Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1995, Side 29
UV LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995
37
Forsetakosningar eftir 264 daga:
Klukkan tifar og margir volgir
Fyrrj vikunni tilkynnti Vigdís Finnbogadóttir, for-
seti Islands, að hún hygðist ekki gefa kost á sér til
endurkjörs í embætti forseta eftir að hafa setið þrjú
kjörtímabil í forsetastóli. Þegar hafa nokkrir ein-
staklingar verið nefndir sem líklegir forsetafram-
bjóðendur í fjölmiðlum en enginn gefið afdráttar-
laus svör í þeim efnum.
DV kannaði hug nokkurra þeirra sem orðaðir hafa
verið við embættið hvernig þeir sjái nýjan forseta
fyrir sér. Jafnframt voru þeir spurðir hvort þeir
myndu gefa kost á sér í forsetaframboð ef eftir því
yrði leitað. Kosningar fara fram 29. júní næstkom-
andi. Klukkan tifar og Ijóst að margir eru tvístíg-
andi.
Eilert B. Schram:
Neitar ekki möguleika
á framboði
„Mer nnnst Vig-
dís hafa staðið sig afar vel og það
verður vandi fyrir
hvern sem er að W Jf
feta í fótspor
hennar. Ég geri
ráð fyrir því að sá
sem taki við dragi dám af því að ein- \ l'T G
hverju leyti hvemig þetta embætti
hefur mótast. Samt fer mótun emb-
ættisins nokkuð eftir þeim einstakl-
ingi sem verður valinn," segir Ellert
B. Schram, forseti ÍSÍ.
„Það væri hræsni af mér ef ég
neitaði því að framboð kæmi til
greina - hver vill ekki verða forseti?
Hitt er annað mál að það skiptir
litlu máli hvað ég vil eða hverjar
mínar langanir eru því það eru kjós-
endumir og fólkið í landinu sem á
síðasta orðið. Mér finnst hins vegar
eðlilegt að línur skýrist og þetta fari
í einhvern farveg áður en maður
hleypur til og tilkynnir framboð.“
Sigríður Snævarr:
Hygg ekki á ráttækar
hreytingar á starfi
„Ég tel ekki
eðlilegt, meðan ég
gegni því starfi
sem ég er í nú, að
ég gefi leiðbein-
ingar um hvernig
sinna beri starfi
forseta íslands,“
sagði Sigríður
Snævarr, sendi-
herra í Svíþjóð, aðspurð hvers kon-
ar forseta hún sæi sem eftirmann
Vigdísar Finnbogadóttur.
„Ég er í starfi sem ég hef lifandi
áhuga á og hygg ekki að svo stöddu
á neinar róttækar breytingar aðrar
en þær að ég flyst til starfa í utan-
ríkisráðuneytinu 1. febrúar næst-
komandi," svaraði Sigríður þegar
hún var spurð að því hvort það
kæmi til álita að hún gæfi kost á sér
til forsetaframboðs ef eftir því yrði
leitað.
Heimir Steinsson:
Óljást á þessari stundu
„Forsetaemb-
ættið er einn af
hornsteinum ís-
lenska lýðveldis-
ins. Þar verður að
sitja einarður og
sveigjanlegur ein-
staklingur með
eins fjölþætta
reynslu og yfirsýn
og framast er kostur á,“ segir Heim-
ir Steinsson útvarpsstjóri um hvern-
ig hann sjái forsetaembættið fyrir
sér í framtíðinni.
En kemur til álita hjá Heimi að
gefa kost á sér í embættið ef eftir því
yrði leitað?
„Spurningin er svo skilyrt að eng-
in leið er að svara henni. Ég veit á
þessari stundu ekkert hvað ég gerði
ef til mín væri leitað í alvöru," seg-
ir Heimir.
Tryggvi Gíslason:
Hugsun sem bíður
„Ég vil sjá
mann, karl eða
konu, sem getur
orðið sameining-
artákn þjóðarinn-
ar og leggur í
starfi sínu höfuðá-
herslu á sjálfstæði
þjóðarinnar, sögu
hennar og menn-
ingu. Þá þarf forseti að geta bent á
færar leiðir þegar vandi steðjar að,“
segir Tryggvi Gíslason, skólameist-
ari á Akureyri.
En kemur til álita hjá Tryggva að
gefa kost á sér ef eftir því yrði leit-
að?
„Þá hugsun verð ég að láta bíða
síns tíma,“ segir hann.
Fríðrík Ólafsson:
Hef hugsað mér
rálegra lífsmunstur
„Ég sé fyrir mér
forseta sem algjör
samstaða er um
meðal þjóðarinnar
og hefur að baki
góða reynslu og
þekkingu á mál-
efnum hennar.
Samkvæmt stjórn-
arskránni og fast-
mótaðri hefð hefur forseti íslands
ekki sama vald og þjóðhöfðingjar
ýmissa annarra landa. Mestu máli
skiptir að hann búi yfir virðuleika
og reisn og láti að sér kveða á þeim
sviðum sem það á við,“ segir Frið-
rik Ólafsson, skrifstofustjóri Alþing-
is.
En kemur til álita hjá Friðriki að
gefa kost á sér ef eftir því yrði leit-
að?
„Nei, ég hef hugsað mér annað og
rólegra lífsmunstur. Þetta er mjög
erilsamt og erfitt starf sem útheimt-
ir mikla þolinmæði og styrk. Það er
ekki öllum eiginlegt að sinna slíku,"
segir Friðrik.
Þórhildur Þorleifsdóttir:
Bitte nú
„Ég hef enga til-
búna forsetaupp-
skrift en hver og
einn sem gegnir
embættinu hlýtur
að móta það að
eigin stíl. Það er
mjög áríðandi að
fólk sé trútt sjálfu
sér í þessu starfi
en gangi ekki inn í mynd sem aðrir
hafa búið til. Sá sem það gerði yrði
aldrei annað en eins og slæm prent-
villa í bók. Mér finnst mjög mikil-
vægt að forsetinn hafi leyfi til skoð-
ana. Það má ekki gera þær kröfur til
forseta að hann sé einhvers konar
guðlegur skoðanaleysingi og þá
dauðlegur að sama skapi. Auk þess
þætti mér ekki spilla að næsti for-
seti yrði kona,“ segir Þórhildur Þor-
leifsdóttir leikstjóri.
En kæmi til álita hjá Þórhildi að
gefa kost á sér ef eftir því yrði leit-
að?
„Bitte nú! Því ekki það — en ætli
ég taki ekki frekar undir með þeim
flölda sem vill gjarnan sjá Guðrúnu
Agnarsdóttur í embætti forseta,“
segir Þórhildur.
Sigurður Líndal:
Mjög álíklegt
„Hlutverk for-
seta íslands er tví-
þætt. Annars veg-
ar er hann leiðtogi
þjóðarinnar sem
minnir hana á
sameiginleg gildi.
Hitt hlutverkið er
stjórnskipunar-
legs eðlis sem ger-
ir forsetanum fært að hafa áhrif á
þróun stjórnskipunar og stjórnmál í
landinu. Tveir síðustu forsetarnir
hafa lagt áherslu á fyrri þáttinn og
gert það með miklum ágætum, en
nú finnst mér kominn timi til að
leggja áherslu á þann síðari. Sá for-
seti þyrfti að hafa eittvert pólitískt
bakland,“ segir Sigurður Líndal
lagaprófessor.
En kæmi til álita hjá Sigurði að
gefa kost á sér ef eftir því yrði leit-
að?
„Ég hef ekkert leitt hugann að
þessu og ekkert aðhafst í þeim efn-
um og tel það satt að segja mjög
ólíklegt," segir Sigurður.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir:
Ég og Davíð
ekki gjaldgeng
„Ég held það
skipti verulegu
máli að til emb-
ættisins veljist að-
ili sem ekki er
umdeildur innan-
lands og því lík-
legt að þjóðin geti
fylkt sér á bak við
hann því forsetinn
á að vera sameiningartákn. I öðru
lagi skiptir mjög miklu máli að sá
einstaklingur sem í þetta embætti
velst sé fær í flestan sjó á erlendum
vettvangi því þetta er einn mikil-
vægasti sendiherra þjóðarinnar,“
segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri aðspurð hvernig forseta
hún sjái fyrir sér sem eftirmann
Vigdísar Finnbogadóttur.
Fréttaljós á
laugardegi
Kristján Ari Arason
og Pétur Pétursson
Aðspurð hvort hún gæfi kost á sér
ef eftir því yrði leitað segir Ingi-
björg svo ekki vera. „Mér finnst
ekki koma til greina að í þetta emb-
ætti veljist mjög pólitískur einstak-
lingur, það er einstaklingur sem er í
pólitík og er umdeildur, eins og ég,
og fyrst minnst hefur verið á forsæt-
isráðherra í þessu samhengi þá á
það þess vegna við um hann.“
Steingrímur Hermannsson:
Mun leggjast
undir feld
„Ég vona að í
embættið veljist
maður sem hefði
æðri hugsjónir
um framtíð þessa
lands, þætti vænt
um landið og þjóð-
ina og legði rækt
við manngildið.
Þessi maður ætti
að leggja áherslu á að við lifðum i
sátt við hvert annað og umhverfi
þess. Ég vildi líka sjá forseta sem
beitir sér fyrir því að íslendingar
hverfi frá þessu gegndarlausa kapp-
hlaupi um auð og beiti sér fyrir
meiri jöfnuði á milli manna, bæði
hér á landi og um heiminn," segir
Steingrímur Hermannsson seðla-
bankastjóri um hvernig forsetaemb-
ættið þróist í framtiðinni.
Hann hvorki játar því né neitar
aðpurður hvort hann gæfi kost á sér
til embættisins ef eftir því yrði leit-
að. Hann sé í góðu starfi og myndi
þurfa að leggjast undir feld og íhuga
það vel áður en hann svaraði því.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:
Mikifl þyrfti afl koma til
„Ég tel mikil-
vægt að auka
stj órnmálaleg
áhrif forsetaemb-.
ættisins til mót-
vægis við áhrif
framkvæmdar- og
löggjafarvalds, því
sé ég fyrir mér
einhvern eða ein-
hverja sem hafa reynslu af stjórn-
málum en getur jafnframt gegnt því
menningarlega hlutverki sem bæði
Vigdís og Kristján Eldjárn hafa gert
með miklum sóma. Minn kjörforseti
væri nokkurs konar sambland af
fyrstu tveimur forsetunum okkar og
þeim tveimur síðustu," segir Sigríð-
ur Dúna Kristmundsdóttir, dósent
við Háskóla íslands, aðspurð hvers
konar mann hún sér fyrir sér í emb-
ætti forseta Islands.
. Sigríður Dúna sagði að það þyrfti
mikið að koma til til að fá hana til
að íhuga að gefa kost á sér tU emb-
ættisins og lagði mikla áherslu á
orðið íhuga.
Sigmundur Guðbjarnason:
Ekki farinn
afl hugsa það
„Ég tel að for-
setinn eigi að vera
ópólitískur en
hann á samt að
hafa brennandi
áhuga á stjórn-
málum og beita
áhrifum embættis-
ins til að koma
málum fram.
Þetta er ekki spurning um að völd
fylgi embættinu en forsetinn á að
beita áhrifum embættisins fyrir mál
sem þarfnast stuðnings," sagði Sig-
mundur Guðbjarnason prófessor,
aðspurur hvernig hann sæi fyrir sér
embætti forseta íslands.
Aðspurður hvort hann gæfi kost á
sér ef eftir þvi yröi leitað sagðist
hann ekki farínn að hugsa slíkt enn
þá.
Ólafur Ragnarsson:
Hugmyndin verið
reifuð við mig
„Þvi er ekki að
neita að þessi hug-
mynd hefur verið
reifuð við mig af
ýmsum aðilum, en
það eru mörg nöfn
á kreiki, nú þegar
Vigdís Finnboga-
dóttir hefur til-
kynnt ákvörðun
sína,“ sagði Ólafur Ragnarsson út-
gefandi þegar Alþýðublaðið spurði
hann hvort hann hefði áhuga á að
bjóða sig fram til forsetakjörs á
næsta ári.
Guðrún Agnarsdóttir:
Ekki hugleitt
framboð af alvöru
„Vigdís hefur
svo nýlega til-
kynnt að hún sæk-
ist ekki eftir end-
urkjöri að ég hef
ekki hugleitt
hvernig eftirmað-
ur hennar eigi að
vera,“ segir Guð-
rún Agnarsdóttir
læknir.
Hún segist ekki hafa hugleitt eig-
ið framboð af nokkurri alvöru enda
nógur tími til þess.
Davíð Oddsson:
Ekki rétti tíminn
Davíð Oddsson
forsætisráðherra
sagði aðspurður í
sjónvarpsviðtali
sama dag og Vig-
dís tilkynnti
ákvörðun sína að
nú væri ekki rétti
tíminn til að ræða
hvort hann hygði
á forsetaframboð en bætti við að
honum líkaði ágætlega í núverandi
starfi.
Fleiri nefndir
til sögunnar
Matthías Johannessen ritstjóri og
Pálmi Matthíasson sóknarprestur
svöruðu ekki skilaboðum blaða-
manna og ekki náðist í Ólaf Egils-
son sendiherrra né Svein Einarsson,
fyrrum þjóðleikhússtjóra. Ýmsir
fleiri hafa verið nefndir til sögunnar
sem hugsanlegir forsetaframbjóð-
endur og þessi upptalning því engan
veginn tæmandi.