Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1995, Side 14
14
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995
íþróttir
Verður Guðni
„breskur?"
Enska knattspyrnufélagið Bol-
ton Wanderers hefur sótt ura að
Guöní Bergsson, landsliösfyrir-
liöi íslands, fái sömu réttindi og
innlendir leikmenn og teljist þvi
ekki til útlendinga hjá félaginu.
Sjö ár eru síðan Guöni hóf að
leika í ensku knattspyrnunni og
forráðamenn Bolton gera sér því
vonir mn að hann verði talinn
„breskur". Bolton er með of
marga útlendinga og einn þeirra
þarf að hvíla í hveijum leik.
Willummeð
Breiðabliki
Willum Þórsson er hættur við
að þjálfa og leika með 3. deildar
liði HK í knattspyrnu og mun
spila áfram með Breiöabliki
næsta sumar. „Það var of freist-
andi að leika eitt ár enn i 1. deild-
inni og HK-menn sýndu mér
skilning í þessu máli,“ sagði Will-
um við DV í gær.
Ragnar Bogi Petersen er tekinn
við liöi HK í bili. „Við erum að
svipast um eftir þjálfara í staðinn,
sem má alveg vera spilandi lika,“
sagði Sigvaldi Einarsson, formað-
ur knattspyrnudeildar HK.
Risabikarkeppnin
Risabikarkeppnin í handknatt-
leik hófst í Þýskalandi i fyrra-
kvöld. Þá unnu Þjóðverjar Rúm-
ena, 27-20, og Svíar unnu sigur á
Spánverjum, 23-21.
Margirbikarleikir
Sjö leikir af átta í 16 liða úrslit-
um bikarkeppninnar í körfu-
knattleik fera fram í kvöld. Hauk-
ar mæta Njarðvík, ÍA tekur á
móti ÍR, KR fær Keflavík í heim-
sókn, Valur leikur við Skallagrím
og Breiðablik við b-lið Njarðvík-
ur. Þessir leikir heijast klukkan
20 en klukkan 20.30 leika Þór A.
og Snæfell á Akureyri og Selfoss
og Leiknir R. á Selfossi.
Enn eitt morðið
í Kólumbíu
Knattspymúmaðurinn Albeiro
Pico Hernandez var myrtur fyrir
utan heimili sitt í bænum Medell-
in i Kólumbiu í gær.
Hemandez, sem leikið hefur
með liði Envigado síðan 1988, var
skotinn sjö skotum en morðingj-
amir komust undan. í Medellin
búa rúmlega fimm þúsund
manns og era að meöaltali 13
þeirra myrtir á ári hverju. Andr-
es Escobar, sem lék meö liði Kól-
umbíu á HM í fyrra, var myrtur
í Medellin í fyrra.
Þrótturvann HK
Þróttur úr Reykjavík vann HK,
3-1, í 1. deild karla í blaki í gær-
kvöldi. Hrinumar enduðu 15-8,
14-16,15-11 og 17-15.
Blikarúrleik
Breiðablik féll óvænt út úr bik-
arkeppni kvenna í körfuknattleik
í gærkvöldi þegar liðið tapaöi i
Njarðvík, 60-59, í hörkuspenn-
andi leik.
Óvænttap Hauka
KR varrn óvæntan sigur á
Haukum, 20-19, í 1. deild kvenna
i handknattleik í gærkvöldi. FH
tapaði fyrir Val, 15-20.
Mörk KR: Brynja 7, Helga 6,
Araa 3, Selma 2, Laufey 2.
Mörk Hauka: Auður 9, Hulda
7, Judith 1, Harpa 1, Heiðrún 1.
Mörk FH: Díana 4, Björk 4, Hild-
ur E. 3, Hildur P. 2, Bára 1, Lára 1.
Mörk Vals: Kristjana 6, Gerður
3, Björk 3, Sonja 3, Dagný 3, Sig-
riður 1, Eivor 1.
-HS
Handbolti:
KA slapp með
skrekkinn
gegn Gróttu
- lék illa en sigraði þó, 29-25
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
KA, eina liðið í 1. deildinni í hand-
boltanum sem er með fullt hús stiga,
sýndi engin glæsitilþrif þegar það
sigraði Gróttu, 29-25, á Akureyri í
gærkvöldi. Ótrúlegt slen var yfir
leikmönnum KA, áhorfendur með
alfæsta móti og stemningin yfir
leiknum ekkert lík því sem venjan
er fyrir norðan.
Hvort þreyta eftir Evrópuleikinn
um helgina olli þessu eða eitthvaö
annað er ekki gott að segja, en liðið
var ekki líkt því sem það getur sýnt,
hvort sem um er að ræða varnar- eða
sóknarleik. Gróttumenn komu hins
vegar ákveðnir til leiks að venju, þar
gera menn sér grein fyrir því að berj-
ast og bæta sér upp aðra hluti sem
vantar með baráttunni.
Alfreö virðist hafa náð að blása
aðeins lífi í mannskap sinn í leik-
hléinu, því strax eftir það náði KA
forskoti sem var mest 4 mörk. Grótta
minnkaði muninn að vísu oftsinnis
í 1 mark en Patrekur tók þá til sinna
ráða og skoraði nokkur góð mörk,
og hann og Jóhann Jóhannsson voru
bestu menn liðsins.
Rússinn Juri Sedovski og Róbert
Rafnsson eru einu „alvöru" sóknar-
menn Gróttu. í vörninni taka hins
vegar allir á af krafti og á bak við
vörnina stóð Sigtryggur Albertsson
sem var besti maður liðsins.
„Við vorum heppnir“
- Valur sigraöi Selfoss, 27-28
Guöm. Karl Sigurdórsson, DV, Selfossi:
„Ég er ánægður meö sigurinn en
ekki leik okkar. Þetta var mjög
knappt og við vorum heppnir. Þetta
gat farið á hvorn veginn sem var,“
sagði Jón Kristjánsson, þjálfari og
leikmaður Vals, eftir nauman sigur
Valsmanna á Selfossi í gærkvöldi í
1. deildinni í handknattleik. Lokatöl-
ur 27-28.
„Vörnin var mjög léleg hjá okkur
í fyrri hálfleik en við löguðum hana
í þeim síðari. Við verðum að laga
vörnina fyrir næsta leik, öðruvísi
vinnum við ekki KA-menn,“ sagði
Jón enn fremur.
Það var mikil spenna á lokamínút-
unum. Selfyssingar gátu þá jafnað
leikinn og með knöttinn þegar 30
sekúndur voru til leiksloka. Þá
misstu heimamenn hins vegar knött-
inn klaufalega í hraðaupphlaupi í
stað þess aö nýtá tímann sem eftir
var.
Allt lið Selfyssinga lék vel. Einar
Gunnar Sigurðsson skoraði hvar
sem var á vellinum, Finnur Jóhanns-
son stóð sig vel í vörninni og Björg-
vin Rúnarsson og Sigurjón Bjarna-
son sýndu góða takta. Besti maður
vallarins var hins vegar Hallgrímur
Jónasson, markvörður Selfoss, en
hann varði oft frábærlega á mikil-
vægum augnablikum. Bestur i ann-
ars jöfnu Valsliði var Ólafur Stefáns-
son.
Porca til Vals
Heimir Porca hefur ákveðið að
leika með 1. deildar liði Vals í knatt-
spyrnu næsta sumar en hann hefur
spilað með KR undanfarin tvö ár.
Porca er þrítugur miðjumaöur og
kom frá Bosníu árið 1990. Hann spil-
aði tvö fyrstu árin með Selfyssingum,
þá með Val og Fylki, áður en hann
gekk til liðs við KR. Porca varð ís-
lenskur ríkisborgari fyrir tveimur
árum.
Ekki er að efa að Porca styrkir lið
Valsmanna en hann fyllir skarö Dav-
íðs Garðarssonar, sem gekk til liðs
við Þór á Akureyri á dögunum.
-VS
KR - Haukar
(10-16) 23-36
0-2, 4-4, 6-6, 7-12, 8-15 (10-16),
11-19, 14-23, 17-29, 20-30, 22-32,
23-36
Mörk KR: Sigurpáll Aðalsteins-
son 11/3, Hilmar Þórlindsson 4,
Einar Árnason 2, Gylfi Gylfason
2, Björgvin Barðdal 2, Ingvar Vals-
son 1, Willum Þórsson 1
Varin skot: Sigurjón Þráinsson 5,
Hrafn Margeirsson 9/1
Mörk Hauka: Aron Kristjánsson 6,
Halldór Ingólfsson 5, Gústaf Bjamason
5/5, Petr Baumruk 4, Þorkell Magnússon
3, Viktor S. Pálsson 3, Ægir Sigurgeirs-
son 2, Hinrik Öm Bjamason 2, Björgvin
Þór Þorgeirsson 2, Gunnar Gunnarsson
2, Jón Freyr Egilsson 1, Jón Karl Bjöms-
son 1.
Varin skot: Bjami Frostason 10.
Brottvísanir: KR: 12 mín., Hauk-
ar 4 mín.
Dómarar: Gísli H. Jóhannsson
og Hafsteínn Ingibergsson. Góðir.
Áhorfendur: 109.
Maður leiksins: Halldór Ingólfs-
son, Haukum.
Kötturinn
og músin
Pjetur Sigurðssan sknfar:
„Ég er mjög ánægður meö leik-
inn. Fyrir fram gat þetta verið erf-
iður leikur, enda KR-ingar nýbúnir
að taka stig af Aftureldingu. Við
komum vel stemmdir og klámðum
þetta. Það kom mér á óvart hvað
þeir gáfust fljótt upp, en við hætt-
um aldrei og kláruðum dæmið,“
sagði Gunnar Gunnarsson, þjálfari
Hauka, eftir stórsigur á afspyrnu-
slökum KR-ingum, 23-36.
Leikurinn var ekki mikið fyrir
augað og var lengst af leikur katt-
arins að músinni. Halldór Ingólfs-
son var bestur Hauka, lék vel í
vörn og sókn, en allir útileikmenn
Hauka skoruðu í leiknum. KR-
ingar voru slakir, en Sigurpáll Að-
alsteinsson var langbestur þeirra.
Hans Guðmundsson varð að láta í minni pokann fyrir Alexei Trúfan og FH-ingar þi
i gærkvöldi. Á litlu myndinni er Héðinn Gilsson sem var i leikmannahópi FH í fyrsta
DV-myndir Brynjar Gauti
Engin þreyti
- Afturelding skellti FH-ingum í K;
Guðmundur Hfimarsson skrifar:
„Þetta var geysilega mikilvægur sigur
og þaö er greinilegt að mínir menn eru
að koma upp. Strákarnir eru í góðu
fcrmi og þó svo að við höfum verið að
missa Ingimund út vegna meiðsla kom
bara maður í manns stað. Það var góð
stemning í hópnum eftir Evrópusigrana
og hún skilaði sér í þessum leik,“ sagði
Einar Þorvarðarson, þjálfari Aftureld-
ingar, við DV eftir sigur sinna manna á
FH í Kaplakrika, 24-28, en þetta var
þriðja tap FH-inga á heimavelli í vetur.
Mikill hraði einkenndi leik liðanna og
mörg mistökin litu dagsins ljós. FH-
ingar áttu í miklum vandræðum me
vörn sína lengi vel og hvað eftir anna
gátu Mosfellingar komist nær óhindra:
í gegnum hana. Menn voru farnir að bú;
sig undir spennandi lokamínútur, ein
og leikurinn hafði þróast, en Mosfelling
ar höfðu meiri sigurvilja og uppskári
sanngjarnan sigur.
Talsvert slen var ríkjandi í herbúðun
FH-liðsins, vörnin mjög slök og mikii
um mistök í sókninni. Guðjón Arnasoi
var besti maður FH-inga og þeir Sigurjói
Sigurðsson og Sigurður Sveinsson átti
ágæta kafla. Héðinn Gilsson sat á bekkn
um allan tímann og er ljóst aö FH-inga;
þurfa að fá hann í gagnið sem fyrst ætl
ÍR- Víkingur
(7-12) 20-24
2-2, 4-3, 4-8, 6-9, (7-12), 9-13,
10-16, 12-18, 15-19, 15-22, 19-23,
20-24.
Mörk ÍR: Einar Einarsson 7/3,
Magnus Þórðarson 4, Guðfinnur ;
Kristmannsson 3, Daði Hafþórsson
3/1, Frosti Guðlaugsson 2, Njöröur
Arnason 1.
Varin skot: Magnús Sigmundsson
10/1.
Mörk Víkings: Guðmundur
Pálsson 7, Árni Friðleifsson 5,
Birgir Sigurðsson 5, Þröstur
Helgason _3, Halldór Magnússon 2,
Kristján Ágústsson 1, Knútur Sig-
urðsson 1.
Varin skot: Reynir Reynisson 23/2.
Brottvísanir: ÍR 4 mín., Víking-
ur 16 min.
Dómarar: Rögnavaldur Erlings-
son og Stefán Arnaldsson, þokka-
legir.
Áhorfendur: Um 250.
Maður leikslns: Reynir Reynis-
son, Vikingi.
Vörnog
markvarsla
RÓbert RÓberisscm skriíar:
„Þetta var einn af þeim leikjum
sem við ætluðum að vinna og það
tókst. Það var góð vöm og frábær
markvarsla sem lagöi grunninn að
þessum sigri," sagði Ámi Friðleifs-
son, leikmaður yíkinga, sem unnu
góðan sigur á ÍR-ingum, 20-24, í
Seljaskóla í gærkvöidi.
Leikurinn byrjaöi ekki gæfulega
fyrir Víkinga því Knútur Sigurðs-
son fékk rautt spjald eftir aðeins 7
mínútur íyrir aö vera ekki á leik-
skýrslu. En Víkingar tvíefldust við
þetta og léku sinn besta leik í lang-
an tíma. Reynir Reynisson varði
frábærlega í markinu, alls 23 skot,
og var besti maður liðsins. Einar
Einarsson var skástur í mjög slöku
liði ÍR.
i'
E
V
V
V
si
1.
F
IV
IV
2,
si
V
a
l£
ir
Sl