Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Qupperneq 2
2
’réttir
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996 JLlV
Líffæraflutningar til Svíþjóöar:
Dagur á gjörgæslu
kostar 300 þúsund
- sjúklingar geta verið rólegir, segir Karl Steinar Guönason
„Dagurinn á gjörgæslu í Svíþjóð
kostar 300.000 krónur svo þetta er
fljótt að fara í háar tölur. Heil-
brigðisráðherra átti væntanlega
við að einn einstaklingur hefði
kostað íslenska ríkið allt að eitt
hundrað milijónir króna. Kostnað-
urinn var vegna aðgerðar og eftir-
meðferðar vegna höfnunar á liffær-
um og umönnun í sambandi við
það,“ segir Karl Steinar Guðnason,
forstjóri Tryggingastofnunar ríkis-
ins. Heilbrigðisráðherra, Ingibjörg
Pálmadóttir, sagði í ræöu á
fimmtudagskvöld að einn einstak-
lingur gæti kostað íslenska ríkið
allt að 100 milljónum króna. Sam-
kvæmt heimildum DV var einung-
is um eitt svo dýrt tilfelli að ræða.
Hagræðingar leitað
Tryggingastofnun og heilbrigð-
isráðuneytið hafa sagt upp samn-
ingmn við Sahlgrenska sjúkrahús-
ið í Gautaborg um líffæraflutn-
inga. Verið er að reyna að ná
samningum við Svíana um lægra
verð. Karl Steinar sagði í samtali
við DV að enginn fótur væri fyrir
því að Svíar borguðu lægra verð
en við íslendingar fyrir líffæra-
flutninga. Hann sagði að málið
væri þó í athugun. Meðcdverð á
hjartaígræðslu er átta milljónir,
lifrarígræðslu sex milljónir, nýrna-
ígræðslu þrjár milljónir og mer-
gígræðslu átta milljónir sam-
kvæmt tölum frá Tryggingastofn-
un ríkisins. Þessar tölur eru mið-
aðar við að allt gangi vel. Kostn-
aður eykst gífurlega ef eftirmeð-
ferðin lengist. Þess vegna ætlar
nefnd á vegum Tryggingastofnun-
ar að leita hagræðingar um eftir-
og fyrirmeðferð.
„Sumir þurfa fyrst að fara út í
nokkurs konar mat hjá læknum
sem gera aðgerðimar. Það getur
kostað í kringum tvær milljónir.
Samtals var rúmlega 320 milljón-
um varið í líffæraígræðslu á síð-
asta ári. Sjúklingar sem bíða núna
þurfa ekki að vera kvíðnir því að
ekki verði staðið við skuldbinding-
ar. Það verður gert,“ segir Karl
Steinar.
Verið er að tala um hagræðingu
en ekki niðurskurð þannig að sjúk-
lingamir þurfi ekki að líöa. Nefnd
frá Tryggingastofnun er að störf-
um og leitar hún leiða um hvort
gera megi aðgerðimar á ódýrari
hátt án þess að það komi niður á
gæðum. Eitt af því sem verið er að
Leigubílaakstur ríkisins:
Ríkiskaup
sömdu við BSH
Skrifað var undir samning
hjá Ríkiskaupum í gærmorgun
við Bifreiðastöð Hafnarfjarðar,
BSH, um leigubílaakstur á höf-
uðborgarsvæðinu fyrir stofnanir
ríkisins aðrar en Ríkisspltalana.
Samið var um 21% afslátt af
hverjum akstri.
Samningurinn tekur gildi í
áfongum þar sem í dag eru ein-
ungir 25 bílar hjá BSH. Fyrst í
stað mun hann taka til aksturs I
Hafnarfirði, Kópavogi, Garðabæ
og Bessastaðahreppi auk akst-
urs fyrir Ríkisútvarpið. Póstur
og sími bætist við 1. mars og 1.
apríl öll ráðuneyti og aðrar rík-
isstofnanir.
Eins og fram hefur komið í
DV höfnuðu Ríkiskaup öllum til-
boðum í leigubílaaksturinn en
samningur upp á 35,5% afslátt
hjá Hreyfli rann út um síðustu
mánaðamót. Hreyfill og BSR
buðu saman í aksturinn með
10% afslætti. BSH tók ekki þátt í
útboðinu og gengu Ríkiskaup til
samninga við þá stöð með fyrr-
greindum árangri. -bjb
Eldur í Fljótshlíð:
Mikill reykur
frá hálmi
Þegar bóndinn á Rauðuskrið-
um í Fljótshlíð kom út frá síð-
degiskaffinu í gær sá hann
mikinn reyk stíga frá gömlu
fjárhúsi sem er sambyggt við
fjósið á bænum. Eldur hafði
komið upp í hálmhrúgu inni í
fjárhúsinu. Slökkviliðið á
Hvolsvelli var kvatt á vettvang
og tókst því að slökkva eldinn á
skömmum tíma. Ábúendur
náðu að koma kúnum út úr
fjósinu og varð þeim ekki
meint af reyknum.
Skemmdir reyndust minni
en á horfðist. Sperrur í þaki
fjárhússins sviðnuðu og
reykræsta þurfti fjósið. -bjb
Jóhannes Marteinsson, varðstjóri hjá lögreglunni í Kópavogi, fekk það verkefni að taka sokkaleistana af númera-
piötu bílsins sem þjófarnir voru á þegar þeir voru gripnir glóðvolgir í innbroti. DV-mynd S
Tveir þjófar gómaðir glóövolgir:
Bílnúmerin hulin
með sokkaleistum
Lögreglan í Kópavogi gómaði tvo
unga menn sl. fimmtudagsmorgun
þar sem þeir voru að bera þýfi út úr
íbúðarhúsi í bíl sem stóð þar fyrir
utan. Lögreglan rak augun í bílinn
þar sem skráningarnúmerið að aft-
an var hulið með sokkaleistum!
Mennirnir voru teknir til yfir-
heyrslu og gátu að sjálfsögðu ekki
annað en játað á sig verknaðinn.
Þeir hafa ekki áður komið við sögu
lögreglunnar í Kópavogi. -bjb
Arekstrahrina
á Akureyri
Skyndileg hálka á Akureyri gerði
ökumönnum þar lífið leitt í gær.
Frá hádegi og þar til um sexleytið
síðdegis urðu sjö árekstrar í og viö
bæinn. Engin slys urðu á fólki en i
tveimur árekstranna urðu töluverð-
ar skemmdir á farskjótum.
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já Jj
Nel 2 |
r ö d
FÓLKSIN
904-160^
Hvort viltu brú eða göng
undir Hvalfjörð?
Skattskýrslan má bíða til mánudags
Annríki var á öllum skattstofum í landinu í gær því að tími skattframtalanna
er kominn og margir eflaust á síðustu stundu með framtalið. Skattstjórar
hafa auglýst að undanförnu að frestur til að skila inn skattframtali renni út í
dag. Samkvæmt stjórnsýslulögum er þó heimilt að skila skattframtalinu inn
á mánudag. Myndin var tekin á Skattstofunni í Reykjavík við Tryggvagötu í
gær þar sem fólk stóð í biðröð við að sækja um frest eða skila inn framtali.
DV-mynd GS
skoða er hvort eitthvað af eftir-
meðferð, eftirlit eða aðgerðir verði
flutt til íslands. Karl Steinar bend-
ir á að mikil þekking sé til á þess- ’
um sviðum á íslandi. -em |
stuttar fréttir
Ómögulegt frumvarp
Að mati foimannafundar ASÍ,
j sem fram fór í Ölfúsborgum, þreng-
ir ffumvarp um samskiptareglur á
vinnumarkaði samnings- og verk-
| fallsrétt og brýtur í bága viö stjóm-
arskrá og mannréttindasáttmála
1 Evrópu.
8.
Vaxtahækkun í bönkum
Búnaðarbankinn, íslandsbanki -
og sparisjóðirnir ætla að hækka
vexti út- og innlána á morgun.
Samkvæmt RÚV er ástæða hækk-
unar aukinn verðbólga á næstu
mánuðum.
Sænskt fyrirtæki á Krókinn
Kaupfélag Skagfirðinga á í við-
ræðum um kaup á sænsku raf-
einda- og stáliðnaðarfýrirtæki til
Sauðárkróks. Samkvæmt frétt RÚV
í gæti verið um 40 ný störf að ræða.
Braggi hrundi
Braggi í eigu Steypustöðvarinn-
v ar í Ártúnshöfða hrundi undan
| snjófargi síödegis i gær. Engin slys
urðu á mönnum en til stóð að rifa
| braggann, sem er nærri 50 ára, í
I næstu viku.
Nýr hótelstjóri KEA
Elías Bj. Gíslason hefur verið
ráðinn hótelstjóri á Hótel KEA á
l Akureyri.
Handritakomu minnst
Innan skamms mun Árnastofn-
Iun minnast þess að 25 ár eru liðin
frá því fyrstu handritin komu til
landsins frá Danmörku. Samkvæmt
frétt RÚV eru enn eftir 100 handrit
í Danmörku sem eiga heima á ís-
1 landi.
Breyting á refsilögum
Samkvæmt nýrri breytingartil-
lögu á refsilögum verður óheimOt
að' smána eða ráðast opinberlega á
'H samkynhneigða. Brot á þessum lög-
um geta varðað allt að 2 ára fang-
í elsi.
Steinullargróöi
A síðasta ári varð 35 milljóna
króna hagnaður af rekstri Steinull-
arverksmiðjunnar á Sauðárkróki.
IArið 1994 varð 6,6 milljóna hagnað-
ur.
Línuafli til aflamarks
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið að allur línuafli, sem land-
að er eftir 15. febrúar, skuli reikn-
ast til aflamarks fiskiskipa.
| Kaupmaöur dæmdur
Kaupmaður í Reykjavik hefur
verið dæmdur til aö greiöa samtök-
I 11111 hljómplötuútgefenda, flytjenda
Íog tónskálda 20 þúsund krónur með í
vöxtum fyrir að hafa opið fyrir út-
varp í verslun sinni. RÚV greindi
frá þessu. -bjb