Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1995, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995
Útlönd
SÞ afléttir
viðskipta-
banninu á
Júgóslavíu
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti einróma í gær-
kvöldi að aflétta viðskiptabann-
inu sem sett var á stjórnvöld í
Belgrad árið 1992 fyrir stuöning
þeirra við stríðsrekstur Bosníu-
Serba.
Öryggisráðið samþykkti
einnig að aflétta vopnasölubann-
inu á Bosníu og önnur ríki fyrr-
um Júgóslavíu á næstu sex mán-
uðum.
Leiðtogar fyrrum Júgóslavíu
þurfa nú að sannfæra landa sína
um ágæti friðarsamkomulagsins
sem náðist í fyrradag en leiðtog-
ar Bosníu-Serba hafa lýst yfir
andstöðu sinni við það og heita
að koma í veg fyrir framkvæmd
þess.
Díana fær
kaldar kveðjur
í Argentínu
Argentínumönnum virðist
standa alveg á sama um heim-
sókn Diönu prinsessu til Argent-
ínu þessa dagana, flnnst hún f
versta falli ögrun við tilkall
þeirra til Falklandseyja. Skoðan-
akannanir sýna að hún hefur
ekki unnið hug og hjörtu al-
mennings eins og heima í Bret-
landi eftir viðtalið þar sem hún
fjallaði opinskátt um hjóna-
bandsvandræöi sín og Karls
Bretaprins. Argentínumenn
segjast ekkert hafa viö hana að
tala og eru bálreiðir yfir því að
hún skuli fá afhot af þyrlu for-
setans og að nafn þyrlunnar,
Malvinas Argentinas, skuli hul-
iö. í Argentínu eru Falk-
landseyjar nefndar Malvíneyjar.
1 Bretlandi segir James
Hewitt lisðforingi að ástarsam-
band þeirra Díönu hafi verið
eldheitt og hann gefið sig allan í
það. Hún hafi hins vegar notaö
sig. Reuter
Stuttar fréttir i>v
Þrír í haldi fyrir óhugnanleg morö í Bandaríkjunum:
Myrtu konu og
fjarlægðu fóstur
Sam Evans, faðir hinnar myrtu Debru Evans, reynir að hafa hemil á geðs-
hræringu sinni á fundi með fréttamönnum. Morðingjarnir fjarlægðu full-
burða fóstur úr kviði Debru og flúðu með það. Símamynd Reuter
Jacqueline Williams, 28 ára göm-
ul kona í Bandaríkjunum, héfur við-
urkennt að hafa fjarlægt fúilburða
fóstur úr kviði annarrar konu,
Debru Evans, og lífgað það við eftir
að móðirin var skotin og stungin til
bana. Tveir menn voru í vitorði með
Williams, kærasti hennar og fyrrum
kærasti hinnar myrtu. Þau eru nú
öll í haldi lögreglu. Morðingjarnir
vissu að Evans átti von á sér í þess-
ari viku.
Þremenningarnir myrtu enn
fremur tvö böm Evans af þremur,
Samönthu, 10 ára, og Joshua, 8 ára.
Þeir þyrmdu hins vegar lífi Jordans,
sem er 19 mánaða. Saksóknari ætlar
að fara fram á dauðarefsingu.
Jacqueline Williams hafði gert
sér upp þungun áður en morðin
voru framin í síðustu viku. Daginn
eftir ódæðisverkið sýndi hún síðan
vinum og ættingjum bamið og sagði
það vera hennar eigið.
Útför Debm Evans var gerð í gær
og við það tækifæri brugðust ætt-
ingjar hennar ókvæða við þeim orð-
um Newts Gingrich, forseta fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings, að morðin
bæm vott um siðferðilegt hrun
Bandaríkjanna. Hann sagði að þau
sýndu glögglega hvað væri að vel-
ferðarkerfi Bandaríkjanna, en
Evans var á opinbem framfæri.
„Það sem hefúr brugðist er vel-
ferðarkerfi sem hefur haldið uppi
fólki til að gera ekki neitt,“ sagði
Gingrich á þingi fylkisstjóra úr
Repúblikanaflokknum og veifaði
dagblaði með frásögn af morðunum.
Ættingjar Evans sögðu að þótt
hún hefði verið á opinbera framfæri
hefði hún verið umhyggjusöm móð-
ir sem reyndi að sjá fyrir sér og sín-
um.
„Okkur þætti vænt um ef
Gingrich væri ekki að blanda fjöl-
skylduharmleik okkar í pólitískan
áróður sinn. Við þurfum á bænum
hans að halda, ekki gagnrýni," sagði
Fred Moody, frændi Debra Evans.
Reuter
Stefnir á frið
Ný ríkisstjóm ísraels stefnir á
frið við Sýrlendinga og samein-
ingu þjóðarinnar heima fyrir.
Clinton bjargar ekki
írar og Bretar eru langt frá
því að ljúka þrátefli um frið á
Norður- írlandi. Bandarískir
embættismenn segja að Clinton
forseti komi ekki til bjargar.
Papandreou að ná sér
Andreas
Papandreou,
forsætisráð-
herra Grikk-
lands, hefur
verið með
lungnabólgu
frá því á
mánudag en
er að ná sér að sögn lækna.
Kosningum frestað
Aukinn þrýstingur er á að
fresta forsetakosningum á Haítí
en þær eiga að fara fram í næsta
mánuði.
Neyðarfundur
Abacha, yfirmaður herfor-
ingjastjómarinnar i Nígeríu,
kallaði áhrifamenn í nígerísku
þjóðlífi á sinn fund til að ræða
viðbrögð við einangran landsins
eftir að níu andófsmenn voru
hengdir.
Óhreinar hendur
Fymum yfirmaöur í leyni-
þjónustu Spánverja sagði fýrir
Hæstarétti að deild hans hefði
hjálpað til í „óhreina stríðinu"
gegn skæruliðum Baska á ní-
unda áratugnum.
Brúðhjón horfin
Jóakim prins og Alexandra
prinsessa njóta nú hveitibrauös-
daganna á leyndum stað. Þau yf-
irgáfu Danmörku við mikla
leynd og virðist hafa tekist að
sleppa undan vökulu auga fiöl-
miölanna. Reuter/Rltzau
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
smbættisins að Skógarhlíð 6,
Reykjavik, sem hér segir, á
eftirfarandi eignum.
4sparfell 6, íbúð á 6. hæð A, þingl.
2Íg. Jón Ragnai- Sigurðsson, gerðar-
Deiðendur Efnaco hf. og íslandsbanki
if., höfuðst. 500, mánudaginn 27. nóv-
jmber 1995 kl. 10.00.
‘\usturberg 36, íbúð á 2. hæð, merkt
)204, þingl. eig. Guðrún Sigurðardótt-
r, gerðarbeiðendur Sameinaði lífeyr-
ssjóðurinn, Búnaðarbanki íslands og
Lífeyrissjóður Sóknai', mánudaginn
17. nóvember 1995 kl. 10.00.
4usturbrún 34, ásamt bílskúr, þingl.
jig. Hjörtur Ö. Hjartarson, gerðar-
Deiðandi Islandsbanki hf., mánudag-
inn 27. nóvember 1995 kl. 10.00.
4lftamýri 58, 1. hæð f.m., þingl. eig.
Erhngur Sigurðsson, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður ríkisins, húsbréfa-
ieild, mánudaginn 27. nóvember 1995
<1. 13.30._________________________
4svallagata 10, kjallaraíbúð, þingl.
íig. Guðmundur Bogason og Árdís
Jlgeirsdóttir, gerðarbeiðandi Bygg-
ngarsjóður ríkisins, húsbréfadeild,
nánudaginn 27. nóvember 1995 kl.
10.00._____________________________
Baldursgata 15, 2. hæð, þingl. eig.
\nna Jónsdóttir, gerðarbeiðandi
Búnaðarbanki Islands, mánudaginn
17. nóvember 1995 kl. 10.00.
Baldursgata 36,2. hæð t.v., þingl. eig.
4sdís Jónsd., b.t. Gunnars Hilmars-
ionar, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður
Bóknar og Lífeyrissjóður starísmanna
ríkisins, mánudaginn 27. nóvember
1995 kl. 10.00.
Barðavogur 3, þingl. eig. Hrafnhildur
Valgarðsdóttir, gerðarbeiðandi Bygg-
ingarsjóður ríkisins, húsbréfadeild,
mánudaginn 27. nóvember 1995 kl.
10.00.______________________________
Beijarimi 8, íbúð á 2. hæð í miðju
merkt 0202, þingl. eig. Jóhann Karl
Einarsson og Ásrún Guðmundsdóttir,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður rík-
isins, húsbréfadeild, mánudaginn 27.
nóvember 1995 kl. 10.00.
Bláhamrar 2, íbúð á 4. hæð, merkt
0402, og bílskýli nr. 5, þingl. eig. Sig-
urður Karlsson og Hallfnður Jóns-
dóttir, gerðarbeiðendur Byggingar-
sjóður verkamanna og Lífeyrissjóður
verslunarmanna, mánudaginn 27.
nóvember 1995 kl. 10.00.
Esjugrund 5, Kjalameshreppi, þingl.
eig. Sérþrif hf., gerðarbeiðandi Is-
landsbanki hf. 526, mánudaginn 27.
nóvember 1995 kl. 10.00.
Frostafold 137, íbúð á 2. hæð, merkt
0201, þingl. eig. Guðrún Stella Gunn-
arsdóttir, gerðarbeiðandi Gjaldheimt-
an í Reykjavík, mánudaginn 27. nóv-
ember 1995 kl. 10.00.
Gerðhamrar 1,1. hæð, merkt 0101, og
bflskúr, þingl. eig. Stefán Steingríms-
son og Ánna G. Halldórsdóttir, gerð-
arbeiðendur Ingvar Helgason hf., Líf-
eyrissjóður starfsmanna ríkisins og
Sparisjóður Kópavogs, mánudaginn
27. nóvember 1995 kl. 13.30.
Hafnarstræti 20, skrifstofúhúsnæði á
4. hæð, hluti 6, þingl. eig. Kristín Sig-
ríður Rósinkrans, gerðarbeiðandi
Landsbanki Islands, mánudaginn 27.
nóvember 1995 kl. 10.00.
Hagamelur 51, jarðhæð f. m., merkt
D, þingl. eig. Þorsteinn Sveinsson og
Þuríður Kristjánsdóttir, gerðarbeið-
andi sýslumaðurinn í Hafharfirði,
mánudaginn 27. nóvember 1995 kl.
13.30.
Háagerði 27, þingl. eig. Jón Jónasson,
gerðarbeiðandi Landsbanki íslands,
mánudaginn 27. nóvember 1995 kl.
10.00.
Háberg 6, þingl. eig. Birgir Sigurðsson
og Hildur Loftsdóttir, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður verkamanna, mánu-
daginr. 27. nóvember 1995 kl. 13.30.
Holtsgata 9, hluti, þingl. eig. Halldóra
Sólveig Valgarðsdóttir, gerðarbeið-
andi Samvinnusjóður íslands hf.,
mánudaginn 27. nóvember 1995 kl.
10.00.
Hraunbær 1, þingl. eig. Ingólfúr G.
Gústafsson, gerðarbeiðendur Gjald-
heimtan í Reykjavík og Sameinaði
lífeyrissjóðurinn, mánudaginn 27.
nóvember 1995 kl. 10.00.
Hraunbær 102a, íbúð á 2. hæð, merkt
0209, þingl. eig. Jón J. Ámason og
Ragnhildur J. Sigurdórsdóttir, gerðar-
beiðendur Landsbanki Islands, Höfða-
bakka, og Sameinaði lífeyrissjóður-
inn, mánudaginn 27. nóvember 1995
kl. 10.00.
Hraunbær 122, 3. hæð f.m., þingl. eig.
Ólafía Nongkran Guðmundsson,
gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar hf.,
mánudaginn 27. nóvember 1995 kl.
10.00.
Hverfisgata 57A, hluti í kjallara og
viðbygging merkt 0001, þingl. eig.
Karólína Hreiðarsdóttir, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður ríkisins, hús-
bréfadeild, mánudaginn 27. nóvember
1995 kl. 13.30.
Hverfisgata 91, 40% hluti, þingl. eig.
Óskar Jakob Þórisson, gerðarbeið-
andi Gjaldheimtan í Reykjavík,
mánudaginn 27. nóvember 1995 kl..
10.00.
Krummahólar 8, íbúð á 5. hæð J,
þingl. eig. Hlynur Þórðarson, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður nkisins,
mánudaginn 27. nóvember 1995 kl.
10.00._____________________________
Kögursel 7, þingl. eig. Ólafúr Krist-
jánsson, gerðarbeiðandi Samvinnulíf-
eyrissjóðurmn, mánudaginn 27. nóv-
ember 1995 kl. 13.30.
Melabraut 14,1. hæð og bflskúrsrétt-
ur, Seltjamamesi, þingl. eig. Gunn-
firíður Sigurharðardóttir og Ólafúr
Logi Jónasson, gerðarbeiðendur Al-
menna málflutningsstofan hf., Bygg-
ingarsjóður ríkisins og húsbréfadeild
Húsnæðisstofhunar, mánudaginn 27.
nóvember 1995 kl. 10.00.
Selbraut 44, Seltjamamesi, þingl. eig.
Guðmundur Öm Ragnarsson, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóður ríkisins
og Lífeyrissjóður starísm. ríkisins,
mánudaginn 27. nóvember 1995 kl.
10.00._____________________________
Síðumúli 27,3. hæð, þingl. eig. Vélsm.
Kristjáns Gíslasonar hf., gerðarbeið-
andi Iðnlánasjóður, mánudaginn 27.
nóvember 1995 kl. 10.00.
Skólavörðustígur 23, 1. hæð m.m.
merkt 0101, þingl. eig. Borgarfell hf.,
gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í
Reykjavík, mánudaginn 27. nóvember
1995 kl, 13.30.____________________
Stigahlíð 26, 3. hæð t.v., merkt 0301,
þingl. eig. Margrét Helga Ólafsdóttir,
gerðarbeiðendur Byggingarsjóður
ríkisins og Gjaldheimtan í Reykjavík,
mánudaginn 27. nóvember 1995 kl.
10.00._____________________________
Torfufell 21, íbúð á 4. hæð t.h., merkt
4-3, þingl. eig. Sigrún Steingrímsdóttir
og Gunnar Þórðarson, gerðarbeiðend-
ur Byggingarsjóður ríkisins og Bygg-
ingarsjóður verkamanna, mánudag-
inn 27. nóvember 1995 kl. 13.30.
Vesturgata 26A, íbúð á 1. hæð au.hl.
merkt 0102, þingl. eig. Jóhannes B
Skúlason, gerðarbeiðandi Byggingar-
sjóður ríkisins, húsbréfadeild, mánu-
daginn 27. nóvember 1995 kl. 13.30.
Vesturströnd 4, Seltjamamesi, þingl
eig. G.Þ. Ólafsson hf., gerðarbeiðend-
ur Lífeyrissjóður matreiðslumanna.
Lffeyrissjóður rafiðnaðarmanna, Líf-
eyrissjóður verslunarmanna, Pétui
Pétursson og Sameinaði lífeyrissjóð-
urinn, mánudaginn 27. nóvember 1995
kl 1330
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
UPPB0Ð
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Árkvöm 2, jarðhæð t.h., norðurendi.
merkt 0103, þingl. eig. Guðjón Bjama-
son, gerðarbeiðendur Byggingarsjóð-
ur ríkisins, húsbréfadeild, Kaupþing
hf. og tollstjórinn í Reykjavík, mánu-
daginn 27. nóvember 1995 kl. 15.50.
Frostafold 50, 2. hæð, merkt 0202,
þingl. eig. María Aldís Marteinsdótt-
ir, gerðarbeiðendur Islandsbanki hf.,
útibú 565, Sjóvá-Almennar hf., Spari-
sjóður Reykjavíkur og nágr. og toll-
stjórinn í Reykjavík, mánudaginn 27.
nóvember 1995 kl. 16.30.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK