Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1995, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1995, Blaðsíða 34
38 minnisstæðustu atburðir á árinu 1995 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1995 Hafsteinn Númason: „Vitanlega eru þaö slysin fyrir vestan sem standa upp úr í mínum huga. Við erum að reyna að byggja okkur upp og koma okkur á réttan kjöl á ný eftir hörmungarn- ar í Súðavík. Það höfum við getað með góðri hjálp og erum þakklát aliri þjóðinni," segir Hafsteinn Númason. Hann segist vonast til þess að reynt verði að ljúka þeim málum með sóma sem upp hafa komið í kjölfar slysanna á Vest- fjörðum. „Ég er ánægður með að eftirlit skuli vera komið á hendur Veður- stofunni því heimamenn eru ekki færir um að halda utan um þessi mál. Ég vona að ráðamenn þjóðar- innar vakni upp af þvi að vera að neyöa fólk til þess að búa þar sem það vill ekki búa.“ Margrét Sóley Vilhjálmsdóttir: Fjallkona 17.júní „Það er Grikk- landsferð mín á árinu, hún var . yndisleg í alla staði og ég er staðráðin í því að fara þangað aftur sem fyrst,“ sagði Margrét Sóley Vil- hjálmsdóttir leik- kona þegar hún var spurð hvers hún minntist helst frá árinu 1995. „Auðvitað man maður líka að það var mikið af hörmungum á ár- inu. Hjá sjálfri mér hefur verið mikið að gera og sú upplifun að vera fjall- kona 17. júní stendur upp úr, það er þægileg minning. Á nýja árinu vænti ég þess að fá að vinna eins og ég geri. Svo von- ast ég bara til að taka mér sumar- frí.“ -ÞK Páll Óskar Hjálmtýsson: Annasamt ár „Ég mun muna eftir 1995 sem ár- inu þegar ógeðs- lega mikið var að gera; margir vel heppnaðir tónleik- ■ ar með Millunum og öll söngferða- lögin tO Þýska- lands, Uxi ’95, Súperstar í Borgarleikhúsinu, mamma mín dó, platan mín fyrir jólin en henni fylgdi eitt ýktasta vinnuálag sem ég hef lent í. 1996 vona ég að plötuupptökurn- ar í New York gangi vel og að nýja árið gefi mér nú almennilegan kærasta, því það er svolítið sem ég hef aldrei reynt. Mig langar svo að lyfta mér á kreik.“ -ÍS Garðar Thor Cortes: Árið var mér gott „Það er margt minnisstætt frá árinu. Kærastan mín og ég tókum saman. Ég tók þátt í sýningunni Saga úr vestur- bænum í Þjóðleik- húsinu. Þetta hef- ur verið mjög gott ár hjá mér og allt hefur gengið mjög vel,“ sagði Garðar Thor Cortes söngnemi þegar hann var spurður hvað honum væri minnis- stæðast frá árinu sem er að líða. „Svo frétti ég á árinu að bæði systir mín og frænka ættu von á barni og það er mjög skemmtilegt. Á nýja árinu ætla ég bara að halda áfram í Söngskólanum og verða betri en ég er.“ -ÞK Vignir Jóhannsson: Flutningurinn frá Bandaríkjunum „Það sem upp úr stendur á ár- inu sem er að líða er náttúrlega bú- ferlaflutningur minn frá Banda- ríkjunum til ís- lands og þær miklu breytingar í lífi mínu sem því fylgdu. Frá því að ég kom hing- að til lands er ég nú í mun fjöl- breyttari störfum enda vildi ég endilega fá einhverja tilbreytingu í lífið. Ég er bjartsýnn á batnandi hag landsmanna með batnandi ár- ferði og vænti mikilla framfara hérlendis. Stórframkvæmdir eru nú margar á byrjunarstigi á íslandi og þær eiga eftir að koma íslend- ingum vel. Ég vonast til þess að meiri og betri listir verði á landinu á komandi ári og persónulega vildi ég gjarnan verða hamingjusamari á næsta ári.“ -ÍS Óskar Magnússon: Hagstætt ár í viðskiptum „Mér er nú of- arlega í huga að árið hefur verið hagstætt í við- skiptum. Meiri bjartsýni er ríkj- andi meðal fólks,1 sagði Óskar Magnússon, for- stjóri Hagkaups, þegar hann var beðinn að nefna minnisstæðustu atburði frá árinu. „Af sjálfum mér eru mér ofar- lega í huga ýmis kynni mín af landbúnaðarmálum, bæði í orði og verki. Á nýja árinu vænti ég þess að það verði töluvert mikill uppgang- ur og að góður friður náist á vinnumarkaði öllum til blessunar." -ÞK Arngrímur Jóhannsson: Vænti stöðugleika áfram „Yfirhöfuð gekk árið mjög vel hjá fyrirtækinu. Það stendur upp úr að við lukum greiðsl- um á stóru júmbóþotunni okkar. Eins þykir mér Bahamaflug- ið merkilegt og hvað margir ákváðu með stuttum fyrirvara að fara,“ segir Arngrímur Jóhannsson, flugstjóri og fram- kvæmdastjóri Atlanta. „Á komandi ári vænti ég áfram- haldandi stöðugleika í íslensku efnahagslífi." -JJ Þórsteinn Ragnarsson: Hamfarir að baki - hagvöxtur fram undan „Þessu er fljótsvarað. Ég held að hver og einn sem lítur um öxi hljóti fyrst og fremst að minnast hörmunganna í Súðavík og á Flat- eyri. Þá er sam- hugur þjóðarinn- ar á þeim ögurstundum eftirminni- legur. Ég vona svo að almættið verndi þjóðina gegn öðrum eins hamför- um á komandi timum. Að öðru leyti held ég að ástæða sé til bjart- sýni á næstu árum, ekki síst efna- hagsmálum. Það skulum við a.m.k. vona.“ -KGK Baldur Vilhelmsson: Snjóflóðin Þessu er fljótsvarað. Minnisstæðastir eru mér þessir voðaviðburðir sem hér hafa orðið á Vestfjörum á árinu, snjóflóðin á Flateyri og í Súðavík. Við prestarnir hér í prófastsdæminu höfum nú nýlega haldið fund um áfallahjálp þar sem við ræddum um störf okkar vegna snjóflóðanna og hvað mætti helst betur fara við slikar aðstæður. Um framtíðina, vinur minn, það veit nú náttúrlega enginn. Þó bind ég helst vonir við varanlegan frið í fyrrverandi Júgóslavíu. Það er ekki seinna vænna að menn fari þar að slíðra sveröin." -KGK Þórarinn V. Þórarinsson: Uppsveiflan hefur tekið við „Atburðirnir á Flateyri og í Súðavík voru sorglegir og verða manni minnis- stæðir þegar mað- ur rifjar upp at- burði ársins. Óhjákvæmilega hafa vaknað upp spurningar um skipulag byggðar hér á landi. Hvað þjóðlífið varðar þá er ánægjulegt hversu vel hefur tekist að tryggja stöðugleikann. Niðursveiflunni er lokið og upp- sveiflan hefur tekið við. Kjara- stefna síðustu fimm ára hefur skil- að árangri,“ segir Þórarinn V. Þór- arinsson, framkvæmdastjóri VSÍ. „Ég vænti þess að komandi ár verði gott í efnahagslegu tilliti. Það eru allar horfur á því að við sigl- um áfram í réttum takti. Hins veg- ar held ég að samskipti íslands og ESB verði miklu meira í brennid- epli heldur en á árinu sem er að líða.“ -kaa Finnur Ingólfsson: Undirskrift álsamnings ,.í mínum huga------ er það ótvírætt minnisstæðasti at- burður ársins þegar samningur- inn um stækkun álversins í Straumsvík var undirritaður. Með honum tel ég að lagður hafi verið grunnur að auk- inni hagsæld í framtíðinni. Næsta ár verður okkur vonandi betra en undangengin sjö ár, ein- faldlega vegna þess að mönnum er að takast að byggja hér upp at- vinnulífið. Ég vona að það verði gott ár og ég vænti því fyrst og fremst aukinnar hagsældar af kom- andi ári.“ -S.dór Jón Jónsson: Jákvæðar boranir „Ætli jarðbor- anirnar undir Eyjafjöllum séu mér ekki minnis- stæðastar frá ár- inu sem er að líða. Það höfðu fáir aðrir trú á þessum borunum en ég og heimamenn. Árangurinn var mjög jákvæður og væntanlega munu menn njóta góðs af því í framtíðinni, ekki síst á Skógum," segir Jón Jónsson jarðfræðingur. „Á komandi ári vona ég að ráða- menn hafi vit á því að fela sérfræð- ingum að taka viðeigandi ákvarð- anir á öllum sviðum. Þá vonar maður að stöðugleiki veröi í þjóðfé- laginu og að sanngirni og réttlæti fái að vera í fyrirrúmi." -kaa Guðmundur J. Guðmundsson: Steindauð stjórnarandstaða „Ég tók ákvörð- un um að hætta sem formaður Dagsbrúnar á þessu ári. Ætli það verði ekki það minnisstæð- asta frá árinu. Á almennu nótun- um þá finnst mér eftirtektarverðast að það er engin stjórnarandstaða í landinu. Hún er steindauð nema þegar Jón Baldvin talar eitthvað um Brussel,“ segir Guðmundur J. Guðmundsson, for- maður Dagsbrúnar. „Ég vænti góðra hluta á kom- andi ári og öflugrar samstöðu verkalýðsfélaga. Vonandi förum við að nálgast nágrannalönd okkar í lífsgæðum þannig að það dragi úr landflóttanum. Að vísu gerist það ekki í einu stökki en í áfóngum.“ -kaa Ólafur B. Ólafsson: Góður áfangi að ná sátt „Sú niðurstaða sem náðist í launanefndinni í lok nóvember er mér efst í huga. Vegna ákvarðana Alþingis í launa- málum var búið að ganga mjög mikið á á vinnu- markaðinum í allt haust. Við horfðum upp á mikla ólgu og óá- nægju. Það var því góður áfangi að menn náðu sátt að meirihluta til,“ segir Ólafur B. Ólafsson, formaður Vinnuveitendasambands íslands. Á komandi ári segist Ólafur von- ast til þess að forsendur Þjóðhags- stofnunar standist varðandi verð- lag sjávarafurða og að það takist að ná þeim afla utan landhelginnar sem reiknað var með. „Þá erum við í bærilega góðum málum ef það fæst til viðbótar við þær fram- kvæmdir sem búið er að ákveða." -kaa Sigurður T. Sigurðsson: Málaferlin rísa hæst „Kjarasamning- arnir frá því í febrúar og það ferli sem fylgt hef- ur á eftir er mér minnisstæðast frá því ári sem núna er að líða. Fram- koma launanefnd- ar í málinu og málaferlin í kjölfar uppsagnar Hlif- ar er líklega það sem rís hæst á þeim vettvangi sem ég starfa á,“ segir Sigurður T. Sigurðsson, for- maður Verkalýðsfélagsins Hlifar í Hafnarfirði. Á næsta ári væntir Sigurður þess að þjóðfélagið rétti hlut þeirra lægst launuðu, þeirra sem sannan- lega eru með undirmálslaun. Ein- ungis þannig megi koma í veg fyrir langvinn verkfoll á árinu 1997. „Ef við vinnum ekki heimavinn- una okkar vel og byrjum á því að rétta hlut hinna lægst launuðu þeg- ar i byrjun komandi árs stefnum við í hyldýpi sem við höfum ekki efni á.“ -kaa Ólafur Arnfjörð Guðmundsson: Sonur á árinu „Mér er minnis- stæðast að okkur hjónum fæddist sonur á árinu, nánar tiltekið 30. maí,“ segir Ólafur Arnfjörð Guð- mundsson, fyrr- verandi bæjar- stjóri Vestur- byggðar. „Á nýju ári óska ég öllum lands- mönnum árs og friðar.“ -JJ Árni Sigfússon: ' Miklar andhverfur „Minnisstæðast á þessu ári eru hinar miklu and- hverfur sem koma fram í landinu okkar. Það hrifsar til sin mannslíf en það gefur okk- ur ómetanlega náttúru og mann- líf. Það hefur.náðst góður árangur í ríkisbúskapnum en heldur hefur sigið á ógæfuhliðina í borgarrekstr- inum,“ segir Árni Sigfússon, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. „Ég vænti þess að við náum betri tökum á sjálfum okkur, nátt- úrunni og umheiminum á komandi ári. Við erum reynslunni ríkari um nábýlið við náttúruöflin og við eig- um að vera betur fær um að nýta þekkingu okkar til þess að auka lífsgæðin. Með aukinni samkeppni mun kaupmáttur okkur aukast. Það mun birta í ríkisfjármálun- um.“ -kaa Alfreð Gíslason: Snjóflóðin fyrir vestan „Snjóflóðin í Súðavík og á Flat- eyri koma fyrst í hugann þegar horft er til baka yfir árið, og þeir sorglegu atburðir sem þar áttu sér stað. Hvað mig sjálfan varðar hef- ur árið verið gott, bæði í mínu fjöl- skyldulífi og hjá KA ef ég horfi til handboltans þar sem bikarmeist- aratitil KA ber hæst,“ segir Alfreð Gíslason, athafnamaður og þjálfari KA á Akureyri. „Ég er bjartsýnn á að komandi ár verði gott ár. Ég sé t.d. fyrir mér að atvinnulífið hér á Akyur- eyri verði áfram á uppleið eins og verið hefur. Ég er einnig bjartsýnn á gengi okkar KA-manna á hand- boltavellinum og sé enga ástæðu til svartsýni." -gk Anna Kristín Gunnarsdóttir: Engin bjartsýni á landsbyggðinni „Veðurfarið sl. vetur er mér ofar- lega í huga og þær hörmungar sem því fylgdu. Einnig hvað sum- arið kom seint og svo aftur þessar hörmungar á Flat- eyri í haust," seg- ir Kristín Anna Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi á Sauðárkróki. „í öðru lagi tók ég þátt í kosn- ingabaráttu fyrir alþingiskosning- arnar. Þar setti veðurfarið einni'g sinn svip á og olli mikilli óvissu um alla tilhögun. Flutningur grunnskólans yfir til sveitarfélaganna er mér ofarlega í huga. Mér finnst ekki hafa vérið unnið að því máli af eins miklum krafti og hefði þurft að gera og ég óttast það að ríkisvaldið ætli að koma þessum málaflokki yfir á sveitarfélögin án þess að leggja til þess nægilegt fjármagn. Ég er kvíðin fyrir næsta ári og sé enga ástæðu fyrir landsbyggðar- fólk að vera bjartsýnt. Það er ýmis- legt sem bendir til þess að fjár- magninu eigi eingöngu að beina á suðvesturhornið þar sem allar framkvæmdir eiga að verða og viö sjáum það í fjárveitingum að lands- byggðin er svelt. Allt sem gæti ver- ið sem mótvægi við þessum miklu framkvæmdum á suðvesturhorninu er skorið niður, vegafé, flugvalla- framkvæmdir og annað.“ -gk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.