Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995
45
Metsöluhöfundurinn Michael Ridpath með bók sína Myrkraverk sem Vaka- Helgafell hefur gefiö út, fyrst foriaga
heiminum utan Bretlandseyja. DV-mynd GV/
Breski metsöluhöfundurinn Michael Ridpath:
Mig vantaði eitthvert
nýtt tómstundagaman
- segir Michael m.a. í viðtali við DV um bókina Myrkraverk
„Ég veit eiginlega ekki nákvæm-
lega af hverju ég byrjaöi að skrifa.
Mig vantaði eitthvert nýtt og
skemmtilegt tómstundagaman. Ég
var farinn að finna fyrir ákveðnum
leiða í vinnunni og fannst tilvalið
að fara að skrifa spennusögur. Ég
varð mér úti um tölvu og sá að
besta notkunin með hana var að
skrifa einhverjar sögur,“ sagði met-
söluhöfundurinn Michael Ridpath í
samtali við DV en Vaka-Helgafell
hefur gefið út fyrstu bók hans,
Myrkraverk (Free to Trade á frum-
málinu) sem slegið hefur í gegn
víða um heim. Bókina ritaði Mich-
ael eftir handbók um ritlist en hann
starfaði áður sem verðbréfasali í
London. Nú hefur Capitol Fiims
keypt kvikmyndaréttinn af bókinni
fyrir litlar 100 milljónir króna.
Bókaáhuginn á íslandi
kom mér á óvart
Bókin hefur verið gefin út í 30
löndum en hún kom fyrst út í Bret-
landi fyrir jólin 1993. ísland var
fyrst landa fyrir utan Bretland til
að fá útgáfuréttinn og sagði Michael
þá hjá Vöku-Helgafelli hafa verið
furðu skjóta til en sýnt mjög fag-
mannleg vinnubrögð.
„Vissulega kom mér það á óvant
að ísland var fyrst til að taka bók-
ina. Það kom mér skemmtilega á
óvart að vita hvað áhugi fyrir bók-
um væri mikill á íslandi. Mér skilst
að hér séu fleiri bækur lesnar á
hvern ibúa en annars staðar í heim-
inum.“
Söguþráður bókarinnar stendur
nálægt starfi Michaels. Bókin fjallar
um Paul Murrey sem er ungur verð-
bréfamiðlari í kauphöllinni í
London þar sem hann höndlar með
milljónir punda á hverjum degi.
Debbie, vinnufélagi hans, finnst
drukknuð í ánni Thames og fer
Paul að grafast fyrir um orsakir
þessa. Fyrr en várir hefur hann
dregist inn í flókinn vef blekkinga,
svika og morðs. Áður en hann veit
af hefur hann verið sakaður um
innherjaviðskipti og að hafa myrt
Debbie.
í minningu eiginkonunnar
Þetta hljómar spennandi og að-
spurður sagði Michael að starfið
sitt væri ekki svona skemmtilegt og
lifandi. Hann sagði að þráðurinn
hefði spunnið upp á sig og fljótlega
orðið til. En þegar handritið var svo
gott sem tilbúið varð Michael fyrir
áfalli í einkalífinu. Kona hans,
Candy, dó af barnsförum og hann
' segir litlu hafa munað að hann
hætti við að gefa bókina út. En
hann ákvað að klára bókina endan-
lega og gefa hana út í minningu eig-
inkonu sinnar.
„Þetta var vissuléga erfið ákvörð-
un en Candy hefði viljað að ég gerði
þetta,“ sagði Michael sem á tvær
dætur, Júlíu, 4 ára, og Láru, 2 ára.
Hann er 33 ára gamall.
Michael starfar enn þá við verð-
bréfasölu, aðaliega í ráðgjöf, en
bara í hlutastarfi.
d,,Aö öðru leyti hef ég helgað mig
ritstörfum. Ég vil verða góður
spennusagnahöfundur en ég verð
það ekki bara með einni bók,“ sagði
Michael en hann er að ljúka við
nýja bók sem á að koma út í Bret-
landi eftir um það bil ár. Hún fjall-
ar um mann sem stofnar tölvufyrir-
tæki í kringum sýndarveruleika-
tæknina. Maðurinn er myrtur og
bróðir hans tekur yfir fyrirtækið.
„Þama er ég að fjalla um nýjustu
tæknina út frá sjónarhóli fjármála-
markaðarins."
Verðbréfasalar meira spenn-
andi en fólk heldur
- Hver eru þín skilaboð til les-
enda á íslandi sem koma til með að
lesa Myrkraverk?
„Ef þeir skiija ekkert í fjármála-
markaðnum þá ætti bókin að vera
áhugaverö því hún skýrir margt.
Verðbréfasalar eru meira spenn-
andi en fólk heldur.“
Eins og áður kom fram er titill
bókarinnar „Free to Trade" á frum-
málinu en var þýddur sem
„Myrkraverk" á íslensku. Við
fyrstu sýn er þetta ekki nákvæm
þýðing en Michael sagði að hún
væri ótrúlega góð.
„Orðtakið „free to trade" hefur
margs konar þýðingu á ensku og
hefur sérstaka merkingu í kauphall-
arviðskiptum. Það kom mér ekki á
óvart að bókin fengi mismunandi
þýðingar á öðrum tungumálum og
það hefur verið skemmtilegt að sjá
útkomuna. Sumar þjóðir stela titl-
um hver frá annarri. Þannig fengu
Danir titilinn frá Þjóðverjum
o.s.frv. Ég er mjög ánægður með ís-
lensku þýðinguna."
TIL SÖLU TIL SÖLU
Höfum til sölu Grove RT875S.
Kraninn er með 33,5 m
bómu + JIBB.
Eigin þyngd ca 32 tonn.
Spil með háu og lágu drifi.
Gott verð og mjög hagstæðir
greiðsluskilmálar fyrir traustan
kaupanda.
Ci
Allar frekari
upplýsingar
í síma 565-5261
Ath. Höfum einnig til sölu
á sama stað BPR byggingar-
krana. Krani þessi er mjög
öflugur og lyftir 4 tonnum út
í 50 metrum.
BYGGÐAVERK HF.
Reykjavíkurvegi 60
Sími 565 5261
Fax 555 4959
Gásmiðstöðvar jprumatic
í stærðum: 1800 - 2400 - 2800 og 4000 W, 12 og
24 volt. Fyrir: vörubíla, vinnuvélar, báta, húsbila,
hjólhýsi, sumarbústaði o.fl.
«C
' Byðslugrannar á gas og rafmagn.
■ Thermostat til að halda réttu hitastigi.
* Mjög örugg tæki.
* Mjög hreinleg og án mengunar.
’ Mjög hljóðlátar.
* V-þýsk gæðaframleiðsla í áratugi.
* Einnig tilheyrandi lagningarefni, s.s. barkar, rör, beygjur, ristar o.fl.
Láttu ekkí kuldann kvelja þig.
BÍLARAF HF.
Borgartúni 19, sími 552 4700 - fax 562 4090
TÆKNI
///////////////////////////////
AUKABLAÐ UM
TÆKNI
Miðvikudaginn 8. nóvember mun aukablað um tækni
fylgja DV. Blaðið verður fjölbreytt að efnisvali en í
því verður fjallað um fjölmargt sem viðkemur tækni
til nota á heimilum og víðar.
I blaðinu verður fjallað um sjónvörp, myndbands-
tæki, myndavélar, símtæki ýmiss konar, vakt- og
þjófavarnakerfi, auk ýmissar hagnýtrar tækni sem
nýst getur á heimili og vinnustað.
Þeim sem vilja koma á framfæri nýjungum og efni í
blaðið er bent á að senda upplýsingar til ritstjórnar
DV, Hauks Lárusar Haukssonar, fyrir 31. október.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa í
þessu aukablaði vinsamlega hafi samband við Sonju
Magnúsdóttur, auglýsingadeild DV, hið fyrsta
í síma 550 5722.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur
auglýsinga er fimmtudagurinn 2. nóvember.
Ath.l Bréfasími okkar er 550 5727.