Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Page 5
LAUGARDAGUR 4. NOVEMBER 1995 Súgandafjöröur: Þorskeldið fór í flóðbylgjunni Róbert Schmidt, DV, Suðureyri: „Ætli ég reyni ekki aftur næsta vor - þ'etta fór allt forgörðum í flóð- bylgjunni," sagði Jens D. Holm, áhugamaður um fiskeldi, sem var fyrir talsverðu tjóni þegar fiskeldis- kví eyðilagðist í Suðureyrarlóni. Það var í síðustu viku þegar flóð- bylgja gekk þar á land. Jens hafði veitt um 1000 fiska og sett í lónið, mest þorsk í eldiskvína. „Ég sá að mávar voru að narta i dauðan fisk skpmmu eftir flóðbylgj- una og þá vissi ég að þetta var allt farið.“ Mikil vinna liggur að baki fiskeldinu en Jens hyggst þó reyna aftur næsta vor. Honum gekk vel að fóðra fiskana í sumar. Þeir tóku allt sem gafst hverju sinni af mikilli græðgi. mið af Þorgeirsmálinu - staðfesting á að trúnaðar sé gætt við heimildarmenn, segir Þorgeir Leikfélag Reykjavíkur: Ágóði til Flateyringa Leikfélag Reykjavíkur hefur ákveðið að ágóði af sýningu á verk- inu Degi á Litla sviði Borgarleik- hússins annað kvöid renni til Flat- eyringa sem átt hafa um sárt að binda eftir harmleikinn. Dagur, sem er eftir Heienu Jónsdóttur, var frumsýnt sl. fimmtudagskvöld við góðar undirtektir. Sýningin annað kvöld hefst kl. 20.30 en áhorfendur eru góðfúslega beðnir að koma ekki síðar en kl. 20. Forráðamenn Leikhússins vonast til að húsfyllir verði á sýningunni. Fullt hús gæti þýtt 200-300 þúsund krónur í ágóða til Flateyringa. -bjb \ hefur útvíkkað réttindi blaða- manna,“ sagði Þorgeir. „Ég virðist hafa náð þeim áfanga að fá staðfest það ákvæði í siðareglum blaðamana að þeir gæti trúnaðar við heimildar- menn sína og að maður megi nota almenningsálit og sögusagnir. Þetta basl mitt við dómstólana á sinum tíma hér á landi hefur borið árang- ur sem hefur komið öðrum að gagni. í mínu máli var ég dæmdur fyrir brot á 108. greininni sálugu en mál mitt hefur leitt til fjögurra hluta. 108. greinin var afnumin, ný lög Siðanefnd blaðamanna í Suður- Afríku tók mið af dómi mannrétt- indadómstóls Evrópu í máli Þor- geirs Þorgeirsonar rithöfundar þeg- ar 25 kærur bárust frá hemaðaryfir- völdum á hendur rannsóknarblaða- mönnum vikuritsins Weekend Star fyrir meiðyrði. Þorgeir sagði í sam- tali við DV að hann gleddist yfir því að áralangur málarekstur hans hefði ekki aðeins borið árangur hér á landi og víðar í Evrópu heldur einnig í öðrum heimsálfum. Málið er þannig vaxið að árið 1987 fórst Boeing 747 breiðþota með 159 manns innanborðs en enginn komst af. Rannsóknamefnd komst að þeirri niðurstöðu að líklegt væri að kviknað hefði í farmi sem stóð á vörubrettum, eldur breiðst út og síð- an leitt til þess að vélin hrapaði í sjóinn - hins vegar væri engu hægt að slá föstu um kvað beinlínis olli íkveikjunni. Rannsókríarblaðamenn Weekend Star tóku málið upp í 32 greinum í nokkrum tölublöðum seint á síðasta ári og héldu því m.a. fram að eldsneyti til hernaðarnotk- unar hefði valdið íkveikjunni. Þar studdust þeir við nafnlausa heimild- armenn sem þeir neituðu síðan að segja til. Þegar málið kom til úrlausnar siðanefndarinnar hafði hún hliðsjón af máli Þorgeirs Þorgeirsonar sem fór fyrir mannréttindadómstól Evr- ópu og sýknaði blaðamenn Weekend Star. Þorgeir var á sínum tíma dæmdur hér á landi fyrir brot á hegningarlagagrein um meiðyrði gagnvart opinberum starfsmönnum með því að rita tvær greinar í Morg- unbláðið þar sem hann hélt fram of- beldi af hálfu lögreglumanna. Hann neitaði ávallt að gefa upp heimildar- menn og var því dæmdur en mann- réttindadómstóllinn hnekkti niður- stöðu íslenskra dómstóla. DV hefur undir höndum grein sem Kobus van Rooyen í Pretóríu- háskóla skrifaði um málið: „Það er afskaplega ánægjulegt að mat höfundarins er að dómur minn hafa verið sett um meðferð opin- berra mála og mannréttindasáttmáli Evrópu var lögtekin á íslandi. Það er síðan enn ánægjulegra að mann- réttindadómstóll Evrópudómstóll- inn skuli hafi áhrif utan Evrópu," sagði Þorgeir Þorgeirson. -Ótt Einkabankinn er öflugasta leiðin til þess að veravelheima í fjármálum Einkabankinn - bein tenging milli tölvunnar þinnar og bankans gerir þér kleift ad nýta tölvuna enn betur fyrir fjármálin - hvar sem þú ert. Meiri möguleikar og einföldun aðgerða s.s. •yfirsýn yfir allar aógerðir í valmynd • hægt er að greiða alla reikninga í einni aðgerð. Þú getur tengst Einkabankanum með disklingi í PC eða Macintosh einkatölvu hvar sem er og fengið aðgang að margþættri þjónustu Landsbankans hvenær sem er sólarhringsins. EINK 0BANKI a I Itaf ve I h é i m a Hringdu eða komdu og fáðu upplýsingar um yfirburði Einkabankans. L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Heimasíða: http://www.centfum.is/lbank/ Rannsóknarblaðamenn Weekend Star kærðir fyrir meiðyrði í blaðagreinun: Siðanefnd í S-Afríku tók

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.