Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Side 4
4
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995
Yfirlögregluþjónn RLR um gagnrýni vegna niðurstöðu dómstóls í „afamálinu“:
Ávani hjá dómurum að
kenna lögreglunni um
„Það er orðinn ávani hjá dómur-
inn, sem treysta sér ekki til að sak-
fella á grundvelli þeirra gagna sem
fyrir liggja, að sletta einhverju í lög-
regluna. Þetta er ekki eina málið
því fyrir þessu er að skapast hefð.
Dómararnir í þessu sakamáli gagn-
rýndu málsmeðferðina með þeim
hætti að sérfræðingur hefði ekki yf-
irheyrt bamið strax. Lögreglan
hefði verið sérfræðingur í þessu til-
viki og tekið ítarlega skýrslu af
barninu þegar í upphafi," sagði
Hörður Jóhannesson, yfirlögreglu-
þjónn hjá RLR, um gagnrýni sem
fram hefur komið á rannsóknarað-
ila í svokölluðu „afamáli" þar sem
karlmaður á sjötugsaldri var sýkn-
aður af ákæru um að hafa misnotað
barnabarn á rúmlega þriggja ára
tímabili.
Hörður segir að dómararnir í afa-
málinu hafi í raun komist að þeirri
niðurstöðu að hann væri sekur - en
hefðu ekki getað sakfellt hann:
„í dómsniðurstöðunni em dómar-
amir að segja að maðurinn sé sekur
en - það séu einhver smáatriði sem
era löggunni eða einhveijmn öðrum
að kenna en þeir treystu sér ekki til
að sakfella hann. Dómurinn getur
alltaf lagt fyrir aðila að afla frekari
gagna og skýra málið ef það er van-
reifað. Hann verður því að komast
að niðiu-stöðu og standa við hana. Ef
hann sýknar vegna sönnunarskorts
þarf ekki að kenna öðram um það.“
Hvað varðar fulltrúa lögreglunn-
ar sem ekki hefði munað gjörla eftir
skýrslutöku vegna barnsins fyrir
rúmum tveimur árum sagði Hörður:
„Hvað átti hann að muna? Hann
gerði skýrslu og staðfesti fyrir dómi
að hann hefði tekið hana og skýrsl-
an lá fyrir hjá dóminum."
Aðspurður um gagnrýni dómar-
anna um að myndbandsupptaka í
fyrsta viðtali hjá sérfræðingi hefði
átt að liggja fyrir sagði Hörður:
„Vissulega er ýmislegt í okkar
starfsreglum sem hefur verið endur-
nýjað. Alltaf þar sem böm koma
nærri er leitað til barnaverndaryfir-
valda og fulltrúi þaðan hefúr verið
viðstaddur. Um þetta gildir góð sam-
vinna. Einnig hefúr tíðkast að taka
upp myndband til að þurfa ekki að
láta böm endurtaka frásagnir sínar
fyrir dómi. Það er hins vegar engin
afsökun fyrir dóminn að mynd-
bandsupptaka sé ekki til. Stúlkan
kom fyrir dóminn og lögregluskýrsl-
an hennar lá fyrir. Það er ekki hægt
að sýkna án þess að þurfa alltaf að
vera að hnýta einhverju í rannsókn-
araðila.“ -Ótt
Eignatjón í óveðrinu í síðustu viku
- í milljónum króna -
Óveðrið í síðustu viku:
Eignatjónið talið
nema um milljarði
Lána bát
til sýna-
töku
hafsbotni
við Eyjar
Ómar Garðarss, DV, Vestmannaeyjum:
Útvegsbændafélag Vest-
mannaeyja hefur hlaupið imdir
bagga með Rannsóknasetrinu
hér við sýnatöku á hafsbotni og
lána útvegsmenn einn bát í
hverjum mánuði til verksins.
Páll Marvin Jónsson, for-
stöðumaður setursins, segir að
upphafið megi rekja til þess að
setrið fékk styrk úr Lýðveldis-
sjóði til sýnatakna á hafsbotni
kringum Eyjar sem eiga að
standa í eitt ár.
„Ætlunin er að rannsaka vöxt
og tímgun botndýra og samband
þeirra við framleiðni í yfirborði
sjávar," sagði Páll í samtali við
DV.
Tók mestan tíma að finna
réttu staðina
Rannsóknabáturinn Friðrik
Jesson reyndist of lítill fyrir
sum sýnatökutækin. Þess vegna
hófu útvegsbændur samstarf við
Rannsóknasetrið.
„Þeir lána einn bát í hverjum
mánuði til að afla sýna. Magnús
Kristinsson, formaður Útvegs-
bændafélagsins, reið á vaðið og
lánaði Smáey VE í fyrsta leið-
angurinn sem var í október.
Hver leiðangur stendur í hálfan
til einn dag og era sýni tekin allt
í kringum Eyjar. Ég er mjög
ánægður með þetta samstarf og
fyrsti leiöangurinn heppnaðist
mjög vel. Mestan tíma tók að
Ljóst er að norðanáhlaupið í síð-
ustu viku eyðilagði eignir viðs veg-
ar um landið fyrir hátt í milljarð
króna. Upphæðin er fjórum sinnum
hærri en framlög ríkisins til Veður-
stofu íslands og samsvarar verðgildi
meðalstórs frystitogara. Eyðilegg-
ingin samsvarar því að nánast öll
framleiðsla þjóðarinnar á einum
degi hafi fokið út í buskann.
Eignatjónið varð að stærstum
hluta á Vestfjörðum. Á Flateyri hafa
menn áætlað tjón á húsum, bílum
og öðrum eignum á hátt í 300 millj-
ónir. Á vegum Viðlagatryggingar er
nú unnið að fullnaðarmati en ekki
liggm- fyrir hvenær því verður lok-
ið. Á ísafirði skemmdust hús sorp-
brennslunnar Funa og Steiniðjunn-
ar og era bæði tjónin talin nema
tugum milljóna króna.
Dreifikerfi rafmagnsveitna varð
illa úti í óveðrinu, einkum á Norð-
urlandi og Vestfjörðum og er tjón
þeirra metið á 380 milljónir króna.
Þá urðu hafnarmannvirki einnig
fyrir barðinu á veðurofsanum. Alls
hafa skemmdir greinst á 15 höfnum
um landið, allt frá Reykjanesi og
norður um land að Vopnafirði. Sam-
tals er tjónið á höfnunum metið á
um 100 milljónir króna.
Víða mn landið urðu bændur fyr-
ir miklum skakkaföllum vegna
óvæntrar snjókomu og hríðarbyls í
síðustu viku. Talið er að vel á ann-
aö þúsund kindur hafi drepist vegna
þessa og Qöldi hrossa að auki. Tjón-
ið er talið nema um 20 milljónum
króna.
Auk þessa má áætla að eignir fyr-
ir tugi milljóna króna hafi eyðilagst
eða skemmst i óveðrinu. Margir bif-
reiðaeigendur og húseigendur urðu
fyrir tjóni vegna fokskemmda og í
höfnum urðu skemmdir á bátum. Þá
eru dæmi um að vegir hafi
skemmst. . -kaa
Menntaskólaball:
Flaska
í gegn-
um
rúðu
Róbert Schmidt, DV, Suðnreyri:
Dyravörður á menntaskóla-
dansleik slapp með skrekkinn
er áfengisflösku var kastað af
miklu afli í gegnum stóra rúðu
á félagsheimili staðarins eftir
dansleikinn.
Glerbrotiun rigndi yfir salinn
og hafnaði flaskan við fætur
dyravarðarins óbrotin þar sem
hann var að sópa gólf. Flaskan
var hálliúll af áfengi og mynd-
aði hún lítið gat á stóra rúðu
með tvöföldu gleri. Þeim sem
kastaði flöskunni hafði verið
vísað á dyr í lok dansleiksins
vegna óláta.
Vitni sáu til mannsins og var
lögreglu gert viðvart. Óhætt er
að segja að hálfgerð skálmöld
hafi rikt þetta kvöld á Suður-
eyri. Mikil ólæti fylgdu sam-
komu menntskælinga, líkamsá-
rásir, innbrot og þjófnaður.
Lést af
brunasárum
Maöur á miðjum aldri lést í
fyrrinótt á Borgarspítalanum Eif
brunasárum sem hann hlaut
daginn áður á Sauðárkróki.
Kom eldur upp í íbúð mannsins
og hlaut hann banvæn bruna-
sár. Ekki urðu umtalsverðar
skemmdir á íbúðinni. -GK
SúgandaQörður:
Refur á
flótta
undan flóð-
bylgju
Róbert Schmidt, DV, Suðureyri:
Skömmu eftir flóðbylgjuna,
sem skall á land eftir snjóflóð
sem olli henni hér á Suðureyri
í siðustu viku, sást refúr á
vappi í miðju þorpi. Mætti
hann fólki sem var á ferð í
ófærðinni og var hinn spakasti.
Talið er að refurinn hafi flú-
ið veðurofsann niður á láglendi
en orðið síðan skelfdur mjög
eftir flóðbylgjuna sem fór langt
upp á land. Náði rebbi að kom-
ast í fiskúrgang og át sig sadd-
ann. Enginn skipti sér af refn-
um enda í önnur hom að líta.
Fékk hann því óáreittur að
heilsa þorpinu og íbúum þess
þennan mannskæða dag, sem
seint líður mönnum úr minni.
Launanefndin er retti vettvangurinn
- segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ
„Við eigum von á viðræðum við
verkalýðshreyfinguna á vettvangi
launanefndar og erum að sjálfsögðu
tilbúnir til þess. En það er ekki um
neitt annað form á viðræðum að
ræða,“ sagði Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri VSÍ, að-
spurður hvort vinnuveitendur séu
tUbúnir tU viðræðna við verkalýðs-
hreyfinguna um gildandi kjara-
samninga.
Hann var þá spurður hvort VSÍ
væri ekki tUbúið tU að ganga tU
venjulegra kjarasamningaviðræða
með það fyrir augum að taka gUd-
andi kjarasamninga upp.
„Nei, við komum ekki tU með að
líta þannig á að kjarasamningar séu
lausir til almennrar endurskoðunar.
Við ætlum ekki að fara að efna hér
tU viðræðna við á mUli 200 og 300
verkalýðsfélög í landinu. Það er ekk-
ert inni í myndinni," sagði Þórarinn.
Hann benti á að innan skamms,
sennUega i næstu viku, kæmi launa-
nefndin saman í fyrsta sinn, tU að
meta ástand og horfur eftir gerð fe-
brúarsamninganna. Hann sagðist
hafa tekið eftir því að forseti ASÍ
hefði talað um að auka kaupmátt og
nefiidi í þvi sambandi matvæli. Þar
ættu ASI og VSÍ fullkomlega sam-
leið og sameiginlegt markmið í því
að vUja fá fram breytingar í þeim
efnum.
„Þess vegna á ég von á því að við
förum í mjög nákvæmar og upp-
byggilegar viðræður á vettvangi
launanefndarinnar. Hvort þar verði
kaUaðir tU einhverjir fleiri menn er
bara svona eins og gengur. En vett-
vangur viðræðna VSÍ og ASÍ nú er
launanefndin enda er það innan
hennar sem við eigum samnings-
bundin samskipti. -S.dór
Opel , vinsælasti bfll Evrópu WT
v*r
OPEL Opel mest seldi bíll Evrópu 5 ár í röö .