Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1995 Fréttir Uppsögn kjarasamninga nokkurra stórra verkalýðsfélaga: Þetta er misskilningsópera - munum stefna öllum þessum félögum, segir Þórarinn V. Þórarinsson „Þetta er ein misskilningsópera. Þaö er ekki í valdi eins félags að segja samningum upp að eigin geð- þótta. Samningsforsendur hafa stað- ist og samningarnir gilda til loka næsta árs. Við verðum hins vegar að fá þetta staðfest fyrir dómi, svo sem vegna launaútborgana um næstu mánaöamót. Við munum því stefna öllum þessum félögum fyrir Félagsdóm til að þola dóm um að það eigi að hækka laun félagsmanna þeirra frá 1. janúar," segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ. Vinnuveitendasambandið mun í dag stefna þeim verkalýðsfélögum sem sagt hafa upp kjarasamningum sínum fyrir Félagsdóm. Verði niður- staðan sú að uppsagnimar séu ólög- mætar munu félagsmenn fá ums- amdar launahækkanir um áramótin en verða af hækkun desemberupp- bótar sem kjaranefnd samdi um. Þórarinn segir að í öllum þeim fé- lögum sem staðið hafa á uppsögn samninganna sé óvenjuhátt hlutfall launþega sem fái hærri desember- uppbót en samið hefur verið um. Ljóst sé að þeir hafi ekki getað unnt félögum sínum aö fá hækkun. „Þetta er vandinn í allri þessari launajöfnunarumræðu. Það er eng- inn vilji til þess innan verkalýðsfé- laganna að jafna eitthvað kjör. Sá vilji virðist fyrst og fremst vera í orði en ekki á borði,“ segir Þórar- inn. Þórarinn kveðst ekki óttast mikil átök né óróleika á vinnumarkaðin- um vegna þessa umróts sem nú gangi yfir. Þó aö fimm stéttarfélög hafi sagt upp samningum sínum þá bendi þátttakan í atkvæðagreiðslum um málið í þá átt að forysta félag- anna eigi ekki vísan stuðning hjá hinum almenna félagsmanni. „Ég hef enga trú á að almennir fé- lagsmenn þessara félaga láti etja sér úti í ólöglegar aögerðir gegn vinnu- veitendum sínum, aðgerðir sem fé- lögin vilja ekki bera ábyrgð á af ótta við skaðabótábyrgð. Óróleikinn og hitinn er bara hjá toppunum. Al- menningur styður augljóslega það sem gert hefur verið á undanförnum árum, það að draga úr verðbólgunni og auka kaupmáttinn." -kaa Kristján Gunnarsson: Viö munum þvinga atvinnurekendur til viöræðna - blæs á allt kjaftæöi Vinnuveitendaambandsins DV, Suðurnesjum: „Þórarinn Viöar ætti að líta í eig- in barm. Hvað eru margir forustu- menn vinnuveitenda sem taka ákvörðun fyrir alla vinnuveitendur á íslandi. Það er nánast nóg að Þór- arinn segi að nú eigi þeir að standa á haus, þá standa allir á haus. Þar er einveldið algjört og þar er hann kóngurinn og ræður öllu. Allt það sem hann segir er lög,“ segir Krist- ján Gunnarsson, formaður Verka- lýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, um þau ummæli Þórarins V. Þórar- inssonar, framkvæmdastjóra Vinnu- veitendasambandsins, að einungis 3% félagsmanna taki ákvörðun um að segja upp kjarasamningum. Kristján segir að Þórarinn Viðar hafi gert mikið úr hversu fáir félags- menn taki þessa ákvörðun. „Það er gífurlega mikill stuðning- ur og miklu fleiri en þeir sem sam- þykktu að segja upp samningum sem hafa lýst yflr fullum stuðningi við okkur og segja að nú sé nóg komið. Ég blæs á allt kjaftæði Vinnuveitendasambandsins um það að félagarnir vilji ekki það sem við erum að gera. Það er gjörsamlega út í hött. Fólk hefur bakkað mig vel upp í þessu máli. Þetta er eins og hvert annað áróðurskjaftæði sem Þórarinn notar. Þetta er áróðurs- tækni hans að gera lítið úr stéttarfé- lögum og forystumönnum þeirra. í hvert skipti sem hann er i fjölmiðl- um og gerir lítið úr okkur fæ ég alltaf mikil viðbrögð frá félags- mönnum," segir Kristján sem telur að félagsmenn geti ekki lifað við þau launakjör sem verkafólkið býr við í dag. „Við erum í mikilli snertingu við fátæktina og sérstaklega núna fyrir Kristjan Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, sparar ekki stóru orðin gagnvart atvinnu- rekendum. Félag hans samþykkti með yfirburðum að segja upp kjarasamningum og nú ætlar Vinnuveitendasam- bandið að stefna félaginu og öðrum þeim félögum sem sagt hafa upp samningum. DV-mynd ÆMK jólin en þá leita margir á okkar náð- ir. Það eru tvær þjóðir í þessu landi og önnur þjóðin sem hefur það lak- ara, hefur það verulega skítt. Við ætlum okkur að ná fram betri launakjörum." Kristján telur að hægt sé að leysa þessi mál við samningaborðið. Það þarf að koma saman sem fyrst og fara ræða saman. „Það er alveg ljóst. Við munum þvinga vinnuveitendur með ein- hverjum ráðum til viðræðna. Ef þeir ætla að standa í illdeilum við verka- lýðshreyfinguna endalaust og í heilt ár þá eiga þeir ekki von á góðu, blessaðir. Ef þeir halda það sé lausn- in að dæma verkalýðshreyfinguna út og suður þá eru menn orðnir dálítið villtir og ættu að skoða hug sinn bet- ur,“ segir Kristján. -ÆMK Dagfari__________________________ Hrotið í leikhúsinu Fólk hefur ýmsar ástæður til að fara í leikhús. Sumir fara til að sýna sig og sjá aöra, sumir fara til að lyfta sér upp og gera sér daga- mun. Svo er sá hópur auðvitað til sem fer í leikhús til aö njóta listar- innar og leikritsins, þótt þeim fari fækkandi sem hafa áhuga á leiklist- inni sjálfri. Gerir það að sjálfsögðu minna til eftir því sem öðrum til- efnum fjölgar til leikhúsferða. Leik- ritið sjálft og frammistaða leikar- anna er í rauninni aukaatriði und- ir slíkum kringumstæðum. Það má jafnvel halda því fram að eftir því sem leikritiö er lakara og leiðinlegra því betra. Þá eiga menn auðveldara með að sofna undir sýn- ingu. Tilbreytingin og afþreyingin við að fara í leikhús er nefnilega í því fólgin að slappa af, hvíla sig og slaka verulega á. Komast frá sím- anum og erlinum og krökkunum og öllu amstrinu heima. Fá að vera í friði í þægilegum stólunum í Þjóð- leihúsinu eða Borgarleikhúsinu og njóta þagnarinnar í kringum sig nema fyrir raddirnar frá senunni, sem er svæfandi og róandi kliður, svo ekki sé nú talað um ef leikritiö er jöfn síbylja án þess að samræður eða atburðir veki mann af værum blundi. Þess vegna þarf það ekki að koma neinum leikhúsgesti á óvart þótt hann verði þess var að leik- húsgestir í kringum hann hafi lagt sig í miðri sýningu og hrjóti af ein- skærri ánægju. Hvað þá að fólk sé að hafa orð á þessu út á við. Dagfari getur ekki annað en lát- ið í ljósi hneykslan sína og vand- lætingu yfir lesendabréfi sem birt- ist í Morgunblaðinu í síðustu viku þar sem kvartað var undan hrotum í Þjóðleikhúsinu. Rétt eins og bréfritara kæmi það á óvart að leikhúsgesetir sofnuðu undir sýningu. Hefur maðurinn aldrei sótt leikhús fyrr? Hefur hann ekki skilning á tilgangi listar- innar? Bréfritari vill jafnvel að leikhúsgestir sofi heima hjá sér í staö þess að hrjóta á sýningum. Hann heldur því fram aö konur eigi að skilja eiginmenn sína eftir heima í stað þess að dröslast með þá í leikhúsið. „Af hverju fara þær bara ekki einar í leikhúsið og leyfa körlunum aö gera það sem þeir hafa áhuga á eða bara að sofa heima hjá sér?“ Hér vísar bréfrit- ari til þess að karlar hafi ekki sama áhuga á leiklist og konur og hann heldur því fram að það hafi ein- göngu veriö karlar sem hrutu í leikhúsinu og þeir hafi verið vel við aldur og stæðilegir og greini- lega „búnir að ná upp mikilli tækni við að sofa á stólum leikhússins". „Verst er þó,“ segir bréfritari, „aö þetta virðist einhvers konar „norm“ sem enginn kippir sér upp við.“ Hér eru alvarlegar aðdróttanir á ferðinni gagnvart karlkyns leik- húsgestum. Ekki það að þeir þurfi að skammast sín fyrir að sofna og hrjóta, enda eru þeir búnir að borga sinn miða og sitt sæti og hljóta að ráða því hvemig þeir verja tíma sínum. Hitt er alvar- legra ef verið er að saka karlmenn og karlkynið eins og það leggur sig fyrir að kunna ekki að njóta listar- innar fyrir það eitt að þeir haldi sér ekki vakandi. Nær væri að skammast út i leikhúsið og leikar- ana fyrir að halda áhorfendum ekki við efnið og það er ekki sök karlmanna sem hafa keypt sína miða að sofna undir leikritinu, ef leikritið býður upp á það. Að ekki sé talað um ef leikhúsið er eini staðurinn sem býður upp á þannig hvíld að menn geti slappað af og sofnað. Fólk ræður hvers vegna það fer í leikhús eða eins og bréfritari segir réttilega: „Megininntak sýningar- innar er að menn sættist við sjálfa sig og aðra og leyfi hverjum og ein- um að vera eins og hann er og fæð- ist til þessa lífs.“ Þetta er einmitt mergurinn málsins. Menn hljóta að eiga rétt á því að hrjóta og hrjóta í kór í leikhúsinu ef þeim sýnist svo og það jafnvel þótt þeir hafi að öðru leyti gaman af sýningunni. Við búum í frjálsu landi, ekki satt? Dagfari Tyco Matchbox bílar og bílabrautir þvottastöðvar, brotajárnstöðvar, kappakstursbrautir og mótorhjól bruna inn í búðirnar núna I F N(5 G. R Fu 'UN| N Heildverslunin BJARKEY S: 567 4151

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.