Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Blaðsíða 43
j
MANUDAGUR 11. DESEMBER 1995
Fréttir
Mikið fjölmenni var á Ráðhústorgi á Akureyri á laugardag þegar Ijósin voru
kveikt á jólatrénu þar. Tréð er gjöf frá Randers, vinabæ Akureyrar í Dan-
mörku, og sendiherra Dana á íslandi afhenti tréð formlega. Með þessari at-
höfn má segja að „jólavertíð" barnanna á Akureyri sé formlega hafin.
DV-mynd gk
Hollustuvernd og yfirdýralæknir:
Varúð við meðhöndl-
un sviðahausa
Hollustuvernd ríkisins og emb-
ætti yfirdýralæknis leggja áherslu á
að matreiðslumenn og almenningur
ástundi varúð og góðar hreinlætis-
venjur við meðhöndlun og mat-
reiðslu sviðahausa, jafnt hreinsaðra
sem óhreinsaðra. Viðvörunin er
komin til vegna þess að salmonella
greindist í sviðum en tekið er fram
að dreifing hafi verið stöðvuð þar
sem slíkt greindist en hluti afurð-
anna hafi farið á markað.
Sviðin á að taka tímanlega úr
frysti þannig að þau séu fullþídd þeg-
ar suða hefst. Þá ber að gæta þess að
blóðvatn komist ekki í snertingu við
önnur matvæli. Þá er lögð áhersla á
að sviðin séu vel soðin. -rt
NÝIR BÍLAR - INNFLUTNINGUR
Nýr og stærri bíll
Rafdrifnar rúður
Suzuki
Sidekick
Sport
Ný
4 cyl.
120
ha. vél
og læsingar
ABS-bremsur
Utvarp og
segulband
Tveir líknarbelgir
(Air bags)
4 hnakkapúðar
Tvílitur
Bíræfiö sælgætisrán framið i gærkvöld:
Grímuklæddir ræn-
ingjar stálu súkku-
laði og sleikjó
- lögreglan segir að Karíus og Baktus hafi uppi á þeim
Tveir, að því að haldið er, 12 til 15
ára drengir frömdu í gærkvöld bí-
ræfið sælgætisrán þegar þeir þustu
inn í söluturninn Gott í kroppinn
sem er við Höfðatún.
Að sögn Þórunnar Þorleifsdóttur,
starfsstúlku í söluturninum,
komust piltarnir inn í söluturninn
án þess að bjalla við hurðina
klingdi.
„Ég var í símanum að tala við
vinkonu mína þegar ég heyrði
þrusk í tröppum við útidyrahurð-
ina. Ég bað vinkonu mína ,að bíða
og fór fram í búð og sá strákana.
Þeir hlupu út við það að ég hrópaði
og höfðu á brott með sér kassa af
sælgæti sem var á borðinu, stamp
sem í var sleikjó og ýmislegt annað
smálegt," sagði Þórunn í gærkvöld.
Piltarnir hlupu út í myrkrið og
lét Þórunn lögregluna vita. Hún
kom fljótlega á staðinn og hóf þegar
leit að ræningjunum en án árang-
urs. Geir Jón Þórisson, aðalvarð-
stjóri hjá lögreglunni í Reykjavík,
féllst á það aðspurður að þótt hans
menn næðu ekki að hafa hendur í
hári ræningjanna lágvöxnu þá
myndi Karíusi og Baktusi takast að
hlaupa þá uppi.
Þórunni sakaði ekki en segir
aldrei að vita hvernig drengirnir
hefðu brugðist við hefði hún reynt
að hindra að þeir kæmust út.
PP
Kjaradeila röntgentækna:
Neyðarastand
að skapast
- viðræður fyrirhugaðar í dag
„Staðan er á mjög viðkvæmu stigi
en við vonum að Eyjólfur hressist.
Ríkisspítalarnir virðast hvorki hafa
vilja en getu til að endurráða fólk-
ið,“ segir Daníel Hálfdanarson, full-
trúi röntgentækna á Landspítalan-
um, en 15 af 19 röntgentæknum spít-
alans hættu störfum um síðustu
mánaðarmót. Neyðarástand er nú
að skapast á röntgen- og krabba-
meinsdeild Landspítalalans vegna
skorts á röntgentæknum..
Röntgentæknarnir gengu út í kjöl-
far þess að stjórn Ríkisspítalanna
sagði upp samningi við þá um 15
tíma óunna yfirvinnu á mánuði. Að
mati röntgentækna jafngildir það
um 10 prósenta kjaraskerðingu.
Um helgina hittust fulltrúar rönt-
gentækna og stjórnenda Ríkisspítal-
anna en í gær sigldu viðræðurnar
nánast í strand. Að sögn Daníels
munu menn hittast aftur í dag og
kanna hvort forsendur- séu fyrir
frekari samningaviðræðum.
-kaa
Gjaldskráin
lækkuð um
tíund
Eignaraðilar Hitaveitu Akra-
ness og Borgarfjarðar undirrit-
uðu á dögunum samning við
Reykjavík um grundvallarbreyt-
ingar á starfsemi fyrirtækisins
og lækkun á gjaldskrá þess.
Breytingarnar eru þríþættar.
Hitaveitu Akraness og Borgar-
fjaröar verður frá áramótum
skipt upp í þrjú fyrirtæki. Akra-
neskaupstaður mun kaupa eign-
arhluti Borgarbyggðar og Anda-
kDshrepps I Andakílsvirkjun og
ríkið mun samkvæmt samn-
ingnum verða eignaraðili að
hitaveitunni. Eignarhlutföll
verða þannig að Akraneskaup-
staður á 53,7%, Andakílshrepp-
ur 4,3%, Borgarbyggð 21,3% og
ríkissjóður 20,7%.
Með samningnum lýkur
þeirri umfangsmiklu endur-
skipulagningu orkumála í Borg-
arfjarðarhéraði sem unnið hefur
verið að undanfarin ár.
Hornafjörður:
Stefnt að
bættri fjárhags-
stöðu
Bæjarstjóm Hornafjarðar hef-
ur samþykkt áætlanir tO að
bæta fjárhagsstöðu stjórnarinn-
ar. Helstu markmið sem stjórn-
in setti sér, var að bæta peninga-
lega stöðu verulega með því að
lækka nettóskuldir, að halda
niðri rekstargjöldum og stefna
að 30% rekstrarafgangi af tekj-
um og tryggja nægjanlegt veltu-
fé. -ÍS
Húsavík:
Engar meiri-
hlutaviðræður
DV, Akureyri:
„Það hefur enginn talað við mig
ög engar viðræður farið fram um
nýjan meirihluta," sagði Sigurjón
Benediktsson, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins á Húsavík, í gær
um hugsanlegar meirihlutaviðræð-
ur sjálfstæðismanna og framsóknar-
manna í bæjarstjórn Húsavíkur.
Til tíðinda kann að draga í meiri-
hlutamálinu strax í vikunni því þá'
á bæjarráð að ganga frá tillögu
sinni um tvo stjórnarmenn í nýtt
sameinað fyrirtæki útgerðarfyrir-
tækisins Höfða hf. og Fiskiðjusam-
lags Húsavíkur. Margir telja ólík-
legt að Framsóknarflokkur og Al-
þýðubandalag, sem nú eru S bæjar-
stjórnarmeirihluta, nái samstöðu í
því máli þar sem minnihlutinn mun
fá annan fulltrúann í sinn hlut. Það
verður síðan á bæjarstjórnarfundi
eftir viku sem kjör fulltrúanna í
stjórn sameinaða fyrirtækisins
verður endanlega afgreitt. -gk
Verkamannafélagið Dagsbrún:
Láglaunatímabilinu
verður að Ijúka
- segir Guðmundur J. Guðmundsson
„Láglaunatímabilinu á íslandi
verður að ljúka en um hernað-
arplönin vil ég ekkert segja á þess-
ari stundu," segir Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður Dagsbrún-
ar.
Verkamannafélagið Dagsbrún
stendur við þá ákvörðun að segja
upp. samningum. Um helgina fór
fram allsherjaratkvæðagreiðsla um
málið meðal félagsmanna Dags-
brúnar. Um 600 félagar í Dagsbrún
tóku þátt í atkvæðagreiðslunni, eða
um 15 prósent félagsmanna. Sam-
þykkir tillögu stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs um uppsögn samninga
voru 353 en andvígir 252.
Alls hafa fimm stéttarfélög innan
Verkamannasambands Islands
ákveðið að standa við uppsögn
samninga. Auk Dagsbrúnar eru það
Verkamannafélagið Hlíf í Hafnar-
firði, Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur, Verkalýðsfélagið Baldur
á fsafirði og Verkalýðsfélagið Ein-
ing á Akureyri.
Að sögn Guðmundar munu for-
menn félaganna fimm hittast í dag
eða á morgun til að ræða næstu
skref. Markmiðið sé að ná í áföng-
um svipaðum kaupmætti og verka-
fólk á Norðurlöndunum hafi. -kaa