir í Morgun-
blaðinu en kl. 7.10 var lagt af stað
úr Njarðvík. Tvær skólasystur
Hallgerðar fengu að fljóta með til
borgarinnar.
Sólin var að koma upp og bláum
bjarma sló á fjallseggjarnar, veður
eins og það gerist best á íslandi.
Það var töluverð umferð á braut-
inni og aiiir að tlýta sér. Ég velti
fyrir mér hve allt verður seinlegra
þegar hálkan kemur og myrkrið.
Það verður að lýsa þessa braut á
næsti ári, umferðin er mikil og
hröð. Ég stoppaði fyrir utan MR kl.
7.55, lagði siðan bílnum á bílastæði Ný'f þingmenn, Kristján Pálsson, Hjálmar Arnason, Siv Friðleifsdóttir og Sturla Böðvarsson, á þingsetningar-
þingsins og var kominn á skrifstof- de9i- DV-mynd GS
Dagur í lífi Kristjáns Pálssonar þingmanns:
húsið. Ég settist í sæti mitt númer
17. Forseti íslands setti þingið og
Davíð Oddsson forsætisráðherra
bað þingmenn að heiðra forseta og
fósturjörð. Þá tók aldursforseti
þingsins við stjórninni.
Ólafur G. Einarsson var k'osinn
forseti þingsins og stuttu síðar var
fundi frestað. Þá hófst þingflokks-
fundur Sjálfstæðisflokksins. Geir
Haarde var kosinn formaður þing-
flokksins enda traustur maður.
Sérfræðingar frá landbúnaðar-
ráðuneytinu komu og útskýrðu
drög að nýjum samningi við sauð-
fjárbændur. Um fimmleytið þurfti
fjármálaráðherra að fara á blaða-
mannafund þannig að umræðum
um þetta mál var frestað. Fundur-
inn stóð hins vegar til kl. 18.30 og
skrapp ég þá á skrifstofu mína
stutta stund og síðan var haldið
heim.
Eldhússtörfum sinnt
Konan var að rjúka á fund hjá
Lionessum, ég fékk rétt einn koss á
kinn og leiðbeiningar um upphitun
á kvöldmatnum fyrir mig og dæt-
urnar, Sigrúnu og Hallgerði.
Kvöldverðurinn var hitaður í ör-
una á mínútunni átta.
Ég var í sparifötunum enda
þingsetningardagur, settist varlega
í stólinn og krosslagði ekki fæt-
urna að ráðum konu minnar, því
þá krumpast buxurnar hræðilega.
Þetta man ég alveg í klukkutíma
eða svo.
Símaannir
Ég byrjaði daginn á að fara yfir
dagskrána en hafði tíma fyrir há-
degi til að vinna á skrifstofunni.
Ég hafði t.d. samband við Fisk-
veiðasjóð íslands en ráðamenn þar
voru ekki mættir til vinnu svo ég
byrjaði að vinna við greinargerð
vegna fundar sem ég átti að halda
um kvöldið um fráveitumál í
Reykjanesbæ. Ég náði þó sambandi
við Fiskveiðasjóð um níuleytið og
ræddi þar við starfsmann um
hugsanleg eigendaskipti á bát á
Suðurnesjum, hringdi síðan í
kaupandann í Keflavík og í söluað-'
ilann. Aftur hringdi ég í Fiskveiða-
sjóð og ræddi við Má Elísson og
síðan aftur í kaupandann. Þetta
tók mun meiri tíma en ég ætlaði en
það var best að Ijúka þessu af. Ég
fékk líka nokkur simtöl vegna D-
álmu sjúkrahúss Suðurnesja.
Síðan skrapp ég út í Alþingishús
til að ná í póstinn og hitti í leiðinni
nokkra plngmenn. Spjallað var um
fréttir af búvörusamningnum sem
hafði farið frekar hljótt en birtist
svo fullskapaður — eða hvað?
Þá hófst undirbúningur fyrir
fund sem átti að vera í hádeginu í
félagsmálaráðuneytinu. Einnig
hringdi ég til Sandgerðis og Garðs
til að hoða fund í vikunni.
r
Ovænt tíðindi
Klukkan tólf hélt ég af stað, fót-
gangandi, yfir í félagsmálaráðu-
neytið en þar beið smurbrauð og
rjúkandi kaffi. Á fundinum voru
rædd ýmis frumvarpsdrög og farið
yfir lista skuldugra einstaklinga.
Eftir fundinn gekk ég yfir Ing-
ólfstorgið og mætti þá Ölöfu, dótt-
ur minni, en hún er í hjúkrunar-
námi í HÍ og býr í Reykjavík. Sólin
hafði blindað mig og ég sá hana því
varla. Ég fékk nýjustu fréttir af
högum hennar en hún var að
skipuleggja partí, sem átti að vera
á fóstudag, fyrir frændsystkin sín
og hlakkaði til að hitta þau.
Þegar ég kom í þinghúsið upp úr
eitt fékk ég kafíi hjá þessum elsk-
um i kaffistofunni. Menn voru að
undirbúa gönguna yfir í Dómkirkj-
una. Ég heilsaði Vigdísi forseta en
datt ekki í hug að hún myndi tO-
kynna að hún gæfi ekki kost á sér
til endurkjörs á næsta ári. Ég hef
alltaf verið hrifinn af Vigdísi og
hef átt góð samskipti við hana í
gegnum árin.
Eftir að hlýtt var á messu í Dóm-
kirkjunni gengu menn aftur í Þing-
bylgjunni en hann samanstóð af
_steik frá sunnudeginum, pylsum
og pasta. Það kom í minn hlut að
ganga frá eldhúsinu þar sem stelp-
urnar voru uppteknar.
Eftir að fréttum lauk fór ég yfir
plögg vegna fundar sem hefjast átti
kl. 21.00 í fundarherbergi Reykja-
nesbæjar á Fitjum í Njarðvík. Þar
var ýmislegt rætt, svo sem samn-
ingar við Varnarliðið. Þegar fund-
inum lauk flýtti ég mér heim og þá
voru allar dömumar mínar komn-
ar. Við spjölluðum aðeins um við-
burði dagsins en konan er að und-
irbúa mikið námskeiðshald í jóla-
kortagerð. Ég horfði á ellefufréttir
og við vorum öll komin í rúmið
fyrir miðnætti.
Finnur þú fimm breytingar? 329
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð tuttugustu og
sjöundu getraun reyndust vera:
Nafn: _
Heimili:
1. Bjami Sigurðsson
Bíldshöfða 8
110 Reykjavík
2. Tinna Ósk Grímarsdóttir
Reynigrund 42
300 Akranes
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum- verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum liðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
TENSAI ferðaútvarp með kassettu, að
verðmæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmið-
stöðinni, Síðumúla 2, Reykjavík.
2. verðlaun:
Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru í
verðlaun heita Líkþrái maðurinn og
Athvarf öreigans, úr bókaflokknum
Bróöir Cadfael, að verðmæti kr. 1.790.
Bækurnar eru gefnar út af Frjálsri
fjölmiðlun.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 329
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík