Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1995, Page 21
DV LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1995
21
í gegnum tíðina hefur fólki
þótt spennandi að lesa ára-
mótaspár. Nokkur tímarit
hér á landi hafa birt ár hvert
slíkar spár sem vakið hafa
forvitni lesenda. Það var
sennilega völvuspá Vikunnar
fyrir árið 1973 sem vakti
hvað mesta athygli enda
reyndist völvan með afbrigð-
um sannspá þegar hún sagði
til um eldgos í Vestmannaeyj-
um það árið.
í rauninni hafa margar
þessar áramótaspár undan-
farinna ára verið nokkuð
mikið almenns eðlis. Leitt er
getum að vondu veðri hér og
þar um landið, miklum halla-
rekstri ríkissjóðs, að sjóslys
verði tið, vorið gott en sum-
arið ekkert sérstakt, líilegt
verði í kringum einn stjórn-
málaflokk en deilur í öðrum
og þannig mætti lengi telja
upp það sem völvurnar segja
á hverju einasta ári. Stund-
um kemur þó fyrir að
völvurnar reynast sannspá-
ar. Þessar spár eru þó meira
til gamans gerðar og fólk ætti
að sjálfsögðu að taka þeim
sem slíkum.
Spáð fyrir konum
VÖLVUSFÁ
ÞEIR FLÚÐU TIL ÍSLANDS
HÁTÍÐARMATUR
jÓLAGETRAUN .,
BRÚÐKAUP
SMÁSAGA
PEYSUR §
Nudd og andleg rækt
Evrópa eftir 2000
Undrin í Fatíma
Kristall, tónn og litur
Á Heiltin jarðarinnar
já. Viírun Salóme
Skakkur póll
Kinesiologi
Fjallagrös
-i' i ^fiðrildið
Völvuspaín 1996
draga sig fljótlega út og kosið
verður um hin þrjú.
Annar karlmaðurinn, sá
eldri, verður kosinn forseti og
þjóðin verður mjög hreykin af
þeim hjónum og sátt verður
um kosninguna."
Ný stjarna
„Að minnsta kosti þrenn
eftirsótt tónlistarverðlaun
eiga eftir að falla henni Björk
okkar í skaut á árinu og ein
þeirra öðrum mikilsverðari.
Þeim veitir hún viötöku vest-
anhafs og bætir þannig enn
stööu sína í poppheiminum og
það svo um munar.
Önnur íslensk söngkona
dregur að sér athygli erlendra
hljómplötuútgefenda á næsta
ári. Frami hennar verður ekki
skjótur og kannski ekki eins
stórfenglegur og Bjarkar en
ánægjulegur eigi að síður. Hér
sýnist mér ung og hnellin
stúlka eiga í hlut,“ segir völva
Vikunnar.
„Stjarna Bjarkar verður
áfram rísandi á árimr.'það er
mikið að gerast í kringum
hana. Við munum eignast
nýja stjörnu á heimsmæli-
kvarða I tónlist af léttara tag-
inu,“ segir völva Nýrra tíma.
Amy Engilberts hefur spáð
um komandi ár í timaritinu Nýju
lífi. Að þessu sinni tók hún aðeins
fyrir konur og spáði um gengi nokk-
urra íslenskra kvenna á næsta ári.
Sjálfsagt hafa þær allar haft gaman
af.
Á undanförnum árum hefur spá
Amyar þó verið almenns eðlis og
þetta sagði hún t.d. í spá sinni fyrir
árið 1993:
„Hvað varðar framkvæmdir verð-
ur fremur jákvæður tími fyrir land
og þjóð frá maí 1993 og út árið. Það
verður þó engin áberandi breyting
til batnaðar í efnahagslifi þjóðarinn-
ar árið 1993. Skattbyrðin heldur líka
áfram að þyngjast næstu tvö árin -
ekki sist hjá þeim efnameiri - og
ekkert lát verður á hörkudeilum um
blaða- og bókaútgáfu og menningar-
mál á næsta ári. Utanríkismál verða
áfram á dagskrá, innan þings og ut-
an, og samskiptin við erlendar þjóð-
ir verða okkur hagstæð þrátt fyrir
að ákveðin spenna fylgi þeim á
tímabili. Búast má við breytingum í
utanríkisþjónustunni. Einnig er lík-
legt að nýr maður setjist í stól utan-
ríkisráðherra árið 1993.“
í þessari sömu spá segir Amy að
mál Sophiu Hansen verði ekki til
lykta leitt fyrr en árið 1994 eða 1995
„en þá mun Sophia upplifa gífurleg-
an létti sem trúlega tengist dætrun-
um tveimur“.
„Atvinnuleysi heldur áfram að
vera vandamál á næstu tveimur,
þremur árum. Það verður hins veg-
ar alls ekki viðvarandi árum eða
áratugum saman eins og hjá mörg-
um öðrum þjóðum. Strax í lok
næsta árs má til dæmis merkja já-
kvæða þróun þótt ekki verði um
neina stökkbreytingu að ræða.“
Ári á undan
Og Amy Engilberts hélt áfram:
„Ákveðin uppstokkun innan ríkis-
stjómarinnar er afar líkleg - annað-
hvort með stólaskiptum eða á þann
hátt að einhverjir ráðherrar hverfi
á braut og nýir komi í staðinn.
Af ráðherrunum gengur Jóhönnu
Sigurðardóttur félagsmálaráðherra
langbest að vinna að sínum mála-
flokkum þar sem hún hefur meiri
seiglu og úthald en kollegamir. Hún
mun líka njóta meira fylgis meðal
þjóðarinnar en hinir ráðherrarnir.
Annars verður viss togstreita og
valdabarátta í gangi innan ríkis-
stjómarinnar á næsta ári - fyrir
utan gífurlega erfiðleika hennar við
að halda velli.“ - Ef menn líta til
baka geta þeir fundið út að þessi spá
Amyar kom í raun einu ári of fljótt.
Það var árið 1994 sem mestu stóla-
skiptin urðu í fyrrverandi ríkis-
stjórn og einmitt þá stofnaði Jó-
hanna Sigurðardóttir Þjóðvaka."
Stórsigur Jóhönnu
í Völvuspá Vikunnar fyrir árið
1995 er Jóhanna Sigurðardóttir enn
fyrirferðarmikil. „Þjóðvaki, samtök
Jóhönnu Sigurðardóttur, vinnur
stórsigur þótt ekki verði hann jafn-
stór og skoðanakannanir undan-
genginna vikna gefa til kynna. Kjós-
endur fagna stefnu sem miðar að
jöfnun lífskjara, jafnrétti kynjanna
og minni skattbyrði láglaunafólks.
Þeir flykkja sér um
Jóhönnu og tryggja samtökum
hennar öruggt fylgi. Þeir háu herr-
ar, sem eru hræddir við hana núna,
eiga eftir að verða hræddari," segir
völvan.
„Mikill öldugangur verður í
fremstu röðum Alþýðuflokks og
breytingar verða á forystu flokks-
ins. Völvunni sýnist Jón Baldvin
fara frá sem formaður flokksins,
jafnvel fyrir kosningar. Hans bíði
þá álitlegt embætti vestanhafs."
„Þrír stjórnmálamenn verða
teknir fyrir á árinu og verk þeirra
rannsökuð til hlítar. Einn þeirra fer
frá í kjölfarið þar eð honum verður
ekki vært lengur eftir að upp um
hann kemst."
Skuldastaða heimilanna breytist
lítið til batnaðar á árinu. „Þar er
því miður ekki gleðitíðinda að
vænta fyrr en í ársbyrjun ’96.
Skuldastaða heimilanna er mjög erf-
ið en fólk mun taka öðruvísi á þeim
málum héðan í frá og jákvæðar
breytingar eiga sér stað innan frá.“
Það vekur kannski athygli að ekki
var að finna í þessari völvuspá neitt
um tvö mannskaðasnjóflóð sem
urðu á árinu 1995.
Árið 1996
Völvurnar virðast nokkuð bjart-
sýnar fyrir árið 1996. „Það er vor í
lofti,“ segir völva Vikunnar. „Árið
1996 leggst betur í mig en 1995.
Bjartsýni mun aukast í þjóðfélag-
inu, bæði hjá almenningi og fyrir-
tækjum, sérstaklega síðsumars og
seinni hluta ársins," segir völva
tímaritsins Nýrra tíma. Það er stikl-
að á stóru í þessum tveimur spám
og við grípum niður í þær þar sem
fjallað er um sömu hluti.
Völva Vikunnar segir: „Þjóðvaki
Jóhönnu Sigurðardóttur verður við
það að líða undir lok í vor eftir ófar-
ir sem eru um það bil að bresta á.“
Og völva Nýrra tíma segir: „Jó-
hanna Sigurðardóttir mun láta mik-
ið að sér kveða, sérstaklega seinni
hluta ársins. Það veröur mikið um
að vera í pólitíkinni í nóvember."
Völva Vikunnar: „Hinn nýi for-
ystumaður Alþýðubandalagsins,
Margrét Frímannsdóttir, verður
ekki áberandi sem flokksleiðtogi
fyrsta kastið. í rauninni ekki fyrr
en næstu þingkosningar draga hana
fram í dagsljósið og þá á hún eftir
að valda sínum mönnum nokkrum
vonbrigðum."
Nýir tímar: „Margrét Frímanns-
dóttir á eftir að láta mjög margt af
sér leiða á næsta ári í einhverju
ákveðnu stóru verkefni sem er fram
undan.“
Karlmaður á Bessastaði
Báðar þessar spákonur halda því
fram að karlmaður verði næsti for-
seti íslands. Völva Vikunnar segir:
„Hann hefur mikið látið að sér
kveða. Verið umræddur fyrir störf
sín. Afar myndarlegur maður.“
Völva Vikunnar segir að fimm
muni sækjast eftir að komast á
Bessastaði og það verði afar tvisýn
keppni milli tveggja.
Völva Nýrra tíma segir: „Fjórir
frambjóðendur verða til forseta-
kosninga, þrír karlmenn og ein
kona, en einn karlmaðurinn mun
Jarðskjálftar
Skiptar skoðanir eru meðal völ-
vanna um náttúruhamfarir á næsta
ári.
„En mér þykir tímabært að
kynna almenningi hvernig brugðist
er við náttúruhamförum. Við
hverju megi búast þegar miklir
landskjálftar ríða yfir þannig að
fólk verði yfirvegaðra þegar ósköp-
in loks dynja yfir. Það verður á ein-
staklega fallegu kvöldi á næstu tólf
til átján mánuðum," segir völva
Vikunnar.
„Jarðhræringar munu verða eins
og undanfarin ár, þó ekki stórir
jarðskjálftar þar sem skemmdir
verða. - Reyndar verður einn sterk-
ur jarðskjálfti, mælt á Richter, en
enginn skaði verður af völdum
hans,“ segir völva Nýrra tíma.
„Ég er ekki kvíðin yfir veðrinu
miðað við undanfarin ár en það eiga
eftir aö koma gífurlega mikil stór-
veður. Mikið rok verður a.m.k.
tvisvar, annað í febrúar þar sem
miklar skemmdir verða á mann-
virkjum. Það verður mikill kostnað-
ur vegna staura eftir veturinn. Það
eiga eftir að koma snjóflóð en ég
held að það verði ekki mannskaði.
Ég vona að guð gefi að svo verði.
Hér fyrir sunnan verður oftar sól
en ekki í sumar, öfugt miðað við
sumarið í fyrra. Það verður mjög
gott veður, ég hlakka mjög mikið til
næsta sumars," segir völva Nýrra
tíma.
Stjarna Bjarkar skín sem aldrei fyrr.
Karlmaður verður næsti forseti á Bessastöðum.
Mun Þjóðvaki Jóhönnu Sigurðar- Það geta farið í hönd breyttir tímar
dóttur líða undir lok á næsta ári? fyrir Margréti Frímannsdóttur.