Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Page 2
2 MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1995 Fréttir Nemendur í viöskiptafræðideild taka próf hver fyrir annan: A annan tug nemenda uppvis að prófsvindli í Háskólanum - þeim verður refsað, fá 0 fyrir prófið, segir Ingjaldur Hannibalsson, formaður viðskiptaskorar „Þetta er rétt, það er ekki skemmtilegt að ræða þetta mál. Þessum nemendum verður refsað, þeir fá 0 fyrir prófið," sagði Ingjald- ur Hannibalsson, formaður við- skiptaskorar við Háskóla íslands, þegar hann var spurður hvort það væri rétt að upp hefði komist prófsvindl í viðskiptafræðideild í síðasta mánuöi. Svindlið var á þann veg að nem- endur tóku próf hver fyrir annan. „Þetta var allt í einu fagi. Fyrir- komulagiö er þannig að lokapróf gildir 70%, verkefni sem nemendur gera 15% en skyndipróf 15%. Menn taka 6 skyndipróf og 4 þeirra gilda. Það var í slíku prófi sem þetta átti sér stað. Þetta þýöir að þeir nem- endur sem í þessu lentu tapa þess- um 15% og geta því aldrei fengið hærra en 8,5 í viðkomandi fagi. Við erum með 240-250 manns og upp komst um 10-20 nemendur sem svindluðu." Ingjaldur sagði að þetta hefðu allt verið fyrsta árs nemar og kannski einhver menntaskólagalsi í þeim. „Viðhorf nemenda hér á landi og í Bandarikjunum, þar sem ég þekki til, eru gjörólík. Þar leggja nemend- ur meira upp úr því að standa á eig- in fótum. Ef maður gekk fram hjá nemanda, sem var að vinna verk- efni, lagði hann höndina yflr. Hann kærði sig ekkert um að aðrir væru að notfæra sér það sem hann hafði gert. Hér á landi er þetta öðruvísi. Ef einhver neitar að hjálpa öðrum, til dæmis í sambandi við glósur, er hann talinn óalmennilegur. Það virðist meiri jafnaðarmennska og hjálpsemi ríkjandi hér,“ sagði Ingj- aldur. -ÞK mmam ÍIÍíÍSiH .ÍSjliHISIiSIlríllli SSUIlllllliilljll I I mæ' naiiiiiigiii im S’ÁliIHSillllf IIS IflH Bók Búðahrepps komin í „Fundargerðabókin fannst á góð- um stað. Lögreglan var bara ham- ingjusöm," segir Eiríkur Stefáns- son, formaður Verkalýðs- og sjó- mannafélags Fáskrúðfjarðar. Stefán skilaði um helgina fundar- gerðabók Búðahrepps sem hann tók með sér af fundi hreppsnefndar þegar meirihluti hennar lagði fram tillögu um að starfsmenn hreppsins tilheyrðu Félagi opinberra starfs- manna á Austurlandi í framtíðinni. Veruleg óánægja er meðal starfs- manna hreppsins með þessa tillögu sem á að afgreiða á fimmtudaginn. Óánægjan hefur meðal annars kom- ið fram í því að á flmmtudaginn var mættu starfsmenn hreppsins ekki til vinnu vegna „veikinda“. Þá mætti enginn þeirra á kynningar- fund um helgina þar sem ræða átti leitirnar tillögu meirihlutans. Að sögn Stef- áns hefur verkalýðsfélagið fengið tvo lögfræðinga til að meta lögmæti þess að færa starfsmenn hreppsins á milli stéttarfélaga. Þá sé Alþýðu- sambandið og lögfræðingur þess með málið til skoðunnar. -kaa Milljón króna páfagaukum stolið: Þjófarnir gætu verið í stórhættu - því fuglarnir hafa 700 kílóa bitkraft „Þjófarnir gætu verið í stórhættu ef þeir vita ekki við hvað þeir eru að fást því bitkraftur þessara fugla samsvarar 700 kílóum. Þeir leika sér að því að klippa sig út úr fugla- búrum. Við höfum verið að búa til búr úr minkabúranetum og þeir eru búnir að klippa sig út úr þeim eftir daginn," segir Jón Ólafsson, annar eigenda Gæludýrahússins, í samtali við DV. Brotist var inn í verslunina að- faranótt sunnudags og stolið þaðan tveimur Alba Cockatoo-páfagauk- um. Að sögn Jóns hafa margir við- skiptavinir sýnt fuglunum áhuga í versluninni og spurt um verðmæti þeirra. Þjófarnir virðast hins vegar hafa brotist gagngert inn í gælu- dýraverslunin til að stela fuglunum enda mjög verðmætir. Sjálfur vildi Jón ekki gefa upp verðmæti parsins en samkvæmt upplýsingum DV er það ekki undir einni milljón króna. Það eina sem þjófamir höföu á brott með sér auk fuglanna var gullfiska- kúla með vatni og fiskum í og fugla- búr sem fuglarnir hafa verið fluttir í. Um sannkallaða hefðarfugla er að ræða. „Ég flutti þá inn frá Danmörku fyrir þremur árum og hef verið með þá í versluninni í eitt ár. Ég hef öll upprunaskjöl um þá. Þar kemur fram undan hverjum þeir eru og hver ræktandi þeirra er. Sjálfur ætl- aði ég að nota þá í ræktunarskyni en þeir hafa ekki enn eignast af- kvæmi,“ segir Jón. Fuglarnir eru hvítir að lit og mjög ljúfir við þá sem þeir þekkja. Þeir eru hins vegar vandfýsnir á vinskap og má sjá af ummerkjum á innbrotsstað að þjófamir hafa feng- ið aö kynnast því. Fuglarnir hafa greinilega haldið uppi hetjulegri baráttu þegar reynt var að stela þeim því fjaðrir hafa hrokkið af þeim við atganginn inni í verslun- inni og úti á bílaplani. Fuglarnir, sem eru 7 ára, geta náð 80 til 100 ára aldri og para sig sjálf- ir og þá fyrir lífstíð. Ef annar þeirra deyr hins vegar er úti um makann því hann deyr hreinlega úr sorg, segir Jón. Sömu sögu er aö segja ef þeir eru skildir að. Hvarf fuglanna er nú í rannsókn hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins. Fuglamir eru hvitir að lit, meö gul- ar fjaðrir undir stélinu og segir Jón þá mjög hávaðasama ef þeir verða reiðir en það er einmitt þá sem þeir bíta hvað fastast. Óttast hann að þeir veröi fluttir úr landi sem gæti þó verið mjög erfitt í framkvæmd. Þá hafa fuglarnir fallið stórlega í verði við það að vera skildir frá ætt- arskrá sinni. Sambærilegan fugl er að finna í Húsdýragarðinum. PP Herbert Guðmundsson með það sem talið er vera reykblys og þau sem hann heldur á eru tóm. Þau sem haldiö er að séu virk eru á jörðinni. Herbert er á myndinni ásamt hundinum Perlu. DV-mynd Ægir Már Keflvíkingur fann 6 reykblys á víöavangi: Hægt að brenna sig mjög illa á þeim Jón Ólafsson við búrið sem fuglunum var stolið úr. Gatiö á búrinu gerðu fuglarnir sjálfir með goggnum. A innfelldu myndinni, sem er í eigu Jóns, má sjá hjónin. DV-mynd Sveinn - stórhættuleg, segir sprengjusérfræðingur DV, Suðurnesjum: „Ef þetta eru reykblys geta þau sprungið hvenær sem er og eru stór- hættuleg fyrir þá sem kunna ekki með þau að fara. Þá er hægt að brenna sig mjög illa á þeim. Þetta gæti verið eldgamalt drasl og þá er aldrei að vita hvenær gæti kviknað í þessu öllu saman," segir Sigurður Ásgrímsson, sprengjusérfræðingur Landhelgisgæslunnar, í samtali við DV í gær. Ungur Keflvíkingur fann 8 stykki, sem talið er að gætu verið reykblys, þegar hann var á göngu ásamt hundi sínum skammt hjá saltverk- smiðjunni á Reykjanesi. Sum þeirra voru tóm en önnur talin virk. DV lét lögregluna og Landhelgisgæsl- una þegar vita um fundinn og var DV beðið að greina ekki nákvæm- lega frá staðnum fyrr en lögregla og sprengjusveit Landhelgisgæslunnar hefðu farið á staðínn og eytt hlutun- um sem eru taldir stórhættulegir. Sigurður segir að þeir muni fara strax í birtingu. „Svona hlutir voru til á stríðsár- unum og innihéldu taugagas. Það er hugsanlegt að herinn hafi notað þessi blys viö heræfingar. Þá er þeim kastað út úr þyrlunum til að sjá vindátt. Þau virkar eins og handsprengja. Um leið og þau snerta jörðu springa þau og fara að rjúka," segir Sigurður Ásgrímsson. „Ég var að ganga um uppi á fjall- inu og þá lágu þessir hlutir þar vítt og dreift. Ég fann fyrst tvo og leitaði þá að fleiri. Ég fann nokkra í viðbót og tíndi þá saman í einn haug,“ sagði Herbert Guðmundsson Kefl- víkingur sem fann hlutina ásamt ís- lenskum hundi sínum, henni Perlu. -ÆMK Stuttar fréttir Fremur skattahækkun Heilbrigðisráðherra segist frekar vilja hækka skatta en draga úr heilbrigöisþjónustu. Sjónvarpið hafði þetta eftir ráð- herranum. Minni útbreiðsla Útbreiðsla alnæmis á íslandi hefur minnkað á undanförnum árum. Ný tilfelli eru hins vegar fleiri meðal gagnkynhneigðra en homma. Stöð tvö greindi frá. Skortur á vinnuafli Uppgangur er núna í atvinnu- lífi á Vestfjörðum og vantar þar víða fólk í vinnu, jafnt iðnaðar- menn, langskólagengið fólk og verkafólk. Sjónvarpið greindi frá. Aukning á geðdeildum Um 30% aukning varð á kom- um á dagdeild geðdeilda fyrstu 9 mánuði ársins. Skv. Sjónvarp- inu má búast við enn meiri aukningu. Lítið öryggi Víða erlendis er öryggi snjó- flóðaspáa taliö 50 til 60% en hér á landi er öryggi slíkra spáa talið um 10%. Sjónvarpið greindi frá. Hænsn úr einangrun Alls 3.800 hænur og 500 hanar af Ross-stofni veröa í dag út- skrifuð frá einangrunarstöðinni á Hvanneyri. Þessi hænsn eru talin nýta fóður betur og vaxa hraðar en norski stofninn sem notaður hefur verið um árabil hér á landi. Stöð tvö greindi frá. Beðið um skýrslu Almannavarnanefnd Reykja- víkur hefur beðið flugmálayfir- völd um skýrslu um ástand Reykjavíkurflugvallar. Sjón- varpiö greindi frá. Aukin bóksala Verðlækkun á bókum hefur leitt til söluaukningar. Stöð tvö greindi frá þessu. -kaa Amnesty International: Örlög horf- inna verði kunngerð í gær, á mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna, stóðu fé- lagar í Amnesty International fyrir undirskriftasöfnun í Aust- urstræti þar sem vegfarendum gafst kostur á að stuðla að því að örlög „horfinna" í fyrrum Júgóslavíu verði kunngerð og þeir sem . ábyrgir eru verði dregnir til saka og aðstandend- um tryggðar skaðabætur. Söfnunin er liður í alþjóðlegri herferð Amnesty International. -ÍS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.