Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1995, Qupperneq 51
1>V LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995
Hafþór Guðmundsson sundþjálfari:
Sundið er frábær
alhliða íþrótt
trimm 59
.>
Hafþór Guömundsson, sundþjálfari hjá Armanni, vill hvetja alla til að synda
en sérstaklega vill hann ná sambandi við sundmenn í garpaflokki.
DV-mynd GVA
„Það er ekki spuming að sund er
einhver allra besta alhliða líkams-
þjálfun sem almenningur á völ á.
Sundmenn hafa gífurlega gott þol
miðað við aðra íþróttamenn, það er
helst að langhlauparar standi þeim
á sporði," sagði Hafþór Guðmunds-
son, þjálfari hjá sundfélaginu Ár-
manni, kennari við íþróttakennara-
skólann á Laugarvatni og gamall
sundmeistari, í samtali við trimm-
síðuna. Hafþór hefur unnið að því
að koma á fót nokkurs konar eldri
deild við sundfélagið Ármann þar
sem hann vill gefa fólki sem notar
sund sem heilsubót kost á skipu-
legri leiðsögn og því að fá þjálfun til
þess að fá meira út úr sinni sund-
iðkun en það gerir nú. „Fyrir svona
hóp myndi ipaður gera áæflanir fyr-
ir hvern og einn. Það fengi kost á að
nota flár, froskalappir og þau tæki
sem notuð er við sundþjálfun. Ég
hef oft séð fólk sem mætir reglulega
í sund héma í Laugardalnum, þar
sem við æfum, verða mjög þakklátt
þegar ég hef ekki staðist freisting-
una og bent því á smáatriði sem það
getur lagfært í sinni sundtækni og
getur skilað miklum árangri," segir
Hafþór. Þeir sem hafa hug á að nálg-
ast slíka leiðsögn geta haft samband
við Hafþór í Laugardalnum um
klukkan átta á kvöldin á mánudög-
um, miðvikudögum og föstudögum.
Hafþór sér fyrir sér að starf með
fullorðnu sundfólki geti orðið mjög
mikilvægur þáttur í starfi sundfé-
lags eins og Ármanns og orðið starfi
félagsins mikil lyftistöng. Slíkur
sundhópur myndi starfa mjög líkt
og trimm- eða skokkhópar sem eru
starfræktir viða um bæinn.
„Fyrir þann sem ætlar að nota
sund sem þjálfun er ljóst að sund-
íþróttin gefúr ekkert síður af sér en
skokk sem alhliða þjálfun, fitu-
brennsla og þess háttar og er reynd-
ar betra en skokkið. Kostimir em
ótvíræðir því maður losnar alveg
við álagsmeiðsli sem því miður
fylgja oft hlaupum. Öll liðamót
verða fyrir mjúkri hreyfingu og álag
á bak og allt slíkt er helmingi minna
en í hlaupum. í hlaupum em nær
eingöngu notaðir fót- og lærvöðvar.
Efri hluti líkamans verður ekki fyr-
ir neinni þjálfun í hlaupum. í sund-
inu eru notaðir flestir stærri vöðvar
líkamans. Það er ekki spurning að
sá sem syndir á hverjum degi fær
betri hreyfingu en sá sem hleypur,“
segir Hafþór.
Nú trúa margir því að ekkert jafn-
ist á við hlaup til þess að byggja upp
þol. Er sundið alveg sambærilegt að
þessu leyti? „Helsti munurinn á
þessum tveimur íþróttagreinum er
að hlaup er okkur eðlilegt. Það þarf
enginn að kenna manni að hlaupa.
Sundið er öðruvísi og þess vegna
þarf þjálfari eða kennari að kenna
okkur að nýta lögmál vatnsins. Hafi
maður fengið slæma kennslu í
barnaskóla eða fyrr á ævinni þarf
að laga tæknina áður en hægt er að
njóta sundþjálfunarinnar. Þegar
búið er að ná valdi á grunnatriðum
er hægt að snúa sér að góðri upp-
byggingu líkamans. Sá sem er illa
syridur eyðir mikilli orku í að halda
sér á floti. Fyrir vikið finnst honum
miklu erfiðara í byrjun að synda en
að skokka. Þess vegna finnst mörg-
um alveg kappnóg að synda tvær til
þrjár ferðir og margir ráða ekki við
meira. Það er vegna þess að þeir eru
að synda vitlaust." Hafþór segir að
með markvissri uppbyggingu innan
félaganna megi lyfta grettistaki i
þessum efnum og stórbæta sund-
kunnáttu þjóðarinnar.
Hvað á að synda langt?
Hvað er raunhæft fyrir þann sem
hyggst nota sund sem þjálfun að
synda langt í einu? „í hvaða íþrótt
sem er gilda svipuð lögmál. Markm-
iðið er að komast sem lengst á til-
teknu álagi og fá þjálfun og upp-
byggingu út úr því álagi. Það verður
að byrja hægt og rólega og auka
álagið eftir því sem manni vex ás-
megin. í sundi þarf að læra að nota
lungun á nýjan hátt miðað við
skokk en almennt sagt tel ég raun-
hæft fyrir venjulegan sundmann að
stefna á 1000 metra. Aðalatriðið er
þó að ná hjartslættinum upp og
vinna áfram með það. Margir hafa
hálftíma til þess að synda og góður
sundmaður syndir auðveldlega 1000
metra á þeim tíma, jafnvel eitthvað
meira. Þetta er eins og með skokkið.
Fyrst er farið kringum húsið, svo
hring í hverfinu, svo er hraðinn
aukinn." Hvað er raunhæft að búast
við árangri eftir langan tíma?
Umsjón
Páll Ásgeir Ásgeirsson
„Sá sem syndir þrisvar í viku
finnur hiklaust einhverjar framfarir
eftir þrjár vikur en sex vikur eru
raunhæfari tími. Þetta á ekki að
vera of erfitt. Maður á ekki að leggja
svo hart að sér að maður örmagnist
heldur njóti þess. Ég hef mikinn
áhuga á að fá fólk til að synda
meira. Ég held að algengustu mistök
fólks sem fer reglulega í sund séu að
synda ekki nógu mikið og fyrir vik-
ið fær það ekki nóga þjálfun. Það
koma of margir í sund til þess að
fara í pottinn." Það er því augljóst
mál, að mati Hafþórs, að ekki er nóg
að fara daglega í sund til þess að
synda 200 metra og sitja svo í heit-
um potti. Sund er heilsurækt en þvi
aðeins að fólk fái nóga hreyfmgu út
úr því. Hafþór segir að stöðugar
framfarir verði í sundtækni en al-
gengt sé að fólk skorti kunnáttu í
skriðsundi sem sé óneitanlega erfið-
ara sund en bringusund í fyrstu.
Frá þjálfunarlegu sjónarmiði sé þó
ekki ýkja mikill munur á en fyrst og
fremst sé skemmtilegt að hafa vald á
fleiri en einni sundtegund.
Það er ekki oft sem sundmönnum
sem stunda þá eðlu íþrótt sér til
heilsubótar gefst tækifæri til þess að
etja kappi við aðra „syndara." En
nú er lag. Laugardaginn 11. nóvem-
ber verður nefnilega Haustmót Ár-
manns í garpaflokki í Sundhöflinni
við Barónsstíg. Ármann er sundfé-
lag og þeirra aðalþjálfari, Hafþór
Guðmundsson hefur sérstakan
áhuga á því að ná til almennings
sem stundar sund. Mótið hefst
klukkan 13.00 á laugardaginn en
upphitun fer fram frá klukkan
12.00.Aldurstakmark er 25 ára og
verður keppt í karla- og kvenna-
flokki og skipt í aldursflokka með
fimm ára bili. Þannig byrjar flokk-
unin í 25 til 30 ára, þá 30 til 35 ára
og svo framvegis. Veitt verða verð-
laun í öllum aldursflokkum fyrir
þrjú efstu sætin.Mótinu ætti að
ljúka um 16.00. „Þarna verður keppt
i styttri vegalengdum í öllum sund-
um. Styttri vegalengdir þýðir 50 til
100 metrar og ég vil hvetja alla þá
sem stunda sund reglulega, og ekki
síst gamla sundmenn og konur til
þess að nota nú tækifærið og koma
og synda rösklega," sagði Hafþór
Guðmundsson í samtali við Trimm-
síðuna. Hann sagðist vita nú þegar
um tvo hópa sem ætluðu að mæta til
leiks. Annar kemur frá Akureyri
þar sem hann syndir saman reglu-
lega en hinn kemur úr sundfélagi
Breiðabliks í Kópavogi þar sem lögð
hefur verið sérstök áhersla á sund í
garpaflokki. Helst þurfa menn að
láta skrá sig með fyrirvara og það
geta menn gert hjá gjaldkera og að-
aldriffjöður sunddeildar Ármanns
sem er Stella Gunnarsdóttir og er í
síma 557-6618. Skráningargjald er
400 krónur og helst þurfa menn að
láta skrá sig í nafni einhvers félags
sem er aðili að ÍSÍ sem flestir ættu
að geta. Þetta er í annað skipti sem
slík garpakeppni fer fram en í fyrra
tóku 40 keppendur þátt og höfðu
ómælt gaman af.