Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1995, Síða 24
36
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995
Kjúklingum fækkar í landinu í
verðstríði.
Öll þjóðin borð-
ar kjúkling
„Það er búið að vera alveg
brjálað að gera ... ég sé ekki bet-
ur en að það sé kjúklingur á
borðum allrar þjóðarinnar."
Dansa þær allar þreytta
„Kerling móðir mín fór á ball
níræð og dansaði eins og hinar
stelpumar ... Og ekki vil ég ætt-
leri kallast svo það er best að ég
skelli mér á ball á afmælinu og
dansi þær allar þreyttar.“
Þórður Halldórsson á Dagverðará
ÍTímanum.
Ummæli
Bjartsýnisverðlaun
„Það er tilefni til úthlutunar
bjartsýnisverðlauna ef menn
halda að hægt sé að sækja ein-
hvem spamað í rekstrinum í
laun og kjör bæjarstarfsmanna."
Árnl Guðmundsson, Starfsmannafé-
lagl Hafnarfjarðarbæjar, í Alþýðublað-
Inu.
Sveitarstjórnarhneykslin
„Helst vildi ég sem minnst um
sveitarstjómarhneykslin ræða.“
Páll Pétursson í Tímanum.
Drottning fólksins
„Ég vona að ég geti verið
drottning i huga fólksins en ég sé
ekki fyrir mér að ég verði drottn-
ing þessa lands.“
Di'ana prinsessa í sjónvarpsvlðtali.
Keri-Lynn Wilson stjórnar Sin-
fóníuhljómsveitinni í kvöld.
Keisarakonsert
Beethovens
Sinfóniuhljómsveit íslands
heldur tónleika í Háskólabíói í
kvöld. Em tónleikarnir í rauðri
áskriftarröð og eru þijú verk á
verkefnaskránni, Le tombeau de
Couperin, Pianókonsert nr. 5,
Keisarakonsertinn eftir Beet-
hoven og Sinfónía nr. 96 eftir
Joseph Hayden. Einleikari í
kvöld, sem er Frederick Moyer,
er bandarískur og hefur allt frá
því hann þreytti framraun sína í
Camegie Hall í New York árið
1982 leikið með helstu hljóm-
sveitum heims og komiö fram á
ýmsum listahátíðum.
Stjómandi í kvöld er Keri-
Lynn Wilson sem er kanadísk og
Tónleikar
af íslensku bergi brotin. Hún
þreytti frumraun sína sem
hljómsveitarstjóri með Þjóðar-
hljómsveit Kanada árið 1990. Síð-
ar fór Keri-Lynn í hinn þekkta
Julliard tónlistarskóla og lauk
þaðan prófi með meistargráðu
1994. Þar vann hún til fjölda
verðlauna fyrir frammistöðu
sína. Nú er Keri-Lynn Wilson að-
stoðarhljómsveitarstjóri hjá
Dallas sinfóniuhljómsveitinni í
Texas í Bandaríkjunum.
Snjókoma fyrir norðan
Allhvöss norðanáttin fer minnk-
andi um landið vestanvert. í kvöld
og nótt verður norðankaldi eða
stinningskaldi vestan til á landinu
en allhvasst eða hvasst austan til. í
fyrstu verður snjókoma norðan til á
landinu en skýjað að mestu sunnan
Veðrið 1 dag
til. Hiti verður nálægt frostmarki
suðaustan til en annars verður frost
á bilinu 0 til 5 stig. Þegar líða tekur
á daginn verða él norðvestan til,
áframhaldandi snjókoma um landið
norðaustanvert en skýjað með köfl-
um sunnan til og hægt kólnandi
veður. Á höfuðborgarsvæðinu fer að
draga úr vindi og létta til. Norðaust-
an gola eða kaldi og léttskýjað í
kvöld og nótt. Frost 2 til 5 stig. Sól-
arlag í Reykjavík: 16.07.
Sólarupprás á morgun: 10.20.
Síðdegisflóð í Reykjavik: 18.47.
Árdegisflóð á morgun: 7.11.
Stórstreymi.
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri snjókoma -2
Akurnes alskýjaö 2
Bergsstaöir snjókoma -3
Bolungarvík alskýjaö -4
Egilsstaóir snjókoma -1
Keflavíkurflugvöllur snjóél -2
Kirkjubœjarklaustur slkýjaö 2
Raufarhöfn snjókoma -2
Reykjavík úrkoma -1
Stórhöföi skýjað -1
Bergen rigning 6
Helsinki alskýjaö 2
Kaupmannahöfn súld 5
Stokkhólmur rigning 2
Þórshöfn léttskýjaö 4
Amsterdam þoka 7
Barcelona léttskýjaö 12
Chicago alskýjað -2
Feneyjar þokumóöa -2
Frankfurt þokumóöa 2
Glasgow rign/súld 11
Hamborg þoka 6
London skýjaö 6
Los Angeles þokumóöa 16
Lúxemborg þoka 6
Madríd heiöskírt 10
Mallorca leiftur 10
New York heiðskírt 2
Nice alskýjaö 9
Nuuk heiöskirt
Orlando heiöskirt 7
París alskýjaö 9
Róm þokumóöa 0
Valencia skýjaö 14
Vín þokumóöa -7
Saga Jónsdóttir leikkona:
Óskaplega gaman þegar vel tekst til
Leikfélag Reykjavíkur hefur
bryddað upp á ýmsum nýjungum í
vetur og meðal annars hefur verið
í gangi tónleikaröð á þriðjudags-
kvöldum á vegum Leikfélagsins
sem hefur heppnast vel. Nú er að
fara í gang á laugardögum hádegis-
leikhús. Sú sem hefur ásamt öðr-
um með skipulagningu þess að
gera og kom með hugmyndina er
Saga Jónsdóttir sem auk þess að
leika hefur starfað sem markaðs-
og sölustjóri fyrir leikfélagið frá
því það flutti í Borgarleikhúsið
árið 1989 en er nú aö fara í annað
Maður dagsins
starf sem tengist skipulagsmálum.
Var hún fyrst spurð um hádegis-
leikhúsið.
„Það hagaði þannig til að í vor
lagði ég fyrir leikhússtjórann, Sig-
urð Hróarsson, tvær hugmyndir
sem hann tók mjög vel í og hvatti
mig að halda áfram að þróa. Það
var annars vegar uppsetningin á
BarPari á bamum í Borgarleikhús-
inu og síðan Hádegisleikhúsið sem
mun byrja laugardaginn 2. desem-
ber. Fyst munum við byrja á að
Saga Jónsdóttir.
vera með kynningu á Einari Kára-
syni og leikriti hans, íslensku
mafiunni, sem frumsýnt verður á
milli jóla og nýárs. Hádegisleik-
húsið verður síðan alla laugardaga
og i desember er boðiö upp á fjöl-
breytta dagskrá þar sem blandað
verður tónlist og kynningu á leik-
verkum, sem er verið að sýna í
leikhúsinu, og leikritum sem era í
æfingu. Þess má síðan geta að frítt
verður í hádegisleikhúsið.“
Eins og flestum er ljóst er veriö
að sýna BarPar á barnum í Borgar-
leikhúsinu og þar er Saga Jóns-
dóttir annar tveggja leikara sem
era í mörgum hlutverkum: „Við
fórum af stað með BarPar fyrir
nokkru og það hefur verið uppselt
á allar sýningar og er sérlega gam-
an hve vel hefúr tekist með upp-
setninguna. Ég hef vegna starfsins
í Borgarleikhúsinu ekki leikið
mikið á imdanförnum árum en þó
alltaf eitthvað en það er óskaplega
skemmtilegt aö leika í BarPar og
ánægjan er tvöföld þegar svona vel
tekst til. Það er mikiö átak að leika
í þessu verki, skiptingar margar og
snöggar en viðtökur áhorfenda
hafa veriö frábærar."
Saga var um margra ára skeið
fastráðin hjá Leikfélagi Akureyar-
ar og hefur einnig leikið í Þjóöleik-
húsinu. Hún sagði þegar hún
spurð aö leikhúsið tæki nánast
mestan hennar tima: „Ég hef þó í
gegnum árin verið smávegis aö
skemmta opinberlega og unnið í
talsetningum en segja má að leik-
húsið hefur átt minn hug allan."
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1375:
av,os
'eTpo'r-
©/375
Syngur í tálknum
I>V
Körfubolta-
kvöld
í kvöld fara fram sextán liða
úrslit í bikarkeppni KKÍ. Á
Akranesi taka heimamenn í ÍA á
móti ÍR, Grindvíkingar leika á
heimavelli gegn Tindastóli. KR-
ingar fá Keflvíkinga í heimsókn,
Haukar leika í Hafnarfirði gegn
Njarðvíkingum, á Hlíöarenda
leika Valur og Skallagrímur, á
Akureyri Þór og Snæfell, á Sel-
íþróttir
fossi taka heimamenn á móti
Leikni og í Kópavogi leika
Breiðablik og Njarðvík b. Allir
leikirnar hefjast kl. 20.00 nema
Selfoss-Leiknir og Breiða-
blik-Njarðvík b, þessir leikir
hefjast kl. 20.30.
Skák
Frá Skákþingi íslands, sem fram
fer í húsnæði Þýsk-íslenska í Lyng-
hálsi 10. Staðan er úr 6. umferð úr
skák Rúnars Sigurpálssonar, sem
hafði svart og átti leik, og Benedikts
Jónassonar. Svartur kemur auga á
leikfléttu sem virðist þó ekki stand-
ast, en ekki er allt sem sýnist.
I I#
ill iii É.
k «3 A
| | ^
ABCDEFGH
15. - Rxd4! 16. cxd4 Bxd4+ 17. Be3
Bxal 18. Hxal f4!Kjami fléttunnar,
því að ef 19. Bxf4, þá 19. - Dd4+ og
vinnur hrókinn. Eftir 19. Re4 fxe3
vann svartur létt, með hrók og peð
gegn riddara.
Jón L. Árnason
Bridge
Vamarspilarar hafa margar leiðir
til að gefa skilaboð sín á milli. Þegar
vörnin er að brjóta niöur varnir sagn-
hafa i lit og ekki er lengur samgangur
á milli vamarhandanna í litnum sjálf-
um er oft notaður Lavinthal til þess að
leiðbeina um innkomur. En þó skyldu
varnarspilarar aldrei nota þær aðferð-
ir í blindni, ef þær gera ekkert annað
en að hjálpa sagnhafa við úrspilið. Hér
er eitt lærdómsríkt dæmi frá Politi-
ken-stórmótinu í Danmörku fyrr í
þessum mánuði. Sagnir gengu þannig,
suður gjafari:
4 D103
V ÁDG102
4 Á42
* 62
* 754
* K64
* DG1098
* K5
* KG9
* 73
* 653
* ÁDG103
Suður Vestiur Norður Austur Nico-
lai. Cohen Blakset Munksgárd 1G pass
2 pass 2 pass 3G p/h
Jan Nicolaisen fékk lánaðan einn
púnkt og opnaði á einu grandi, sem lof-
aði 12-14 punktmn. Allan Cohen, sem
sat í vestur, spilaði út tíguldrottningu
í upphafi og austur setti kónginn i til
þess að stífla ekki litinn. Nicolaisen
gaf fyrsta slag, næsta slag átti vestur á
tíguláttuna og ef Cohen hefði fylgt
Lavinthal-reglunni hefði hann spilað
næst tígulníunni til þess að benda á
innkomu i laufí. En Cohen sá að þau
skilaboð myndu ekki gera neitt annað
en að hjálpa sagnhafa og spilaði þess
vegna tígulgosanum, sem alla jafna
bendir á spaöalitinn sem innkomu.
Eins og lesendur geta séð, stendur
sagnhafi spilið með tvísvíningu í
hjarta og sækir sér 2 slagi á spaða. En
Nicolaisen treysti Lavinthal-kalli vest-
urs, svínaði hjarta og strax laufl þar á
eftir. Vel heppnuð blekking!.
ísak Örn Sigurðsson