Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1995, Side 22
34
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995
Afmæli
Sturla Böðvarsson
Sturla Böðvarsson alþingismað-
ur, Ásklifi 20, Stykkishólmi, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Sturla fæddist í Ólafsvík og ólst
þar upp. Hann lauk sveinsprófi i
húsasmíði við Iðnskólann í
Reykjavík 1966, raungreinaprófum
frá Tækniskóla íslands 1970 og
BSc-prófi í byggingatæknifræði
þaðan 1973.
Með námi starfaði Sturla við
húsbyggingar hjá foður sínum í
Ólafsvík, vann á verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen 1971-74, var
sveitarstjóri og síðar bæjarstjóri í
Stykkishólmi 1974-91 og hefur
verið þingmaður Vesturlands frá
1991.
Sturla sat í stjóm LÍN 1970-72,
kjaradeildar Tæknifræðingafélags-
ins 1973-74, sjúkrahúss St. Frans-
iskureglunnar og heilsugæslu-
stöðvar í Stykkishólmi frá 1975,
formaður byggingamefndar elli-
heimilis og gunnskóla- og íþrótta-
húss í Stykkishólmi 1975-91, í
fulltrúaráði Sambands íslenskra
sveitarfélaga 1978-90, í stjóm Hót-
el Stykkishólms 1980-95, formaður
fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins á
Snæfellsnesi 1981-83, í byggingar-
nefhd sjúkrahúss St.
Fransiskusarreglunnar frá 1981,
formaður stjómar landshafnar á
Rifi 1984-90, í hafnarráði rikisins
frá 1986, í stjóm flóabátsins Bald-
urs hf. 1987-90, í húsfriðunar-
nefnd ríkisins frá 1987, formaður
stjómar Hafnarsambands sveitar-
félaga 1988-94, formaður héraðs-
nefndar Snæfellinga 1989-91, i
bæjarstjóm Stykkishólms 1990-94,
í stjóm íslenska jámblendifélags-
ins frá 1992, formaður þjóðminja-
ráðs frá 1994, formaður nefhdar
um stofnun þjóðgarðs undir Jökli
og i stjóm Landsvirkjunar frá
1995.
Fjölskylda
Sturla kvæntist 19.11. 1967 Hall-
gerði Gunnarsdóttur, f. 13.12.1948,
húsmóður og nema við HÍ. Hún
er dóttir Gunnars Guðbjartssonar,
b. á Hjarðarfelli og formanns
Stéttarsambands bænda, og Ást-
hildar Teitsdóttur húsfreyju.
Böm Sturlu og Hallgerðar em
Gunnar, f. 17.7.1967, lögfræðingur
í Reykjavík; Elinborg, f. 21.12.
1968, BA í heimspeki og guðfræði-
nemi við HÍ; Ásthildur, f. 10.6.
1974, nemi í lyfjafræði, búsett í
Stykkishólmi; Böðvar, f. 12.6.1983,
nemi; Sigríður Erla, f. 8.7.1992.
Systkini Sturlu eru Auður, f.
16.3.1941, kennari í Ólafsvík;
Snorri, f. 17.6.1947, rafveitustjóri
í Ólafsvík.
Foreldrar Sturlu: Böðvar
Bjamason, f. 30.3.1911, d. 15.5.
1986, byggingameistari og bygg-
ingafulltrúi í Ólafsvík, og k.h., El-
ínborg Ágútsdóttir, f. 17.9. 1922,
húsmóðir og starfsmaður við
barnaheimili.
Ætt
Böövar var bróðir Gunnars,
hreppsfjóra í Böðvarsholti, og
Þráins, oddvita i Hlíðarholti.
Böðvar var sonur Bjama, í Böðv-
arsholti, bróður Þórðar, föður
Þóris guðfræðiprófessors, og bróð-
ir Víglundar, afa Guðmundar
Ólafssonar, leikara og rithöfund-
ar. Bjarni var sonur Nikulásar, b.
í Lukku, Árnasonar, í Staðarsveit,
Jónssonar, bróður Jóns á Kálfár-
völlum, afa Jóhanns Sæmunds-
sonar, tryggingayfirlæknis og ráð-
herra, og langafa Guðmundar Ing-
ólfssonar píanóleikara og Hjalta
Guðmundssonar dómkirkjuprests.
Móðir Bjama var Ólöf Bjarnadótt-
ir, systir Vigdísar, móður Holgers
Cahills, listfrömuðar í New York.
Móðir Böðvars var Bjamveig,
systir Guðbrands, oddvita í Ólafs-
vík, Vigfúsar, föður Óskars, fyrrv.
formanns Sjómannasambandsins.
Systir Bjamveigar var Pálína,
móðir Lofts Þorsteinssonar verk-
fræðiprófessors. Bjamveig var
dóttir Vigfúsar, b. á Kálfárvöflum,
Vigfússonar, bróður Guðbjargar,
langömmu Hallgerðar, konu af-
mælisbarnsins. Móðir Bjamveig-
ar var Sólveig Bjamadóttur fráL
Neðri-Lá, systur Brands, langafa
Gunnars Hanssonar forstjóra.
Elínborg er dóttir Ágústs, b. í
Máfahlíð, hálfbróður Sigurðar
hrl., föður Jóns, lektors á Bifröst,
Sturla Böðvarsson
og Þórunnar leikstjóra. Ágúst var
sonur Óla, oddvita í Stakkhamri,
Jónssonar, b. í Borgarholti, bróð-
ur Kristínar, langömmu Ólafs
Thors forsætisráðherra. Móðir
Ágústs var Lilja Benónýsdóttir.
Móðir Elinborgar var Þuríður,
systir Þorleifs, afa Elsu Kristjáns-
dóttur, fyrrv. oddvita í Sandgerði.
Þuríðiu' var dóttir Þorsteins, b. í
Hólmkoti, Þorleifssonar og Her-
dísar Bjarnadóttur.
Sturla verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Bjöm Ólafur Hallgrímsson
Bjöm Ólafur Hallgrímsson
hæstaréttarlögmaður, Sigluvogi
13, Reykjavik, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Bjöm fæddist í Keflavík og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi
frá MR 1967, embættisprófi í lög-
fræði frá HÍ 1974 og stundaði
framhaldsnám við Óslóarháskóla
1974-75. Hann öðlaðist hdl-réttindi
1978 og hi'l-réttindi 1988.
Bjöm var fúlltrúi bæjarfógetans
í Keflavík og sýslumanns Gull-
bringusýslu 1975, fulltrúi Baldvins
Jónssonar hrl. 1975-79, starfrækti
eigin lögfræðiskrifstofu 1979-95 og
rekur nú lögfræðifyrirtækið Lög-
skil hf„ ásamt Hilmari Magnús-
syni hdl.
Bjöm sat í stjóm Vöruhapp-
drættis SÍBS 1979-94 og var for-
maður 1989-94, í stjóm SÍBS frá
1978, í stjóm Reykjalundar,
vinnuheimilis SÍBS að Reykja-
lundi frá 1978 og stjómarformað-
ur Reykjalundar frá 1991.
Fjölskylda
Bjöm kvæntist 6.6.1970 Helgu
M. Bjamadóthn, f. 30.8.1945,
bankastarfsmanni. Hún er dóttir
Bjama Þorlákssonar, b. og kenn-
ara í Múlakoti á Síðu, sem nú er
látiim, og Sigurveigar Kristófers-
dóttur húsmóður.
Böm Bjöms og Helgu era Ragn-
heiður Lóa, f. 15.1. 1974, nemi í
landafræði við HÍ; Sólveig Hildur,
f. 29.1.1976, nemi við MS; Hafl-
grímur Thorberg, f. 9.1.1981.
Bróðir Bjöms er Heiðar Þór
Hallgrímsson, f. 27.9.1929, yfir-
verkfræðingur Þróunardeildar
Reykjavíkmrborgar, búsettur í
Reykjavík.
Foreldrar Bjöms: Hallgrímur
Th. Bjömsson, f. 16.9. 1908, d. 5.5.
1979, yfirkennari og ritstjóri, og
Lóa Þorkelsdóttir, f. 16.6. 1917,
fyrrv. verslunarstjóri.
Ætt
Hallgrímur var sonur Bjöms
Jósafats, b. á Gauksmýri í Vestur-
Húnavatnssýslu, bróður Kristínar
Margrétar, móðrn* Hákonar Krist-
Til hamingju með af-
Meiming
jónssonar lögfræðings, föður
Huldu Margrétar myndlistarkonu.
Bjöm var sonur Jósafats, hús-
manns í Enniskoti Jónssonar.
Móðir Hallgríms var Ólöf Sigurð-
ardóttir, b. og skálds í Efri- Þverá,
Halldórssonar sem ættaður var af
Kjalamesi, bróður Þorkels, föður
Sigurbjöms í Vísi, afa Sigur-
bjöms Magnússonar lögfræðings
og Þorvalds Friðrikssonar frétta-
manns.
Lóa er dóttir Þorkels, b. á Álftá
á Mýrum, Guðmundssonar, og
Ragnheiðar Þorsteinsdóttur.
Bjöm er að heiman á afmælis-
daginn.
mælið 23. nóvember
Sælla er að gefa en þiggja
95 ára
Kristjana Gísla-
dóttir,
Hrafnistu viö
Kleppsveg,
Reykjavík.
90 ára
Sveinn Sigurðsson,
Brekastíg 31, Vestmannaeyjum.
80 ára
Jón Valdemarsson,
Hrafnistu við Kleppsveg, Reykjavík.
Guðrún J. Hjartar,
Flyðragranda 8, Reykjavík.
70 ára
Sigríður Runólfsdóttir,
Sunnubraut 48, Kópavogi.
Guðrún Jónsdóttir,
Hítardal, Borgarbyggð.
Sigurbjöm Þorsteinsson,
Hellulandi, Skeggjastaðahreppi.
60 ára
Sigurður Júlíusson,
Álfaskeiði 72, Hafnarfirði.
Elsa Samúelsdóttir,
Brekkubyggð 79, Garðabæ.
Annelene Gunnarsson,
Brautarlandi 13, Reykjavík.
Bryndís Gunnarsdóttir,
Hafnarbraut 19, Höfn í Homafirði.
50 ára
Anna Lóa Mar-
inósdóttir,
Holtsbúð 22,
Garðabæ,
verður fimmtug
á morgun.
Hún og eigin-
maður hennar,
Pálmi Sigurðs-
son, taka á móti
gestum I veit-
ingasal Stjömuheimilisins, eftir kl.
20.00 á morgun, föstudaginn 24.11.
Jakob Yngvason,
Sóleyjargötu 9, Reykjavík.
Guðborg Jónsdóttir,
Skriðuklaustri, Fljótsdalshreppi.
40 ára
Amar Þór Stefánsson,
Engjavegi 27, ísafirði.
Ágúst Guðmundsson,
Fellstúni 5, Sauðárkróki.
Elínborg Sigvaldadóttir,
Baughóli 58, Húsasvík.
Einar Hermundsson,
Egilsstaðakoti, Villingaholts-
hreppi.
María Vigdís Ólafsdóttir,
Garðarsvegi 11, Seyðisfirði.
Halldór L. Jóhannesson,
Efstasimdi 89, Reykjavík.
Hver hefúr ekki einhvem tíma
látið sig dreyma um að eiga nóg af
peningum og geta gefið öllum sem
líða skort í kringum sig? Þeir óska-
draumar rætast í nýju bókinni
hennar Guðrúnar Helgadóttur.
Ekkert að þakka
Eva og Ari Sveinn em svo hepp-
in að finna tösku sem er sneisafúll
af peningum. Þegar þau era búin
að reyna árangurslaust að skila
henni til lögreglunnar fara þau að
nota peníngana sjálf. En ekki
handa sjálfúm sér heldur hlera þau
og skima eftir þeim sem eiga bágt,
koma peningum til þeirra á ýmsan
hátt og strá um sig gleði og ham-
ingju af hjartans lyst án þess að
nokkur viti hvaðan peningamir
koma. Þetta verður þó smám sam-
an þungbært leyndarmál, einkum
fyrir Evu, ekki síst vegna þess að
hún uppgötvar mitt í ævintýrinu
hvað fidlorðið fólk er furðulega
óhreinskiptið.
Það er Eva sem segir söguna
tveim áram eftir að þessir atburðir
gerðust og höfúndi tekst afar vel að
halda sannfærandi stíl níu ára
stelpu á frásögninni. Eva er ein
þessara yndislegu persóna Guðrún-
ar, minnir til dæmis á Tótu í afa-
húsi, skynug, orðhvöt og hugrökk
stúlka en viðkvæm inni við beinið.
Hún á bara mömmu, pabbi er dá-
inn, og helsti vandinn á heimilinu
er Oddbjöm sem er hrifinn af
mömmu og vill endilega setjast að
hjá þeim. Evu er meinifla við Odd-
bjöm sem er með sítt hár og göt á
Guðrún Helgadóttir.
buxunum og er að læra bókmennt-
ir í háskólanum. En þegar Eva hitt-
ir manneskju sem er enn þá for-
dómafyllri en hún áttar hún sig á
hvað hún hefur verið ósanngjöm.
Bókmenntir
Silja Aðalsteinsdóttir
Ari Sveinn er minni bógur en
Eva og verður ekki eins sterk
persóna. Helstu vandræðin heima
hjá honum er áhugi fóður hans á
að komast í framboð. Hann gengur
með þingmann í maganum en er
svo fjarskalega seinheppinn að það
lítur ekki vel út.
Kringum krakkana er fjöldi per-
sóna sem flestar verða lítið annað
en nafnið og smellnar, hispurslaus-
ar einkunnir Evu: „... mér hefúr
aldrei þótt Guðfinna amma
skemmtileg. Hexmi dettur aldrei
neitt í hug og segir aldrei neitt.
Augun i henni era eins og í dánu
fólki.“ (42) Einna skýrast persóna
fyrir utan Oddbjöm er dagmam-
man þeirra, Lára amma eins og
þau kafla hana þó að ekki sé hún
skyld þeim. Saga hennar er lær-
dómsrík og manneskjan heillandi.
Og eins og ævinlega bregður Guð-
rún víða upp í örstuttu máli skýr-
um svipmyndum úr nútímasamfé-
lagi, eins og þegar hún segir frá afa
og ömmu Ara Sveins sem eru skil-
in og verða að vera hvort í sínu
herbergi í fjölskylduboðum til að
þau fari ekki í hár saman.
Sagan er dillandi skemmtileg og
virðist einfóld lengst af, en þegar
nánar er að gáð tekur hún á flókn-
um vanda í samskiptum fólks, býð-
ur upp á umræður um djúp sið-
ferðileg efni og boðar umburðar-
lyndi á vitrænan hátt. Þetta er
bæði ögrandi og umhugsunarverð
saga.
Ekkert að þakka!
eftir Guðrúnu Helgadóttur.
Kristín Ragna Gunnarsdóttir
myndskreytti.
Vaka-Helgafeli 1995.