Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1995, Page 11
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995
NfMÆí/
11
Kvenfélagið Bláklukka:
Elsta félagið á
Egilsstöðum
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum:
„Við erum í raun bæði að
skemmta okkur og sinna fjáröflun-
um til að styrkja ýmis góð málefni.
Nú stendur fyrir dyrum okkar árlega
jólamatarbingó þar sem stærsti vinn-
ingur er fimm rjúpur með öllu til-
heyrandi í jólamamatinn. Ágóðanum
verður að þessu sinni varið til
styrktar kaupum á ómskoðunartæki
fyrir fjórðungssjúkrahúsið á Nes-
kaupstað.
Aðrar fjáröflunarleiðir eru köku-
basar laugardaginn fyrir pálma-
sunnudag og kaffisala 17. júní í sam-
vinnu við Hótel Valaskjálf, sem er
alltaf mjög vinsæl, sagði Jóhanna
Þorsteinsdóttir, formaður kvenfé-
lagsins. Hún sagði að félagið væri
mjög virkt. Almennir félagsfundir
eru haldnir mánaðarlega yfir vetur-
inn, en þó er desemberfundurinn
venju fremur skemmtilegur.
Styrkur til sundiaugar
Kvenfélagið hefur styrkt fjölmörg
verkefni. Má nefna 150 þúsund til
nýju sundlaugarinnar en féð var m.a.
notað til að kaupa sundvesti fyrir
yngstu gestina og önnur öryggistæki.
Ágóði af kökubasar voru kr. 80 þús-
und og rann til að kaupa útileiktæki
fyrir leikskólann. Stutt er síðan
keyptir voru 40 fermingarkyrtlar og
kaup á hljóðkerfí í kirkjuna voru
styrkt. Þá hefur félagið síðustu árin
tekið þátt í söfnum fyrir ýmis tæki til
nota á fæðingarstofu sjúkrahússins á
Egilsstöðum.
Af annarri starfsemi má nefna
skemmtun og kaffisamsæti fyrir eldri
borgara sumardaginn fyrsta, gróður-
setningu trjáplantna með yngsta ár-
gangi grunnskólans ár hvert, og þær
gleyma heldur ekki sínum eigin fjöl-
skyldum. Fyrir þær er haldin
skemmtun og makakvöld er á dag-
skrá. Einnig eru ferðalög árlegur við-
burður. Það má því segja að þær hafi
komið víða við og engum gleymt.
Ræðunámskeið fyrir
félagskonur
Og til að efla eigin anda hefur félagið
staðið fyrir ýmsum námskeiðum og
fyrirlestrum á undanfornum árum og
í haust er í gangi ræðunámskeið, svo
það má ljóst vera að hér eru hinar
mestu valkyrjur á ferð.
Kvenfélagið Blákukka er líklega
elsta starfandi félag á Egilsstöðum,
stofnað 1948, ári síðar en hreppurinn
varð til. Fyrsti formaður var Sigríður
Fanney Jónsdóttir en núverandi for-
maður er Jóhanna Þorsteinsdóttir
eins og áður kom fram. Félagar eru
nú 42.
Reglulega þarf að hreinsa sigtin í hreinsikerfinu, líkt og þvottavélarsigtið.
Hér tínir Hreinn uppsafnað rusl sem skilist hefur frá vatninu í hreinsuninni.
DV-mynd JJ
Hreinn Halldórsson, forstööumaður íþróttahússins:
Fengu traktor fyr-
ir gömlu laugina
fyól^gjafahandbókL
Munið skiladagur auglýsinga er 24. nóvember
Jón Arngrímsson og Sigurlaug dótt-
ir hans sem aðstoðaði við sönginn.
DV-mynd JJ
„iþróttamannvirkin hafa stóraukið
íþróttalífið hér á Egilsstöðum.
íþróttahúsið er þétt setið frá morgni
til kvölds,“ segir Hreinn Halldórsson,
forstöðumður íþróttahúss Egilsstaða.
Aðeins hefur verið tekin í notkun
fyrri hluti byggingarinnar og vonir
standa til að hægt verða að fullklára
húsið á næstu árum.
Héraðsbúar og nágrannar tóku í
notkun nýja glæsilega sundlaug í
júní sumar. Gamla laug Egilsstaða-
búa var flutt í Jökuldal og fyrir hana
fékkst traktor. Nýja sundlaugin er
við hlið íþróttahússins sem tekið var
í notkun fyrir nokkrum árum. Gerð
verður tilraun til að hafa Egils-
staðalaug opna í vetur en það er mjög
dýrt að halda lauginni opinni yfir
vetrartímann þegar gestum fækkar.
Til þess að spara sem mest hefur öðr-
um heita pottinum og vatnsrenni-
brautinni verið lokað.
Sama vatnið notað aft-
ur@Meginmál:
Laugin er svokölluð yfirfallslaug
en það þýðir á einfaldasta hátt að yf-
irborðsvatn sem flýtur yfir bakkana
fer inn í vatnskerfið á ný. Á leiðinni
fer vatnið í gegnum hreinsibúnað
sem skilar því hreinu til laugarinnar.
Mjög fullkomin tölvubúnaður
stjórnar hitastigi, sýrustigi og klór-
magni í lauginni.
„Þetta kerfi er það sem koma skal.
Mér vitanlega er aðeins Árbæjarlaug
og þessi búnar þessu vatnskerfi," seg-
ir Hreinn og bætir við að það sé mið-
að við að gestum líði sem best í laug-
inni.
Félagskonur í Kvenfélaginu Bláklukku á Egilsstöðum sáu um veitingar á afmælishátíð DV: Erla Salomonsdóttir, Kol-
brún Ármannsdóttir, Jóhanna Þorsteinsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Ragnheiður Sigurgeirsdóttir og Karólína Ing-
ólfsdóttir.
Safnhúsið að verða tilbúið
Jón Arngrímsson gefur út plötu:
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum:
„Það er sannarlega ánægjulegt aö
Minjasafn Austurlands skuli nú
loksins vera að komast í eigið hús-
næði. Ætlunin er að opna í júní
næsta ár,“ sagði Guðrún Kristjáns-
dóttir, minjavörður á Egilsstöðum, í
tilefni af því að á næsta ári lýkur
fyrsta áfanga Safnahúss á Egilsstöð-
um.
Þar fær minjasafnið loks fastan
samastað eftir þau rúm fimmtíu ár,
sem það hefur starfað. Safnið fær 560
fermetra til eigin nota, sem skiptast
til helminga í sýningarsal og
geymslu. Eftir áramót verður farið
að setja safnið upp til sýningar. All-
ir Austfirðingar vonast til að þar fái
haugbúinn úr Skriðdal fastan sama-
stað, enda eins og Guðrún sagði mun
húsið fullnægja öllum kröfum sem
til slíkra húsa eru gerðar.
Auk Minjasafnsins verða þarna til
húsa Bókasafn Héraðsbúa sem raun-
ar flutti inn i febr. sl. og er á efstu
hæðinni, og einnig Héraðsskjala-
safnið sem flutti inn fyrir áramót og
verður í kjaflara.
f öðrum áfanga byggingarinnar
Safnhúsið er sérstök bygging og vekur athygli vegfarenda.
DV-mynd Sigrún
fær Minjasafnið síðan 200 ferm til Skólavörðustíg 28 sem teiknaði
viðbótar. Það var Teiknistofan að Safnhúsið.
Ekki ástæða til
að bíða lengur
„Ég byrjaði aðeins að leika mér í
stúdíói í fyrra og í kjölfarið var
ákveðið að gefa efnið út á plötu,“ seg-
ir Jón Arngrímsson trúbador en
hann er að gefa út sína fyrstu plötu.
Á henni eru tólf lög og þar af tíu eft-
ir Jón. Flestir textarnir eru eftir Jón
en einn eftir Hákon Aðalsteinsson og
annar eftir Stefán Bragason. Jón gef-
ur plötuna sjálfur út og segir hann
að þar með hafi gamall draumur
ræst. Dreifing verður fyrir austan og
ætlar hann að mestu að sjá um það
sjálfur.
„Eitt laganna er hátíðarlag fyrir
Álfaborgarsénsinn á Borgafirði en
það eru mjög góðar skemmtanir sem
kosta gesti lítið," segir Jón.
Elsta lagið er aldafjórðungsgamalt
en Jón hefur verið að syngja og spila
síðustu 20 árin.
- Áttirðu draum um að verða
poppstjarna?
„Nei en hins vegar hef ég átt efnið
lengi og langað til að vinna það á
plötu. Núna eru aðstæður betri eftir
að stúdíó var opnað hér á Egilsstöð-
um og því var ekki ástæða til að bíða
lengur," segir Jón. -JJ