Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1995, Blaðsíða 19
V
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995
með Skagamönnum tvö ár i röð. Nú hafa
og undir hans stjórn mun Vesturbæjarliðið
dsbikarinn sem Kostic lyftir hér á loft eftir
nótsins ekki í landsliðinú:
ra meiddur
í sumar“
3arson, fyrirliði ÍA
Kristján og Ólafur hefðu ekki verið valdir
væri sú að þeir ætti við meiðsli að stríða.
„Ég er ekkert
meira meiddur en
ég hef verið í sumar
og ég lít þannig á að
ég hafi einfaldlega
ekki hlotið náð fyrir
augum landshðs-
þjálfarans. Ég neita
því ekki að ég hef átt við meiðsli að stríða
í hné í sumar en ég hef spilað þannig og
það hefur ekki háð mér í leikjunum. Auð-
vitað er maður ekki hress meö að detta
út úr landsliðinu en þetta er mál landsliðs-
þjálfarans en ekki mitt,“ sagði Ólafur viö
DV.
Kostic til KR
- og tekur væntanlega með sér þrjá leikmenn
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Lúkas Kostic skrifaöi í morgun
undir þriggja ára þjálfarasamn-
ing viö bikarmeistara KR í knatt-
spyrnu en eins og DV greindi frá
í síöustu viku fóru KR-ingar strax
í viðræður við hann eftir að Guð-
jón Þórðarson ákvað að taka við
hði Skagamanna að nýju. Lúkas
hefur undanfarin tvö ár þjálfað
Grindvíkinga við góðan orðstír
og heimildir DV herma að með
honum muni þrír leikmenn úr
Grindavíkurliðinu fylgja, Þor-
sfeinn Guðjónsson, Þorsteinn
Jónsson og Tómas Ingi Tómas-
son.
Lofa að gera mína
vinnu sem besta
„Ég er mjög ánægður með að taka
við KR. Ég lofa að gera mína
vinnu sem besta og það verður
síöan að koma í ljós hvort það
verður nóg til að vinna íslands-
meistaratitihnn eða ekki. Ég er
einnig dapur að fara frá Grinda-
vík. Ég ber sterkar tilfinningar
til hðsins og mun ávalít gera það.
Þar fékk ég tækifæri á að þjálfa
í fyrsta skipti. Það var frábært
fólk í stjóm, góðir íbúar og stór-
kostlegir leikmenn," sagði Lúkas
Kostic við DV í gærkvöldi.
Sviðin jörð í Grindavík
„Við erum gersamlega orðlausir.
Það er eins og kveikt hafi verið í
húsinu hjá manni og það er svið-
in jörð í Grindavík. Þegar maður
verður fyrir svona áfalh er mað-
ur helsærður og erfitt er að fá
menn til að starfa í þessu lengur.
Við trúðum á að Lúkas yrði hér
áfram en fyrir 10 dögum, áður en
ég fór til útlanda, handsöluðum
við samkomulag um að hann yrði
áfram. Að missa Lúkas kemur á
versta tíma fyrir okkur. Þaö er
búið að ráða alla bestu þjálfarana
á landinu. Lúkas hefur gert frá-
bæra hluti hér í Grindavík. Þetta
er frábær drengur og sem þjálfari
sá albesti í landinu. Það er fyrst
hægt að tala um KR sem stórveldi
í dag eftir að Lúkas er kominn
þangað," sagði Jónas Þórhahs-
son, varaformaður knattspymu-
deildar Grindavíkur, við DV í
gærkvöldi.
Jankovic næsti þjálfari
Strax í gærkvöldi fóru Grindvík-
ingar að þreifa fyrir sér með eftir-
mann Lúkasar Kostic og eftir því
sem DV kemst næst þá munu
þeir fyrst ræða við Milan
Jankovic sem leikið hefur með
hðinu undanfarin ár, „Þetta er
gulldrengur og við treystum hon-
um tíl að taka við liðinu. Viðvor-
um búnir að sjá hann sem eftir-
mann Kostic eftir 1-2 ár,“ sagði
heimildarmaður DV í gær.
Þá hefur nafn Harðar HUmars-
sonar, fyrram þjálfara FH,
Breiðabliks og Vals, verið nefnt
sem valkostur númer tvö. Hann
þjálfaði Grindavíkurhðið árið
1982, þá nýkominn frá Svíþjóð,
og vora menn ánægðir með störf
hans.
Ísland-Tyrkland á Laugardalsvelli annað kvöld:
Mikilvægasti leikur
Tyrkja frá upphafi
berjast við Svisslendinga um efsta sætið
LeUcur Tyrkjanna gegn Islending-
um í Evrópukeppninni annað kvöld
á Laugardalsvelhnum er einhver
mikilvægasti leUcur þeirra frá upp-
hafi. Tyrkimir standa nú á þrösk-
uldnum að komast í úrshtakeppnina
sem verður á Englandi næsta sumar.
Tyrkimir eiga tvo leiki eftir í riðlin-
um og báða á útivelh, fyrst gegn ís-
lendingum og síðan gegn Svíum.
Tyrkir veröa helst af öhu að vinna
þá leUci báða tíl að gulltryggja sig í
úrshtakeppnina. Þeir standa í harðri
baráttu við Svisslendinga um efsta
sætið í riðhnum en annað sætið gæti
einnig gefið þátttökurétt en þá lík-
lega með aukaleik. Þegar riðlakeppni
Evrópumótsins verður afstaðin fara
sex þjóðir í öðru sæti síns riðUs með
besta árangurinn beint í úrshta-
keppnina. Þær tvær þjóðir sem sýna
versta árangur í öðru sæti leika hins
vegar aukaleik um sæti í úrshta-
keppninni.
Til mikUs er að vinna fyrir Tyrkina
og hefur undirbúningur hðsins fyrir
leikinn gegn íslendingum staðið yfir
í tíu daga. Þeir hófu undirbúning í
Tyrklandi áður en fariö var tíl Finn-
lands þar sem leUcinn var vináttu-
landsleikur við heimamenn sem
lyktaði með jafntefli í síðustu viku.
Tyrkimir tjalda öUu sínu besta í
leiknum annað kvöld. Að vísu sakna
þeir Hakan Siikur, sem skoraði bæði
mörk Tyrklands í leiknum gegn
Sviss, en í fagnaðarlátum sínum yfir
seinna markinu fór hann úr peys-
unni og fékk fyrir vikið að sjá gula
spjaldið. Hann fékk fyrr í keppninni
að sjá gula spjaldið og fer því sjálf-
krafa í leikbann af þeim sökum.
Tyrkir hafa náö mun betri árangri
í riðhnum en þeir þorðu nokkum
tímann að vona. Þeir náðu árið 1954
aö komast í úrshtakeppni heims-
meistaramótsins en á síðustu árum
hafa orðið stórstígar framfarir hjá
þeim. Leikmenn leggja meiri metnaö
í það að leika fyrir landshðið en áður
með þeim árangri sem menn sjá nú.
Mörg met voru slegin í 1. deildirmi í knattspymu 1 sumar:
Haraldur lagði upp flest mörk
Óskar Jónsson skrifer
Fjölmörg met voru sett eða jöfnuð
í 1. deildar keppninni í knattspyrnu
í sumar.
í síðustu umferö dehdarinnar
voru skorað 28 mörk og þar féll
met en mest höfðu áður verið skor-
uð 27 mörk, í 5. umferðinni 1993.
Arnar Gunnlaugsson skoraði 15
mörk fyrir ÍA í seinni umferðinni
en besta skor í seinni umferð áttu
áður Pétur Pétursson (1978) og
Þórður Guðjónsson (1993), 13 mörk.
Arnar skoraði að meðaltah 2,14
mörk í leik (15 mörk í 7 leikjum)
og bætti 35 ára gamalt met Þórólfs
Becks.
Þrettán mörk vora skoruð beint
úr aukaspymum í sumar sem er
glæshegt met en þrívegis áður
höfðu verið skorað 8 mörk á tíma-
bih á þann hátt.
Þá voru skorað 34 mörk úr víta-
spymum en áður höfðu mest verið
skorað 28 mörk á þann hátt, árið
1991. Dæmdar vora 39 vítaspymur,
sem er metjöfnun.
Haraldur Ingólfsson, ÍA, skoraði
úr sinni sjöttu aukaspyrnu í 1. dehd
og jafnaði með því met Péturs
Ormslevs úr Fram.
Grétar Einarsson skoraði fyrir
sitt fjórða félag í 1. deUd, Grinda-
vík, en hafði áður skorað fyrir
Keflavík, Víði og FH. Einn annar
leikmaður hefur skorað fyrir fjög-
ur félög í deUdinni, Helgi Bentsson.
Níu mörk vora skorað í seinni
hálfleik þegar ÍA vann Keflavík,
3-2. Áður höfðu mest verið skorað
sjö mörk í seinni hálfleUc.
' Valsmenn skoruðu úr sinni 19.
vítaspyrnu í röð í 1. deUd á 11 áram.
Þórsarar skoruðu úr 18 spymum í
röð á árunum 1981-1987.
Rauö spjöld urðu 23, tveimur
fleiri en áriö 1994, sem var metár.
Fimm rauð spjöld vora sýnd í 12.
umferð en það hefur einu sinni
gerst áður, í 16. umferðinni árið
1990.
Ólafur Ragnarsson rak 7 leik-
menn af velh í sumar og jafnaði
með því ársgamalt með Gylfa Orra-
sonar.
KR-ingar fengu dæmdar á sig 8
vítaspymur og jöfnuðu met Víðis-
manna frá árinu 1991.
Haraldur
Ingólfsson,
ÍA, var sá
leikmaður 1.
deUdar sem
lagði upp
flest mörk,
fjórða árið í
röð. Hann var maðurinn á bak við
11 af mörkum Skagamanna. Næstir
komu Gunnar Oddsson sem lagöi
upp 8 mörk fyrir Leiftur og þeir
Pétur Björn Jónsson, Leiftri, og
Ingi Sigurösson, ÍBV, sem lögðu
upp 7 mörk hvor.
23
íþróttir
Flosisetti
öldungamet
Flosi Jónsson setti íslandsmet
öldunga í bekkpressu í 90 kg
flokki í kraftlyftingum á heims-
meistaramóti öldunga í greininni
sem fram fór í Kaupmannáhöfn
um helgina. Flosi lyfti 155 kg í
bekkpressunni, 230 kg í hné-
beygju og 250 kg í réttstöðulyftu.
Samtals lyfti hann því 635 kílóum
og hafnaði í níunda sæti.
Kristján og
Josepunnu
Kristján R. Hansson, GK, sigr-
aði í keppni án forgjafar á styrkt-
armóti Keilis í golfi á sunnudag-
inn. Kristján lék á 73 höggum,
eins og þeir Ásgeir Guðbjartsson,
GK, og Gestur Már Sigurðsson,
GO. í keppni með forgjöf sigraöi
Josep Georg Adesa, GR, á 57
höggum, RagnhUdúr Jónsdóttir,
GK, varð önnur á 58 höggum og
Terry Douglas, GR, þriðji á 62
höggum.
Karllék
667 leiki
Kolbrún Jóhannsdóttir, mark-
vörður Fram í handknattleik
kvenna, lék shm 600. leik fyrir
félagið fyrir skömmu eins og áður
hefur komið fram. Það er félags-
met en hins vegar er ekki rétt aö
þetta sé met í boltaiþrótt á íslandi
eins og sagt var á dögunum. Karl
Jóhannsson handknattleiksmað-
ur lék 667 leiki á löngum ferii sín-
um með KR og HK, en hann lagði
skóna á hilluna 46 ára gamall.
Námskeiðfyrir
þolfimidómara
Þolfiminefnd Fimleikasam-
bands íslands heldur dómara-
námskeið í íþróttamiðstöðinni í
Laugardal dagana 12. til 15. okt-
óber. Kennarar era Linda Hilm-
arsdóttir og Guðrún ísberg. Nám-
skeiðinu lýkur með prófi og út-
skrifast þátttakendur sem lands-
dómarar.
Reynismenn
eru hættir
Reynir úr Sandgerði hefur
dregið lið sitt út úr 2. deildar
keppnínni í handknattleik og bik-
arkeppni HSÍ. Reynir mætti ekki
til leiks gegn ÍH í fyrstu umferð
deildarinnar á föstudagskvöldiö,
eins og áður hcfur komið fram.
Þetta þýðir að Selfyssingar eru
komnir fyrstir liða í 16-Uða úrslit
bikarkeppninnar en þeir áttu aö
sækja Reyni heim í 1. umferð.
Etnar Pálaaon, DV, Borgaxnesi:
Örvalsdeildarlið Skailagrims-
manna varð fyrir áfalli fyrir leik-
inn gegh Skagamönnumum heig-
ina. Sveinbjörn Sigurðsson sneri
sig illa á ökkla á síöustu æfingu
fyrir leikinn og er taíið að hann
verði frá í nokkrar vikur. Svein-
björn er sterkur frákastari og
mikill baráttujaxl.
Ekkifrágengið
meðÞorlák
Ekki er öraggt að Þorlákur
Ái-nason verði næsti þjálfari
knattspyrnuliðs Ægis eins og sagt
var í DV í gær. Að sögn tals-
manna Ægis er Þorlákur einn
þeirra sem til greina koma en
ekkert hefur verið ákveðið í þeim
efnum enn.