Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1995, Síða 9
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995
9
Utlönd
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Marsbúar í bar-
áttuna um írsku
skilnaðarlögin
Marsbúar blönduðu sér óvænt
í baráttuna fyrir því að kasta 70
ára gömlum írskum lögum, sem
banna hjónaskilnaði, í tunnuna.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um lögin
verður haldin á morgun.
í veggspjaldi, sem birtist á
götum Dyflinnar i gær, sagði aö
í löndum þar sem hjónaskilnað-
ir væru leyfðir sæist 63 prósent
meira af fljúgandi furöuhlutum.
Veggspjaldinu var ætlað að
hæðast að talnaleikjunum sem
andstæðingar og stuðningsmenn
hjónaskilnaða hafa stundað að
undanfómu.
Leeson kominn
til Singapore
Breski verðbréfasalinn Nick
Leeson, sem sakaður er um að
hafa rústað Baringsbankann
með braski sínu, kom til Singa-
pore í morgun þangað sem haim
var framseldur frá Þýskalandi.
Reuter
Utlit fyrir mikinn
skort á jólaönd-
um í Færeyjum
Þúsundir færeyskra fjöl-
skyldna verða sennilega að bíta
í það súra epli að fá ekki hefð-
bundna andasteik á jólunum.
Tvær andasendingar frá dönsk-
um framleiðanda, sem yfirdýra-
læknir i Danmörku hafði lýst
lausar við salmonellu, reyndust
hins vegar vera salmonellusmit-
aðar. Öndunum var því þegar
snúið við og þær sendar aftur til
síns heima.
Ekki eru taldar miklar líkur á
því að hægt verði að útvega aðr-
ar endur með svo skömmum fyr-
irvara þar sem svona gómsætan
jólamat þarf að panta með háifs
árs fyrirvara.
En þótt tíðindin af jólasteik-
inni séu slæm, geta Færeyingar
þó glaðst yfir því að hallinn á
ríkissjóði árið 1995 verður rúm-
um milljaröi íslenskra króna
minni en búist var við í upphafi
árs. Ritzau
NYKOMIN
pappi í servíettubox,
jólaföndur og gjafir
VIRKA
'Mörkinni 3
við Suðurlandsbraut
Söngkonan Tina Turner lætur ekki deigan síga þó að hún sé komin á sex-
tugsaldur. í gær kynnti hún aðallag nýjustu James Bond myndarinnar og
boðaði um leið tónleikaferð um Evrópu á næsta ári. Símamynd Reuter
Rosemary West fundin sek um allar ákærur:
Hlaut tífaldan
lífstíðardóm
Í B01)I GOCA-COLA
Kviðdómur við réttinn í
Winchester á Englandi úrskurðaði
Rosemary West seka um öll ákæru-
atriði í einu umtalaðasta sakamáli
Bretlands fyrr og síðar. Hún var
fundin sek um tíu morð, þar á með-
al á bamungri stjúpdóttur sinni og
elstu dóttur. „Ef álit mitt hefur eitt-
hvað að segja þá verður þú aldrei
látin laus. Færið hana í burtu,“
sagði dómarinn eftir að hafa dæmt
Rosemary í tífalt lífstíðarfangelsi
fyrir morðin. „Heyr, heyr,“ heyrðist
þá frá áhorfendum í réttarsalnum.
West, sem sagðist saklaus, hélt ró
sinni meöan dómarinn kvað upp úr-
skurð sinn en riðaði á leið úr réttar-
salnum. Stuttu síðar féll hún saman
Rosemary West eftir dóminn í gær.
Símamynd Reuter
og grét óstjómlega.
Lögreglan kannar nú
örlög tíu kvenna sem
hurfu eftir að hafa komist
í kynni við Rosemary
West og eiginmann henn-
ar, Fred. Hann montaði
sig af því í yfirheyrslum
að hafa myrt að minnsta
kosti 20 stúlkur og konur
til viðbótar við þær 12
sem þegar var vitað um.
Reynist fullyrðingar
Freds á rökum reistar er
hann versti fjöldamorð-
ingi í sögu Bretlands.
Böm Rosemary geta
nú þénað grimmt á þessu
sérstæða sakamáli en
dagblöð era reiðubúin að
greiða milljónir króna
fyrir frásögn ' þeirra.
Áhugi fjölmiðla kemur
ekki síst til af því að miklar tak-
markanir voru á fréttaflutningi af
réttarhöldunum og framburði ein-
stakra vitna.
Hryllingshúsið að Cromwell-
stræti í Gloucester, bar sem tíu
sundurskorin lík fundust, er nú til
sölu en óvíst hvað verður um það.
Ónefiit fyrirtæki mun vilja kaupa
húsið og setja þar upp hryllingssafn.
Reuter
USTINN ER NH5URSTAÐA SKOÐANAKÖNNUNAR SEM ER FRAM-
AF ÖLLU LANDINU. JAFNFRAMT ER TEK-
UM. ÍSLENSKI LISTINN BIRTIST Á HVERJUM LAUGARDEQI f DV OG ER FRUMFLUTTUR Á BYGJUNNI A
LAUGARDÖGUM KL16-18. UST1NN ER BIRTUR AÐ HLUTA f TEXTAVARPIMTV SJÓNVARPSSTÖÐVARINNAR. (SLENSKIUSTINN TEKUR ÞÁTT f VAU „WORLD
CART" SEM FRAMLEIDDUR ER AF RADIO EXPRESSILOS ANGELES. EINNIG HEFUR HANN ÁHRIF Á EVRÓPUUSTANN SEM BIRTUR ER f TÓNUSTARBLAÐ-
iRfSKATÓNU
INU MUSIC & MEDIA SEM ER REKH) AF BANDARfS
INUSTARBLAÐINU BILLBOARD.
ISLENSKI LISTINN ER BIRTUR I DV A HVERJUM LAUGARDEGI
OG SAMA DAG ER HANN FRUMFLUTTUR Á BYGLJUNNI FRÁ
KL. 16-18. BYLGJAN ENDURFLYTUR LISTANN Á MÁNUDAGS-
KVOLDUM MILLI KL. 20 OG 22.
Konur - Konur!
Tískusýning á handprjónafatnaði frá Gamhúsinu
og silkináttfatnaði frá Hrímgulli í kvöld kl. 8.30 á Mömmu
Rósu í Hamraborg.
Tilboðsverð á léttum réttum.
Kynnir og skemmtir Heiðar Jónsson.
Garnhúsið, Suðurlandsbraut
v/Fákafén - s. 568 8235