Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1995, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995
7
Fréttir
Kristinn Sigtryggsson, framkvæmdastjóri Emerald Air:
Félagið stendur í ýmsum
viðkvæmum samningum
- viðkvæmt að ræða málefni félagsins meðan svo stendur á
„Eg get ekki tjáö mig um einstök
málefni félagsins við fjölmiöla að
þessu leyti, það hlýtur þú að sjá,“
sagði Kristinn Sigtryggsson, fram-
kvæmdastjóri flugfélagsins Emerald
Air, þegar DV spurði hann um
greiðslu skuldar Emerald Air við líf-
eyrissjóð bænda. Fyrrum fram-
kvæmdastjóri lífgeyrissjóðs bænda,
Benedikt Jónsson, láhaði flugfélag-
inu 90 milljónir króna án vitundar
stjómar sjóösins fyrr á þessu ári.
Enn hefur ekkert verið greitt af lán-
inu og er allt gjaldfallið.
Guðríður Þorsteinsdóttir, formað-
ur stjómar lífeyrissjóðs bænda,
sagði í samtali við DV í gær að inn-
heimtuaðgerðir hjá Emerald Air
væm hafnar í N-írlandi. Fyrirtækið
ætti sennilega engar eignir og því
yrði farið fram á gjaldþrotaskipti ef
lánið verður ekki greitt.
- Er það ekki rétt, Kristinn, að
ekkert hefur verið greitt af láninu
til lífeyrissjóðsins?
„Ég var að segja það við þig að ég
get ekki tjáð mig um mál af þessu
tagi við fjölmiðla," sagði Kristinn
- Þykir þér þetta ekki vera frétta-
mál?
„Hringir þú í íslensk fyrirtæki og
spyrð hvort lánin þeirra séu í skil-
um?“
- Ég geri það ef lögfræðingar
segja mér að það sé komið að því að
gera fjámám hjá þeim.
„Jæja, ég hef aldrei séð svoleiðis
frétt þótt ég sé búinn að búa á ís-
landi í allmörg ár.“
- Sástu aldrei slíkar fréttir eða
varst spurður meðan þú varst fram-
kvæmdastjóri Arnarflugs og halla
tók undan fæti hjá fyrirtækinu?
„Jú, að vísu.“
- Hvað segir þú mér af Emerald
Air, er þaö með rekstur enn þá?
„Já, já.“
- Hvaða rekstur?
„Sko, á þessu stigi stendur félagið
í ýmsum samningum sem eru þess
eðlis að það er viðkvæmt að vera að
ræða málefni félagsins í fjölmiðlum.
Ég kýs enda að gera það ekki á þess-
ari stundu. Kannski get ég sagt þér
eitthvað meira fljótlega,“ sagði
Kristinn Sigtryggsson.
-S.dór
Fjölbrautaskólinn í Breiöholti:
Lagt til að iðnnámið fari í Grafarvoginn
- ekki verið aö tæma skólann, segir menntamálaráöherra
„Bygging Borgarholtsskóla er fyr-
ir löngu ákveðin. Tillögur ráðuneyt-
isins gera ráð fyrir að hugsanlega
flytjist 188 nemendur frá Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti. í skólanum
eru um 1500 nemendur og því ekki
hægt að tala um að það eigi að tæma
hann í þessu sambandi," segir Bjöm
Bjamason menntamálaráðherra.
Menntamálaráðimeytið hefúr sett
fram tillögur um breytingar á skip-
an náms á framhaldsskólastigi. Til-
lögumar gera meðal annars ráð fyr-
ir að iðnnám verði að hluta flutt frá
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
(FB) til Borgarholtsskóla í Grafar-
vogi sem nú er í smíðum. Gert er
ráð fyrir að um þúsund nemendur
verði í skólanum, þar af 400 í verk-
námi og 600 í bóknámi.
Tillögur Bjöms hafa mætt and-
spymu hjá ýmsum skólamönnum,
einkum stjómendum FB. Tillögum-
ar miða í þá átt að auka verkaskipt-
ingu framhaldsskóla í landinu og
gera meðal annars ráð fýrir að námi
í bygginga- og tréiðnaðargreinum,
máhn- og rafiðnaðargreinum verði
hætt í FB og hugsanlega einnig mat-
vælagreinum. Á almennum borgara-
Nybygging Borgarholtsskóla. Tillögur menntamálaráðuneytisins gera ráð
fyrir að hugsanlega flytjist þangað 188 nemendur frá Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti. DV-mynd GVA
Iðnnemasambandið:
Mótmælir
tilfærslu iðn-
og starfsnáms
milli skóla
Sambandsstjóm Iönnemasam-
bandsins mótmælir harðlega þeim
áformum að iðn- og starfsnáms-
brautir við Fjölbrautaskólann I
Breiðholti verði lagðar niður.
Áformað er að flytja þessar braut-
ir yflr í Borgarholtsskóla í Grafar-
vogi og Iðnskólann í Reykjavík.
Gert er ráð fyrir að Borgarholts-
skóli verði gerður að móðurskóla
fyrir málmiðngreinar en Iðnskól-
inn fyrir rafiðngreinar.
Iðnnemasambandið segir að
gnmndeildir iðnnáms eigi að vera
kenndar sem víðast. Bendir sam-
bandið á að Fjölbraut í Breiðholti
sé framhaldsskóli í 23 þúsund
manna hverfi. Gera megi ráð fyrir
að allir þeir senl hafa hug á iön-
námi þar muni vilja snúa sér til
þess skóla.
-S.dór
fúndi í liðinni viku lýsti Kristín
Amalds skólameistari því yfir aö ef
tillögumar næðu fram að ganga
myndi það rústa starfsemina.
„Þetta em hugmyndir sem við
erum að kalla fram viðbrögð við og
efna til umræðna um. Ég bjóst ekki
við því að menn yrðu sammála þess-
um hugmyndum enda mál sem við
ætlum að skoða þegar það kemur
aftur til umfjöllunar í ráðuneytinu,"
segir Bjöm, en frestur til að skila at-
hugasemdum við tillögumar rennur
út mn næstu mánaðamót.
-kaa
staðgreitt
staðgreitt
i>ið fáið allar iólagjafírn;
hjá okkuríLápúlaB
ORION
-........;
) i jolapakka
fiölslwldunnar!
M -íauJnLJCi VCR-555
• Tveggja hausa myndbandstæki
• Fullkomin fjarstýring.
• Myndleitun ó tvöföldum hraSa.
• Fjögura vikna innsetning ó upptöku, ó ótta
mismunandi stöðvum.
• Sjólfvirk hreinsun ó myndhaus.
Afborgunarverö kr. 33.222
VISA
^ORION VH-1105
• Tveggja hausa myndbandstæki
• Fjarstýring með aðgerðaupplýsingum.
• Scart innlenging
• Búnaður sem breytir upptökutíma ef breyting
verður ó dagskró„Show View"
• Sjólfvirk hreinsun ó myndhaus.
Afborgunarverö kr. 43.100.-
m mmmm
Lágmúla 8, Sími 553 8820
Reykjavík: Heimskringlan, Kringlunni.Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi.
Vestfirðlr: Geirseyrarbúöin, Patreksfirði. Rafverk.Bolungarvík.Straumur.ísafiröi. Norðurland: Kf. V-Hún.,Hvammstanga. Kf. Húnvetninga,
Blönduósi. Skagfirðingabúö.Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: Sveinn Guömundsson,
Egilsstöðum. Stál, Seyöisfirði. Verslunin Vík, Neskaupsstað. Kf. Fáskrúðsfiröinga, Fáskrúðsfirði. KASK, Höfn Suðurland: Kf. Rangæinga,
Hvolsvelli. Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík.
Umboðsmenn um allt land