Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1995, Blaðsíða 17
TI'V ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1995
veran 17
Við hvað ertu
hræddur?
Innst inni eru flestir ef
ekki allir hrœddir vió eitt-
hvað, hvort sem það er nú
lofthrϚsla, innilokunar-
kennd eða eitthvaó annað.
Oft er viðkomandi hrœdd-
ur um að eitthvað óvænt
og hrœðilegt komi fyrir
hann og stundum hefur
fœlnin, eins og þetta er
gjarnan nefnt, fylgt ein-
staklingnum í áraraðir,
hvort sem það á rætur sín-
ar að rekja til einstakra at-
burða í barnœskunni eða
einhvers annars. í öfgatil-
fellum kallast þessi ótti
fœlni og í mörgum tilfell-
um er hann svo sterkur að
erfitt er að komast yfir
fœlnina án aðstoðar en við
skulum líta hér á nokkrar
tegundir fœlni.
Innilokunarkennd
Sumir óttast að lokast inni þar
sem síst skyldi, til dæmis í lyftum
eða litlum, jafnvel gluggalausum
herbergjum. Þeim er ákaflega illa
við alla slíka staði, forðast að fara
inn á þá og leggja á sig og stundum
sitt samferðafólk ómælt erfiði við að
ganga upp stiga þó að lyfta sé í hús-
inu. Þessi innilokunarkennd bendir
til þess að viðkomandi einstakling-
ur vilji breytingar og óski þess heitt
að geta byrjað nýtt líf.
Lofthræðsla
Margir vita um lofthræðsluna og
þekkja frá sjálfum sér eða öðrum að
um leið og lofthrædd manneskja er
komin hátt upp í loftið fer hana að
svima og henni líður illa. Þessi loft-
hræðsla getur gengið svo langt að
þegar lofthrædd manneskja fer út á
svalir í blokk er hún nærri yfirliði.
Lofthræðslan sýnir ótta við tómið
allt umhverfis. Sá lofthræddi hefur
stöðugt þá tilfinningu að jörðin sé
við það að hverfa undan fótum
hans.
Lofthræðsla og innilokunarkennd
eru sjálfsagt algengustu hræðslutil-
finningarnar sem fólk hefur en
margir eru samt hræddir við fólks-
fjölda og óttast að verða sér til
skammar frammi fyrir fólki. Þessi
hræðsla verður til þess að mann-
eskjunni líður illa í mannmergð eða
hópi fólks, hún hefur á tilfinning-
unni að hún sé meðal fjenda og geti
jafnvel orðið fyrir skaða af völdum
þessa fólks.
w
Otti við rottur
Sagt er aö hræðsla við rottur sé
ein af barnalegustu fælninni sem
fólk hefur þvi að sá sem er hræddur
við lítil dýr eins og rottur er alls
ekki í ástandi til að hafa stjórn á til-
fmningum sínum. Ekki hefur tekist
að ráða í það hvað þessi hræðsla
þýðir fyrir viðkomandi en talið er
að það sé eitthvað mjög merkilegt.
Hræðsla við eld
Tilfinningar manna gagnvart eld-
inum geta verið skrýtnar því að sá
sem óttast eldinn finnur jafnframt
að hann dregst að honum eins og
segull. Það aðdráttarafl getur, í und-
antekningartilfellum sem betur fer,
gengið svo langt að viðkomandi er
við það að meiða sig. Til allrar ham-
ingju gerist samt' ekkert slíkt og sá
fælni helst óskaddaður.
Myrkfælni
Myrkfælni er eitthvað sem marg-
ir þekkja úr barnæsku sinni og ótt-
inn við myrkrið og það sem það get-
ur haft að geyma getur fylgt sumum
Sá lofthræddi hefur stöðugt þá tilfinningu að jörðin sé við það að hverfa
undan fótum hans. DV-mynd GVA
fram á fullorðinsár. Talið er að það
sé mjög auðvelt að komast yfir þessa
myrkfælni, sérstaklega eftir því sem
aldurinn færist yfir, en skýringuna
á óttanum má sjálfsagt rekja til þess
að flestir eru hræddir við það sem
þeir þekkja ekki og sjá ekki.
Vatnshræðsla
Börn verða gjarnan hrædd við
vatn, sérstaklega ef þau eru ekki
vön því að hreyfa sig í vatni frá
unga aldri, og þessi hræðsla getur
fylgt þeim alla ævi. Bæði börn og
fullorðna getur dreymt um vatn, til
dæmis hafið, og stórar öldur sem
kaffæra. í sumum tilvikum fær fólk
þá tUfinningu að það bæði hræðist
hafið og dragist líka að því. Þessi
ótti getur þýtt að viðkomandi langar
til að verða „frjáls" í lífinu en sam-
tímis óttast hann frelsið.
Endursagt
úr Norsk Ukeblad
Besta verðið á vídeóspólum
- og ekki á kostnað gæðanna.
Universum er þýsk gæða-
framleiðsla frá Quelle.
180 mín. á kr. 299
240 mín. á kr. 399
Spólurnar eru til i verslun okkar.
Landsbyggöarfólk ath.
Pantið nýja
Quelle haust-
og vetrarlistann
á kr. 600
og fáið spólurnar
um leið án
sérstaks
burðargjalds.
Verslun, Dalvegi 2, Kópavogi
Pöntunarsími 564 - 2000
NOATUN
Opið til kl. 21 öll kvöld vikunnar
NÓATÚN117 - S. 561 7000 • ROFABÆ 39 - S. 567 1200 • HAMRABORG 14, KÓP. - S. 554 3888
• FURUGRUND 3, KÓP. - S. 554 2062 • ÞVERHOLTI 6, MOS. - S. 566 6656
• JL-HÚSINU VESTURBÆ - S. 552 8511 • KLEIFARSEL118 - S. 567 0900
• AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68 - S. 553 6700.