Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1995, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995
Fréttir
„Við tökum þessu með jafnaðar-
geði. Ef við værum yngri óttast ég að
við hefðum misst stjóm á öllu þessu
og hætt að vinna. Við höfum
þroskast og núna held ég að við höld-
um ró okkar yfir þessu öllu saman.
Við erum bæði i sömu atvinnunni og
þetta hefur ekki afgerandi áhrif á líf
okkar að öðru leyti en því að við
keyptum okkur nýtt hús og nýjan
bíl,“ segir Helga Love, íslensk kona í
Bandaríkjunum sem ásamt manni
sínum Gerald fékk tæplega 2,7 millj-
ónir dollara í lottói, eða sem nemur
175 milljónum íslenskra króna. Hjón-
in búa í Las Vegas í Nevadafylki í
Bandarikjunum en Helga á íslenska
móður. Móðir hennar, sem lést fyrir
nokkrum árum, hét Ingibjörg Bein-
teinsdóttir frá Draghálsi en hún
flutti til Bandaríkjanna eftir 1950 og
giftist þar Bandaríkjamanni, Robert
David að nafni. Helga sagði í samtali
við DV í gær að draumur hennar
væri að læra íslensku.
„Ég tala ekki íslensku en mamma
reyndi að kenna mér málið þegar ég
var barn. Ég var á þeim tíma upptek-
in af öðrum hlutum og hafði engan
tíma tU að læra málið. Núna hef ég
fuUan hug á að læra íslenskuna sem
er móðurmál mitt. Ég stefni að því
að fara í heimsókn til íslands næsta
sumar,“ segir Helga.
Helga fæddist í Bandaríkjunum en
hefur komið í heimsókn til íslands
þar sem hún dvaldist hjá frænku
sinni í Kópavogi árið 1973, þá 17 ára
gömul. Hún á hálfbróður sammæðra,
Ómar Einarsson sem er skipstjóri og
útgerðarmaður í Keflavík. Frænka
hennar segir að hún hafi verið mjög
hrifin af landi og þjóð.
„Hún dvaldist hjá mér í einn mán-
uð og viö ferðuðumst vítt og breitt
um landið. Hún heimsótti þá meðal
annars Sveinbjöm Beinteinsson aUs-
herjargoða, móðurbróður sinn. Hún
Helga og Gerald Love, sem búa í Las Vegas, fengu um 175 milljónir íslenskra króna í lottóvinning. Þau eru bæði
miklir áhugamenn um hesta. Helga, sem á íslenska móður, heldur miklum tengslum við ísiand og ætlar að koma í
heimsókn næsta sumar.
var mjög hrifin af landi og þjóð,“ seg-
ir frænkan sem segist ekki vilja láta
nafns síns getið til að forðast óþæg-
indi.
Helga Love er lásasmiður að
mennt og starfar við iðn sína í spUa-
vítum í Las Vegas. Hún hefur að
sögn frænku hennar haldið tengslum
við ísland og hyggst koma hingað tU
lands aftur.
10 cent vantaði á
sendibréfið
„Helga er mjög yfirveguð, greind
og hlý. Ég hef tvisvar heimsótt hana
tU Bandaríkjanna og hún hyggst
koma hingað næsta sumar. Þá
reikna ég með að við ferðumst um
Vestfirði þar sem hún hefur aldrei
komið. Hún hefur haldið tengslum
hingað og við skrifumst reglulega á.
Það er óhætt að segja að hún sé
sannur íslandsvinur," segir frænk-
an sem fékk tíðindin af heppni
Helgu í pósti um helgina.
„Það var svolítið fyndið að ég
fékk bréf frá henni með þessum tíð-
indum nú fyrir skömmu en þaö bréf
hafði verið lengi á leiðinni. Það
hafði vantað 10 cent upp á póstburð-
Helga býr í Las Vegas. Hún segist
halda ró sinni þrátt fyrir stóra vinn-
inginn.
Ómar Einarsson, bróðir Helgu, fagn-
ar láni systurinnar. Ómar er skip-
stjóri og útgerðarmaður í Keflavík.
argjaldið og bréfið var þess vegna
endursent heim tU hennar,“ segir
hún.
Ómar Einarsson, bróðir Helgu,
segist gleðjast fyrir hönd systur
sinnar.
„Það er mjög ánægjulegt að hún
skuli hafa fengið þennan vinning.
Ég vona bara að þetta verði þeim
báðum tU góðs,“ segir Ómar. -rt
íslensk kona í Bandaríkjunum vann 175 milljónir króna í lottói:
Höldum ró okkar yfir
þessu öllu saman
- segir Helga Love sem kemur til íslands í sumar
Utanríkisráöherra:
Vatnsútflutningsfyrirtækið AKVA:
Skipti á veiði-
heimildum
Rætt við Banda-
ríkjamenn
um nýtt hlutafé
Halldór Ásgrímsson hélt er-
indi um úthafsveiðar á fiski-
þingi í gær. Þar ræddi hann um
nauðsyn þess aö samvinna ætti
sér stað á miUi þjóða varðandi
fiskveiðar eða gagnkvæmt trygg-
ingakerfi. HaUdór sagðist hafa
kynnt árið 1985 hugmynd um
gagnkvæm skipti á veiðiheimUd-
um en hugmyndin hefði ekki
hlotið jákvæðar undirtektir.
„Vart er raunsætt að slíku al-
mennu fyrirkomulagi verði
komið á á næstimni, en fyrst
mtm reyna á vilja slíkrar sam-
vinnu í yfirstandandi samninga-
viðræðum um þorskveiðar í
Barentshafi,“ sagði HaUdór.
-rt
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég sagði það á síðasta ári að
KEA myndi ekki leggja meira hluta-
fé í fyrirtækið. Staðan er þannig
núna að við erum í viðræðum við
aðUa í Bandaríkjunum um að koma
að þessu máli, meira get ég ekki
sagt,“ segir Magnús Gauti Gauta-
son, kaupfélagsstjóri KEA, um stöðu
vatnsútflutningsfyrirtækisins
AKVA sem er dótturfyrirtæki KEA.
Á fundi í AkureyrardeUd KEA
upplýsti Magnús Gauti að rekstur
AKVA væri erfiður og tap á rekstr-
inum hefði aukist í sumar, en hann
sagðist i samtali við DV ekki tjá sig
neitt um miUiuppgjör fyrirtækisins.
Hann sagði þó hins vegar að vax-
andi sala hefði verið á AKVA-vatni
í Bandaríkjunum og verðið haldið
sér í doUurum.
„Ég get ekki tímasett það neitt
hvenær niðurstaða fæst í viðræðum
við þann bandaríska aðUa sem ver-
ið er að tala við, þetta er aðUi sem
mun koma inn í fyrirtækið með
hlutafé og annast dreifingu ef samn-
ingar takast,“ sagði Magnús Gauti.
,r ö d d
FOLKSINS
904-1600
Á að hafa leikskóla í
Ásmundarsal
Alllr i stafræna kerfinu meft tónvalssíma geta nýtt sér þessa þjónustu.
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já jj
Nel 2j
Innbrot í sumarbústaði:
Stela bara persónulegum munum
„Tjónið er mest vegna þess að
persónulegir munir eru horfnir.
Þessir menn láta hins vegar aUt það
verðmætasta vera og þeir hafa held-
ur ekki skemmt mikið,“ segir eig-
andi sumarbústaðar i Grímsnesinu
í samtali við DV.
Nú í vikunni hefur verið brotist
inn í átta sumarbústaði þar á svæð-
inu. Innbrotin gætu þó verið fleiri
því að þau hafa verið að koma í ljós
eitt af öðru síðustu daga.
í öUum tUvikum er farið eins að
og telur lögreglan á Selfossi að sami
maður eða sömu menn hafi verið á
ferð í öU skiptin. Jafnframt hvetur
lögregla fólk til að huga að bústöð-
um sínum því að vel gæti hafa ver-
ið brotist inn í fleiri. Enn hefur eng-
inn verið handtekinn vegna þessara
innbrota en málin eru í rannsókn.
-GK
Stuttar fréttir
Mótvindur gegn Bítlum
Mótvindur í háloftunum varð
þess valdandi að Flugleiðavél
skUdi eftir nýja geislaplötu Bítl-
anna sem Skífan var búin að
panta frá London. Platan kemst
ekki í íslenskar verslanir fyrr en
á morgun.
Myndbönd innkölluð
Námsgagnastofnim hefur inn-
kaUað öll kennslumyndbönd
sem hún hefur afgreitt tU
fræðsluskrifstofanna. Sam-
kvæmt RÚV er þetta gert vegna
óvissu um starfsemi skrifstof-
anna þegar sveitarfélögin yfir-
taka rekstur þeirra á næsta ári.
Umdeildur samningur
Stjómarþingmenn í landbún-
aðamefnd Alþingis gera alvar-
legar athugasemdir viö búvöm-
samninginn. Stöð 2 greindi frá
þessu.
Nóatún kaupir JL-húsið
Nóatúnsveldið hefur keypt JL-
húsið af borgarsjóði fyrir 17,5
miUjónir króna.
Minni túristatekjur
Tekjur af erlendum ferða-
mönnum í sumar voru 1%
minni en á sama tíma f fyrra.
Morgunblaöið greindi frá þessu.
-bjb