Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Qupperneq 26
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995
tónlist
Topplag
Gangsta’s Paradise ætlar aö
verða þaulsetið á toppi ís-
lenska listans, er nú þriðju
vikuna í röð í toppsætinu. Það
er hljómsveitin Coolio sem á
heiðurinn af laginu og það
kemur fyrir í nýrri kvikmynd,
Dangerous Minds, sem vænt-
anleg er í Sambíóin með
Michelle Pfeiffer í aðalhlut-
verkinu.
Hástökkið
Hinn lífseigi breski rokkari,
Elton John, á hástökk vikunn-
ar aö þessu sinni með lag sitt
Blessed. Það lag kom inn í 36.
sætið á fyrstu viku sinni á lista
en stekkur upp í það átjánda í
þessari Viku.
Hæsta
nýja lagið
Táknið, eða „Symbol" eins
og sá kallar sig nú, sem flestir
þekkja betur undir nafninu
Prince, á hæsta nýja lag vik-
unnar að þessu sinni. Það er
lagið Eye to You sem kemur
beint inn í 19. sætið á sinni
fyrstu viku.
vottur
við Rory
Borgaryfirvöld í París hafa
óvænt vottað minningu írska
gítarleikarans Rorys Gallag-
hers, sem lést í júní síðastliðn-
um eftir misheppnaöa lifrar-
ígræðslu, virðingu sína með
því að nefna götu í einni af út-
borgum Parísar eftir honum.
Gatan var nefnd Avenue Rory
Gallagher við sérstaka athöfn
sem fór fram í gær, 3. nóvem-
ber, að viðstöddum borgar-
stjóra Parísarborgar.
Barist við
bootleggjarana
Bootleggjarar í Bretlandi
mega búast við erfiðum dögum
héðan í frá því breska lögregl-
an hefur nýverið byrjað að
framfylgja lögum sem banna
almennar upptökur á tónleik-
um. Fyrir skemmstu gerði lög-
reglan rassiu á þekktum mark-
aði þar sem bootleg plötur hafa
fengist og lagði hald á mikið
magn ólöglegra upptaka. Tals-
menn bootieggjaranna eru
rasandi yfir þessu og segja að
bootleg plötur séu einfaldlega
svar við ákveðinni eftirspurn
og þar að auki sé verð á venju-
legum plötum út úr öllu korti
og nauðsynlegt að bjóða upp á
ódýrari plötur.
••• 3. VIKA NR. f
G> 1 1 7 GANGSTA'S PARADISE COOLIO
CD 4 4 4 WISH YOU WHERE HERE REDNEX
O. 3 — 2 HEAVEN FOR EVERYONE QUEEN
C4) 8 - 2 WONDERWALL OASIS
(.5) 6 21 3 BÖMPAÐU BABY BÖMPAÐU FJALLKONAN
O) 12 - 2 FUNKY TOWN HUNANGI
7 5 3 5 KNOW JET BLACKJOE
8 2 2 5 STAYING ALIVE N-TRANCE
a 14 15 5 TIME SUPERGRASS
© 18 - 2 SPACE COWBOY JAMIROQUAI
CÍD 28 32 3 BOOMBASTIC SHAGGY
12 9 17 5 ANOTHER CUP OF COFFEE MIKE & THE MECHANICS
13 11 12 4 SUNSHINE AFTER THE RAIN BERRY
(3) 27 - 2 CARNIVAL CARDIGANS
15 10 9 3 A KIND OF A CHRISTMAS CARD MORTEN HARKETT
(Í6j 25 39 3 WE GOT IT GOIN'ON BACKSTREET BOYS
17 7 6 5 DUB-I-DUB ME&MY
- HÁSTÖKK VIKUNNAK •••
GD 36 - 2 BLESED ELTON JOHN
-NÝTTÁUSTA -
<3D 1 EYE TO YOU SYMBOL
(2fi) 26 - 2 DESTINATION ESCHATON SHAMEN
(21 37 _ 2 TIL HEAR IT FROM YOU GIN BLOSSOMS
22 13 5 11 COUNTRY HOUSE BLUR
23 19 14 7 (I WANNA TAKE) FOREVER TONIGHT PETER CETERA
<S) 24 25 3 l'D LIEFORYOU MEATLÐAF
25 35 _ 2 SEXUAL HEALING MAX-A-MILLION
26 32 40 3 JUST RADIOHEAD
(27) 39 - 2 ONE SWEET DAY MARIAH CAREY
28 17 13 9 FAIRGROUND SIMPLY RED
29 15 11 5 YOU OUGHTA KNOW ALANIS MORISETTE
IHÍ3 NÝTT 1 REMEMBERING THE FIRST TIME SIMPLY RED
31 31 30 5 LIKE LOVERS DO LLOYD COLE
32 16 7 9 POUR QUE TU M'AIMES ENCORE CELINE DION
33 NÝTT 1 PARTY UP THE WORLD D. REAM
34 20 8 12 ONLY WANNA BE WITH YOU HOOTIE & THE BLOWFISH
(35) NÝTT 1 WHEN LOVE & HATE COLLIDE DEF LEPPARD
36 > NÝTT 1 LUCKYLOVE ACE OF BASE
37 19 | 8 FANTASY MARIAH CAREY
38 R1 1 LÆKNIRINN OG ÉG SNIGLABANDIÐ
39 1 EVERYBODY KNOWS DON HENLEY
40 22 I 10 I 9 ISOBEL BJÖRK
'
1
i
I
.
\
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar, DV og Coca-Co/a á Islandi. Listinn er niðurstaða skoðanakönnunar sem er framkvæmd af markaðsdeild DV í hverri viku.
Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára aföllu landinu. Jafnframt er tekið mið afspilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 a sunnudögum í sumar. Listinn er birtur, að hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski
listinn tekur þátt í vali "World Chart" sem framleiddur er af Radio Express i Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music
Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og ívar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman
og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Bobby
lagður
inn
Bobby kallinn Brown hefur
nú verið lagður inn á Betty
Ford meðferðarstofnunina
vestur í Bandaríkjunum en
hann hrökk endanlega af hjör-
unum eftir að hann lenti í
skotárás fyrir skemmstu þar
sem mágur hans lét lífið. Oft
hafði Bobby látið gamminn
geisa en víst aldrei sem fyrr
eftir þetta og herma fregnir að
hann hafi leikið sér að því að
hesthúsa eina og hálfa flösku
af konna á dag og skolað hon-
um niður með tuttugu bjórum
eða svo. Ofan í þetta allt sam-
an var hann svo á kafi í kóka-
íni og öðrum ólifnaði.
Oasis án
bassaleikara
áný
Bassaleikarinn Scott
McLeod, sem gekk til liðs við
Oasis fyrir nokkrum vikum
þegar Paul McGuigan gafst
upp vegna ofreytu, yfirgaf
hljómsveitina fyrirvaralaust
á dögunum í miðri tónleika-
ferð um Bandaríkin. Hann
hefur engar skýringar gefið á
brotthvarfi sínu en þó er víst
að hann hefur endanlega sagt
skilið við sveitina. For-
sprakkar Oasis, þeir Gallag-
her bræður, brugðust ókvæða
viö er þeir fengu fregnir af
þessu enda varð sveitin að af-
lýsa restinni af tónleikaferð-
inni sem er sú fyrsta sem hún
fer um Ameríku. Ekki er vit-
að hver verður næsti bassa-
leikari Oasis en staðan er sem
sagt laus tO umsóknar.
Plötu-
fréttir
Alice In Chains verður með
í plötuslagnum fyrir jólin.
Platan hefur ekki fengið nafn
ennþá en hún er að mestu til-
búin og væntanleg á markað-
inn á næstu vikum. Suede er
búin að koma sér fyrir í hljóð-
veri til að huga að nýrri plötu
en ekki er búist við að hún líti
dagsins ljós fyrr en sól fer að
hækka á lofti næsta vor. Og
rappliðið bíður spennt í start-
holunum þessa dagana því
nýja platan Temples of Boom
með Cypress Hill er væntan-
leg í verslanir hvað úr hveiju.
- SþS