Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1995, Page 26
34
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1995
Menning
Endurminningar og frásagnir Ragnars í Skaftafelli á bók:
Faranlegt að enginn
hafði spjallað við hann
- segir Helga K. Einarsdóttir bókasafnsfræöingur sem skráði
Helga K. Einarsdóttir bókasafnsfræöingur, til hægri á myndinni, gluggar hér
í bókina ásamt ekkju Ragnars í Skaftafelli, Laufeyju Lárusdóttur.
„Upphafið er það að mér blöskr-
aði að enginn skyldi hafa skrifað
endurminningar Ragnars. Hann var
afskaplega merkur maður, var í
rauninni sjálfmenntaður jarðfræð-
ingur og fylgdist vel með öllu í
kringum sig. Hann var mjög sögu-
fróður og mikið talað við hann í út-
varpi í sambandi við Skeiðarár-
hlaup, Grímsvatnagos og allt mögu-
legt þarna fyrir austan. Auk þess
var Skaftafell mikið í þjóðbraut eft-
ir að það var farið að fljúga í Öræf-
in. Ég þekkti hann litils háttar og
fannst fáránlegt að engum skyldi
hafa dottið í hug að spjalla við hann
og gera úr því bók,“ sagði Helga K.
Einarsdóttir bókasafnsfræðingur í
samtali við DV en hún hefur skráð
endurminningar og frásagnir Ragn-
ars Stefánssonar, bónda og þjóð-
. garðsvarðar í Skaftafelli. Hörpuút-
gáfan á Akranesi gefur bókina út og
hefur hún fengið hefur feiknagóðar
viðtökur.
Helga kynntist Ragnari fyrst írin
1977 og 1978 þegar hún kom í Skafta-
fell sem ferðamaður. Næstu árin
heimsótti hún Ragnar nokkrum
sinnum en það var ekki fyrr en vor-
ið 1991 að hún hóf máls á því við
hann að skrá endurminningar og
frásagnir hans. Eftir umhugsun
samþykkti Ragnar þetta og þau
Helga byrjuðu verkið snemma árs
1992. Hún heimsótti hann síðan
nokkrum sinnum í Skaftafell og vor-
ið 1994 hafði handrit að hókinni náð
nær endanlegu formi. Ragnar varð
bráðkvaddur i september sama ár,
nýlega orðinn 80 ára. Helga sagði að
bókin hefði að öllu leyti verið frá-
gengin nema hvað lokakaflann
vantaði.
„Ragnar fékk handritið vorið 1994
og við ætluðum að hittast um haust-
ið til að klára lokakaflann. Ég átti
erfitt með að skrifa endinn að Ragn-
ari látnum því ég hafði alltaf hugs-
að mér að við skrifuðum hann í
sameiningu. Þegar ég var í lokafrá-
gangi handritsins datt út úr því um-
slag með nafninu mínu á. í því var
lokakaflinn sem Ragnar hafði sjálf-
ur skrifað einhvern tímann um
sumarið, án minnar vitundar. Þetta
var á vissan hátt eins og gjöf til
mín. Lokakaflinn er alveg óbreyttur
í bókinni þannig að Ragnar lauk
henni sjálfur."
Helga sagðist vera ánægð með
þær góðu viðtökur sem bókin hefur
fengið. Vonandi væri Ragnar jafn
sáttur ef hann fylgdist með „að
handan".
-bjb
Okkar á milli
sagt
Ljóðahókin
Okkar á milli
sagt eftir
Kristján J.
Gunnarsson
er komin út
hjá Skák-
prenti. Þetta
er þriðja
ljóðabók
Kristjáns en
hans fyrsta
ritverk var
skáldsagan Refska sem kom út
árið 1986 þegar Kristján var orð-
inn 67 ára. Áður hafa komið út
ljóðabækurnar Leirkarlsvísur
(1989) og Gráglettnar stundir
(1993).
Hér sem fyrr leggur Kristján
ýmist af mörkum hefðbundin
ljóð eða órímuð en velur mörg-
um þeirra sveigjanlegt form.
Kvak frá Stein-
gerði
Steingerð-
ur Guð-
mundsdóttir
hefur sent frá
sér sína
sjöttu ljóða-
bók er nefni'st
einfaldlega
Kvak. I bók-
inni eru 37
kvæði sem
bera þess
vitni hve
Steingerður er opinská og ein-
læg í kvæðum sínum, trú göml-
um hefðum en þó hrifnæm og
leitandi.
Fyrri ljóöabækur Steingerðar
eru Strá (1969), Blær (1972),
Kvika (1976), Log (1980) og Fjúk
(1985). Útgefandi nýjustu bókar-
innar er Skákprent.
Leiðrétting á
myndatexta
Þau leiðu mistök urðu við
vinnslu ritdóms í DV í gær um
bókina Magisterinn eftir Vil-
hjálm Einarsson að rangur
myndatexti birtist. Vilhjálmur
Einarsson var sagður á mynd-
inni en að sjálfsögðu var þetta
mynd af „magisternum" sjálf-
um, Steinþóri Eiríkssyni. Beðist
er velvirðingar á þessu. -bjb
Ljóöa- og smásagnakeppni Tónabæjar:
170 Ijóð og 70 sogur bárust inn
Félagsmiðstöðin Tónabær efndi
nýlega til ljóða- og smásagnakeppni
á meðal unglinga þeirra átta skóla
sem sækja Tónabæ. Þetta var í
fjórða sinn sem keppnin var haldin
en tilgangur hennar er að auka
áhuga unglinga fyrir skrifum. Dóm-
nefnd skipuðu rithöfundarnir Einar
Kárason, Smári Freyr Jóhannsson
og Tómas Gunnar Viðarsson. Þátt-
taka var mjög góð því alls bárust
170 ljóð og 70 sögur.
Sigurlaug Helga Teitsdóttir úr-
Æfingaskóla Kennaraháskólans
hlaut 1. verðlaun í smásagnakeppn-
inni fyrir söguna Skilnaður. Arn-
björg M. Daníelsen úr Álftamýrar-
skóla bar sigur úr býtum i ljóða-
keppninni fyrir ljóðið Minningar og
lífsgleði en hún fékk einnig þriðju
verðlaun fyrir ljóðið í fylgsni hug-
ans. í öðru sæti í ljóðakeppninni
varð Svanhildur Snæbjörnsdóttir úr
Æfingaskóla Kennaraháskólans
með ljóðið Dauðinn. Önnur verð-
laun í smásagnakeppninni fóru til
Stefaníu Ólafsdóttur fyrir söguna
Hugleiðingarnætur og þriðju verð-
laun voru veitt vegna sögunnar
Heiti steinninn eftir Helgu Ólafs-
Sigurlaug Helga Teitsdóttir fékk 1. verðlaun í smásagnakeppninni fyrir sög-
una Skilnaður. Hér er hún með verðlaunin og við hlið hennar standa tveir af
þremur dómnefndarmönnum, Smári Freyr Jóhannsson, til vinstrl, og Tómas
Gunnar Viðarsson, höfundar bókarinnar Ufsilon sem kom út nú fyrir jólin.
dóttur úr Æfmgaskóla Kennarahá- verðlaun frá forlögunum Vöku-
skólans. Helgafelli, Máli og menningu og Ið-
Sigurvegarar hlutu vegleg bóka- unni. -bjb
Skáldsagan Þriðja ástin veldur afbrýði og morði:
Skáldin eru slóttug og töff en auðsærð
- spjallað við Nínu Björk Árnadóttur
Eftir 7 ljóðabækur, 14 leikrit,
fjölda þýðinga og 2 skáldsögur á 30
ára ritferli sendir Nína Björk Árna-
dóttir frá sér ástar- og morðsögu um
virðulega Reykjavíkurfrú sem upp-
lifir ástina en tapar jafnframt lífinu
þess vegna.
Bókin nefnist Þriðja ástin. Hún
hefur fengið ágætar viðtökur lesenda
en gagnrýnendur hafa verið mjög
ósammála um verkið. Jákvæðir
dómar hafa birst í Morgunblaðinu og
Súsanna Svavarsdóttir gaf bókinni
þrjár stjörnur í ríkissjónvarpinu.
Frekar neikvæðir dómar hafa hins
vegar birst í DV og Helgarpóstinum.
Hvað finnst Nínu um það?
„Ég reyni auðvitað að taka skít-
kastið ekki of mikið inn á mig, tekst
það nokkuð vel. Ég lít reyndar á all-
ar þessar fjórar konur, sem fjallað
hafa um verkið, sem vitibornar ver-
ur. íslendingar eru svo fáir og þeir
sem hrærast í menningunni og list-
unum eru tengdir alls konar bein-
Nína Björk Árnadóttir.
um og óbeinum tengslum, hagsmun-
um. Þetta er fremur lítill og furðu-
legur heimur, íslenskur menningar-
heimur - en það getur verið dálítið
skrítið þegar gagnrýnandi biður um
að hafa lesið allt aðra bók en þá sem
hann er að fjalla um.“
- Þú fékkst mikið hól á Spáni ný-
lega. Hvernig stóð á því?
„Það var nú Guðbergur Bergsson
sem kom í heimsókn til mín. Hann
las fyrir mig handritið að Þriðju ást-
inni, hann er besti gagnrýnandi
minn á texta, óvæginn en mjög vís
og afar hreinskiptinn. Hann benti
mér á þessa lofgjörð á Spáni, ég
hafði ekkert um þetta vitað.“
- Hvernig er að vera skáld, Nína?
„Skáldin eru slóttug og töff, mörg
hver a.m.k., en þau eru auðsærð.
Þetta er heillandi og spennandi
starf, erfitt og taugaslítandi og laun-
in afar misjöfn. En takist skáldinu
að lifa við sjálft sig og allar þær per-
sónur sem í því búa, og eiga í sí-
felldum erjum og vandamálum, leið-
ir þessi gerjun oft til góðs skáld-
skapar.“
Fyrra bindi af
sögu Hvamms-
tanga
Fyrra bindi
af Sögu
Hvamms-
tanga og hins
forna Kirkju-
hvamms-
hrepps eftir
Steingrím
Steinþórsson
er nýlega
komin út. Tilefnið er að á þessu
ári eru liðin 100 ár frá því að
Hvammstangi var gerður að lög-
giltum verslunarstað.
í bókinni er rakin saga Kirkju-
hvammshrepps frá öndverðu til
ársins 1938 en þá var Hvamms-
tangi gerður að sjálfstæðu
hreppsfélagi. í bókinni eru nærri
300 ljósmyndir og hafa margar
þeirra aldrei birst áður. Bókin er
322 blaðsíður í stóru broti. Útgef-
andi er Hvammstangahreppur.
Bókin fæst á skrifstofu hreppsins
og hjá Máli og mynd í Reykjavík.
Bók með Benny
Hinn
Bókaforlag-
iö Vakning
hefur gefið út
bókina Drott-
inn Jesús, ég
þarf á krafta-
verki þínu að
halda. Höf-
undur er sjón-
varpspredikarinn Benny Hinn. í
bókinni eru tíu vitnisburðir, þar
á meðal frá Hinn sjálfum. Þessir
menn hafa læknast af sjúkdóm-
um og öðlast sigur í lífi sínu.
Katla K. Ólafsdóttir þýddi bók-
ina en Himinn & Jörð hannaði
kápu. Bókin er 133 blaðsíður,
prentuð á íslandi.
Tónleikar endur-
teknir
Vegna mikillar aðsóknar og
eftirspurnar verða tónleikar
Styrktarfélags íslensku óper-
unnar endurteknir föstudaginn
29. desember kl. 23. Fram koma
kór íslensku óperunnar ásamt
fimm góðkunnum einsöngvur-
um. Stjórnandi er Garðar Cortes
og píanóleik annast Davíð
Knowles. Þeir styrktarfélagar
óperunnar sem komust ekki á
síðustu tónleika fá-tvo boðsmiða
og eru beðnir að setja sig í sam-
band við miðasölu sem fyrst.
Töfrar steinsins
frá Hafsteini
Skákprent
hefur gefið út
ljóðabókina
Töfrar steins-
ins eftir Haf-
stein Stefáns-
son. Hafsteinn
er einn af
landsins
snjöllustu
hagyrðingum og varð landskunn-
ur af bók sinni Leyndarmál
steinsins sem kom út 1976. í nýju
bókinni er að finna fjölmargar
hnyttnar stökur og vel ort kvæði.
Inni á milli örlar á alvarlegum
tóni þótt Hafsteinn sé þekktastur
fyrir gamansemi sina.
Hvítabandið í
hundrað ár
Út er kom-
in á bók 100
ára saga
Hvítabands-
ins í Reykja-
vík,
næstelsta
kvenfélags
borgarinnar,
rituð af Mar-
gréti Guð-
mundsdóttur. Skákprent gefur
bðkina út. Sagt er frá fjölþættu
líknarstaifi félagsins í heila öld.
-bjb
Hafstnlnn Stefánsson
Töfrar
steinsins
komið
Saga
Hvamm.stanga