Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1995, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1995, Blaðsíða 45
TIV LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1995 leikhús LEIIÍFÉLAG REYKJAVÍKUR SÍMI 568-8000 STÓRA SVIÐ: ÍSLENSKA MAFÍAN eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson Leikmynd: Axel Hallkell Jóhannesson Lýsing: David Walters Búningar: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir Söngstjórn: Valgeir Skagfjörð Hljóðmynd: Baldur Már Arngrímsson Sýningarstjóri: Guðmundur Guðmundsson Leikendur: Ari Matthíasson, Árni Pétur Guðjónsson, Bryndís Petra Bragadóttir, Eggert Þorleifsson, Ellert A. lngimundarson,.Felix Bergsson, Guðmundur Ólafsson, Hanna María Karlsdóttir, Helga Braga Jónsdóttir, Magnús Ólafsson, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Pétur Einarsson, Sóley Eiíasdóttir, Valgeir Skagfjörð, Þröstur Léo Gunnarsson. Sýning, iaud. 30/12, uppselt, grá kort gilda, fid. 4/1, fáein sæti laus, rauð kort gilda, laud . 6/1 blá kort gilda. LÍNA LANGSOKKUR eftir Astrid Lindgren Lau 30/12 kl. 14, örfá sæti laus, sun. 7/1 kl. 14, lau. 13/1 kl. 14, sun. 14/1 kl. 14. LITLA SVIÐ KL. 20: HVAÐ DREYMDI ÞIG, VALENTÍNA? eftir Ljúdmílu Razumovskaju Lau. 30/12, örfá sæti laus, lau. 6/1, föst. 12/1, lau. 13/1. STÓRA SVIÐ KL. 20: VIÐ BORGUM EKKI, VIÐ BORGUM EKKI eftir Dario Fo Föstud. 5/1. Þú kaupir einn miða, færð tvol Samstarfsverkefni við Leikfélag Reykjavíkur: Barflugurnar sýna á Leynibarnum kl. 20.30: BAR PAR eftir Jim Cartwright Fös. 5/1, sun. 7/1, föst. 12/1. Fyrir börnin: Línu-ópal, Línu-bolir og Línu-púsluspil. Miðasalan er opin alla daga frá kl. 13-20. Lokað verður á gamlársdag og nýársdag, auk þess er tekið á móti miðapönt- unum í síma 568-8000 alla virka daga. Greiðslukortaþjónusta. Gjafakortin okkar - frábær tækifærisgjöf. Leikfélag Reykjavíkur - Borgarleikhús Faxnúmer 568-0383. WÓÐLEIKHDSIÐ LITLA SVIÐIÐ KL. 20.30: KIRKJUGARÐSKLÚBBURNN eftir Ivan Menchell Leikendur: Guðrún Stephensen, Margrét Guðmundsdóttir, Sigurveig Jónsdóttir, Bessi Bjarnason, Þóra Friðriksdóttir Þýðing: Elísabet Snorradóttir Lýsing: Ásmundur Karlsson Leikmynd: Úlfur Karlsson Búningar: Helga Stefánsdóttir Tónlistarumsjón: Andrea Gylfadóttir Leikstjórn: Andres Sigurvinsson Frumsýning föd. 5/1, uppselt, 2. sýn. sud. 7/1, 3. sýn. fid. 11/1, 4. sýn. Id. 13/1, 5. sýn. sud. 14/1. STÓRA SVIÐIÐ KL. 20.00: DONJUAN eftir Moliére 3. sýn. í kvöld, uppselt, 4. sýn. fid. 4/1, nokkur sæti laus, 5. sýn. mvd. 10/1, 6. sýn. Id. 13/1. ÞREK OG TÁR eftir Ólaf Hauk Símonarson Ld. 6. jan., örfá sæti laus, föd. 12/1, örfá sæti laus, Id. 20/1. GLERBROT eftir Arthur Miller 8. sýn. föd. 5. jan., 9. sýn. fid. 11. jan. KARDEMOMMUBÆRINN eftir Thorbjörn Egner I dag, 30/12 kl. 14.00, uppselt., Id. 6/1 kl. 14.00, uppselt, sud. 7/1, kl. 14.00, uppselt, sud. 7/1 kl. 17.00, uppselt, sud. 14/1 kl. 14.00, nokkur sæti laus, sud. 14/1 kl. 17.00. Cjafakort í leikhús - sígild og skemmtileg gjöf! Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13.00-18.00 og fram að sýningu sýningardaga. Einnig símaþjónusta frá kl. 10.00 virka daga. Greiðslukortaþjónusta. Fax: 561 1200 SÍMI MIÐASÖLU: 551 1200 SÍMI SKRIFSTOFU: 551 1204 VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ! hræðilegur ærslaleikur ISLENSKA OPERAN =Jmi Sími 551-1475 forsýning fim. 4/1. kl. 20.00 frumsýning fös. 5/1. kl. 20.00 2 sýn. iau. 6/1 kl. 20.30 3 sýn. sun. 7/1 kl. 20.30 miðaverð kr.1000 - 1500 miðasalan er opin frá kl. 18 sýningardaga mll pöntunarsími: 5610280 ||||| il alian sólarhringinp llllllllllilllllll GREIÐSLUKORTAÞJONUSTA Laugard. 6. jan. kl. 21.00. Síðasta sýn. IWAMA BUTTERFLY Föstud. 19/1 kl. 20. HANS OG GRÉTA Frumsýning laugard. 13/1 kl. 15. Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 15-19, sýningardaga er opið þar til sýning hefst. SÍMI 551-1475, bréfasími 552-7384. GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA Andlát Pála Kristjánsdóttir, Litlu- Grund, Hringbraut 50, áður til heim- ilis í Nóatúni 26, lést föstudaginn 22. desember. Bragi Finnsson frá Ytri-Gunn- ólfsá, Ólafsfirði, til heimilis að Aust- urbraut 4, Keflavík, er látinn. Hrefna Hallgrímsdóttir, Hring- braut 37, Hafnarfirði, andaðist að- faranótt 29. desember. Björg S. Jóhannesdóttir frá Mó- bergi, fyrrverandi handavinnukenn- ari á Löngumýri, andaðist á hjúkr- unarheimilinu Skjóli fimmtudaginn 28. desember. menning Braskað í bílaporti í bókum Einars Kárasonar, Heimskra manna ráð- um og Kvikasilfri, kynntust lesendur Killian fjölskyld- unni í meðlæti og mótvindi. Frásögnin er brot af samtímasögu sem spannar fer- il þriggja kynslóða á tímum uppbrots og kúvendingar í íslensku þjóðfélagi þegar gömlUm gildum er varpað fyrir borð. En hún er líka og ekki síður saga þeirra lit- ríku karaktera sem teljast til þessarar makalausu stórfamilíu. En það er eins og fyrri daginn, þegar bók er færð til sviðs, maður verður að byrja á því að gleyma bókinni. Fullbúin leiksýning lifir á eigin forsendum og hlítir um leið aUt öðrum lögmálum en upphaílega skáld- verkið. Sviðsmynd Axels Hallkels Jóhannessonar er stór- brotinn bakgrunnur fyrir brask og bardús Killian- anna og skósveina þeirra. Bílhræin eru í stöflum á sviðinu og í ryðguðum boddíunum má fela ýmislegt sem ekki þolir dagsins ljós. Framsviðið breytist eins og hendi sé veifað i bankastjóravillu, skemmtistað eða kjallarakompu eftir því sem við á. Lýsingin gegnir stóru hlutverki og geymslurými og verkfærahillur breytast eftir þörfum, jafnvel í fanga- klefa. í mörgum atriðum sáust stórskemmtilegar og flott úrlausnir eins og til dæmis þegar strandaða skip- ið er sjósett og eins þegar alvöru lyftara er ekið um sviðið (og reyndar líka heilum Bens) og hann notaður sem hluti af leikmyndinni. Sem sagt: Frábær bakgrunnur - stundum allt að því senuþjófur. Eðli málsins samkvæmt þyggist leikverkið sjálft á svipmyndum eða sundurlausum bútum úr sögunum og mikið veltur á að byggja það þannig upp að allt loði nú saman. Sagan er mikið umskrifuð og sögð í endur- liti þar sem Halldór Killian og Kobbi Kalypsó rifja upp gengna slóð. Veikleikar sýningarinnar voru hespaðir af í fyrri hlutanum sem var dálítið pörtóttur. í fyrstu voru at- riðin sundurlaus og kannski svolítið erfitt fyrir þá sem ekki voru kunnugir sögunni að skeyta saman bútana, sérstaklega af því að persónuflóran er skraut- leg og margir koma við sögu. Hins vegar þéttast tökin eftir nauðsynlega kynn- ingu. Inntak verksins um sögu fjölskyldu á tímum upplausnar kemst vel til skila. Þó að verkið sé létt í annan kantinn er hvergi langt í kaldhæðnislega al- vöru og hvassa ádeilu, enda þeir at- þurðir og sú samfélagslýsing, sem þarna er í þakgrunni, innan seiling- ar okkar í dag. Þegar uppbygging leikverks er eins og í íslensku mafíunni mynda persónurnar eina samstæða heild, án þess að nokkur þeirra verði yfirgnæfandi. Pétur Einarsson fer vel með hlutverk ættföðurins Sigfúsar Killians gullgrafara, bílapartasala og seinast húsvarð- ar í menntó. Árni Pétur Guðjónsson á sterkan leik í hlutverki Vilhjálms, sonar hans, sem er eins konar erkitýpa þeirra athafnamanna sem lyftast hæst og sökkva dýpst. Guðmundur Ólafsson var líka mjög góð- ur í hlutverki Litla- Fúsa og Magnús Ólafsson þéttur á velli skilaði ágætri (og lúmskt fyndinni) mannlýs- ingu í hlutverki séra Sigvalda. Sóley Elíasdóttir fer vel með hlutverk Litlu-Fríðu og Bryndís Petra Bragadóttir nær því betri tökum á Fríðu fegurðardrottningu sem meira hallar undan fæti. Andstæða Fríðu er Þrúður, heimakær eiginkona Felix Bergsson í hlutverki Asláks barnastjörnu í íslensku mafíunni í Borgarleikhúsinu. DV-mynd ÞÖK Bárðar Killians sem Helga Braga Jónsdóttir leikur snilldarvel. Ættmóðirin, hin norskfædda Solveig, er sett til hliðar í uppsetningunni, þannig að Margrét Helga Jóhannsdóttir fékk ekki mörg tækifæri til að glansa. Ekki má gleyma Hönnu Maríu Karlsdóttur sem ger- ir Láru Killian trúverðuga, þó að ekki sé hún aðlað- andi persóna. Hún er í pólitík og lætur eigin hags- muni ganga fyrir öllu. Felix Bergsson er Áslákur barnastjarna sem gerist rannsóknarblaðamaður og Þröstur Leó Gunnarsson er braskarinn og fjárglæfra- maðurinn Bárður. Ari Matthíasson kemur mjög vel fyrir í hlutverki Halldórs sögumanns og Eggert Þor- leifsson, söngvarinn Kohbi Kalypsó, kryddar uppsetninguna með pott- þéttum leik og ágætum söng. Val- geir Skagfjörð leikur sauðdrukkinn píanóleikara, Golla bjútí, og hann sér líka um tónlistina í verkinu og velur vinsæl lög frá hverjum tíma til að tengja saman atriðin. Ótalinn er ólánsmaðurinn og smákrimminn Eyvi sem Ellert Ingimundarson leikur ágætlega. Samvinna þeirra Kjartans og Einars skilar eftir- minnilegri og stórbrotinni sýningu þar sem kraftur og hugmyndaflug leikhúsmannsins hendir hugmyndir skáldsins á lofti og gefur þeim líf á sviðinu. Leikfélag Reykjavíkur sýnir á stóra sviði Borgarleikhúss: íslensku mafíuna eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson Leikmynd: Axel Hallkell Jóhannesson Búningar: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir Lýsing: David Walters Tónlist: Valgeir Skagfjörð Leikhljóð: Baldur Már Arngrímsson Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson Leiklist Auður Eydal Tilkynningar Félagsstarf aldraðra Gerðubergi Á nýbyrjuðu ári, miðvikudag fimmtudag og fóstudag, spilað oj spjallað og heitt á könnunni. Leik fimiæfingar í Breiðholtslaug byrj; aftur fimmtudaginn 4. janúar k'. 9.10. Áramótabrenna Stjörnunnar í Garðabæ Kl. 20 leggur blysför af stað fi Hringtorgi fyrir ofan Hofsstaðaskó að brennunni á Arnarneshæð se tendruð verður kl. 21. Tapað fundið Fjallahjól tapaðist úr Kópavogi Blátt fjallagírahjól af gerðim Trek 820 var tekið af lóð Hjallaskó] í Kópavogi. Ef einhver hefur st hjólið er sá vinsamlegast beðinn a hafa samband við lögregluna Kópavogi eða Hjallaskóla. Heyrnartæki tapaðist Heyrnartæki tapaðist 28. desen ber í Breiðholti eða austurbæ Kópa vogs. Finnandi vinsamlegast hring í s. 564 1184. ?æst 20% ofslóttur! í umboðssölu Slysovorno FLUGCLDAR 20% ofsl. Við þvotta- stöðina 4 í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.