Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1995, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995
Fréttir
Iðnnemasamband íslands hyggur á málaferli:
Munum fara í mál viö
stjórn Ríkisspítalanna
- segir Brjánn Jónsson, framkvæmdastjóri sambandsins
„Við höfum fengið neitun hjá ráð-
herra. Þá leituðum við til formanns
þingflokks Framsóknarflokksins og
fengum heldur kaldar móttökur.
Formaðurinn lofaði að vísu að taka
málið upp við þingflokkinn en svo
virðist sem það hafi ekki verið gert,
alla vega ekki með viðunandi hætti.
Mér sýnist sem ætlunin sé að kæfa
málið vegna þess að menn álíta að
Iðnnemasambandið sé ekkert afl
sem þarf að óttast. Þess vegna er
ekki um annað að gera fyrir okkur
en að leita til lögfræðings okkar um
að fara með málið fyrir dómstóla,“
segir Brjánn Jónsson, framkvæmda-
stjóri Iðnnemasambands íslands,
um mál matartækninemanna sem fá
engin laun meðan þeir vinna fullan
vinnudag i starfsþjálfun hjá Ríkis-
spítölunum.
Hann sagði að Iðnnemasamband-
ið myndi að sjálfsögðu leita til Al-
þýðusambands íslands um stuðning
U málinu og fara i málaferli með
stuðningi þess því það væri
sterkara fyrir Iðnnemasambandið
að hafa ASÍ að bakhjarli.
Brjánn sagðist vita um allmarga
matartækninema sem hefðu hætt
við að fara í átta mánaða starfsþjálf-
un hjá Ríkisspítölunum vegna
launaleysis. Sumir hefðu haldið
áfram námi í fjölbrautaskólunum í
von um að eitthvað breyttist til
batnaðar. Aðrir hefðu alveg horfið
frá námi vegna þess að þeir hefðu
ekki efni á að vinna launalaust í 8
mánuði.
-S.dór
Bergsteinn Þór Jónsson matartækninemi:
Vinnur fullan vinnudag
launalaust í 8 mánuði
- á meöan hann er í starfsnámi í eldhúsi Landspítalans
„Ég stunda nám í matartækni í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og
verð að vinna 8 mánuði í starfsþjálf-
un til að fá réttindi. Ég er kominn í
þessa vinnu á Landspítalanum en
fæ engin laun. Við vorum nokkrir
sem ætluðum i starfsþjálfun hér en
hinir hættu við þegar þeir komust
að því að við yrðum að vinna launa-
laust í átta mánuði. Ég vinn fulla
vinnu frá klukkan 7 á morgnana til
klukkan 14 á daginn en frá klukkan
14 til 15.30 er ég í verkefnavinnu,"
sagði Bergsteinn Þór Jónsson í sam-
tali við DV í gær.
Hann sagði að kona, sem starfaði
á Landspítalanum, hefði skrifað fyr-
ir sig bréf til heilbrigðisráðuneytis-
ins og Bryndís Steinþórsdóttir í
Fjölbrautaskólanum i Breiðholti
hefði líka skrifað fyrir sig bréf
vegna þessa máls en án árangurs.
Það verður að taka það fram að
Bergsteinn getur ekki lokið námi
nema taka þessa 8 mánaða starfs-
þjálfun.
Nú hefur Iðnnemasamband ís-
lands tekið málið að sér. Brjánn
Jónsson, framkvæmdastjóri þess,
sagði að hann heföi gert ítrekaðar
tilraunir til að ná sambandi við þá
aðila sem tóku þá ákvörðun að láta
matartækninemana vinna kaup-
laust, en án árangurs.
„Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra svaraði bréfi sem við
skrifuðum henni vegna þessa máls
með örstuttu bréfi þar sem hún seg-
ir að hún hafi engar athugasemdir
við þessa ákvörðun stjórnar Ríkis-
spítalanna. Við leituðum til þing-
flokks Framsóknarflokksins um að
málið yrði tekið upp þar. Formaður
þingflokksins lofaði því á mánu-
dagsmorguninn en sagði eftir fund-
inn að ákvörðun ráðherra stæði,“
sagði Brjánn Jónsson.
Hann sagði að Iðnnemasamband-
ið myndi leita aðstoðar Alþýðusam-
bands íslands vegna þessa og jafnvel
fara dómstólaleiðina ef annað dugir
ekki. Iðnnemasambandið fullyrðir
að alveg fram til þessa hafi nemar í
matartækni fengið greidd laun fyrir
starfsþjálfunartímann samkvæmt
lægstú töxtum.
-S.dór
Bergsteinn Þór Jónsson matreiðslunemi er í starfsþjálfun i eldhúsi Land-
spítalans átta tíma á dag. Hann fær ekkert greitt fyrir vinnu sína og vill ekki
una því. Iðnemasambandið hefur tekið mál hans að sér og hyggst fara dóm-
stólaleiðina. DV-mynd GVA
Dagfari___________________________
Hinn sameinaði flokkur
Umræður um sameiningu Al-
þýðubandalagsins í einn flokk eru
nú komnar á nýtt stig og fyrsti
áfangi á langri leið til að sameina
allaballa virðist nú raunhæfari en
oft áður. Á laugardaginn ætla Al-
þýðubandalagsfélögin Birting og
Framsýn að sameinast í eitt félag. í
Morgunblaðinu er haft eftir Arth-
uri Morthens, varaformanni Birt-
ingar, að þegar menn úr þessum fé-
lögum hafi farið að ræða saman
hafi komið í ljós að þeir hefðu svip-
aðar skoðanir á mörgum málum.
Þetta kom flokksmönnum þægilega
á óvart eftir margra ára hatramm-
ar deilur. Hins vegar tekur Arthur
fram að enn sé langt i land með að
um sameiningu geti orðið að ræða
við Alþýðubandalagsfélag Reykja-
víkur eða Sósíalistafélagið Enn
lengra er líklega í sameiningu við
sellurnar, svo að ekki sé minnst á
sameiningu Svavars og Ólafs Ragn-
ars i einn flokk eða sameiningu
Hjörleifs og Margrétar.
Þótt enn séu mörg ljón á veginu
fyrir sameiningu Alþýðubanda-
lagsins hefur þessi frétt vakið von-
ir um möguleika á sameiningu
fólks innan fleiri flokka. Kratar
urðu hugsi við fréttina um samein-
ingu Framsýnar og Birtingar. Sum-
ir þeirra telja að það verði jafnvel
unnt að taka upp sameiningarvið-
ræður á milli Vesturgötufélags Al-
þýðuflokksins við Strandgötufélag-
iö í Hafnarfírði. Aðrir telja þaö
alltof stórt stökk tfl að byrja með
og vflja að fyrst verði kannað hvort
Rannveig og Guðmundur Árni geti
hugsanlega sameinast í flokki eða
hvort grundvöOur er tO viðræðna
mOli Félags frjálslyndra jafnaðar-
manna og hinna þröngsýnu.
Innan Kvennalista hafa samein-
ingarsinnar reynt að sækja í sig
veðrið eftir því sem dregið hefur úr
fylgi meðal kjósenda. Þar standa
mál þannig að Helga Sigurjónsdótt-
ir rekur prívatflokk í Kópavogi og
situr þar í bæjarstjórn sem fufltrúi
Kvennalistans þótt hún hafl sagt
sig úr flokknum. Flokkskonur úti á
landi hafa rætt möguleika á að
sameinast hverjum sem er og þá
jafnt körlum sem konum. Þær eru
tilbúnar að sameinast femínistum
af hvaða kyni sem er. Aðrar
kvennalistakonur telja slíkt ekki
koma til greina og betra sé að faOa
með sæmd en missa meydóminn.
Það verður því að fá úr því skorið
hver má vera með hverjum áður en
það ræðst hvaða sameiningarferli
verður fyrir valinu hjá kvenna-
listakonum.
Hvað Þjóðvaka varðar þá er
hann tilbúinn að sameinast hverj-
um sem er og hvar sem er svo lengi
sem Jóhanna fær að vera formaður
og Ágúst fær að berjast fyrir skatt-
lagningu á sjálfan sig í formi veiði-
leyfagjalds. Þingflokkur Þjóðvaka
er sagður standa nokkuð þétt sam-
an enda ekki um önnur félög að
ræða innan þess flokks. AOa vega
þykir það borin von að Þjóövaki
geti sameinast kjósendum. Því viO
þingflokkurinn kanna afla mögu-
leika á sameiningu við aðra þing-
flokka en þar er enginn áhugi á
horfnum tíma.
Hinn sameinaði Framsóknar-
flokkur íhaldsins stendur sem einn
maður að baki Davíð yflrformanni
og varaformanni hans sem er
gleðipinninn Hafldór Ásgrímsson.
Að vísu hafa nokkrar konur í
íhaldsarmi flokksins talið sig bera
skarðan hlut frá borði hvað varðar
áhrif og völd. Um tíma voru þær
jafnvel að velta því fyrir sér að
bjóða fram gegn Friðriki varavara-
formanni. Hann brá þá á það ráð
að tilkynna að Flokkurinn ætlaði
að marka sér stefnu í málefnum
fjölskyldunnar og misstu þá kon-
urnar aflan áhuga á að komast til
áhrif í þeim flokki. Það er því ekk-
ert sem fær haggað hinum stóra og
öfluga fjöldaflokki aflra stétta til
sjávar og sveita þar sem neytendur
og bændur faflast i faðma um sitt
sameiginlega áhugamál sem er að
efla sauðkindina og forða lands-
mönnum frá ódýrum innkaupum
gengnum GATT. Yfirformaður
landsins, Davíð Oddsson, lítur með
velþóknun yfir sviðið og horfir
fjarrænu augnaráði í átt að Álfta-
nesi á reglubundnum kvöldgöng-
um sínum meðfram Ægisíðu.
Dagfari
236% söluaukning á árinu, annað árið í röð