Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1995
Stuttar fréttir
Útlönd
Leita morðingja
skólastjóra
Breska lögreglanleitaði í gær
unglinga sem myrtu skólastjóra
í vesturhluta London á fostudag
én hafði ekki orðið ágengt þegar
blaðið fór í prentun. Skólstjór-
inn, fjögurra barna faðir, var
stunginn með hnífi í brjóstið
þegar hann reyndi að verja
dreng úr skólanum fyrir árás
unglinganna’ Morðið hefur vak-
ið óhug meðal bresks almenn-
ings og lagði fjöldi leið sína að
ðnorðstaðnum í gær. Drengurinn
hefur fengið að fara heim af spít-
ala en hann hlaut höfuðmeiðsl.
Stjórnvöld íhuga að herða mjög
viðurlög við hnífaburði á al-
mannafæri.
Noregur og
ESB semja
um kvóta
í Norðursjó
Samningamenn Norðmanna
og Evrópusambandsins náðu um
helgina samkomulagi um að
skerða verulega kvóta á síld,
makríl og kola í Norðursjó.
Kvótinn á þorski var hins vegar
aukinn. Samningurinn verður
staðfestur af sjávarútvegsráð-
herrum ESB fyrir jól.
Síldarkvótinn er skorinn nið-
ur um 30 prósent, makrílskvót-
inn um 33 prósent og kolakvót-
inn um 37 prósent. Þorskkvótinn
var hins vegar aukinn um 8 pró-
sent og ufsakvótin um 4 prósent.
Jan Henry T. Olsen, sjávarút-
vegsráðherra Noregs, segir
Norðmenn hafa viljað frekari
niðurskurð en samkomulagið
væri skref í rétta átt. Síldarkvóti
næsta árs í Norðursjó er 313 þús-
und tonn og hlutur Norðmanna
um 90 þúsund tonn.
Reuter/NTB
Heimilisfang
-póstnúmer
Hvar er jolasveinninn? □Reykjavík JPeking UTunglinu
Staður.
. simi.
Juppe kúvendir í afstööu sinni til verkfallsmanna:
Gefur eftir og er til-
búinn til samninga
Jólagetraun DV
- 12. hluti:
Alain Juppe, forsætisráðherra
Frakka, féllst í gærkvöldi á að hefja
samnThgaviðræður við fulltrúa járn-
brautarstarfsmanna og annarra
stéttarfélaga sem lamað hafa franskt
þjóðlíf undnfarna 17 daga með verk-
föllum. Þá hefur hann gefið eftir í
mörgum atriðum varðandi velferð-
arkerfið og endurskipulagningu
járnbrautanna. Þessi kúvending get-
ur þýtt endalok verkfallanna.
Eftir fund með ráðherrum sínum í
gær kom Juppe fram í sjónvarpsvið-
tali. Þar sagðist hann reiðubúinn að
hitta talsmenn stéttarfélaganna strax
í dag. „Við eigum í alvarlegum
vanda sem við verðum að komast út
úr með samningaviðræðum. Ég er
ekki hræddur við það orð,“ sagði
Juppe.
Strax eftir útsendinguna hélt
hann til þingsins. Þar einsetti hann
sér að koma lögum um velferðar-
kerfið í gegn með því að beita sér-
stökum ákvæðum stjórnarskrárinn-
ar sem heimila að gera frumvarpið
að vantraustsmáli. Það þýðir að
verði vantrauststillaga á Juppe ekki
samþykkt 24 tímum síðar verður
frumvarpið sjálfkrafa að lögum.
Með þessu tryggir Juppe að hálfs
prósents skattur leggst á nær allar
tekjur og jafnar halla á sjóðum vel-
ferðarkerfisins.
Juppe hefur lagt af nefnd um eft-
irlaun opinberra starfsmanna. Hann
fullvissaði járnbrautarstarfsmenn
um að þeir gætu eftir sem áður far-
ið á eftirlaun um fimmtugt og lofaði
ítarlegum viðræðum áður en endur-
skoðun á rekstri járnbrautanna færi
Alain Juppe, forsætisráðherra Frakka, og eiginkona hans, Isabelle, svala
þorstanum á jólahátíð. Juppe hefur nú fallist á að ræða við járnbrautar-
starfsmenn sem verið hafa í verkfalli á þriðju viku. Símamynd Reuter
fram.
Talsmaður franskra sósíalista
sagði að hefði Juppe gefið eftir á
þennan máta fyrir nokkrum dögum
eða tveimur vikum hefði það nægt
til að leysa deiluna. En nú væri
óvíst um niðurstöðuna.
Þrátt fyrir breytta afstöðu Juppes
var ekki búist við neinum lestar-
ferðum í Frakklandi í dag. Reuter
írakar seiji olíu
Boutros Boutros-Ghali, aðalrit-
ari Sameinuðu þjóðanna, ræddi
við Tariq Aziz, forsætisráðherra
íraks, um sölu íraka á olíu til
kaupa á hjálpargögnum.
Flugmenn enn fangar
í gærkvöldi hafði ekkert
heyrst frá Bosníúserbum um ör-
lög tveggja franskra flugmanna
sem þeir hafa haft í haldi frá því
í sumar. Frakkar gáfu Bosn-
íuserbum frest til miðnættis í
gærkvöld að láta flugmennina
lausa.
Frambjóðandi deyr
Formaður kristilegra lýðræðis-
sinna í Rússlandi dó í bflslysi í
Pétursborg.
Gögn frá Júpíter
Vísindamenn NASA fengu í
gær fyrstu gögnin sem geimferj-
an Galileo sendir frá reikistjörn-
unni Júpíter.
Leita ebólatilfella
Læknar fóru frá Fílabeins-
ströndinni til Liberíu í leit að
fólki sem smitast hafði af hinni
banvænu ebólaveiru.
IRA afhendi vopn
Meirihluti íra vill að lýðveldis-
herinn aihendi vopn sín og fái
þannig aðgang að viðræðum um
frið á Norður-írlandi.
Papandreou hætti
Um 90 prósent Grikkja vilja að
Andreas Papandreou, hinn aldni
og sjúki forsætisráðherra, segi af
sér.
Ávíttur fyrir lygar
Hæstiréttur í Póllandi staðfesti
kjör Aleksander Kwasinewski,
nýkjörins forseta landsins, en
ávítti hann fyrir að hafa villt um
fyrir kjósendum með lygum um
menntun sína. Reuter
Hvar er jolasveinninn?
Þá er loks komið að síðasta hluta jólagetraunar DV. I dag er jólasveinninn
kominn heldur langt frá mannabyggðum og ekki laust við að þyngdarleysið
rugli hann í ríminu. Sveinki getur þó auðveldlega sett sig í spor þeirra sem
heimsóttu staðinn á geimfari forðum en finnst skrýtið hvað margir halda að
þarna sé allt úr osti. En vonandi verður sveinki ekki tunglsjúkur því þarna
á enginn heima.
Hvar er jólavsveinninn? Merkið við það svar sem þið teljið rétt, klippið
svarseðilinn úr blaðinu og setjið í umslag með hinum ellefu sem þegar hafa
birst.
Nú megið þið senda okkur lausnirnar. Munið að athuga vel hvort allir
svarseðlarnir, 12 talsins, séu í umslaginu.
Utanáskriftin er: Jólagetraun, DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík. Einnig má
skila lausnum beint í DV-húsið.
Skilafrestur rennur út mánu-
daginn 18. desember. Dregið verð-
ur úr réttum lausnum og nöfn
vinningshafa birt fyrir jól.
Munið að senda okkur lausn-
irnar áður en auglýstur skila-
frestur rennur út. Þátttakendur
eiga möguleika á að vinna einn
hinna 19 glæsilegu vinninga sem
í boði eru en verðmæti þeirra
nemur samtals hálfri milljón
króna.
2. verðlaun eru Siltal ísskápur,
KB- 2039, alls 360 lítra, frá Rad-
íóbúðinni að verðmæti 70.900
krónum. í efri hlutanum er 240
lítra kælir með færanlegum hill-
um, grænmetis- og ávaxtaskúff-
ur og færanlegar hillur í hurð.
Frystirinn er 120 lítra með þrem-
ur skúffum. Skápurinn er 187,5
sm á hæð, 59,5 á breidd og 60
sm á dýpt.
111
H.
I
I
>
>
i
i
t
i
I