Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1995, Blaðsíða 44
48
afmæli___________
Hrefna Ólafía
Hrefna Ólafía Arnkelsdóttir,
deildarstjóri viö Landsbanka ís-
lands, Laugavegi 77, til heimilis að
Markarvegi 14, Reykjavík, verður
fimmtug á morgun.
Starfsferill
Hrefna fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í Miðtúni, við Njáls-
götu og við Laugalæk. Hún gekk í
Austurbæjarskólann og Laugarnes-
skólann og lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Vesturbæjar.
Skömmu eftir gagnfræðapróf
hóf Hrefna störf við Landsbanka
íslands að Laugavegi 77 og hefur
starfað þar síðan.
Fjölskylda
Hrefna hóf sambúð 1971 með
Kristjáni Smith, f. 8.7. 1942, pípu-
lagningameistara og nú starfs-
manni hjá Húsasmiðjunni. Hann
er sonur Axels Smith pípulagn-
ingameistara og Svanhvítar Smith
húsmóður sem bæði eru látin.
Sonur Hrefnu og Kristjáns er
Kristján Ólafur Smith, f. 17.8. 1974,
nemi i Reykjavík.
Börn Kristjáns frá fyrra hjóna-
bandi eru Laufey, f. 1964, húsmóð-
ir í Reykjavík, gift Oddi Víðissyni
arkitekt; Svanur, f. 1967, rafvirki í
Reykjavík.
Systkini Hrefnu eru Katrín, f.
23.5. 1947, félagsráðgjafi, búsett í
Lundi í Sviþjóð; Ragnheiður, f.
15.10. 1948, fjámálastjóri hjá Um-
búðamiðstöðinni hf. í Reykjavík;
Einar Þorkell, f. 13.3. 1954, d. 9.10.
1993, háskólanemi; Guðmundur
Bjarni, f. 6.1. 1957, doktor í sál-
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1995 UV
Arnkelsdóttir
fræði og kennari við HÍ; Hrafn-
hildur, f. 7.5. 1961, tölvufræðingur
í Gautaborg í Svíþjóð.
Foreldrar Kristjáns: Arnkell
Jónas Einarsson, f. 15.10. 1920, d.
7.3. 1985, vegaeftirlitsmaður, og
Elín Ágústa Jóhannesdóttir, f.
23.12. 1921, iðnverkakona.
Ætt
Arnkell var bróðir Bjargar rit-
höfundar. Arnkell var sonur Ein-
ars, skrifstofustjóra Alþingis, Þor-
kelssonar, prests í Ásum í Skaft-
ártungu, Eyjólfssonar, prests í
Miðdalaþingum, Gislasonar,
prests á Breiðabólstað, Ólafssonar,
biskups í Skálholti, Gíslasonar.
Móðir Þorkels var Guðrún Jóns-
dóttir, prests og skálds á Bægisá,
Þorlákssonar. Móðir Einars var
Ragnheiður Pálsdóttir, prests í
Hörgsdal, Pálssonar. Móðir Arn-
kels var Ólafla Guðmundsdóttir, b.
í Hörgsholti í Hrunamannahreppi,
Jónssonar.
Elín er dóttir Jóhannesar, b. að
Brekkum, Stígssonar, b. þar Jóns-
sonar, b. þar Árnasonar. Móðir
Stígs var Ragnhildur, systir Guð-
nýjar, langömmu Ragnhildar,
móður Jóns Múla og Jónasar
Árnasona. Ragnhildur var dóttir
Jóns, b. í Höfðabrekku í Mýrdal,
Jónssonar, sýslumanns í Holti í
Mýrdal, Sigurðssonar. Móðir Jóns
á Höfðabrekku var Kristín Ey-
vindsdóttir, duggusmiðs og klaust-
urhaldara á Kirkjubæjarklaustri,
Jónssonar. Móðir Jóhannesar var
Jóhanna Guðmundsdóttur, b. á Á
á Síðu, Eyjólfssonar og Þorbjargar
Jónsdóttur.
Hrefna Ólafía Arnkelsdóttir.
Móðir Elínar var Helga, dóttir
Hróbjarts Hróbjartssonar, sjó-
manns frá Eyrarbakka, og k.h.,
Bjarghildar Magnúsdóttur.
Hrefna og Kristján taka á móti
ættingjum og vinum að heimili
sínu, fóstudaginn 5.1. nk., milli kl.
20.00 og 23.00.
Kristinn
Sigurðsson
Kristinn Sigurðsson skrifstofu-
maður, Strandgötu 26, Neskaup-
stað, varð sextugur á jóladag.
Starfsferill
Kristinn fæddist í Reykjavik og
ólst þar upp. Hann stundaði nám
við Austurbæjarskólann, við Iðn-
skólann í Reykjavík 1954-56,
stundaði vélvirkjanám i Vélsmiðj-
unni Héðni 1953-57 og nám við
Vélskóla íslands 1958-61.
Kristinn var verksmiðjustjóri
hjá Síldarvinnslunni hf. í Nes-
kaupstað 1962-86 en hefur siðan
starfað á skrifstofu fyrirtækisins.
Fjölskylda
Kristinn kvæntist 11.10. 1962
Lilju Huldu Auðunsdóttur, f. 27.5.
1944, rannsóknartækni. Hún er
dóttir Auðuns Þórðarsonar, sjó-
manns í Neskaupstað, sem er lát-
inn, og Pálínu Ásgeirsdóttur hús-
móður.
Börn Kristins og Lilju Huldu
eru Auður Helga, f. 8.3.1963, fóstra
í Reykjavík; Kristín, f. 12.7. 1964,
kennari í Reykjavík, gift Karli
Ingvari Egilssyni rafeindavirkja
og eru synir þeirra Egill, f. 18.3.
1991, og Kristinn, f. 29.11. 1995; Sig-
urjón, f. 27.3. 1970, búsettur i Nes-
kaupstað; Rán, f. 26.4. 1976, búsett
í Neskaupstað.
Hálfsystkini Kristins, samfeðra,
eru Bergþóra, búsett í Reykjavík;
Jórunn, búsett í Reykjavík; Krist-
ín, búsett í Bandaríkjunum.
Foreldrar Kristins: Sigurður
Kristinsson, f. 27.10. 1912, fyrrv.
bifreiðarstjóri í Reykjavík, og Sig-
ríður Helga Jónsdóttir, f. 25.11.
1910, d. 25.9. 1978, verkakona í
Reykjavík.
Ætt
Sigurður var bróðir Guðmund-
ar, föður Sigurðar, forstjóra Hús-
næðisstofnunar ríkisins. Sigurður
var sonur Kristins, trésmiðs í
Reykjavík, Gíslasonar, b. á Högna-
stöðum i Hreppum, Jónssonar, b. í
Efra-Langholti, Magnússonar, b. í
Efra-Langholti, Eiríkssonar, ætt-
föður Bolholtsættarinnar, Jóns-
sonar. Móðir Gísla var Kristín
Gísladóttir, b. í Litlu-Tungu, Jóns-
sonar. Móðir Kristínar var Ástríð-
ur, systir Einars, langafa Önnu,
móður Ingólfs Jónssonar ráðherra.
Ástríður var dóttir Gunnars, b. í
Hvammi á Landi, Einarssonar og
Kristínar Jónsdóttur, b. á Vindási,
Bjarnasonar, ættföður Víkings-
lækjarættarinnar, Halldórssonar.
Móðir Kristins var Guðrún, systir
Kristinn Sigurðsson.
Halldórs, afa Halldórs V. Sigurðs-
sonar ríkisendurskoðanda. Guð-
rún var dóttir Álfs, b. í Einkofa á
Eyrarbakka, Jónssonar, b. í Tungu
í Flóa, Ólafssonar. Móðir Jóns var
Sesselja Aradóttir, b. á Eystri-
Loftsstöðum, Bergssonar, ættföður
Bergsættarinnar, Sturlaugssonar.
Móðir Álfs var Gróa Álfsdóttir,
systir Þórunnar, langömmu
Ástríðar, ömmu Víglundar Þor-
steinssonar, formanns Félags ís-
lenskra iðnrekenda.
Móðir Sigurðar var Kristín Guð-
mundsdóttir, b. á Leifsstöðum í
Öxarfirði, Þorgrímssonar, b. á Há-
mundarstöðum í Vopnafirði, Pét-
urssonar, bróður Þorbjargar,
langömmu Jóns Ólafssonar rit-
stjóra.
Sigríður var dóttir Jóns Sig-
urðssonar frá Sælingsdal, verka-
manns í Reykjavík, af Ormsætt, og
Sigríðar Guðmundsdóttur, b. á
Kirkjubóli í Firði, Bjarnasonar.
Móðir Sigríðar Guðmundsdóttur
var Salóme Gunnlaugsdóttir.
Guðmundur Páll Steindórsson
Guðmundur Páll Steindórsson
ráðunautur, Seljahlíð 5d, Akur-
eyri, verður fimmtugur á nýárs-
dag.
Starfsferill
Guðmundur er fæddur í Þrí-
hyrningi í Hörgárdal þar sem
hann ólst upp og átti heimili fram
yfir tvítugt. Hann lauk gagnfræða-
prófi frá Héraðsskólanum á Laug-
arvatni 1962, búfræðiprófi frá
Bændaskólanum á Hvanneyri 1966
og er búfræðikandídat frá fram-
haldsdeild sama skóla frá 1970.
Frá þvi að Guðmundur lauk
námi á Hvanneyri hefur hann
starfað hjá samtökum bænda í
Eyjafirði, fyrst hjá Búnaðarsam-
bandi Eyjafjarðar, síðan Sam-
bandi nautgriparæktarfélaga Eyja-
fjarðar þar til það félag var sam-
einað Búnaðarsambandi Eyja-
íjarðar að hann gerðist starfsmað-
ur Búnaðarsambandsins aftur og
hefur unnið þar síðan. Guðmund-
ur hefur verið í kynbótanefnd
Búnaðarfélags íslands, nú naut-
griparæktarnefnd, um árabil, sat í
stjórn Ungmennasambands Eyja-
Ijarðar um tíma og í nokkur ár í
stjórn leikdeildar Ungmennafélags
Skriðuhrepps. Þá hefur Guðmund-
ur verið í stjórn Sögufélags Eyja-
fjarðar í nokkur ár og er nú for-
maður þess. Hann var í ritnefnd
Byggða Eyjafjarðar 1990 sem Bún-
aðarsamband Eyjafjarðar gaf út
árið 1993.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 16.6. 1968
Svanhildi Kristínu Axelsdóttur, f.
14.4. 1948 í Bakkakoti í Stafholtst-
ungum, húsmóður og starfsmanni
á Endurhæfingarstöðinni Bjargi.
Hún er dóttir Axels Adólfs Ólafs-
sonar, f. 12.12.' 1909, d. 10.2. 1993,
bónda í Bakkakoti, og k.h., Krist-
ínar Kristjánsdóttur húsfreyju, f.
18.6. 1917, nú búsettrar í Borgar-
nesi.
Börn Guðmundar og Svanhild-
ar: Steindór, f. 28.1. 1968, líffræð-
ingur, búsettur í Kópavogi, starfs-
maður Delta í Hafnarfirði, sambýl-
iskona Sigrún Valdimarsdóttir
húsmóðir og íslenskunemi í HÍ og
á hún soninn Sverri; Sigríður f.
23.3. 1975, stúdent frá MA og au
pair í Bandaríkjunum; Rannveig f.
19.8. 1979, nemi í MA.
Guðmundur Páll Steindórsson.
Bræður Guðmundar: Haukur, f.
11.1. 1940, bóndi i Þríhyrningi;
Sturla, f. 5.4. 1942, d. 8.11. 1943;
Þórður Vilhelm, f. 22.5.1948, bóndi
í Þríhyrningi.
Foreldrar Guðmundar: Jón
Steindór Guðmundsson f. 28.2.
1905, d. 14.6. 1966, bóndi í Þríhyrn-
ingi, og k.h., Helga Guðríður Þórð-
ardóttir, f. 2.3. 1911, d. 19.9. 1991,
húsmóðir.
Guðmundur verður að heiman
á afmælisdaginn.
Egill Ásgrímsson
Egill Ásgrímsson pípulagninga-
meistari, Svarthömrum 25, Reykja-
vík, verður fertugur á morgun.
Starfsferll
Egill fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í Álfheimunum. Hann
stundaði nám við Iðnskólann í
Reykjavík, lærði pípulagnir, lauk
sveinsprófi í þeirri grein 1979 og
öðlaðist síðan meistararéttindi.
Egill hefur lengst af starfað við
pípulagnir og við lagnir á vatnsúð-
unarkerfum sl. tíu ár. Hann stofn-
aði, ásamt sambýliskonu sinni fyr-
irtækið Sprinker-pípulagnir sem
sérhæfir sig í vatnsúðunarkerfum
og hafa þau starfrækt það síðan.
Fjölskylda
Sambýliskona Egils er Svava
Svavarsdóttir, f. 29.2. 1956, en hún
starfar við fyrirtæki þeirra. Svava
er dóttir Svavars Þórðarsonar,
verkamanns í Vestmannaeyjum,
sem nú er látinn, og Þórunnar Sig-
urjónsdóttur húsmóður.
Dætur Egils frá fyrra hjóna-
bandi eru Heiða Björk, f. 7.2. 1977;
Ebba, f. 3.2. 1980.
Stjúpdóttir Egils og dóttir Svövu
er Þórunn Elsa Bjarnadóttir, f.
12.6. 1975. Sonur Svövu er Guð-
Guðrún Lísa
Óskarsdóttir
Guðrún Lísa Óskarsdóttir kenn-
ari, Eskihlíð 22, Reykjavík, verður
sextug á nýársdag.
Starfsferill
Guðrún fæddist í Vestmannaeyj-
um og ólst þar upp. Hún lauk
handavinnukennaraprófl 1957, prófi
frá Handíða- og myndlistaskólanum
1979, stundaði framhaldsnám í
handlistum við KHÍ 1983 og lauk
heimilisfræðikennaraprófi 1990.
Guðrún var handavinnukennari
við Húsmæðraskóla Suðurlands á
Laugarvatni 1957-60, stundaði al-
menna kennslu við Barnaskóla
Vestmannaeyja 1960-73, stundaði
handavinnukennslu og almenna
kennslu við Grunnskólann í Þor-
lákshöfn 1973-1984, var handa-
vinnukennari við Húsmæðraskól-
ann á Laugum 1985-86 og hefur
verið kennari við Foldaskóla í
Reykjavík frá 1986.
Fjölskylda
Guðrún giftist 6.5. 1967 Ólafi Ed-
vinssyni, f. 17.9.1934, d. 10.12. 1995,
sjómanni. Hann var sonur Edvins
Sigmunds Olsen, sjómanns frá
Sandi í Sandey í Færeyjum, og Sú-
sönnu Katarin húsmóður. Guðrún
og Ólafur slitu samvistum 1981.
Börn Guðrúnar eru Óskar Þór
mundur Ingi, f. 18.7. 1979.
Börn Egils og Svövu eru Agla
Egilsdóttir, f. 15.7. 1989; Dóra Sif
Egilsdóttir, f. 13.7. 1991; Ásgrímur
Gunnar Egilsson, f. 1.12. 1993.
Systkini Egils eru Steinar, f. 9.3.
1953, búsettur í Bandaríkjunum;
Jón Þór, f. 2.5. 1957, pípulagninga-
maður í Reykjavík; Guðjóna, f.
4.11. 1959, stundar veitingarekstur
í Reykjavík; Ólafur, f. 29.12. 1967,
pípulagningamaður í Reykjavík.
Foreldrar Egils eru Ásgrímur
Gunnar Egilsson, f. 18.5.1926, pípu-
lagningameistari i Reykjavík, og
Jónheiður Guðjónsdóttir, f. 2.2.
1926, húsmóðir.
Guðrún Lísa Óskarsdóttir.
Sigurðsson, f. 26.3. 1960, véltækni-
•fræðingur hjá Vinnuvélaeftirliti
ríkisins, búsettur í Þorlákshöfn,
kvæntur Ástu Margréti Grétars-
dóttur, markaðsfræðingi hjá Meit-
linu i Þorlákshöfn; Andri Ólafsson,
f. 20.2. 1965, smiður í Reykjavík,
kvæntur Ernu Jónsdóttur, þjóni og
skrifstofumanni hjá Jafnréttisráði
og eru synir þeirra Fannar, f. 31.8.
1987, og Hákon, f. 23.2. 1993; Sús-
anna Ólafsdóttir, f. 5.3. 1968, bú-
fræðingur og aðstoðarkona tann-
læknis, búsett í Mosfellsbæ, en
maður hennar er Guðmundur
Björgvinsson, búfræðingur og sím-
smiður, og er sonur þeirra Rúrik
Dan Jónsson, f. 12.12. 1984.
Systir Guðrúnar er Þórunn Ólý
Óskarsdóttir, f. 11.11. 1947, félags-
ráðgjafi og forstöðumaður ung-
lingaathvarfsins að Keilufelli í
Reykjavík.
Foreldrar Guðrúnar: Óskar
Jónsson, útgerðarmaður í Vest-
mannaeyjum, og Ásta Jónsdóttir
húsmóðir.