Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1995, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1995
11
Fréttir
Bíl stolið frá ungum námsmanni:
Fann bílinn aftur
„berstrípaðan"
„Núna átta ég mig á hvaö glæpa-
mennskan er orðin grimm hér. Ég
var heppinn að finna aftur bilinn en
allt sem í honum var er horfið,“ seg-
ir Lárus Guðbjartsson, 17 ára náms-
maður, sem missti Toyotabifreið
sína í hendur þjófs stutta stund nú í
vikunni.
Lárus þurfti að skila spólu á
myndbandaleigu í austurbænum á
mánudaginn og var svo ógætinn að
hann skildi bílinn eftir í gangi fyrir
utan leiguna meðan hann skaust
inn. Þegar hann kom út var bíllinn
horfinn.
Lögreglu var tilkynnt um málið
en hafði fátt til ráða annað en aö
láta lýsa eftir bílnum. Lárus ákvað
ásamt hópi kunningja að gera eitt-
hvað í málinu sjálfur og hófú þeir
leit í hverfinu. Eftir stutta stimd
komu þeir auga á bílinn og kölluðu
á lögregluna.
Þegar að var komið reyndist bíll-
inn vera í góðu ásigkomulagi að
öðru leyti en því að búið var að
„berstrípa" hann eins og Lárus orð-
ar það. Geislaspilari var m.a. horf-
inn og einnig myndbandstæki sem
var í aftursætinu. Tjón sitt metur
hann á 150 til 160 þúsund krónur.
„Ég geri það ekki aftur að fara úr
bílnum og skilja hann eftir í gangi.
Það er í honum þjófavamakerfi en
slíkt dugar skammt ef lyklamir em
í og bíllinn í gangi,“ sagði Láras.
-GK
Ábyrgðarmenn á námslánum:
Ríkisendurskoðun
getur haft sína
skoðun og ég mína
- segir Gunnar Birgisson, formaður stjórnar LÍN
„Ríkisendurskoðun getur haft
sína skoðun og ég mína. Lánasjóður-
inn verður eins og aðrar lánastofn-
anir að tryggja sig til að lágmarka
tapið. Það er alveg ljóst að affoll og
afskriftir myndu aukast verulega ef
það væm engir ábyrgðarmenn á
lánunum,“ segir Gunnar Birgisson,
formaður stjórnar Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna.
í nýrri skýrslu Ríkisendurskoð-
unnar um LÍN er þeirri spumingu
velt upp hvort réttlætanlegt sé að
krefja námsmenn um ábyrgðar-
menn fyrir námslánum. Lánin séu í
raun námsaðstoð og hætt sé við að
þeir námsmenn sem ekki geti útveg-
að sér ábyrgðarmenn þurfi að
hverfa frá námi þrátt fyrir það hlut-
verk sjóðsins að veita fólki tækifæri
til náms óháð efnahag.
Gunnar segir að án ábyrgðar-
manna yrði sjóðurinn að verða sér
úti um auknar tekjur til að mæta
auknum afskriftum, til dæmis með
hærri vöxtum. Að öðrum kosti
myndi sjóðurinn ganga á eigið fé. Þá
segir Gunnar það mismunun gagn-
vart skilvísum lánþegum að gefa
þeim óskilvísu kost á að komast frá
teknum lánum, til dæmis með því
að láta lýsa sig gjaldþrota. -kaa
Ábyrgðarmenn á námslánum:
Útiloka ekki ábyrgð-
armenn í réttlátu
námslánakerfi
- segir Guðmundur Steingrímsson formaður
„Lykilatriðið er að hafa náms-
lánakerfi sem menn geta staðið í
skilum við. í slíku kerfi gæti það
þjónað praktískum tilgangi að hafa
einhvers konar ábyrgðarmenn. Ég
vil því ekki útiloka ábyrgðarmenn í
réttlátu lánakerfi," segir Guðmund-
ur Steingrímsson, formaður Stúd-
entaráðs.
Guðmundur tekur undir þá
spurningu sem Ríkisendurskoðun
varpaði nýverið frarn í skýrslu um
LÍN hvort rétt sé að krefja náms-
menn um ábyrgðarmenn þegar þeir
taka lán hjá sjóðnum. í því sam-
bandi segir Guðmundur að vegi
þyngst að námslán séu fjárfesting í
menntun þar sem ríkið hljóti að
taka á sig einhverja áhættu. í raun
sé það hagur ríkisins að mennta
sem flesta og til að það sé hægt þurfi
öflugt námsaðstoðarkerfi.
Að sögn Guðmundar felur krafan
um ábyrgðarmenn í sér hindrun fyr-
ir suma námsmenn. Á forsendum
sjóðsins sé slíkum einstaklingum
ekki veitt tækifæri til náms án til-
lits til efhahags. Á hinn bóginn
verði ekki fram hjá því litið að
ábyrgðarmenn kalli á aukna ábyrgð-
artilfinningu hjá lánþegum. í raun
standi spumingin því um það að
hafa endurgreiðslur ekki þyngri en
svo að venjulegir launamenn geti
staðið undir þeim.
-kaa
Heiri Norölendinga í
trúnaðarstöður hjá ASÍ
Örn Þórarinsson, DV, Fljót:
Á 24. þingi Alþýðusambands
Norðurlands, sem haldið var fyrir
skömmu, urðu talsverðar umræður
um hlutdeild Norðlendinga í trúnað-
arstörfum inn£m ASÍ, ekki síst í
miðstjóm þar sem aðeins einn
Norðlendingur á sæti í 21. manna
stjóm. Hlutfall Norðurlands er því
aðeins 4,8% og þingfúlltrúar telja
það i algeru ósamræmi við fjölda fé-
lagsmanna innan ASÍ á Norður-
landi.
Á þinginu var samþykkt tillaga
þar sem miðstjóm Alþýðusambands
Norðurlands er falið að skoða sér-
staklega með hvaða hætti megi auka
áhrif Norðlendinga á stjómun og
ákvarðanatöku innan ASÍ og skal
miðstjómin senda aðildarfélögum
tillögur sínar fyrir lok janúar á
næsta ári og fylgja þeim síðan eftir
á þingi ASÍ næsta vor.
Glæsileg verðlaun í
Jólaleik Bónus Radíó
safemode, dagsetningu og klukku,
60 númera símaskrá með nöfnum
o.fl. o.fl.
Aðalvinningurinn verður dreg-
inn út á Þorláksmessu og er sér-
staklega glæsilegur: CMC
486DX4/100 fullbúin margmiðlun-
artölva að verðmæti 202.840 krón-
ur.
Tölvan hefúr 8 MB vinnslu-
minni, 540 MB harðan disk, PCI
skjákort, 16 bita hljóðkort meö fjar-
stýringu, 3,5” 1,44 MB disklingadrif,
innbyggt 4 hraða geisladrif CD-
ROM, tvo 40 vatta hátalara, Sam-
sung 17” Gli SyncMaster S-VGA
lágútgeislunarlitaskjá, 2880 bps
modem, Internettengingu í mánuð,
2 raðtengi, 1 hliðtengi, 1 leikjatengi,
hnappaborð með íslenskum stöfum,
straumlínulaga mús, músarmottu
og Windows 95.
Allir sem svara þremur spurn-
ingum rétt komast í vinningpottinn
og geta unnið YOKO ferðatæki eða
AFFINITY GSM-síma. Þeir fara síð-
an áffarn í aðalpottinn og eiga því
kost á að vinna CMC 486DX4/100
margmiðlunartölvuna á Þorláks-
messu.
Mikil þátttaka hefur
verið í Jólaleik Bónus
Radíó sem hófst sl.
laugardag en þá fylgdi
glæsileg jólagjafahand-
bók Bónus Radíó DV.
Þátttakendur skipta
hundraðum á hverjum
degi enda er auðvelt að
taka þátt í leiknum.
Allt sem þarf er eitt
símtal í síma 904 1750
og kostar mínútan 39,90
kr. Þar heyra þátttak-
endur þrjár léttar
spumingar úr jólagjafa-
handbókinni. Þegar
þeim hefur verið svar-
að lesa þátttakendur
inn nafn, heimilisfang
og símanúmer. Dregið
er úr réttum lausnum á
hverjum degi og nöfn
vinningshafa birt í DV.
Glæsileg verðlaun eru í jólaleikn-
um. Alla daga ffá mánudegi til
fostudags er dregið út YOKO YPR-
200 AM/FM/LW, FM stereo út-
varpstæki meö segulbandi að verð-
mæti 3.990 krónur. Tækið gengur
fyrir rafmagni eða rafhlöðum og er
með tengi fyrir heyrnartól.
Á laugardögum verður dreginn
út AFFINITY 930, lítil og handhæg-
ur en sérlega öflugur GSM-sími að
verðmæti 54.890 krónur. Hann hef-
ur 15 mismunandi hringingar, 5
styrkstillingar á hringingu,
Cundig 28* ffiasjónvarp
Litasjónvarp með Black Matrix myndlampa, fjarstýringu, 2x15 W Nicam
Stereo, textavarp, CTI litakerfi, valmyndakerfi, 2x Scart tengi, fjölkerfa
móttakari.
GfÓNTORPSMIDSTÖBIN
SÍÐUMÚLA 2 • SÍMl 568 9090 • OPIÐ LAUGARD. 10-16