Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Side 4
fréttir
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996 DV
Fiskvinnslufólk telur sig svikiö:
Atvinnurekendur fundu
gat í samningunum
- til að segja fastráðnu fólki upp í hráefnisskorti, segir Pétur Sigurðsson, formaður ASV
„Fiskvinnslnfyrirtæki hafa í
áraraðir leikið þann leik í des-
ember að segja fiskvinnslufólki
upp og hafa borið við hráefnis-
skorti. Þá hefur fólkið farið á at-
vinnyuleysisbætur þar til það er
ráðið aftur til vinnu eftir áramót.
í kjarasamningunum í fyrra
samþykkti verkalýðshreyfingin
að fiskvinnslufólk þyrfti að vinna
í 9 mánuði áður en það fengi fast-
ráðningarsamning í staðinn fyrir
2 mánuði áður. Þetta var gert
vegna þess að um leið þóttust
menn vera að semja um að fast-
ráðna fólkinu yrði ekki framar
sagt upp i desember. Þetta voru
kaup kaups eins og alltaf í samn-
ingum.
Síðan biðu menn eftir að sjá
hvað gerðist í desember síðast-
liðnum. Ég og fleiri töldum okkur
sjá að gloppa væri í samningun-
um sem gerði þeim kleift að segja
fólki upp í desember þótt samið
hefði verið um annað. Og það
gerðist. Fiskvinnslufólki var sagt
upp þrátt fyrir allt, jafnvel þótt
það hefði verið keypt í kjarasamn-
ingum að fólki yrði ekki sagt upp
með því að lengja tíma til fast-
ráðningar úr 2 mánuðum í 9 mán-
uöi,“ segir Pétm- Sigurðsson, for-
maður Alþýðusambands Vest-
íjarða og formaður stjómar At-
vinnuleysistryggingasjóðs.
Hann segir aö atvinnurekendur
hafi fengið meira en breytinguna
úr 2 mánuðum í 9 mánuði út úr
öllu saman.
„í kauptryggingarsamningun-
um er þaö þannig að þegar skort-
ur verður snögglega á hráefni og
atvinnurekendur geta ekki sagt
fólki upp með fyrirvara fær fólk
greidd full laun, samkvæmt þeim
launatöxtum sem því ber. At-
vinnuleysistryggingasjóður greið-
ir af þeim launum sem nemur at-
vinnuleysisbótum en atvinnurek-
endur það sem á vantar upp í
þann launaflokk sem hver og einn
er í. Áður þurftu atvinnurekend-
ur að greiða tryggmgagjald af
þessum launum eins og öllum
öðrum. Nú þurfa þeir þess ekki og
það er Atvinnuleysistrygginga-
sjóður sem greiðir þaö. Þeir fengu
þetta í gegn vegna þess að þeir
sögðust vera að taka á sig kvaöir
í síðustu samningum með því að
geta ekki sagt fastráðnu fólki upp
eins og áður,“ sagði Pétur Sig-
urðsson.
-S.dór
Hálfdán á Kvískerjum og Sigurður Bjarnason, Hofsnesi, í hellinum.
DV-mynd Eris
Nyr ishellir i Oræfum
sá flottasti í heiminum
DV, Öræfum:
ísland er enn í smíðum og langt
frá því að náttúran sé stöðnuð og til-
breytingarlaus. Á hverju ári erum
við minnt á þetta í formi eldgosa,
jarðskjálfta, jökulhlaupa og stór-
brotinna hreyfmga jökla, svo eitt-
hvað sé nefnt.
í byrjun desember gerðist það til
dæmis að Breiðá i Breiðamerkur-
jökli breytti skyndilega um farveg
undir jöklinum og braust með lát-
um út á nýjum stað. Hún ruddi sér
nýjan farveg, 15 metra djúpan og 70
metra breiðan, sennilega á fáeinum
klukkustundum. Nú hefur komið í
ljós að þar sem áin kom út áður hef-
ur hún skilið eftir sig glæsilegan ís-
helli sem nær meira en 100 metra
inn í jökulinn og er um það bil 15
metra breiður.
Fréttaritari DV fór, ásamt Hálf-
dáni Bjömssyni á Kvískerjum, að
skoða íshellinn en hinir náttúru-
fróðu bræður á Kvískerjum hafa
fylgst vel með þessum atburðum.
Til að komast að hellinum gátum
við valið um að vaða yfir ískalda
Breiðána eða ganga yfir ísilagt
Breiðárlónið. Við völdum síðari
kostinn en rétt er að vara við að ís-
inn á því er oft ótryggur. Þegar fer
að vora og vaxa í ánni verður eina
leiðin að hellinum að ganga á jökul.
Hálfdán er ekki viss um að íshell-
irinn muni endast lengi. Jökullinn
er á hreyfingu og ekki gott að segja
hvað gerist þegar sól fer að hækka á
lofti. En í dag er ljóst að flottasta ís-
helli í heimi er að finna í Öræfum.
-Eris
Enn eru tollverðirnir hrelldir:
Bíll í eigu foreldra tollvarðar skemmdur
- fíkniefnasalar grunaðir um verknaðinn
„Fyrst menn ráðast á eignir er að-
eins spurning hvenær þeir fara út í
meira. Bíll foreldra minna, sem er
eins og minn bíll, var skemmdur fyr-
ir utan heimili þeirra. Afturrúða í
bílnum var mölbrotin og lágu gler-
brotin út um allt inni i bílnum. Það
var aðeins hugsað um að skemma bíl-
inn og engu var stolið," sagði toll-
vöröur í einkasamtali við DV. Hann
vildi ekki láta nafns síns getið vegna
þeirrar hættu sem hann telur sig vera
í. Atvikið átti sér stað um áramótin.
„Þeir hafa fundið nafnið mitt í
símaskránni en þar er ég skráður
með heimili hjá foreldruni mínum og
ek á nákvæmlega eins bíl. Ég bý hins
vegar ekki hjá þeim. Þetta átti að
vera minn bíll sem var eyðilagður,"
sagði tollvörðurinn.
Heimildarmenn DV segja öruggt að
fíkniefnasalar séu á ferð og vilji valda
tollvörðum sem mestu fjárhagslegu
tjóni. Þetta mál skýri það. Tollgæslan
hefur fundið talsvert af fíkniefnum að
undanfórnu sem fíkniefhasalar hafa
reynt að smyglá til landsins og því
vilja fíkniefnasalar hefna sín á toll-
vörðum og valda þeim fjárhagslegu
tjóni.
DV skýrði frá því á mánudaginn
þegar bíU tollvarðar var skemmdur
fyrir utan heimili hans. Aðeins var
hugsað um að valda tollverðinum
sem mestu fjárhagslegu tjóni. Vitað
er um skemmdir sem unnar hafa ver-
ið á heimilum tveggja annarra toll-
varða, rúður voru m.a. brotnar hjá
þeim.
„Það kom fyrst upp i huga minn
hvort þetta væri virkilega að gerast
hjá mér. Enginn virðist vera óhultur
og maður fer að verða hræddur um
börnin. Þegar ég las fréttina í DV fór
ég að hugsa málið betur. Þetta virðist
vera harður heimur I kringum fíkni-
efnin og þessir menn víla ekkert fyr-
ir sér,“ sagði tollvörðurinn. -ÆMK
Formaður Samtaka fiskvinnslustöðva:
Hér er um hrein-
an misskiln-
ing að ræða
- breytingum fylgdu aukin réttindi verkafólks
„Hér er um hreinan misskilning
að ræða hjá Pétri Sigurðssyni. Það
er ekkert samhengi á milli þess að
það var lengt úr 2 mánuðum í 9
mánuði að fólk fái fastráðningu og
þess að hægt sé að taka fólk út af
launaskrá í hráefnisskorti," sagði
Arnar Sigurmundsson, formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva, í sam-
tali við DV.
Hann segir að í síðustu kjara-
samningum hafi verið samið um að
eftir 9 mánaða starf fari fólk sjálf-
krafa inn á kauptryggingu. Og
einnig er það svo að ef manneskja
vinnur í 5 mánuði í fyrirtæki, hætt-
ir, en byrjar svo aftur löngu síðar og
vinnur þá í 4 mánuði þá er hún
komin á kauptryggingu. Einnig
væri mikill munur á þeim réttind-
um sem starfsfólk hefði öðlast með
þessum samningum. Nú væri ekki
lengur hægt að segja upp fastráðn-
ingunni sérstaklega nema menn
gerist brotlegir í starfi. Það sem aft-
ur á móti gerist í hráefnisstoppum
er að tilkynnt er til vinnumiðlunar
að hráefnislaust verði í fyrirtækinu
frá og með ákveðnum degi. Frá og
með þeim degi fer fólk út af launa-
skrá og atvinnuleysisbætur taka
við.
„Það varð engin breyting í sið-
ustu samningum hvað það varðar
að hægt sé að tilkynna vinnslustopp
í fyrirtækjunum sem aðallega reyn-
ir á um áramót. Það verður bara að
standa að því með löglegum fyrir-
vara samkvæmt samningum," sagði
Amar.
Varðandi önnur atriði er Pétur
nefnir, svo sem launagreiðslur úr
Atvinnuleysistryggingasjóði, segir
Arnar að það sé allt rétt en það hafi
ekki verið samið um það í fyrra,
það sé eldra. Þá er það þannig nú að
tveir fyrstu dagarnir í hverju stoppi
hjá fiskvinnslustöðvum lentu á at-
vinnurekendum en nú eru það að-
eins tveir dagar á ári. Þannig að
endurgreiðslan hefur aukist nokk-
uð, að sögn Amars. -S.dór
Númer klippt af slökkvibíl á leið á verkstæði:
Ekki verið skoðaður í 9 ár
- er til sölu hjá Ríkiskaupum
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði 30
ára gamlan slökkvibíl af gerðinni
Bedford á Sæbrautinni á miðviku-
dagskvöldið og klippti af skráningar-
númerin þar sem bíllinn hafði ekki
verið skoðaður síðan 1987 eða í níu
ár. Bíllinn hefur verið í eigu Áburð-
arverksmiðju ríkisins í Gufunesi en
er til sölu hjá Ríkiskaupum.
Hugsanlegir kaupendur vom með
bílinn á leiðinni á verkstæði þegar
þeir vora stöðvaðir á honum af lög-
reglu. Ætluðu þeir sér að skoða bíl-
inn nánar með tilliti til þess hvort
það borgaði sig að kaupa hann. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Ríkiskaup-
um er óljóst hvort af kaupunum verð-
ur.
Samkvæmt lögum um starfsenfi
Áburðarverksmiðjunnar var hún
skylduð til að hafa slökkvibíl á at-
hafnasvæðinu í Gufunesi. Fór bíllinn
því aldrei út fyrir svæðið. Notkunin á
honum hefur þar af leiðandi verið
afar lítil og mun hann ekki vera ek-
inn meira en 1.300 kílómetra. -bjb
Hér klippa tveir vaskir lögregluþjónar aftara bílnúmerið af slökkvibíl Áburð-
arverksmiðjunnar sem ekki hafði verið skoðaður í 9 ár. DV-mynd S