Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Qupperneq 47
iy V LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995
menning
Af einhverjum ástæöum þykir barokk-tónlist hæfa
jólunum. Þau nálgast óöíluga og því er við hæfi að nú
standi yfir tónlistardagar Musica Antiqua, en það er
hópur hljóðfæraleikara sem m.a. sérhæfir sig í flutn-
ingi gamallar tónlistar. Síðastliðinn sunnudag voru
tónleikar á vegum hópsins og voru þeir haldnir í
Kristskirkju. A efnisskránni voru verk eftir Tele-
mann, Scarlatti og líka önnur minna þekkt tónskáld
barokk-aldarinnar. Aðalhljóðfæraleikarinn var Cam-
illa Söderberg blokkflautuleikari og henni til aðstoðar
voru Guðrún Óskarsdóttir og Elín Guðmundsdóttir,
báðar semballeikarar. Siguröur HaUdórsson sellóleik-
ari og Páll Hannesson bassaleikari komu einnig við
sögu.'
Kristskirkja er því miður ekki sérlega heppilegur
tónleikasalur. Hún er falleg, en þar er fullmikil endu-
rómun. Það gerir að verkum að nótur á „miðregister-
inu“ vilja renna saman en efri tónar heyrast betur.
Þetta skemmdi töluvert flutninginn þó vel væri leikið.
Camilla Söderberg er nefnilega afburðalistakona, eins
og hún hefur margoft sannað. Hún gefur sér mikið
frelsi í túlkun, þrátt fyrir það að margir haldi að bar-
okktónlist eigi að spila með takmarkalausri formfestu.
Camilla er greinilega á öðru máli; hún lék af gríðar-
legri innlifun og í túlkun hennar var einhver neisti
sem maður skynjar ekki oft.
Því miður er ekkert pláss til að fara í hvert einstakt
atriði efnisskrárinnar. Þó verður ekki hjá því komist
aö nefna sónötu í d-moll eftir Scarlatti sem hljómaði
Tónlist
Jónas Sen
tvímælalaust best, enda lék Camilla þar á sópranb-
lokkflautu. Eins og áður sagði heyrist vel í liáum tón-
um í Kristskirkju. Síðasta tónsmíðin, sónata í c-moll
fyrir blokkflautu, sembal og kontrabassa eftir Johan
Helmich Roman var líka snilldarlega flutt. Verkið lék
í höndunum á Camillu, þó stundum hafi hljóðfæraleik-
ur hennar drukknað í öllu bergmálinu.
Undirleikararnir stóöu sig með miklum sóma. Voru
þetta því prýðilegir tónleikar þrátt fyrir hljóminn í
kirkjunni, og hafa margir áheyrenda eflaust gengið út
í jólaskapi að þeim loknum.
Kaldir rassar
í íslenskri nótt
Súsanna Svavarsdóttir gaf hressilegan tón að því sem
koma skyldi í sögunni „Hróp í óbyggðum" sem birtist
í safni erótískra smásagna eftir 13 íslenska'höfunda
sem Forlagið gaf út á síðasta ári. Og nú hefur sama
forlag bætt um betur og gefið út Skugga vögguvísunn-
ar sem hefur að geyma níu smásögur eftir Súsönnu
sem allar falla í þennan sama flokk. Það er skemmst
frá því að segja að orðið erótík virðist í huga höfundar
fyrst og fremst bundið kynferðislegúm athöfnum og
þeir sem hafa gaman af einhæfum lýsingum á typpat-
otti og geirvörtunarti eiga ugglaust eftir að skemmta
sér konunglega viö lesturinn. En þeir sem hafa gert
sér vonir um fiölbreytileika, óvænt endalok með dul-
úðugu ívafi og líflega persónusköpun verða sennilega
Bókmenntir
Sigríður Albertsdóttir
fyrir vonbrigðum þrátt fyrir góða stíllega spretti. Svip-
mót persóna og hugsanir víkja í flestum tilfellum fyr-
ir nákvæmum lýsingum á leyndustu pörtum líkamans
enda er hápunktur sagnanna oftast fólginn í samförum
og/eða sjálfsfróun. Hispurslaust og djarft eins og segir
á bókarkápu en fyrirsjáanlegt og þegar fram í sækir
fremur leiðigjarnt því lýsingarnar skortir bæði munúð
og spennu. Umhverfi sagnanna minnir stundum meira
á ameríska sápu en íslenskan veruleika þar sem kon-
ur flengjast nærbuxnalausar um í íslenskri nótt,
hjólgraðar í leit að stuttu ævintýri eins og í „Sumar-
sögu“ svo dæmi sé tekið. Þetta er kannski smásmugu-
legt og óþarft raunsæisraus en ekki er það fremur í
ætt við þennan sama veruleika að ungar ekkjur og
mæður þurfi ekkert að vinna („Stúlka um nótt“,
„Skuggar vögguvísunnar"). Það eina sem þjakar per-
sónur Súsönnu er greddan sem verður að sjálfsögðu
öflugri því meiri sem einsemd þeirra og einangrun
verður en persónurnar eru flestar því marki brenndar
að vera afskaplega einmana og týndar manneskjur.
En þar sem einsemdina skortir bæði sársauka og dýpt
er hún ekki trúverðug og persónurnar um.'leið bæði
flatar og litlausar, jafnvel klisjukenndar eins og konan
í sögunni „í mynd“. Á þessu eru þó tvær áhugaverðar
undantekningar. Eftir að hafa lesið fimm sögur með
tilheyrandi sogi, totti og nagi var skemmtileg tilbreyt-
ing að rekast á söguna Á eftir löngu myrkri en þar fær
lesandinn loksins sannfærandi persónulýsingu í ein-
mana konu sem hittir mann á bar. Þau ganga saman
út í vornóttina og konan trúir lesandanum fyrir tilfinn-
ingum sínum til þessa ókunna manns sem hún þráir
Súsanna Svavarsdóttir.
en er of hrædd til aö njóta. Hún afneitar fýsn sinni
(78) sem hefur brennt hana allt of oft, hafnar mannin-
um en stendur sig síðan aö því að biða stöðugt eftir
símhringingu. Einsemd og vanlíðan konunnar birtist
skýrt í þessari togstreitu, hana langar að lifa og njóta
en týnir sér í þráhyggju og kvöl. Þetta er að mínu
mati besta saga bókarinnar, ekki síst vegna þess að
hér leyfir höfundur sér örlitla tilfinningasemi en aðrar
persónur minna fremur á vélbrúður en lifandi verur.
„Sumarsaga" er einnig eftirtektarverð en þar spilar
grimmdin stórt hlutverk með tilheyrandi sadó/masók-
isma. Sú saga geldur að vísu fyrir freudiskar klisjur
og kunnuglega mynd af ungri og fáfróðri yngismey
en er minnisstæð af sömu ástæðum og „Á eftir löngu
myrkri" þó með öfugum formerkjum sé. Konan í þeirri
sögu hlýtur samúð lesandans en karlinn í „Sumar-
sögu“ vekur hins vegar sterkan viðbjóð og andstyggð.
Þessar tvær sögur sýna styrk Súsönnu sem rithöf-
undar en ég er ekki frá því að aðeins meira nostur
við textann hefði lyft sögunum upp á hærra plan.
Skuggar vögguvísunnar
Forlagið 1995
55
Vinningthafir
Þrautaleik Krakkaklúbbs DV
og Sam-myndbanda
5 Lion King videospólur
Guðrún Selma Sigurjónsd. Skógarási 5, Reykjavík
Sigrún Hansdóttir, Grashaga 19, Selfossi
Tinna Hauksd., Brimhólabraut 2, Vestmannaeyjum
Ólafur D. Bjarnason, Huldulandi 5, Reykjavík
Vilfríður H. Hrafnsd., Bólstaðarhlíð 52, Reykjavík
20 Lion King bolir
Andri Már Jónsson, lllugagötu 8, Vestmannaeyjum
Agnes Gústafsdóttir, Helgafellsbraut 29, Vestmannaeyjum
Alexander Sigurgeirss. Mávabraut 6F, Keflavík
Árni Jón, Unufelli 38, Reykjavík
Anna Björk Guðjónsd. Teigagerði 17, Reykjavík
Andri Vífilsson, Skaftahlíð 14, Reykjavík
Bjarki Ómarsson, Áshömrum 50, Vestmannaeyjum
Bergur Logi Lúðvíksson, Skógarási 11, Reykjavík
Birkir Freyr Bjarkason, Rauðási 16, Reykjavík
Birna Rán Magnúsd. Lautasmára 29, Kópavogi
Birgir Arngrímsson, Faxabraut 42D, Keflavík
Gróa Herdís Bæringsd., Stóra-Hofi, Hellu
Gísli Arnarson, Traðarbergi 27, Hafnarfirði
Halla Sóley Hallgrímsd., Hlíðargötu 30, Sandgerði
Hlynur Freyr Þorgeirsson, Digranesv. 72 A, Kópavogi
Harpa Sigurðard., Sóleyjargötu 1, Akranesi
Hera Pálmadóttir, Bárugötu 7, Reykjavík
Ragna Björk Bragad., Túngötu 27,225 Bessastaðahr.
Sigurður Smári Garðarss., Skúlabraut 3, Blönduósi
Sindri Skarphéðinsson, Nönnustíg 14, Hafnarfirði
50 Lion King veggspjöld
Anna Björk Kristinsd. Baughús 40, Reykjavík
Arnór Daði Jónsson, Löngumýri 59, Garðabæ
Agnes Ösp Magnúsd., Borgarlandi 30, Djúpavogi
Anna Linja Gíslad., Hverafold 50, Reykjavík
Anika K. Guðlaugsd., Veghúsum 9, Reykjavík
Bjargmundur Halldórsson, Krummahólum 8, Reykjavík
Bragi Jónasson, Engjaseli 35, Reykjavík
Daníel Olsen, Skúlaskeiði 24, Hafnarfirði
Daníel Þ. Ólafsson, Áshömrum 67, Vestmeyjum
Elísa B. Björgvinsdóttir, Reynibergi 1, Hafnarf.
Elínborg S. Pálsdóttir, Hákonarstöðum, Jökuldal
Fjóla Hrund Björnsd., Þrúðvangi 7, Hellu
Friðrik Vestmann, Bylgjubyggð 67, Ólafsfirði
Gígja Blöndal, Melabraut 1, Blönduósi
Guðni Már, Mímisvegi 6, Reykjavík
Guðmundur Karl, Garðavegi 15, Hafnarfirði
Halldór Jónasson, Álfhólsvegi 97, Kópavogi
Halldór R. Bergvinsson, Álfhólsvegi 91, Kópavogi
Hafdís Pálsdóttir, Jórufelli 6, Reykjavík
Heiðar Ingi Jónsson, Dísarási 12, Reykjavík
Hans Pétursson, Sandabraut 12, Akranesi
Hildur Grétarsdóttir, Hverafold 10, Reykjavík
Hjördís Erna Þorgeirsdóttir, Hæðarseli 15, Reykjavík
Inga Hulda, Hverfisgötu 68, Reykjavík
ívar Már Ottason, Vallhúsabraut 11, Seltjarnarnesi
Ingibjörg Ósk Jóhannsdóttir, Háteigi 13, Keflavík
Ingvar Þorsteinsson, Ástúni 10, Kópavogi
ívar Pétursson, Hringbraut 66, Hafnarfirði
Ingvar ðrn Arnarson, Flétturima 23, Reykjavík
Margrét Inga, Gyðufelli 10, Reykjavík
María D. Sigurjónsd., Birkihlíð 6, Hafnarfirði
Maggi, Langholtsvegi 1, Reykjavík
María Hauksdóttir, Hlíðarhjalla 71, Kópavogi
Óskar Jónsson, Ásbraut 9, Kópavogi
Óskar E. Sigurðsson, Háteigsvegi 60, Vestmannaeyjum
Ólöf Vala, Fannafold 115, Reykjavík
Rakel Sif Hauksdóttir, Hvassaleiti 6, Reykjavík
Rakel Magnea Hansd., Skólabraut 2,360 Hellissandi
Rannveig Garðarsdóttir, Vesturfold 38, Reykjavík
Sigurður Helgi Magnússon, Blöndubakka 6, Reykjavík
Silja Baldvinsdóttir, Hæðargerði 21, Reyðarfirði
Sara Björg Ágústsdóttir, Faxastíg 6 B, Vestmannaeyjum
Sigurður Andrésson, Garðabyggð 14B, Blönduósi
Sólný Lísa Jórunnard., Flétturima 24, Reykjavík
Sigrún Guðbrandsdóttir., Hagatúni 8, Svalbarðseyri
Sigríður Marta Sigmarsd., Breiðvangi 13, Hafnarfirði
Sigurrós L. Ragnarsd., Stóra-Dal, Hvolsvelli
Tómas Þór Þorsteinsson, Furugrund 70, Kópavogi
Vignir Jónsson, Borgarvegi 32, Njarðvík
Þorbjörg Bergþórsdóttir, Melabraut 29, Garði
Krakkaklúbbur DV og Sam-myndbönd
þakka öllum sem tóku þátt í þrauta*
leiknum kærlega fyrir þátttökuna.
Vinningshafar fá vinningana senda í pósti næstu daga.