Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Qupperneq 50
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995 Jj'V
æ afmæli
Bragi Guðmundsson
Bragi Guðmundsson prentsmið-
ur, Barmahlíð 26, Reykjavík, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Bragi fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann var í Austur-
bæjarskólanum og Gagnfræða-
skóla Austurbæjar, stundaði nám
við Iðnskólann í Reykjavík og
lauk sveinsprófi í prentsmíði við
prentsmiðju Frjálsrar fjölmiðlun-
ar.
Bragi var ljósmyndari við Vísi
1962-81, stundaði eigin atvinnu-
rekstur 1981-83, starfaði á auglýs-
ingadeild DV 1983-85 og hefur
unnið í prentsmiðju Frjálsrar fjöl-
miðlunar frá 1985.
Bragi sat í stjórn Blaðamanna-
félags íslands og var formaður
þess og varaformaður á árunum
1975-81
Fjölskylda
Bragi kvæntist 9.12. 1967 Guð-
rúnu Ríkarðsdóttur, f. 5.1.1947,
sjúkraliða. Hún er dóttir Ríkarðs
Kristmundssonar, kaupmanns í
Reykjavík, og k.h., Guðrúnar
Helgadóttur húsmóður. Bragi og
Guðrún skildu 1993.
Börn Braga og Guðrúnar eru
Guðmundur Helgi Bragason, f.
27.9.1965, starfrækir Skyndiprent
í Reykjavík, kvæntur Ingu Sól-
veigu Steingrímsdóttur nema og
er dóttir þeirra Ama Sif, f. 18.6.
1992; Dagmar Bragadóttir, f. 14.7.
1969, nemi, búsett í Garðabæ, gift
Bjarna Finnbogasyni bifvélavirkja
og er sonur þeirra Guðmundur
Ingi, f. 15.1. 1993; Bjarki Bragason,
f. 24.11. 1975, prentnemi í Reykja-
vík.
Systkini Braga eru Hannes
Guðmundsson, f. 8.1. 1948, kenn-
ari í Reykjavík, kvæntur Kristínu
Ármannsdóttur kennara og eiga
þau tvö börn; Hanna Guðrún
Guðmundsdóttir, f. 19.8. 1952, hús-
móðir á Seltjarnarnesi, gift Guð-
mundi Hafsteinssyni vélstjóra og
eiga þau tvo syni.
Foreldrar Braga voru Guð-
mundur Þorleifsson, f. 24.8. 1918,
d. 2.8. 1992, stýrimaður í Reykja-
vík, og Dagmar Kr. Hannesdóttir,
f. 17.5. 1921, d. 24.2. 1995, húsmóð-
ir.
Ætt
Guðmundur var bróðir Kol-
beins, prests og fræðimanns. Guð-
mundur var sonur Þorleifs alþm.
Guðmundssonar, formanns og
kaupmanns á Stóm-Háeyri, ís-
leifssonar, b. á Suður-Götum í
Mýrdal, Guðmundssonar. Móðir
Þorleifs var Sigríður Þorleifsdótt-
ir ríka, hreppstjóra á Stóm- Há-
eyri, Kolbeinssonar, bróður Hafl-
iða, afa Guðjóns, afa Guðjóns
Friðrikssonar sagnfræðings. Móð-
ir Þorleifs ríka var Ólöf, systir ís-
leifs, langalangafa Gunnars M.
Magnúss rithöfundar.
Móðir Guðmundar var Hann-
esína Sigurðardóttir, útvegsb. á
Akri á Eyrarbakka, Jónssonar, og
Viktoríu Þorkelsdóttur.
Dagmar var dóttir Hannesar
málarameistara Hannessonar,
verkamanns og sjómanns í
Reykjavík, Hannessonar. Móðir
Bragi Guðmundsson.
Hannesar málararmeistara var
Ingveldur Magnúsdóttir frá Görð-
um á Ákranesi.
Móðir Dagmarar var Guðrún
Kristmundsdóttir, b. á Grafar-
bakka í Hrunamannahreppi, Guð-
mundssonar, og Guðrúnar Jóns-
dóttur.
Bragi tekur á móti gestum að
Hallveigarstöðum við Túngötu
laugardaginn 4.11., kl. 18-21.
Til hamingju með
afmælið 4. nóvember
100 ára
Elín Magnúsdóttir,
Víðilundi 18H, Akureyri.
90 ára
Jósef Stefánsson,
Skagfirðingabraut 6, Sauðárkróki.
Lárus H. Blöndal,
Dísarási 1, Reykjavík.
85 ára
Kristín S. Kristjánsdóttir,
Dalbraut 27, Reykjavík.
Ragnar Magnússon,
Austurvegi 5, Grindavík.
Rannveig Matthíasdóttir,
Kaplaskjólsvegi 65, Reykjavík.
80 ára
Sigurbjörg Sigiu-öardóttir,
Aðalgötu 22, Ólafsfirði.
75 ára
Sverrir Finnbogason,
Grandavegi 4, Reykjavík.
Kristín Helgadóttir,
Fjarðarbraut 55, Stöðvarfirði.
70 ára
Styrmir Gunnarsson,
Langholti 11, Akureyri.
Eyþór Þórðarson,
Álftamýri 17, Reykjavík.
60 ára
Ingibjörg Garðarsdóttir,
Aðalgötu 6, Keflavík.
Kristján Samúelsson,
Eyjabakka 22, Reykjavík.
50 ára
Þórður Helgi
Bergmann,
framkvæmda-
stjóri Háskóla-
fjölritunar,
Keilufelli 13,
Reykjavík.
Kona hans er
Sigríður Eggerts-
dóttir.
Jóhann Pétur Valsson,
Bakkagerði 7, Reykjavík.
Margrét Kristjánsdóttir,
Fagrahvammi 9, Hafnarfirði.
Hannveig Valtýsdóttir,
Grundargerði 6J, Akureyri.
40 ára
Magnús Harðarson,
Víghólastig 3, Kópavogi.
Ásta Ingvarsdóttir,
Leiðhömrum 44, Reykjavík.
Svanhvít Hreinsdóttir,
Norðurgarði 16, Hvolsvelli.
Valgerður Sigurjónsdóttir,
Nýbýlavegi 30, Hvolsvelli.
Ólafia Anna Halldórsdóttir,
Skólavöllum 10, Selfossi.
Hörður S. Bachmann,
Dúfnahólum 4, Reykjavík.
Gréta Friðrika Guttormsdóttir,
Sæbólsbraut 4, Kópavogi.
Margrét H. Hjaltested,
Hólmgarði 51, Reykjavík.
Guðrún E. Sigurbjarnadóttir,
Efstasundi 93, Reykjavík.
Til hamingju með
afmælið 5. nóvember
90 ára
Alfons Oddsson,
Mávahlíð 8, Reykjavík.
80 áxa
Anton Emil Oddgeirsson,
Pálmholti 13, Þórshöfn.
Sigríður Bjarnadóttir,
Skipholti 21, Reykjavík.
75 ára
Bettý A. Þorbjörnsdóttir,
Skúlagötu 40A, Reykjavík.
70 ára
Þorstína Jóhannsdóttir,
Ljósheimum 22, Reykjavík.
60 ára
Magni Magnússon,
Norðurbrún 16, Reykjavík.
Barði S. Steinþórsson,
Suðurgötu 9, Hafnarfirði.
Ólafur Guðmundsson,
Túngötu 17, Bessastaðahreppi.
Guðrún Guðlaugsdóttir,
Bárðarási 7, Snæfellsbæ.
50 ára
Sigurður Gylfl Björnsson,
Hofi II, Fellahreppi.
Margrét G. Guðmundsdóttir,
Seiðakvísl 32, Reykjavík.
40 ára
Ragnar Gunnarsson,
Aflagranda 1, Reykjavík.
Jens Sigurðsson,
Stóragerði 5, Hvolsvelli.
Hann verður með heitt á könn-
unni.
Gunnar Helgi Hauksson,
Öldugötu 9, Hafnarfirði.
Sólveig Helgadóttir,
Háaleitisbraut 44, Reykjavík.
Auður Traustadóttir,
Ljósabergi 44, Hafnarfirði.
Björgvin Eyjólfsson
Björgvin Eyjólfsson íþrótta-
kennari, Dverghamri 1, Vest-
mannaeyjum, varð fertugur í gær.
Starfsferill
Björgvin fæddist í Áreyjum í
Reyðarfirði en ólst upp að Eiðum
við Egilsstaði. Hann lauk lands-
prófi frá Eiðaskóla, stúdentsprófi
frá ML og íþróttakennaraprófí frá
Iþróttakennaraskólanum á Laug-
arvatni 1978.
Björgvin var kennari við
Grunnskólann í Vestmannaeyjum
til 1990 og hefur verið íþrótta-
kennari við Framhaldsskóla Vest-
mannaeyja sl. fimm ár.
Björgvin hefur starfað mikið
með ÍBV, lék með meistaraflokki
karla í knattspyrnu um árabil og
keppti einnig í handbolta, auk
þess sem hann hefur setið í
stjórnum innan ÍBV og í tóm-
stundaráði í tvö kjörtímabil.
Fjölskylda
Björgvin kvæntist 6.6. 1981
Ólöfu Aðalheiði Elíasdóttur, f. 8.1.
1958, íþróttakennara við Bama-
skóla Vestmannaeyja. Hún er
dóttir Elíasar Bjömssonar, for-
manns Sjómannafélagsins Jötuns,
og Hildar Margrétar Magnúsdótt-
ur, starfsstúlku i Álþýðuhúsinu í
Vestmannaeyjum.
Böm Björgvins og Ólafar Aðal-
heiðar em Elías Ingi Björgvins-
son, f. 6.4. 1980, nemi; Eyþór
Björgvinsson, f. 16.10.1987, nemi.
Systkini Björgvins eru Þórhall-
ur, f. 6.3. 1941, smiður á Egilsstöð-
um; Þórey, f. 21.6.1942, matselja í
Garðabæ; Bergþóra, f. 4.8. 1944,
Björgvin Eyjólfsson.
hjúkrunarkona í Svíþjóð; Sigurð-
ur, f. 9.6.1946, verkfræðingur í
Reykjavík; Einar, f. 19.6. 1953, vél-
stjóri í Hafnarfirði. .
Foreldrar Björgvins vom Stef-
án Eyjólfur Þórarinsson, f. 14.2.
1914, d. 12.11.1986, bóndi i Áreyj-
um í Reyðarfirði, og Sigurlilja
Ingibjörg Einarsdóttir, f. 8.7.1912,
d. 8.6. 1988, húsmóðir og ljósmóð-
ir.
Andlát
Einar S. Erlendsson
Einar S. Erlendsson bifreiðar-
stjóri, áður Háaleitisbraut 20,
Reykjavík, lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 26.10. sl. Hann verður
jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði, þriðjudaginn 7.11. nk.
kl. 13.30
Starfsferill
Einar fæddist að Giljum í Hvol-
hreppi 22.10. 1915 en ólst upp í
Vestmannaeyjum. Á sínum yngri
ámm var hann til sjós frá Vest-
mannaeyjum, stundaði verslunar-
störf hjá Ræsi hf. 1942- 62 og var
leigubílstjóri hjá Bæjarleiðum
1955-1989.
Fjölskylda
Einar kvæntist 24.5.1945, eftir-
lifandi konu sinni, Ingibjörgu
Þorsteinsdóttur, f. 2.10. 1925, hús-
móður. Hún er dóttir Þorsteins
Tyrfingssonar, b. í Rifshalakoti í
Ásahreppi, og Guðbjargar Bjarna-
dóttur.
Böm Einars og Ingibjargar eru
Hinrik, f. 28.9.1945, húsasmíða-
meistari í Hafnarfirði, kvæntur
Helgu H. Magnúsdóttur skrif-
stofumanni og eiga þau þrjú
böm, Heiðar, f. 1968, Hjört, f.
1977, og Hafdísi Ingu, f. 1981;
Grétar, f. 1.7. 1947, bifreiðarstjóri
í Reykjavík, kvæntur Guðnýju
Stefánsdóttur sjúkraliða og þau
eiga fjögur böm, Eddu Sóleyju, f.
1979, Árna, f. 1982, Hildi, f. 1988,
og Inga Björn, f. 1992; Eygló, f.
21.9.1949, húsmóðir í Hafnarfirði,
var gift Bjarna Jóhannessyni
flugvirkja, sem lést 1983, og éru
böm þeirra Guðbjörg, f. 1971, Ein-
ar, f. 1974, Amar, f. 1978, og Ingi-
björg Bjarney, f. 1983, en sambýl-
ismaður Eyglóar er Haukur
Reynisson málarameistari og er
dóttir þeirra Eva, f. 1989; Bára, f.
24.2. 1955, húsmóðir í Garðabæ,
gift Gunnari Bjarnasyni rafeinda-
virkja og eiga fjögur börn,
Bjarna, f. 1980, Andra, f. 1984, og
tvíburana Ömu og Björk, f. 1986;
Erlendur Steinar, f. 9.3. 1961, af-
greiðslumaður í Reykjavík; Har-
aldur, f.,26.1.1965, sjómaður í
Reykjavík, en sambýliskona hans
er Gerður Kristjánsdóttir banka-
starfsmaður og eru böm þeirra
Steinar, f. 1988, og Thelma, f.
1993; Jóhanna, f. 1.4. 1967, kenn-
ari i Reykjavík, gift Ársæli Ár-
sælssyni tollverði og eru börn
þeirra Ársæll Einar, f. 1989, og
Rúna Björg, f. 1995.
Systkini Einars: Ólafur, sjó-
maður í Hafnarfirði, nú látinn;
Guðrún, húsmóðir á Norðurgarði
og síðan í Vík i Mýrdal, nú látin;
Erleiidur, lengst af veitingamaður
á Röðli, nú látinn; Haraldur, sjó-
maður í Reykjavík, nú látinn;
Jón, veitingamaður í Reykjavík,
nú látinn; Leifur, þjónn í Reykja-
vik, nú nýlátinn; Þuríður, versl-
unarmaður í Reykjavík, nú látin;
Erlendur, f. 1917, fyrrv. bifreiðar-
stjóri á Hreyfli.
Foreldrar Einars voru Erlend-
ur Jónsson, f. 1864, smiður á Gilj-
Einar S. Erlendsson.
um í Hvolhreppi, og k.h., Jó-
hanna Einarsdóttir, f. 1879, hús-
móðir.
Ætt
Erlendur var bróðir Kristjáns,
trésmiðs í Vestmannaeyjum, föð-
ur Oddgeirs tónskálds, bróður
Maríu, móður Sigurðar Einars-
sonar, prests og skálds í Holti.
Erlendur var sonur Jóns, b. og
rokkasmiðs á Arngeirsstöðum í
Fljótshlíð, Erlendssonar, b. á
Heylæk í Fljótshlíð, Péturssonar.
Jóhann var systir Guðjóns í
Breiðholti í Vestmannaeyjum,
föður Árna hrl. og Karls alþm. í
Vestmannaeyjum. Jóhanna var
dóttir Einars, b. í Hallgeirsey í
Landeyjum, Sigurðssonar, b. í
Hallgeirsey, Einarssonar, b. i
Hallgeirseyjarhjáleigu.