Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Blaðsíða 46
58
MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1995
Afmæli
Lukka I. Magnúsdóttir
Lukka Ingibjörg Magnúsdóttir
húsmóðir, Höfðavegi 5, Höfn í
Homafirði, er sjötíu og fimm ára
í dag.
Fjölskylda
Lukka fæddist á Norðfirði og
ólst þar upp. Hún giftist 1945 Ey-
mundi Sigurðssyni, f. 11.8.1920, d.
11.10. 1987, hafnsögumanni á Höfn
í Hornafirði, en hann var sonur
Sigurðar Eymundssonar, bónda
og verkamanns á Höfn, og k.h.,
Agnesar Bentínu Moritzdóttur
Steinsen húsmóður.
Lukka og Eymundur eignuðust
tíu börn. Þau eru Sigurður, f. 5.2.
1943, umdæmisstjóri RARIK á
Austurlandi, kvæntur Olgu Ó.
Bjarnadóttur húsmóður og eiga
þau þrjú börn; Anna Margrét, f.
28.5. 1944, húsmóðir í Garðabæ,
gift Guðjóni Davíðssyni húsa-
smíðameistara og eiga þau fjögur
börn; Agnes, f. 12.8. 1945, tækni-
teiknari í Hafnarfirði, gift Grétari
G. Guðmundssyni rafvirkja og
eiga þau tvo syni en þau hafa
misst tvö börn; Eygló, f. 19.12.
1947, smurbrauðsdama á ísafirði,
gift Jakobi Ólassyni trésmíða-
meistara og eiga þau þrjú börn;
Albert, f. 24.2. 1949, skólastjóri á
Höfn í Hornafirði, kvæntur Ástu
G. Ásgeirsdóttur húsmóður og
eiga þau fjögur börn; Ragnar
Hilmar, f. 4.4. 1952, málari á Höfn
í Hornafirði, kvæntur Rannveigu
Sverrisdóttur og eiga þau tvo
syni; Brynjar, f. 28.10. 1953, mat-
reiðslumeistari á Seltjarnarnesi,
kvæntur Elsu Guðmundsdóttur
smurbrauðsdömu og eiga þau þrjá
syni, auk þess sem hann á tvær
dætur frá fyrra hjónabandi; Bene-
dikt Þór, f. 10.8. 1955, húsasmiður
í Ósló og á hann tvo syni með
fyrrv. sambýliskonu sinni, Ritu
Hansen; Halldóra, f. 27.10. 1957,
húsmóðir í Reykjavík, gift
Camillusi Rafnssyni málara og
eiga þau tvö börn; Óðinn, f.-5.10.
1959, matreiðslumeistari á Höfn í
Hornafirði, kvæntur Elísabetu Jó-
hannesdóttur, starfsstúlku á dag-
heimili og eiga þau tvö börn.
Langömmubörn Lukku eru nú
fimm talsins.
Systkini Lukku: Guðmundur
Helgi, f. 1916, d. 1962, verkamaður
og sjómaður á Norðfirði og síðar í
Reykjavík; María, f. 1917, húsmóð-
ir á Akureyri, ekkja eftir Guð-
mund Halldórsson bifreiðastjóra
og eignuðust þau sjö börn; Guð-
jón, f. 1919, d. 1986, múrari á
Norðfirði, var kvæntur Erlu
Gunnardóttur og eignuðust þau
þrjú börn; Hjalti, f. 1923, netagerð-
armaður og verslunarmaður í
Grindavík, kvæntur Petru Stef-
ánsdóttur og eiga þau eitt barn
saman og eitt barn hvort fyrir
hjónaband; Fanney, f. 1924, hús-
móðir í Hafnarfirði gift Ólafi
Brandssyni, umsjónarmaður á
Sólvangi og eignuðust þau fjögur
börn; Ari, f. 1924, verkamaður og
smiður á Norðfirði; Albert (Alli
krati), f. 1927, d. 1993, sjómaður og
síðar kaupmaður á Stokkseyri og
loks í Hafnarfirði, var kvæntur
Valgerði Valdimarsdóttur og eru
kjörsynir þeirra tveir.
Lukka 1. Magnúsdóttir.
Foreldrar Lukku voru Magnús
Guðmundsson frá Fannadal í
Norðfirði, f. 18.5. 1890, d. 1946, og
k.h., Anna Guðrún Aradóttir frá
Naustahvammi í Norðfirði, f. 15.6.
1889, d. 1970.
Ólafía Árnadóttir
Ólafía Árnadóttir bókhaldari,
Birkihæð 7, Garðabæ, varð fimm-
tug í gær.
Starfsferill
Ólafía fæddist í Reykjavík, ólst
upp í Hlíðunum og átti heima í
Reykjavík til 1986 er hún flutti í
Garðabæ. Hún lauk gagnfræða-
prófi við Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar, sveinsprófi í hárgreiðslu
1965 og stúdentsprófi frá öldunga-
deild MH 1986.
Ólafía hefur unnið við íjár-
haldsbókhald hjá Heildverslun
Halldórs Jónssonar hf frá 1990.
Fjölskylda
Ólafía giftist 25.2. 1967 Reyni
Lárusi Olsen, f. 20.3. 1945, flugum-
sjónarmanni. Hann er sonur Ger-
hard Olsen flugvélstjóra, og
Huldu S. Olsen húsmóður.
Börn Ólafíu og Reynis Lárusar
eru Hulda Olsen, f. 18.3. 1968,
stúdent og starfsmaður Hitaveitu
Reykjavíkur, búsett í Garðabæ, í
sambúð með Róberti Ragnarssyni;
Árni Hrafn Olsen, f. 21.6. 1972,
nemi í vélsmíði, búsettur í Garða-
bæ; Hrefna Björk Olsen, f. 3.6.
1977, nemi, búsettur í Garðabæ.
Systkin Ólafíu eru Herbert
Árnason, f. 6.4. 1939, búsettur í
Bandaríkjunum; Hertha Árnadótt-
ir, f. 24.2. 1948, starfsmaður hjá
Fróða, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Ólafíu: Árni
Mathiesen, f. 9.10. 1909, d. 25.12.
1990, lögfræðingur í Reykjavík, og
k.h., Hrefna Herbertsdóttir, f. 2.6.
1913, húsmóðir.
Ætt
Árni var bróðir Hinriks Guð-
mundar, bæjarstjóra í Vestmanna-
eyjum og sýslumanns í Stykkis-
hólmi. Árni var sonur Jóns,
barnakennara í Hafnarfirði og
kaupmanns og útgerðarmanns í
Vestmannaeyjum, Hinrikssonar
Guðmundar, b. og formanns á
Kirkjubrú á Álftanesi, Jónssonar.
Móðir Jóns í Eyjum var Sigur-
laug Sveinsdóttir.
Móðir Árna var Ingibjörg
Rannveig Theodórsdóttir
Mathiesen, sjómanns og kaup-
manns í Reykjavík, bróður Matth-
íasar, skósmiðs í Hafnarfirði, afa
Matthíasar, fyrrv. ráðherra, fóður
Árna, alþm. og dýralæknis. The-
odór var sonur Árna Mathiesen,
kaupmanns í Hafnarfirði, bróður
Guðrúnar, ömmu Stefaníu Guð-
mundsdóttur leikkonu. Önnur
systir Árna var Guðrún,
langamma Steindórs bílakóngs,
afa Geirs Haarde þingflokksfor-
manns. Árni var sonur Jóns,
prests í Arnarbæli, Matthíasson-
ar, b. á Eyri, Þórðarsonar, ættfoð-
ur Vigurættarinnar, Ólafssonar,
ættföður Eyrarættarinnar, Jóns-
sonar. Móðir Theodórs var Agnes
Steindórsdóttir Waage, skipherra
í Hafnarfirði, Jónssonar, stjúpson-
ar Bjarna riddara, og Önnu
Katrínar Kristjánsdóttur Velding,
ættföður Veldingættarinnar á ís-
Ólafía Árnadóttir.
landi. Móðir Ingibjargar Rann-
veigar var Þuríður, dóttir Guð-
mundar Árnasonar og Þuríðar
Magnúsdóttur.
Til hamingju með
afmælið 11. desember
80 ára
Marteinn Pétursson,
Vatnsholti 4, Reykjavík.
70 ára
Hlöðver Krist-
jánsson,
fyrrv. öryggis-
fulltrúi ísals,
Hjallabrekku 35,
Kópavogi.
Eiginkona hans
er Esther Jóns-
dóttir sjúkraliði.
Þau hjónin
dvelja erlendis á afmælisdaginn.
Guðmundur Gestsson,
Fjölnisvegi 6, Reykjavík.
Bergur P. Jónsson,
Hrafnhólum 8, Reykjavík.
Kári Sigurbjörnsson,
Mánagötu 1, Grindavík.
Lilja Þorfinnsdóttir,
Suðurhólum 16, Reykjavík.
60 ára
Jón Friðbjörnsson,
Ægissíðu 32, Grenivík.
Valgarður Eðvaldsson,
Múlasíðu 5B, Akureyri.
Auður Linda Zebitz,
Bjarmalandi 2, Reykjavík.
Guðmundur Arason,
Hrauntungu 12, Kópavogi.
Reynir Guðmundsson,
Víðilundi 13, Garðabæ.
50 ára
Hjálmar Björnsson,
Bakkahlíð 6, Akureyri.
Eygló Bogadóttir,
Reynihvammi 12, Kópavogi.
40 ára
Helgi Þórisson,
framkvæmda-
stjóri,
Hlíðarhjalla 21,
Kópavogi.
Eiginkona Helga
er Sigríður Páls-
dóttir.
Tekið verður á
móti gestum á
heimili þeirra í
17.00 og 20.00.
Magnús L. Alexíusson,
Reynihvammi 34, Kópavogi.
ína Salóme Hallgrímsdóttir,
Marargötu 5, Reykjavík.
Jóhann Frímann Gunnarsson,
Miðstræti 4, Reykjavík.
Jóna Jónsdóttir,
Digranesvegi 46, Kópavogi.
Elfn Ebba Ásmundsdóttir,
Laugavegi 53A, Reykjavík.
Guðrún Björg Halldórsdóttir,
Fífumóa 7, Njarðvík.
kvöld, milli kl.
níll
DV
9 0 4 - 1 7 0 0
Verð aðeins 39,90 mín.
1 j Læknavaktin
2 [ Apótek
3 j Gengi
Hringiðan
Nýja platan hans Páls Óskars er kom-
In í búbir og af því tllefni kom hann í
Kringluna og áritaði vlilt og galiö. Hér
fær Slgríður árltaða mynd frá Palla.
DV-mynd Teitur
dögunum hélt
Már E.M. Halldórsson,
dreifingarstjóri DV, upp á
fimmtugsafmæli sitt i Ris-
Inu. Páll Stefánsson, aug-
lýsingastjðri blaðsins,
Jenný Davíösdóttir, Sig-
valdi Kaldalóns kórstjóri
og Margrét Kaldalóns
voru í afmælinu.
DV-mynd Teltur