Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1995, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1995, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1995 Fréttir Ný tækni tengir Internetið við símakerfi um allan heim: Hringt til útlanda fýrir sama verð og símtal innanbæjar - ekki mikið hringt á Internetinu til útlanda ODYR SIMTOL UM ALLAN HEIM Gegnum Intemetið Notendur þurfa tölvu, ^ hljóönema, hljóökort og aögang '“‘tmetinu í istuaöila. Verö: laöur viö anbæjarsímtal i. til þjónustu- aöilans Gegnum símkerfið Venjuiegt símtal til útlanda er mun dýrara en innanbæjar Símtaliö fer gegnum símkerfiö td. gerfi- hnettl á leiö sinnl - gegnum Internetið í Bretlandi Talinu er afþjappaö af þjónustuaöila viökomandi lands áöur en þaö fer yfir á símkerfiö Kostnaður gegnum Intemetið 3,32 krónur í grunngjald plús 0,83 krónur mínútan Símtaliö fer sjálfkrafa gegnum símkerfl viökomandi lands og hringir I númerini Intemet-notendur geta á næstunni átt von á því að geta hringt út um all- an heim án þess að borga neitt aukalega fyrir það. I breska blaðinu The Sunday Times kemur fram að þrír tölvusér- fræðingar, Bandarikja- maður, Japani og Indónesi, hafi fundið upp nýja tækni sem geri Int- emet-notendum kleift að hringja með PC-tölvu til kunningja í fjarlægum löndum sem ekki hefur aðgang aö Internetinu. Kunninginn svarar ein- faldlega í símann. Verið er að gera tilraunir með þessa tækni og semja við þjónustuaðila um að veita þessa þjónustu. Meðal Internet-notenda er al- kunna að hægt er hringja til útlanda sé rétt PC-tölva, módem, hljóðkort og hljóðnemi við höndina. Kostnað- ur er að minnsta kosti 200 þúsund miðað við að tölvan kosti 120-200 þúsund með hljóðkorti og hljóö- nema og módem kosti 10-20 þúsund krónur. Áskrift að Intemetinu kost- ar 1.300-2.000 krónur á mánuði. Þessi símtöl era þó háð því að sá sem hringt er í hafi sama útbúnaö og hringjandinn og sé inni á netinu þegar hringt er. Engin símhringing heyrist úr tölvunni í þessu kerfi. Kostnaöur af símtölum til fjar- lægra landa gegnum Intemetið nem- ur því sama og þegar farið er inn á Intemetið á venjubundinn hátt eða símtali innanlands, 3,32 krónum í grunngjald og 83 aurum á mínútuna hér á landi. Símtal til Japans gegn- um símkerfið kostar hins vegar 201 krónu á mínútuna frá klukkan 8 til 23 og 150,50 krónur á nóttunni. Símtalið gegnum Internetið er því margfalt ódýrara hér eins og annars staðar en gæðin á símtalinu er ekki hin sömu og í símkerfínu því að bandbreiddin til útlanda er ekki nógu góö. „Erlendis sjá menn kannski í þessu ákveðna ógnun við almenna símakerfið og hringingar milli landa en það er erfitt að sjá að þetta ógni símakerfinu hér inn- anlands. Ég held að það sé ekki mikið hringt frá íslandi á Intemetinu út af gæðunum en það er nýtt fyrir mér að símtal af Inter- netinu sé flutt inn á almenna síma- kerfið,“ segir Karl Bender, yfirverk- fræðingur gagnaflutningsdeildar Pósts og síma. -GHS Sjómannasambandið: Hafnar veiði- leyfagjaldi Sjómannasamband íslands hélt formannafund á Akureyri um síðustu helgi. Þar voru sam- þykktar ýmsar ályktanir. Vekur athygli að fundurinn mótmælir harðlega hugmynd utanríkisráð- herra um gagnkvæmar veiði- heimildir i tengslum við samn- inga við Norðmenn og Rússa um veiðar íslendinga í Barentshafi. Þá hafnaði fundurinn alger- lega hugmyndinni um veiði- leyfagjald eða auðlindaskatt á sjávarútveginn. Einnig beinir fundurinn því til stjómvalda að tryggja áfram- haldandi samning milli Færeyja og íslands um síldveiðar innan lögsögu þjóðanna náist ekki samningar við Norðmenn og Rússa um skiptingu og veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninmn. -S.dór Grunaður um morðhótun við kennslukonu Lögreglan í Keflavik hefur yfirheyrt Suðurnesjamann, gmnaðan um aö hafa verið með morðhótanir við bandaríska kennslukonu, búsetta utan vall- arsvæðisins á Keflavíkurflug- velli. Samkvæmt frásögn konunnar var hringt í hana fyrir átta mán- uðum og henni hótað morði á ensku og hún kölluð ónefnum. Til mun upptaka af símtalinu. Viðkomandi maður neitar að hafa hringt í konuna og telur málið tilhæfulaust með öllu. Rannsóknarlögreglan í Kefla- vík segir að unnið sé að rann- sókn málsins en vill að öðm leyti ekki tjá sig um það. -GK Þetta er sjúkt Dagfari í DV í gær kemur fram að apó- tekarar em æfir út af því að lækn- ar í Domus Medica hafa í raun tryggt sér eignarhaldsleg yfirráð yfir Iðunnarapóteki. Þetta er sagt vera brot á lyfjalögum og ríkislög- maður er kominn í málið ásamt ríkisendurskoðanda. Þetta mál verður vitaskuld sótt og varið af þeirri hörku sem ríkir innan heil- brigðisgeirans þar sem uppi em stööugar illdeilur sem ekkert lát er á. Heimilislæknar og sérfræðingar eiga nánast í blóðugum slagsmál- um um sjúklingana. Innan veggja sjúkrahúsa era yfirlæknar hinna ýmsu deilda í heiftarlegri sam- keppni um fé og frama og nota vita- skuld öll tiltæk meðul í þeim harð- vítuga bardaga. Sjúkrahúsmenn úti á landi halda ráðstefnur um þaö hvemig þeir geti barið á ofur- valdi sjálfskipaðra sjúkrahússér- fræðinga í Reykjavík sem vilja leggja af þessa landsbyggðarspít- ala. Deilumar um skipulag sjúkra- húsanna í Reykjavik em svo magn- aðar að ekki er hægt að skipa nýj- an forstjóra ríkisspítalanna. Sér- fræðingar um fóstureyðingar hóta að kæra landlækni til Rannsóknar- lögreglu ríkisins og fyrrverandi tryggingalæknar era orðnir öreig- ar eftir aðför skattstjóra. Apótekarar hóta málsókn á hendur ríkinu ef hvaða lyfiafræð- ingur sem er fær leyfi til að setja upp verslanir hvar sem er og selja hægðalyf og hjartapillur. Lyfia- fræðingar sem ætluðu að stofha búðir hóta kærum ef þeir fá ekki verslunarleyfi. Ingibjörg Pálma- dóttir hjúkrunarfræðingur stendur í miklu stríði við Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigðisráðherra. Ráðherra vill nefhilega taka upp þann sið að selja aðgang að spítöl- um eins og öðram gistihúsum. Þetta má hjúkrunarfræðingurinn Ingibjörg ekki heyra nefnt og heimtar að tekinn verði upp nef- skattur í staðinn. Þar með væri hægt að láta sjúka jafnt sem heil- brigða borga fýrir gistingu á spitöl- um, hvort sem þeir gista þar eða heima hjá sér. Þegar síðast fréttist haföi ekki náðst samkomulag miili ráðherrans og hjúkrunarfræðings- ins og því lítil von til þess að ráð- herrann nái að sætta aðra þá sem taka þátt í heilbrigðisstríöinu. Fyrir utan þetta styrjaldará- stand, sem ríkir meðal lækna, sér- fræðinga, sjúkrahússtjóra, apótek- ara, ráðherra og annarra hátt- settra, standa svo hópar sjúklinga uppfúllir af heift og hefndarhug. Menn segjast hafa lagst alheilbrigð- ir á spítala tfi rannsóknar en kom- ið þaðan haltir og lamaðir Vegna mistaka lækna. Konur sem hafa skroppið til læknis í þeim tilgangi að losna við Pamelu Anderson barm koma þaðan eins og hringjar- inn frá Notre Dame í útliti. Þetta kunna þær ekki að meta og krefiast skaðabóta upp á tugi milljðna króna. Þá er ekki langt síðan í einu dagblaðanna birtist bréf frá konu sem haföi verið lögð inn á geðdeild sér til hvíldar og hressingar. Hún sagði farir sínar ekki sléttar af vistinni þar, sem var að gera hana brjálaða. Það varð konunni til happs að henni tókst að sleppa af geðdeildinni á síðustu sönsunum og barg þar með sálarheiil sinni. Dagfari hugsar með kvíða til kom- andi jólaboða því undanfarin jól hafa ættingjamir skipst á um að segja hryllingssögur af viöskiptum sínum við lækna og spítala. Þó er þetta tiltölulega heilbrigt fólk til sálar og líkama miðað við ætt og uppeldi. Sumir gefast upp á að leita sér lækninga hjá þeim sem hafa próf upp á að þeir megi og geti læknað fólk. Þeir fara til lækninga- miðla sem hafa beint samband að handan gegnum hendur sér en þar er hættan sú að miðiliinn sé í kyns- velti heima fyrir og vilji fara í dónalega læknisleiki við sjúkling- ana. Aðrir sem fundu fyrir kvillum urðu sér úti um mansjúríusvepp og drukku seyðið af honum þar til landlæknir lýsti þvi yfir að drykk- urinn væri bráðdrepandi. Svona mætti halda áfram í þaö óendan- lega. Þetta ástand í heilbrigðismál- unum er ekki heilbrigt. Þetta er sjúkt. Dagfari. Smoby húsið er fallegt en þú ættir að sjá eldhúsin, þvottavélina og VÖN up IKFÖNG GeRA grænmetismarkaðinn. GæFUMuNi n Heildverslunin Bjabkey S: 5674151

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.