Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1995, Qupperneq 34
>5o MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 1995 Menning____________ Jesú bankar Leó G. Torfason - Draumsýn ★★★ Minnir á gullöldina upp a „En hví skyldum við ekki gleðj- ast við sögur um Jesú og guð fyrst hann skapaði heiminn sér til ánægju og hefur skömm og gam- an af honum, okkur og sjálfum sér?“ spyr Guðbergur Bergsson og vindur sér í framhaldi af þessari spurningu í að segja lesendum sínum sex sögur sem hann kallar Jólasögur úr samtímanum. Eins og lesandann grunar áður en hann opnar þessa litlu og snotru bók eru þetta engar venjulegar jólasögur með hátíðlegum undir- tóni, heldur þvert á móti, skop- stæling hins sanna jólaanda sem boðar manngæsku, samheldni, frið og fögnuð. Sögurnar fjalla um leti, hirðuleysi og eigingirni manna sem hlýða fremur annarra röddum en eigin hjarta og eins og oft áður lýsir Guðbergur innan- tómu og tilgangslausu lífi fólks sem hefur yfir fáu að gleðjast, tuð- ar og nöldrar og hlustar andakt- ugt á bullið í sjálfu sér og öðrum. Guðbergur gerir sér mat úr fréttum fjölmiðla og snýr út úr þeim á sinn gamansama og ísmeygilega hátt. Kvennaguðfræðin fær sína yfirhellingu í sögu sem heitir „Telpan Jesú bjargar karlmanni frá drukknum á Kanaríeyjum" og lögin um sameignir í fjölbýlishúsum eru til umfjöll- Bókmenntir Guðbergur Bergsson Sigríður Albertsdóttir unar í fyrstu sögu bókarinnar. Fólkið í þeirri sögu nennir ekki að þrífa sameignina og grípur til þess ráðs að forðast hvað annað svo sameignin berist ör- ugglega ekki í tal. Af skiljanlegum ástæðum fer allt á kaf í skít en þegar neyðin er stærst er hjálpin næst: sjálft Jesúbarnið birtist og skúrar stigann með þeim afleiðingum að lata liðið sér að sér og tekur upp nýja siði. Þessi guðlega vera, sem reyndar minnir lítt á þá mynd sem við eigum að venjast af Jesúbarninu, mæt- ir í öllum sögum og fær fólk til að snúa frá villu síns vegar. Maður einn hættir að halda fram hjá konunni sinni, annar hættir að stela frá lasburða ömmu sinni og í einni sögunni er hámenntuðu fólki kennt að slá lóðina sína. Fólk verður gott og glatt eftir komu Jesúbarnsins og sest með heilagan svip fyrir framan sjón- varpsskjáinn og hlustar á glað- beitt blaður þulunnar, glænýtt og endurnært í hjarta og huga. En tilkoma Jesúbarnsins er einungis afhjúpun á hræsni þeirra sem í daglegu lífi svífast einskis en setja upp sparisvipinn einu sinni á ári og reyna af veikum mætti að geðjast sjálfum sér og öðrum. Heilagleikinn er yfirvarp, undir niðri kraumar hið sanna eðli, lág- kúrulegt og lítilmótlegt. Þessi af- hjúpun er þó hvorki sár né sting- andi, hún er umfram allt skopleg og í meinlausara lagi. Guðbergur hefur löngum verið lunkinn við að snúa út úr daglegu atferli manna og hversdagslegum mál- efnum svo útkoman verður ekki aðeins fyndin, held- ur einnig afkáraleg og neyðarleg. Hann er leikinn við að skoða og gegnumlýsa hið smæsta í tilverunni svo lesandinn sér sjálfan sig og aðra í óþægilegu ljósi sem hann langar ekki að baða sig í langtímum saman. Þessi gamalkunnu einkenni sýna sig í jólasögum en þó er hinn sérstæði húmor Guðbergs frekar í ætt við sakiaust skens en alvarlega ádeilu. Höfundur heldur sig á kunnuglegum miðum en fer ekki djúpt undir yf- irborðið í þetta sinn, er góðlátlegur skoðandi sem læt- ur sér nægja að dangla létt í lesandann. Það skortir snerpuna í textann og hið hárbeitta háð sem Guð- bergur er þekktur fyrir er pakkað inn í flauelsumbúð- ir. Jólasögur er daufur endurómur af því besta sem Guðbergur hefur gert, sögur sem skemmta og kitla hláturtaugarnar en skilja lítið eftir að öðru leyti. Jólasögur úr samtímanum Guðbergur Bergsson Forlagið 1995 í leit aö fegurstu kirkju íslands Sú bók sem hér er til umsagnar er um margt óvenjuleg. Hún er allt í senn ljóðabók, myndabók og fræðibók. í bókinni eru 40 ljóð eftir Jón Ögmund Þor- móðsson, skrifstofustjóra í viðskiptaráðuneytinu, og mun þetta vera fyrsta ljóðabók hans. Fjalla 37 ljóð- anna um einstakar kirkjur í landinu en þrjú um feg- urðina, gjöfina og hjartað. Stór litmynd fylgir hverju ljóði og eru myndirnar teknar af höfundi ljóðanna í eða af viðkomandi kirkjum. Bókmenntir Gunnlaugur A. Jónsson Bókin er byggð upp sem leit höfundar að fegurstu kirkjunni á Islandi: Er það Hallgrímskirkja á vígsludegi sem faðmar sín sautján hundruð á helgistund, á gleðistund? Þannig spyr höfundur í fyrsta ljóðinu og heldur áfram í þvi næsta: Eða er það bænahúsið á Núpsstað? Lamb á beit á þekjunni og i baksýn jötunninn hans Jóns „með járnstaf í hendi jafnan við Lómagnúp." Eins og sést á þessum brotum úr upphafsljóðunum er hér um óhefðbundinn kveðskap að ræða, stemmn- ingarmyndir höfundar í formi prósa-ljóða. Búast má við að fyrstu viðbrögð margra séu á þá leið að spurn- ingin sem heldur þessum ljóðaflokki saman sé fánýt. Fegurð kirknanna hljóti aÚtaf að vera afstæö og þar muni óhjákvæmilega sitt sýnast hverjum. Það kemur enda á daginn að höfundurinn svarar ekki spurning- unni en kemst að þeirri niðurstöðu að á kærleiks- stundu geti „hjarta þitt“ verið fegursta kirkjan á ís- landi. Hér er um fallega og eigulega bók að ræða. Ljós- myndir höfundar eru teknar af smekkvísi og næmi. ítarlegar og vandaðar skýringar aftanmáls auka mjög á notagildi bókarinnar þannig að jafnvel sá sem ekki hrífst af ljóðunum getur sótt mikið til bókarinnar. Skýringarnar, eins og ljóðin raunar, vitna um lifandi tengsl höfundar við íslenska bókmenntaarfleifð og fræðilegan metnað. Málið á ljóðunum er auðskilið hverju barni. Innihaldið gerir meiri kröfur til lesand- ans en þar koma hinar óvenju nákvæmu skýringar til hjálpar. Þá hefur bókin að geyma vandaða orða- skrá og enskan útdrátt. í mínum augum liggur styrkleiki bókarinnar frem- ur í myndunum og hinum vönduðu skýringum en ljóðunum sjálfum, en hér gildir auðvitað hið sama og um fegurð kirknanna að smekkur manna er mismun- andi. Ljóst er að margt er vel gert í þessum ijóða- flokki, þar sem mjög er tengt við sögu kirkjustaðanna og lagt út af henni, sbr. þaö sem segir um Mosfells- kirkju: Fiársjóður kappans enn ófundinn. Hví að leita silfurs ef finna má gull í kenningu Krists á þessum stað, þessum sögustað? Þannig tala ljóðin stöðugt máli kristninnar og eru því ótvíræður stuðningur við Krist og kirkju hans hér á landi. Það hlýtur að vera mikið fagnaðarefni hverjum áhugamanni um framgang íslenskrar kristni að leikmaður skuli setja saman slíka bók og koma henni fyrir almenningssjónir. Jón Ö. Þormóðsson: Fegursta klrkjan á íslandl. Fróði 1995 (167 bls.). I fréttatilkynningu sem fylgir geislaplötunni Draumsýn stendur ritað að tónlistin minni um margt á Enyu, Mike Oldfield, Vangelis eða Enigma. Það kann að vera rétt, en tónlist Leós G. Torfasonar vekur lika minningar um fleiri nöfn, ekki síst frá fyrri tíð. Má þar nefna hljómsveitina Sea Train hvað varð- ar útsetningu og uppbyggingu lags- ins Jarðarber. Einnig á fiðluleikur Dan Cassidys í laginu þátt i því að maður minnist þessarar hljómsveit- ar og fiðluleikara hennar, Richard Green. Nú þarf ekki að vera að Leó hafi nokkru sinni heyrt i téðri hljóm- sveit. Þarna er bara um tónlistarlegan skyldleika að ræða. Manni dettur líka í hug hollenska hljómsveitin Focus og Svisslendingurinn Alap Jetz- er, en þessi upptalning merkir ekki að um eftiröpun sé aö ræða, langt því frá. Músíkin minnir bara sumpart á gullaldartímabil rokksins á áttunda áratugnum (pre-pönk), þegar menn voru óhræddir við að reyna nýjar leiðir og takast á við meiri víðáttur í tónlistinni en áður hafði tíðkast. Þetta þýðir þó ekki að tónlistin á Draumsýn sé gamaldags. Hún hljómar nútímalega, en sver sig í ætt við „klassískt rokk“ eða sinfón- ískt sem svo er stundum nefnt og enn er í fullu gildi, fremur en nýald- artónlist eða bræðing. Leó er ekki alveg ókunnur meðal hljómlistarfólks; hefur leikið á gítar árum saman, m.a. með hljómsveitunum Blúsbrot og Byl. En hann hefur alltaf haft hægt um sig og nú er komið í ljós hvað hann hefur verið að dunda við undanfarin ár. Lagasmíðar Leós, sem allar eru eingöngu leikn- ar, koma verulega á óvart. Þrátt fyrir að viss einfaldleiki sé ráðandi í sumum þeirra er engan byrjendabrag á þeim að finna. Hvergi er neitt klaufalegt og styrkur laganna virðist fara vaxandi eftir því sem á plötuna líður. Útsetningar eru smekklegar og hljóðfæraleikur með ágætum. í heild er um að ræða hrífandi og tilfinningaríka tónlist, og er gaman að fá að hlýða á svona grip á tímum niðursoðins léttmetis. Það er að vísu ekki svo mikið verið að kcmna nýjar leiðir á þessari plötu heldur eru vak- in upp minni úr evrópskri og amerískri rokktónlist með tilvísunum bæði í þjóðlög og, að einhverju leyti, nýaldartónlist. Aðdáendur framsækinn- ar, melódískrar rokktónlistar, og reyndar allt áhugafólk um góða tónlist, ætti að gefa Draumsýn gaum. Flytjendur auk Leós, sem leikur á gítar, sítar og hljómborð, eru Svav- ar Sigurðsson sem leikur á Hammondorgel og hljómborð, áðurnefndur fiðlari Dan Cassidy, bassaleikarinn Pétur Kolbeinsson og trommararnir Karl J. Karlsson, Matthías Hemstock og Hafþór R. Gestsson. Hljóðmaður var Birgir Jóhann Birgisson og stjórnaði hann upptökum ásamt Leó, en þær fóru fram í Stúdíó Stefi á árunum 1993-95. Dreifing: Japis. Hljómplötur Ingvi Þór Kormáksson Stórsveit Reykjavíkur - Stórsveit Reykjavíkur: ★ ★Á Stendur undir nafni Big Band tónlist getur verið virki- lega skemmtileg þegar hljómsveitin er góð. Til að ná upp réttu sveifl- unni þarf ekki aðeins helling af góð- um blásurum og ryþmasveit heldur ótrúlega mikla samæfingu. Bestu stórsveitir samtímans, eins og hljómsveitir Dukes Ellingtons, Counts Basies og Stans Kentons, svo að einhverjar séu nefndar, höfðu að baki áralanga þjálfun og spila- mennsku þegar þær voru á hátind- inum. Þaö er því ekki við því að bú- ast að Stórsveit Reykjavíkur, sem á að baki þriggja ára skrykkjóttan feril sem byggist að mestu á þrautseigju Sæbjörns Jónssonar og áhugasamra blásara undir hans stjórn sé í sama ------------------------ gæðaflokki og fýrrnefndar hljóm- UIÍÁmnlAtlir sveitir. En miðað við að hljómsveit- mjum|mmir in starfar stutt í einu og flestir ------------------------ starfa einnig við annað þá hefur Hilmar karlcQnn náðst virkile§a góður árangur sem 11111,101 ■'uHuuUI' er fyrst og fremst stjórnandanum Sæbirni Jónssyni að þakka og fyrsta plata sveitarinnar, sem ber nafn hennar, er mun betri en maður átti von á. Það hafa áður verið starfræktar stórsveitir og lengst lifði Stórsveit Rík- isútvarpsins. Má segja að Stórsveit Reykjavíkur sé sprottin upp úr henni. Það er fullt af góðum blásurum í Stórsveitinni og það sem kannski vek- ur mesta ánægju er að heyra hversu vel trompetleikararnir komast frá sínu en sú deild hefur löngum verið akkilesarhæll íslenskra stórsveita. I raun skOar sveitin það vel frá sér einstökum lögum að það er eins og um rótgróna atvinnusveit sé að ræða. Það eru þekkt og óþekkt lög á plötunni og til að lífga upp á eru þrír söngvarar til taks, Ragnar Bjarnason syngur tvö lög sem lengi hafa loð- að við hann, My Way og New York, New York, og kemst vel frá sínu, Eg- ill Ólafsson, sem auk þess að fara vel með It Don’t Mean a Thing if It Aint Got that Swing, syngur ásamt Ragnari Bjarnasyni Einungis fyrir djass, stórskemmtilegt lag eftir Stefán S. Stefánsson. Stefán á einnig annað gott lag, Vindhviður. Þriðji söngvarinn er svo Ellý Vilhjálms sem syngur Almost Like Being in Love og The More I See You. Það er ekki að heyra að hún hafi verið fársjúk þegar hún söng lögin. Rödd hennar er jafn skýr og falleg og fer hún einkar vel með þessar ágætu ballöður. I heild er plata Stórsveitarinnar góð skemmtun og er leitun að hnökrum í flutningi hennar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.