Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1995, Page 28
FRÉTTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í
síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er
notað i DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
550 5000
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995
íslandsbanki:
Grunar fyrir-
tækið um
skjalafals
Sigurveig Jónsdóttir, blaðafull-
trúi íslandsbanka, sagði í samtali
við DV í morgun að ein ástæða þess
að bankinn sækir nú 14 milljóna
króna víxlamál á hendur fjórum
ábyrgðarmönnum fyrir dómi sé að
grunsemdir séu um að fyrirtækið
sem þeir gengust í ábyrgðir fyrir
hafi haft fé af bankanum með
skjalafalsi. Þar sé um að ræða fram-
vísun útflutningsreikninga vegna
fisks sem aldrei hafi verið fluttur úr
landi.
„Athuganir bankans nú í haust
hafa stutt þær grunsemdir. Þetta er
eitt af því sem gerir bankanum
ómögulegt að fella niður víxilskuld-
ina,“ sagði Sigurveig.
Eins og fram kom í DV í gær fyllti
bankinn út óútfyllta víxla sem fjór-
menningarnir gengust í ábyrgðir
fyrir árið 1991 - einn þeirra var í
stjórn fyrirtækisins sem fékk fyrir-
greiðsluna. Ábyrgðararmennirnir
segjast aðeins hafa talið sig bera
ábyrgð á samtals um 2 milljónum i
eitt ár en þeir hafi síðan fengið til-
kynningu frá bankanum upp á inn-
heimtu samtals um 14 milljóna með
8 daga innheimtufyrirvara þremur
'árum eftir að þeir skrifuðu undir.
Þá var bankinn kærður fyrir um-
boðssvik.
Sigurveig sagði að áður en kæran
var lögð fram hefði bankinn boðið
mönnunum að taka til svokallaðra
varna og koma sínum sjónarmiðum
að í víxlamáli fyrir dómi - en gegn
því að ekki yrði kært. Kærendur
völdu hins vegar hinn kostinn og
létu reyna á málið hjá RLR og ríkis-
saksóknara sem ákvað í september
að fella málið niður. Þar með hafi
forsendurnar um varnir verið
brostnar.
íslandsbanki hefur allan tímann
boðið fjórmenningunum samninga
að sögn Sigurveigar. „Þar sem menn
,hafa ekki haft vilja til er engin önn-
ur leið en að fara i dómsmál og krefj-
ast þeirra greiðslna sem bankinn tel-
ur sig eiga inni hjá ijórmenningun-
um,“ sagði Sigurveig. -Ótt
Jarðskjálftar
Gylfi Kristjánsson, DV, Aknreyri:
Grímseyingar urðu varir við
nokkra jarðskjálfta upp úr hádeginu
í gær. Skjálftarnir áttu upptök sín
um 8 km austur af eyjunni og mæld-
ist sá stærsti þeirra um 3,4 stig.
Misjafnt var hversu mikið fólk í
Grímsey varð vart við skjálftana,
sumir urðu þeirra alls ekki varir,
en aðrir fundu fyrir þeim sem högg-
úm sem skullu á húsum þeirra.
Hrinan stóð stutt yfir og var afstaö-
in um miðjan dag.
í Ætli maður fái sér
I ekki einn í
V lottóinu!
Aukin harka að færast í kjaramálin:
Vaxandi líkur á upp-
sögn samninga
- margir vilja að launanefndin geri það fyrir hönd allra félaganna
„Menn eru mjög ósáttir með
stöðuna gagnvart ríkisstjórninni
og þeim loforðum sem hún gaf við
gerð kjarasamninganna í febrúar.
Og mér vitanlega hafa heldur eng-
in svör komið frá Vinnuveitenda-
sambandinu enn þá. Menn ræddu
uppsögn samninganna á for-
mannafúndinum i gær en afstaða
var ekki tekin. Og það ræðst
næstu daga af samskiptum, ann-
ars vegar við vinnuveitendur og
hins vegar við ríkisstjórn hvert
framhaldið verður en annar for-
mannafundur verður haldinn á
sunnudaginn,“ sagði Grétar Þor-
steinsson, formaður Samiðnar,
sambands iðnfélaga, í samtali við
DV í morgun.
Eftir fund forsvarsmanna
verkalýðshreyfmgarinnar og odd-
vita ríkisstjórnarinnar í gær virð-
ist aukin harka vera að færast í
kjaramálin. Á þessum fundi komu
ekki þau svör að verkalýðshreyf-
ingin geti sætt sig við þau.
Á fundi formanna landssam-
banda innan ASÍ í gær kom fram
að margir vilja að fulltrúar verka-
lýðshreyfingarinnar í launanefnd-
inni segi kjarasamningunum upp
ef vinnuveitendur taka ekki upp
venjulegar samningaviðræður um
launalið samninganna, alveg eins
og fram fóru fyrir febrúarsamn-
ingana.
Með því að láta launanefndina
segja samningunum upp telja
verkalýðsleiðtogar að Vinnuveit-
endasambandið geti ekki farið í
mál gegn einstökum verkalýðsfé-
lögum eða samböndum heldur
yrði að fara í mál viö verkalýðs-
hreyfinguna í heild sinni.
„Það á ég eftir að sjá þá gera,“
sagði einn af verkalýðsleiðtogun-
um í samtali við DV í morgun.
Samkvæmt útreikningum hag-
fræðinga ASÍ þurfa félagar innan
sambandsins að fá 3 þúsund króna
launahækkun á mánuði til að fá
það sama og opinberir starfsmenn
hafa fengið 1 sínum samningum.
Og í gær lýsti Ögmundur Jónas-
son, formaður BSRB, því yfir að ef
félagar i Alþýðusambandinu
fengju launahækkun myndu opin-
berir starfsmenn kreíjast þess
sama.
-S.dór
\\ lttejff-ij.r.: ■
at f I
WF — jt Jfe:- . V • • - rWÆ i'V -
Auðvitað skilja allir að það er ekki auðvelt að vera lítill og eiga afmæli og þurfa að sitja fyrir á mynd en þetta þurftu
þó þríburarnir Sara, Sindri og Ólöf Stefánsbörn að þola í gær. Þríburarnir áttu þá eins árs afmæli og tóku á móti
gestum með aðstoð móður sinnar, Ingu Ingólfsdóttur sem heldur hér á þeim. Ekki þarf að taka fram að litlu krflin
stóðu sig eins og hetjur í sinni fyrstu afmælisveislu þó að stundum syði upp úr. Þríburarnir komust í fréttirnar í byrj-
un þessa árs þegar amma þeirra, Ólöf Ólafsdóttir, prestur á hjúkrunarheimilinu Skjóli, skírði þá sjálf. Síðan hafa þeir
braggast vel og njóta þar dyggrar aðstoðar stóra bróður, Svavars sem verður átta ára í janúar. DV-mynd GVA
Veðrið á morgun:
Harðnandi
frost um
allt land
Norðlæg átt, stinnipgs-
kaldi eða allhvasst austan-
lands framan af degi en ann-
ars gola eða kaldi. Dálítil él
verða norðaustanlands en
annars þurrt og allvíða létt-
skýjað. Harðnandi frost um
land allt.
Veðrið í dag er á
bls. 36
Norðurland:
Hríðarkóf og
erfiö færö
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Hríðarkóf og hvassviðri var á
Norðurlandi í nótt og í morgun.
Færð var víða erfið þótt ekki hefði
mikinn snjó sett niður því talsvert
kóf var og skyggni lítið.
Nokkrar leiðir voru þó ófærar,
s.s. milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar,
og vegir til Siglufjarðar og Greni-
víkur. Lögreglan á Akureyri sagði
ökumenn ekki hafa lent í alvarleg-
um óhöppum eða vandræðum en
fara yrði varlega. Á Akureyri urðu
í gær 6 árekstrar sem rekja má til
mikillar hálku, og á Hjalteyrargötu
varð vegfarandi fyrir bifreið. Hann
var fluttur á slysadeild. Var hann
talinn óbrotinn en mikið marinn.
Þrír gripnir
Þrír menn voru gripnir í nótt við
innbrot í fyrirtæki við Norðurstíg í
Reykjavík. Höfðu mennirnir borið
út tvær tölvur og myndbandsvél
þegar lögreglan kom á staðinn. Einn
var inni í húsinu en tveir utandyra
og fannst þýfið í fórum þeirra.
Þjófarnir höfðu brotið rúðu í úti-
dyrahurð. Tilkynning barst til lög-
reglu um innbrotið um klukkan
þrjú. Rannsóknarlögreglan hefur nú
fengið málið í sínar hendur en
þjófarnir munu allir teljast til gam-
alla kunningja lögreglunnar. -GK
Grcnsosvcqí II
Sími: 5 886 886 Fax: 5 886 888
Grœnt númer: 800 6 886