Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1995, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1995, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1995 13"V Séra Flóki Kristinsson yfirgaf Stóra-Núpsprestakall ósáttur: Samstarfið við hann leiðin- legt og ekki sársaukalaust - segir Ragnhildur Magnúsdóttir, fyrrverandi sóknarnefndarformaður Frá messu í Langholtskirkju á aðfangadagskvöld. Séra Flóki Kristinsson messaði og organisti var Ragnar Jónsson. DV-mynd Teitur „Ég gæti svo sem sagt þér ýmis- legt um samstarfið við hann en það er ekki gaman að vera að rifja það upp. Það gekk vel til aö byrja með en það endaði ekki vel. Þetta var leiðinlegt og ekki sársaukalaust," sagði Ragnhildur Magnúsdóttir, fyrrverandi sóknarnefndarformað- ur í Stóra-Núpsprestakalli, þegar hún var spurð hvemig samstarfið hefði gengið við séra Flóka Kristins- son, prest í Langholtssókn, þegar hann var prestur í Stóra-Núps- prestakalli og sat í Tröð. „Það var að mínu áliti síður en svo gott að starfa með honum og hann skildi við okkur mjög ósáttur. Þetta gerðist ekkert á einum degi og það var ekkert ólöglegt eða neitt slíkt á ferðinni. Það var ýmislegt, bæði smátt og stórt, sem okkur greindi á um, hann og safnaðar- stjórnina. Það má margt gott segja um séra Flóka. Hann er vel gefinn, hefur góða söngrödd og á gott með að koma orðum í búning en hann er mjög skapríkur. Hann vildi að safn- aðarstjórnin hjálpaöi sér í kjarabar- áttu sinni en okkur fannst það ekki okkar hlutverk, sjálfsagt eru prests- laun of lág,“ sagði Ragnhildur. Hún sagðist mjög ógjarnan vilja fara að rifla upp þessar illdeilur en nálægt fimm ár eru síðan séra Flóki yfirgaf söfnuðinn. Ragnhildur sagði að sér fyndist eitthvað vera að í kirkjumálum almennt og vera ósátt við margt innan kirkjunnar. . „Kannski vorum við svona slæm. Kannski hafði presturinn aðrar væntingar til mín og okkar í safnað- arstjórninni en við stóðum undir. Ég er ekki dómbær á það. Við höfð- um ekkert út á það að setja hvemig hann messaði. Kannski vantaði hann brjóstvitið gagnvart fólki. Það þykir ekki tiltökumál þó að gjósi í litlum söfnuði úti á landi en þetta voru mikil sárindi. Það er gert meira úr slíku í umræðunni í stóru söfnuðunum." DV hefur eftir heimildum ann- arra sóknarnefndarmanna í Stóra- Núpsprestakalli að mannleg sam- skipti sóknarnefndar og prestsins hafi ekki gengið vel. Hann hafi starfað mikið upp á eigin spýtur, kannski ekki verið eiginlegt að starfa með öðru fólki. Enn fremur hafi hann gleymt fundum og ekki taliö að það sem kom upp á væri honum sjálfum að kenna, heldur öðrum. Hann hafi sinnt prestverk- um sínum ágætlega. Hins vegar þegar verið var að ræða byggingu safnaðarheimilis hafi safnaðarstjómin verið sam- mála um að byggingin mætti ekki kosta mikið. Séra Flóki hafi síðan allt i einu komið með arkitekt með teikningu að allt of stóru og dýru húsi. Síðan hafi hann bara orðið reiður þegar þessu var hafnað. Alls ekki hafi verið um það að. ræða að fólk forðaðist hann sem prest, mönnum hafi líkað vel hvern- ig hann messaði. Málamiðlanír. í safnaðarstarfinu hafi ekki verið á dagskrá, hann hafi ekkert ráðfært sig við sóknarnefnd- ina. Hann hafi yfirleitt talið að ef eitthvað kom upp á væri það sókn- arnefndinni að kenna. Gott samstarf við organista Vilmundur Jónsson, organisti í Ólafsvallakirkju, starfaði með séra Flóka allan þann tíma sem hann var prestur í Stóra-Núpsprestakalli. „Samstarf mitt við séra Flóka gekk vel, það var allt í lagi milli okkar. Ef eithvaö kom upp á var alltaf hægt að leysa það. Ég varð náttúrlega var við einhvem ágreining milli hans og sóknarnefndarinnar og sjálfsagt má báðum aðilum um kenna. Séra Flóki hefur kannski átt eitt- hvað erfitt með samskiptin við fólk- ið en hann er góður ræðugerðar- maður og tónviss,“ sagði Vilmund- ur. -ÞK Samstarfið í Stóra-Núpsprestakalli: Ber ekki kala til nokkurs manns - misskilningur rót vandans, segir séra Flóki Kristinsson Séra Flóki Kristinsson var spurð- ur hvað hann vildi segja um þau ummæli að samstarfið við sókn- arnefndina hefði gengið misjafnlega þegar hann var prestur í Stóra- Núpsprestakalli í Árnessýslu. „Það kemur fram í þessu mikill misskilningur. Það að fólkið skuli kalla sig safnaðarstjórn er byggt á misskilningi. Safnaðarstjórn og sóknarnefnd er tvennt ólíkt. Safnað- arstjórn er í fríkirkjum. Hún ræður og rekur presta. Þannig er það í Bandaríkjunum. Sóknarnefnd er fyrst og fremst ætlað að létta á prestinum peningamálunum, hún er fyrst og fremst framkvæmda- nefnd og á að styðja við prestinn og gæta þess að hann þurfi ekki að hafa peningaáhyggjur. Sóknar- nefndin í Ólafsvallasókn skildi ekki sitt hlutverk," sagði séra Flóki. Skýrari reglur vantar „Sannleikurinn er sá að það vant- ar skýrari reglur um hvernig skuli starfað innan kirkjunnar. Hvert verksvið hvers og eins er. í erindis- bréfi sem biskup gaf út kemur það alls ekki nógu skýrt fram. Ekki er tekið á því hvað skuli gert ef ágrein- ingur kemur upp, aðeins að sam- starf skuli vera gott. Það er bara ekki alltaf þannig. Það þarf að breyta þessum reglum. Fólkið vildi hafa prestinn í vasanum. Undirrót vandans er sú að skipulagið er ekki nógu gott. Hins vegar átti ég mjög gott sam- starf við margt fólk í prestakallinu. Ég var þar í 7 ár og óánægjan var aðeins síðasta árið. Hún Ragnhildur sóknarnefndar- formaður var ung, óvön og nýbyrj- uð þarna á þessum tíma. Ég ber hlýjan hug til fólksins í sókninni og ber ekki kala til nokkurs manns,“ sagði hann. Séra Flóki sagði að á þeim tíma sem hann sat í Stóra-Núpspresta- kalli hefði verið mikill óróleiki vegna launamála presta. „Eg sat eitt rýrasta brauð lands- ins. Það var mjög erfitt að sinna því af þeim sökum. Konan mín hafði ekki starf þrátt fyrir ágæta mennt- un. Ég leitaði til sóknarnefndarinn- ar - það er rétta nafnið á henni - en þar var lítinn skilning að finna. Prestbústaðurinn er ekki á kirkju- jörð, ég var nánast sem í eyðimörk, jarðnæðislaus. Ég þurfti aðstoð til að þetta gengi upp. Þegar ég studdi þá hugmynd að Stóra-Núpsprestakall yrði lagt niður vegna þess að engin undirstaða var undir prestsetri lengur ætlaði allt vitlaust að verða. Fólkið vildi halda sínu. Ég get ekki fallist á að ég hafi móðgast vegna byggingar safnaðar- heimilis, þvert á móti var það sókn- amefndin sem móðgaðist. Teikning- in sem ég kom með var þannig að hægt var að stækka húsið eftir efn- um, stungið var upp á að byggja skúr fyrst og síðan mátti stækka," sagði séra Flóki. -ÞK Einróma tillaga nefndar háskólaráðs: Háskóli íslands verði sjálfseignarstofnun Háskólaráð samþykkti á fundi sínum þann 29. september 1994 til- lögu Gunnars G. Schram prófess- ors um að skipa nefnd til að kanna kosti og galla þess aö Háskóli ís- lands verði sjálfseignarstofnun. Þann 11. desember sl. lauk nefndin störfum og skilaði skýrslu til háskólaráðs. Niðurstaða nefnd- arinnar er afdráttarlaus. Hún mælir með að hafist verði handa um undirbúning sjálfseignarstofn- unar um rekstur HÍ. Kostina telur nefndin ótvíræða. Þetta sé hag- kvæmasta leiðin til að tryggja að tekjur séu jafnan í samræmi við nemendafjölda og að gæði kennslu og rannsókna rýrni ekki vegna fjárskorts eins og hætta er á nú. Háskólinn fengi fullt sjálfstæði í öllum sínum málum og er það, að áliti nefndarinnar, forsenda fyrir farsælli framtíðarþróun skólans. Einnig fengi skólinn fullt ákvörð- unarvald um kjör starfsmanna sinna. Fjárframlög úr rikissjóði yrðu ákvörðuð með samningi skólans og ríkisvaldsins þar sem tekið yrði mið af Qölda nemenda og kostnaði þess náms sem stundað er. Nokkrir skólar starfa nú þegar með þessu fyrirkomulagi. Nefndin leggur til við háskólaráð aö það skipi nefnd til að gera tillögu um breytingu á lögum um Háskóla ís- lands sem feli í sér að rekstrar- forminu verði breytt. -ÞK Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri VISA, rífur hér ávísunina sem stíluð var á Orra Vigfússon og afhenti honum síðan ávísun stílaða á Norður-Atl- antshafslaxsjóðinn sem hlaut því menningarverðlaun VISA1995 á sviði nátt- úruverndar. DV-mynd S Menningarverðlaun VISA: Orri afsalaöi sér verðlaunum VISA-ísland aíhenti árleg menn- ingarverðlaun síðasta fimmtudag við hátíðlega athöfh í höfuðstöðvum sínum í Mjóddinni. Verðlaunin voru veitt á sviði ritlistar, tónlistar, leiklistar, myndlistar og náttúru- verndar, 300 þúsund krónur í hverj- um flokki. Orri Vigfússon fékk verðlaunin fyrir náttúruvemd vegna baráttu fyrir friðun villta laxins í Atlants- hafinu. Athygli vakti að hann afsal- aði sér verðlaununum við afhend- inguna og eftirlét þau til Norður- Atlantshafslaxsjóðsins. Orri sagði í samtali við DV að þetta væri regla hjá honum þegar honum persónu- lega væru veitt verðlaun fyrir störf sín fyrir sjóðinn sem eingöngu væm sjálfboðastörf. Aðrir verðlaunahafar voru Stein- unn Sigurðardóttir fyrir ritlist, Hilmir Snær Guðnason fyrir leik- list, Páll Stefánsson fyrir myndlist og Þorgerður Ingólfsdóttir fyrir tón- list. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.