Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1995, Side 11
TIV LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1995
íennmg
Þrjár af fjórum leikkonum í fyrsta ieikriti Lundúnaleikhópsins, Margréti miklu. Frá vinstri Drífa Arnþórsdóttir, Vala
Þórsdóttir og Ágústa Skúladóttir. Á myndina vantar Brynhildi Björnsdóttur.
Mynd Dagur Gunnarsson
Lundúnaleikhópurinn í jólafríi á íslandi:
Kostum kvenna snúið
upp í andhverfu sína
- í leikritinu Margréti miklu eftir Kristínu Úmarsdóttur
Föstudaginn 5. janúar næstkom-
andi gefst íslenskum leiklistarunn-
endum kostur á að sjá nýjung í
Tjarnarbíói þegar Lundúnaleikhóp-
urinn setur upp leikritið Margréti
miklu eftir Kristínu Ómarsdóttur.
Þetta er fyrsta uppfærsla leikhóps-
ins á sviði en hann var stofnaður í
London síðasta vetur af Önnu Hildi
Hildibrandsdóttur. Tilefnið var
lokaverkefni Önnu í útvarpsvinnslu
við Lundúnaháskóla og hóaði hún
nokkrum íslendingum saman, sem
numið hafa leiklist í Bretlandi, til
að flytja útvarpsleikrit. Anna fékk
Kristínu til að semja leikrit sem
hlaut nafnið Myndir úr lífi Möggu
og var flutt á ensku. Kristín hefur
nú endurgert verkið til flutnings á
leiksviði. Að sögn Önnu Hildar er
ætlunin að flytja Margréti miklu á
ensku í London á komandi ári.
Lundúnaleikhópurinn er senni-
lega fyrsti íslenski atvinnuleikhóp-
urinn sem starfræktur er í útlönd-
um. Auk Margrétar miklu standa
yfir viðræður við Svein Einarsson,
fyrrum þjóðleikhússtjóra, um að
leikgera einhverja af íslendingasög-
unum til flutnings á ensku í
London.
Eins og áður sagði verður Mar-
grét mikla frumsýnd 5. janúar. Eftir
það verða 8-10 sýningar á jafnmörg-
um dögum eða þar til leikhópurinn
verður að hverfa til náms og starfa
í Bretlandi og víðar eftir jólafríið.
Margréti miklu leikur Drífa Arn-
þórsdóttir en önnur hlutverk eru í
höndum Völu Þórsdóttur, Brynhild-
ar Björnsdóttur og Ágústu Skúla-
dóttur. Leikstjóri er Bjöm Gunn-
laugsson og Þorgerður Elín Sigurð-
ardóttir sér um búninga og leik-
mynd.
Allir numið í Bretlandi
Aðstandendur leikhópsins hafa
allir útskrifast frá breskum leiklist-
arskólum síðustu misseri. Drífa út-
skrifaðist síðastliðið vor og fékk
strax hlutverk hjá New End Theatre
í leikriti Friedrichs Dúrrenmatts,
Marriage of Mr. Mississippi. Ágústa
Skúladóttir vinnur um þessar
mundir jafnframt að uppsetningu á
enskri leikgerð á skáldsögu Einars
Más Guðmundssonar, Eftirmála
regndropanna, með leikhópi sínum,
Gargoyle Theatre. Vala Þórsdóttir
útskrifaðist frá leiklistardeild há-
skólans í Leeds sl. vor og hefur síð-
an ferðast með alþjóðlegum leikhópi
til Spánar sem starfaði þar með
börnum. Brynhildur hefur starfað á
íslandi síðasta árið eftir nám í Bret-
landi, m.a. tekið þátt í uppfærslimni
á Súperstar í Borgarleikhúsinu.
Leikstjórinn, Björn Gunnlaugs-
son, útskrifaðist frá Drama Studio
síðastliðið sumar. Eftir það hefur
hann m.a. leikstýrt verki á Edin-
borgarhátíðinni með leikhópnum
Pharma Theatre Company. Bún-
inga- og leikmyndahönnuðurinn
Þorbjörg Elín hlaut menntun sína i
Nottingham og hefur starfað á ís-
landi. Anna Hildur lauk fjölmiöla-
námi frá Lundúnaháskóla sl. vor en
þar lagði hún einmitt áherslu á út-
varpsvinnslu. Hún starfar við ýmis
lausaverkefni í fjölmiðlun i London,
auk þess að vera fréttaritari Ríkis-
útvarpsins í Bretlandi.
Kaldhæðni undir sak-
leysislegu yfirborði
Um leikritið segir m.a. í kynn-
ingu frá Lundúnaleikhópnum:
„Leikritið fjallar um unga konu sem
leiðist seint að veita meðborgurum
sínum góð ráð og aðstoð, gildir þar
einu hvort rætt er um drykkjuskap,
eyðni, munaðarleysi eða framhjá-
hald. Eins og í mörgum fyrri verka
sinna leikur Kristín sér að því að
láta raunveruleikann og fantasíuna
mætast og skapar þannig aðstæður
fyrir frumleg efnistök. í þessu verki
er öllu því sem „almennt" er talið til
kosta kvenna; gjafmildinni, örlæt-
inu og hugulseminni, snúið upp í
andhverfu sína, með kaldhæðni
undir sakleysislegu yfirborðinu.
Margrét mikla vekur fólk til um-
hugsunar um mannlega breyskleika
um leið og hún sýnir háalvarlega
hluti í grátbroslegu ljósi.“
Kristín Ómarsdóttir er ekki að
skrifa leikrit í fyrsta sinn. Sem leik-
ritahöfundur gat hún sér fyrst orð
þegar hún vann til verðlauna í leik-
ritasamkeppni Þjóðleikhússins árið
1985 fyrir verk sitt, Drauma á
hvolfi. Síðan hefur hún skrifað
verkið Hjartatrompet sem íslenska
leikhúsið settí upp og gert leikgerð
fyrir Nemendaleikhúsið af Lísu 1
Undralandi. Þekktust er hún þó fyr-
ir skáldsögur sínar og ljóð en
nýjasta skáldsagan, Dyrnar þröngu,
hefur verið tilnefnd til Bókmennta-
verðlaunanna 1995 í flokki fagur-
bókmennta.
Miðaverði á Margréti miklu í
Tjarnarbíói verður stillt í hóf og fá
námsmenn og atvinnulausir sér-
stakan afslátt. Jafnframt verður
veittur hópafsláttur þegar 10 eða
fleiri kaupa miða saman.
-bjb
Fáðu Þér kraftmikla
ö)7)/|ncrj:'g KR-flugelda og styrktu
íÞrát,as,ar1barna °9
ylureKLr unglinga um leið.
L Litla tertuveislan |
vHundrub skota, minnir á
Glasqow á gó&um degi!
2.500 kr.
Þú sparar 300 kr.! W- fr ^
^tóra tertuveislan
Stórkostleg sprengi-
og Ijósaveisla sem gerir
Marsbúa græna af öfund!
M 4.300 kr.
Þú sparar 500 kr.!
Langflottastir!
V; Fjölbreyttasta úrval '
landsins af þýskum
risarakettum.
, /Á' ' x Ver&lækkun!
; 7 ■' , W %
Vinsælustu kínversku
\ kökurnar lækka frá því í fyrra.
1 Barnapakki 1.300 kr.
Skemmtilegur pakki fyrír
upprennandi stjörnúr! .
2 Sparipakki 1.900 kr.
Allt sem springur
- milli himins og jaröar!
3 Bæjarins besti 2.800 kr.
Einn meö öllu
- og aðeins meira en þab!
4 Tröllapakki 5.990 kr.
Geimferðaáætlun
fjölskyldunnar
hefst með þessum pakka!
Stórflugeldasýning