Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Síða 35
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995 43 j Erlingur Sigurðsson, lektor í íslensku við Háskólann í Helsinki: Ahugi á norrænu hefur haldist þrátt fyrir ESB Erlingur Sigurðsson er lektor f Helsinki við Nordicu, norrænan hluta Háskólans í Helsinki. Erlingur segir að íslenska sé orðin að skyldufagi fyrir þá sem læra sænsku við skólann og að nemendur geti tekið allt að fjögur námskeið í ís- lensku. DV-mynd GHS „Stjórnmálamenn og ráðamenn þjóðarinnar vUja greinUega leggja jafnmikla áherslu á samstarfið inn- an Norðurlanda og Evrópusamstarf- ið en auðvitað á sér stað þróun í þessu eins og öðru. Áhugi á sam- starfi við baltnesku löndin er mikiU, ekki bara hjá stjómmálamönnum heldur líka á grasrótarstigi, hjá fólk- inu í landinu. Vinabæjasamstarf hefur aukist gríðarlega, sérstaklega við Eistland, og nú em aUs staðar sumarhátíðir með gestrnn frá Eist- landi,“ segir Erlingur Sigurðsson, lektor í íslensku við Háskólann .í Helsinki. Erlingur kennir nútímaíslensku, málfræði og bókmenntir í Nordica, norrænum hluta Háskólans í Hels- inki, og hefur gert það vel á annan áratug. Hann gjörþekkir finnskt þjóðfélag, er kvæntur og á sína fjöl- skyldu í Finnlandi og hefur fylgst vel með þróun mála, bæði áhugan- um á norrænum tungumálum og fræðum undanfarin ár og þjóðfélags- þróun í landinu. Á undanfömum árum hafa aðstæður i Sovétríkjun- um fyrrverandi, Rússlandi og balt- nesku löndunum, gjörbreyst og það hefur haft sín áhrif í Finnlandi. Lenda í ævintýrum „Eftir rammasamningana sem vom í gildi við Sovétríkin hér áður fyrr skulda Rússar Finnum tugmillj- arða króna en finnska ríkið tryggði greiðslur til fyrirtækja innanlands. Nú geta smáfyrirtækin ekki lengur treyst á ríkisábyrgðina og era því að reyna að komast inn á markað- inn í austri á eigin ábyrgð. Þau þurfa að fást við rússnesku mafiuna og lenda í ýmsum ævintýrum. Áður en Finnar samþykktu að ganga í Evrópusambandið var sagt að gamla hræðslan við Rússa gerði Finna ákafari til inngöngu í ESB en hinar Norðurlandaþjóðirnar,“ segir Er- lingur. Samstarf Finna og viðskipti við baltnesku þjóðirnar nýfrjálsu hafa alltaf verið talsverð en auðvitað hafa þau aukist feikilega undanfar- in ár, sérstaklega við bræðraþjóðina í Eistlandi, en eistneska og fmnska eru náskyld tungumál. Erlingur seg- ir að mikil vakning sé í samstarfi þjóðanna, Eistar komi með leiklist og aðra menningarstarfsemi til Finnlands og setji upp sölutjöld í bæjum út um allt land. Ferðalög Finna yflr landamærin í austri hafi líka aukist umtalsvert, sérstaklega vegna tollfrelsisins. Bjórsala minnkar „Ferðamannastraumurinn er svo mikill að nú orðið fara fleiri til Eist- lands en Stokkhólms enda tekur það aðeins hálfa aðra klukkustund að fara yfir Kirjálabotn með ferju. Finnskar og eistneskar vörur eru tollfrjálsar þó aðeins sé stoppað nokkrar klukkustundir hinum meg- in við landamærin og hægt er að fá ódýran bjór, smjör og annan varn- ing meðan á ferðalaginu stendur. Finnar fara í innkaupaferðir yfir landamærin. Það er ekkert óalgengt að þeir fari fjórum til fimm sinnum ári,“ segir Erlingur. Finnar reka áfengisverslun í eigu ríkisins, ALKO, svipað og íslending- ar. Áfengissala í Finnlandi hefur minnkað um 4-5 prósent að undan- förnu og er fyrirhugað að segja upp starfsfólki vegna þessa. Skýringin á þessum samdrætti er þó ekki minni áfengisneysla heldur hafa innkaupa- ferðimar þar mest að segja. Bjór og áfengi er framleilt í Norður-Finn- landi og flutt yfir landamærin þar sem Finnar kaupa ódýrt. Ýmsir hafa orðið tO að gagnrýna þetta og benda á að þjóðin sé að grafa undan sjálfri sér með þessum innkaupaleiðöngr- um. Taka á móti innflytjendum Rússneskur og eistneskur minni- hlutahópur hafa alltaf verið í Finn- landi enda er þar rekinn rússneskur skóli og leikskóli. Finnar hafa tekið vel á móti innflytjendum frá Rúss- landi og baltnesku ríkjunum undan- farin ár, sérstaklega minnihlutahóp- um af finnskum ættum, sem hafa búið við landamæri Rússlands og Finnlands. Tekið er á móti þessu fólki eins og Finnum sem hafa verið lengi fjarri heimalandinu og það hefur fengið sömu þjóðfélagsréttindi og Finnar. Áhuginn á Rússlandi og rússnesku hefur samtímis minnkað. Erlingur segir að aðsókn nem- enda í rússnesku innan skólakerfis- ins hafi minnkað að undanfömu því að nemendur vilji miklu frekar læra norðurlandamálin, þýsku og frönsku en rússnesku. Aðsókn í slavnesku deildina í háskólanum hafi líka breyst. Nú setjist menn þar á skólabekk af menningar- og tungu- málaáhuganum einum Scunan, ekk- > ert endilega sendir af fyrirtækjum í viðskiptum við austrið eða reknir áfram af hugmyndafræðilegum ástæðum. Islenskunám er skyldufag Kennsla í íslensku við norrænu deildina í Háskólanum í Helsinki hefur alltaf verið mjög öflug. Þegar Erlingur kom fyrst til Finnlands kenndi hann skyldunámskeið í ís- lenskum fombókmenntum. íslenska varð síðan valgrein fyrir þá sem höfðu sænsku að móðurmáli. Nú taká allir nemendur í sænsku, hvort sem þeir eru fínnsku- eða sænsku- mælandi, eitt námskeið í íslensku. Markmiðið er að nemendurnir geti lesið einfaldan texta með hjálp orða- bókar og málfræði enda verður ekki vart við minnkandi áhuga á nor- rænum fræðum í Finnlandi. Frekar þvert á móti. „Ég kenni um 60 manns I tveimur hópum á hverju misseri. Þetta er al- menn kynning á íslensku, málfræði, framburði og beygingum, þannig að nemendurnir kynnist sem best ís- lensku, menningu og þjóöfélagi. Svo er boðið upp á framhaldsnámskeið, þýðingar, tal- og ritæfmgar, þannig að þeir áhugasömustu geta tekið fjögur námskeið í íslensku," segir hann. íslendingum í Finnlandi hefur fjölgað verulega undanfarin tíu til fimmtán ár og er nú svo komið að þeir eru hátt í 100, ýmist við nám eða störf, til dæmis í Norræna fjár- festingarbankanum í Helsinki. -GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.